Morgunblaðið - 29.01.2020, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 9. J A N Ú A R 2 0 2 0
Stofnað 1913 24. tölublað 108. árgangur
FRÁFALL KOBE
GRÁTIÐ Í BORG
ENGLANNA
BÓKASPJALL
TIL HEIÐURS
JÓHÖNNU
MIKLAR
ÁSKORANIR Í
NETVERSLUN
MARGBROTIN KONA 10 VIÐSKIPTAMOGGINNKÓNGURINN KVADDUR 27
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Svartsengi Þar eru orkuver og Bláa lónið,
sem er mjög fjölsótt allan ársins hring.
Veðurstofa Íslands hefur bætt við
mælum og mun fá aðgang að gögn-
um úr mælum annarra til að geta
betur fylgst með þróun mála í ná-
grenni við Þorbjörn hjá Grindavík.
Í gær stóð til að setja upp tvo GPS-
mæla, annan uppi á Þorbirni og
hinn vestan við fjallið.
Auk eigin jarðskjálftamæla mun
Veðurstofan fá gögn úr þremur til
fjórum mælum til viðbótar. ÍSOR
hóf þyngdarmælingar á svæðinu í
gær auk þess sem þangað kemur
færanleg ratsjá og LIDAR-mælir.
»4
Fleiri mælar og
aukin vöktun á
Reykjanesskaganum
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Ljósið í myrkrinu var að kínverska nýárið
væri að koma en það gekk ekki eftir. Við erum
að upplifa hrun,“ segir verslunareigandi í mið-
borg Reykjavíkur. Rekstrartölur bendi til að
hver Kínverji eyði að meðaltali fjórum sinnum
meira en hver Bandaríkjamaður. Hlutfallið sé
tveir til þrír á móti einum í öðrum verslunum.
Viðskipti Kínverja í kringum kínverska ný-
árið hafi skilað verslun hans einni bestu viku
ársins í fyrra. Nýárið hafi þá verið síðar á ferð
en í ár, eða 5. febrúar. Eftir ferðabann kín-
verskra stjórnvalda í kringum nýárið síðustu
helgi hafi tekjur af vörum sem eru eftirsóttar
af Kínverjum minnkað um 60-70% milli ára.
Stóra myndin sé sú að fjárfest hafi verið
fyrir milljarða, ef ekki tugi milljarða, í mið-
borginni síðustu ár með væntingar um tvær og
hálfa milljón ferðamanna í fyrra og svo enn
fleiri næstu ár. Hins vegar hafi aðeins komið
um tvær milljónir ferðamanna í fyrra og óvíst
um framhaldið.
Samverkandi þættir valda niðursveiflu
Samhliða hafi miðborgarsvæðið verið stækk-
að vestur að Granda og austur fyrir Hlemm.
Fyrir vikið sé framleiðslugetan langt umfram
eftirspurn. Erfiðleikar flugfélaga, kóróna-
veiran og fleira hafi breytt stöðunni. Horfur
séu á að veturinn verði jafn erfiður og haustið.
Sumarið muni ráða miklu um framhaldið.
Hjá Rannsóknasetri verslunarinnar fengust
þær upplýsingar að tölur um kortaveltu Kín-
verja væru ekki ábyggilegar. Ástæðan væri
meðal annars sú að þeir notuðu orðið mikið
Alipay í viðskiptum.
Ólafur Torfason, stjórnarformaður Íslands-
hótela, segir stöðuna grafalvarlega. Við ferða-
bannið bætist óvissa á Reykjanesi.
Kristófer Oliversson, formaður fyrirtækja í
hótel- og gistiþjónustu (FHG), segir óvíst
hvort kínverskir ferðamenn sem afbókuðu Ís-
landsferðir muni eiga rétt á endurgreiðslu.
Eigandi hótelíbúða í miðborginni hafði bók-
að 40% færri gistinætur 20. janúar en í fyrra.
Samdráttur hjá samanburðarhópi var 45%
milli ára.
Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efna-
hagssviðs SA, segir launaþróun hjá hótelum og
veitingahúsum ekki vera sjálfbæra.
Eykur samdrátt milli ára
Verslunareigandi í miðborginni segir kínverska nýárið hafa skilað einni bestu söluviku ársins í fyrra
Salan sé nú 60-70% minni eftir ferðabannið í Kína Forstjóri Íslandshótela segir stöðuna alvarlega
Dæmi um áhrif ferðabannsins
Rauntölur úr verslun í miðborginni*
*Samkvæmt
upplýsingum
frá eiganda.
60-70% samdráttur í sölu á vörum sem eru vinsælar hjá Kínverjum
4x meiri verslun hjá hverjum Kínverja en hjá hverjum Bandaríkjamanni
MViðskiptaMogginn
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhenti Ís-
lensku bókmennaverðlaunin 2019 við hátíðlega
athöfn á Bessastöðum í gærkvöldi. Í flokki fræði-
bóka og rita almenns efni fékk verðlaunin Jón
Viðar Jónsson fyrir Stjörnur og stórveldi á leik-
sviðum Reykjavíkur 1925-1965. Steingrímur
Steinþórsson, útgefandi bókarinnar, sem veitti
verðlaununum viðtöku fyrir hönd höfundar. Við
hlið Steingríms er Bergrún Íris Sævarsdóttir, sem
fékk verðlaun í flokki barna og ungmennabókina
fyrir Langelstur að eilífu og lengst til hægri er
Sölvi Björn Sigurðsson sem féllu verðlaunin í
skaut í fagurbókmenntaflokki fyrir skáldverkið
Selta – Apókrýfa úr ævi landlæknis. Hver höf-
undur fær eina milljón króna í verðlaunafé. »28
Morgunblaðið/Eggert
Íslensku bókmenntaverðlaunin afhent
„Við erum ekki
aðeins að reka
sveitarfélag held-
ur að búa til sam-
félag. Allir eru
samtaka í því,“
segir Aldís Haf-
steinsdóttir, bæj-
arstjóri í Hvera-
gerði. „Við lítum
á þessa könnun
sem mikilvægt
stjórntæki þar sem við sjáum hvar
við stöndum,“ segir Gunnar Einars-
son, bæjarstjóri Garðabæjar. Þessi
tvö sveitarfélög koma einna best út
úr viðhorfskönnun Gallup á þjón-
ustu sveitarfélaga. Þau eru ofar-
lega í flestum atriðum. »14
„Erum að búa
til samfélag“
Garðabær Gang-
braut máluð.