Morgunblaðið - 29.01.2020, Page 4

Morgunblaðið - 29.01.2020, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2020 Smiðshöfða 9, 110 Rvk. logoflex@logoflex.is 577 7701 www.logoflex.is Skiltagerð Ljósaskilti, álskilti, umferðarmerki LogoFlex sérhæfir sig í framleiðslu skilta, prentunum og smíði úr plasti ásamt efnissölu á plexigleri og álprófílum Vegagerðin hefur aukið þjónustu á vegum sem liggja að og frá Grinda- vík. Suðurstrandarvegur var þjón- ustaður fimm daga í viku og Nesveg- ur í þrjá daga. Þeir njóta nú báðir sjö daga þjónustu eða sömu þjónustu og Grindavíkurvegurinn, sem er aðal- samgönguæð Grindvíkinga. Suður- strandarvegur liggur austur með ströndinni til Þorlákshafnar en Nes- vegur vestur með ströndinni og út á Reykjanes og þaðan norður í Hafnir. Aðaláherslan er lögð á að tryggja flóttaleiðir til austurs og vesturs frá Grindavík, að sögn Vegagerðar- innar. Þetta er gert vegna óvissu- stigs almannavarna vegna mögu- legrar kvikusöfnunar vestan við fjallið Þorbjörn sem er í næsta ná- grenni við Grindavík. Vaktstöð Vegagerðarinnar í Reykjavík fékk fyrirmæli um að vera til taks til að sinna þeirri þjónustu sem almannavarnir óska eftir, en sólarhringsvakt er í vaktstöðinni. Eftirlit verður aukið með ástandinu á Suðurstrandarvegi og Nesvegi og séð verður til þess að þeir verði færir alla daga og án flughálku. Krýsu- víkurvegur var einnig inni í mynd- inni fyrst í stað en sú leið verður að teljast víkjandi, að sögn Vegagerðar- innar. Áhyggjur vegna mögulegrar rým- ingar og ástands akstursleiða til og frá Grindavík komu m.a. fram á fjöl- mennum íbúafundi sem var haldinn þar í fyrradag. Bílstjóri sem ekur oft um Suðurstrandarveg sagði að þar mætti þjónustan vera betri. Nú hef- ur verið bætt úr því. gudni@mbl.is Greiðar leiðir frá Grindavík  Vegagerðin eykur þjónustu á leiðum til og frá bænum og er hún alla daga Akstursleiðir frá Grindavík Nesvegur Grindavík Kefl avík Grindavíkur- vegur Suðurstrandar- vegur REY KJAV ÍK Hafnir Landris á Reykjanesskaga Guðni Einarsson gudni@mbl.is Veðurstofa Íslands hefur bætt við mælum og mun fá aðgang að gögn- um úr mælum annarra til að geta betur fylgst með þróuninni við Grindavík. Í gær stóð til að setja upp tvo GPS-mæla, annan uppi á Þor- birni og hinn vestan við fjallið. Þar hefur orðið hratt landris og tíðir jarðskjálftar á svæðinu. Talið er að landrisið geti stafað af kvikusöfnun undir yfirborðinu. Í gær var það orð- ið þrír sentimetrar. „Við erum með nokkuð þétt kerfi jarðskjálftamæla þarna og höfum staðsett jarðskjálfta bæði norð- austan við Grindavík og aðeins fyrir vestan Þorbjörn,“ sagði Óðinn Þór- arinsson, framkvæmdastjóri athug- ana og tækni hjá Veðurstofu Ís- lands. Einn jarðskjálftamæla Veðurstofunnar er vestan við Grindavík, annar á Reykjanestá og einnig eru mælar í Vogum og í Krýsuvík. Þá fær Veðurstofan að- gang að gögnum úr 3-4 jarðskjálfta- nemum á svæðinu sem notaðir hafa verið við sérstaka rannsókn. Gögn- unum verður miðlað inn í kerfi Veðurstofunnar og gera kleift að mæla smærri skjálfta auk þess sem hægt verður að staðsetja þá með meiri nákvæmni. Gervitungl sjá landrisið Gervitunglamyndir koma að góð- um notum við að meta landrisið. Óðinn segir að gervitungl fari reglu- lega yfir landið og taki nákvæmar myndir með sérstakri tækni. Mynd- irnar eru svo bornar saman við eldri myndir og þá koma í ljós breytingar ef verða. Af þessum myndum hefur sést greinilega að land er að rísa vestan við Þorbjörn. Veðurstofan rekur GPS-mæla- kerfi sem er dreift um Reykjanes- skaga. Það mælir færslur á yfirborði jarðar, t.d. vegna gliðnunar jarð- skorpunnar. Jarðvísindastofnun HÍ hefur einnig lagt út GPS-mæla þarna sem ekki hafa verið tengdir kerfi Veðurstofunnar í rauntíma. Óðinn segir unnið að því að Veður- stofan fái aðgang að gögnum úr þessum mælum til að fá enn ná- kvæmari upplýsingar en áður. Þyngdarhröðun mæld Ákveðið var á fundi vísinda- mannaráðs á sunnudaginn var að gera þyngdarmælingar á svæðinu. Það er að mæla þyngdarhröðun jarðar. Hún er mæld með mjög ná- kvæmum tækjum sem mæla breyti- leika á þyngdarhröðun frá einum stað til annars. Þyngdarhröðunin er mismikil eftir því hver þéttleiki jarð- laga er á hverjum stað. Starfsmenn ÍSOR hófu mælingarnar í gær. Mæl- ingarnar nú eru grunnur fyrir endurteknar mælingar til að meta breytingar. Ef kvika með annan eðlismassa en hraunið í kring er þarna á ferðinni munu þyngdarmæl- ingar yfir ákveðinn tíma sýna það. Veðurstofan er með ratsjá á Mið- nesheiði, sem er fyrst og fremst veðurratsjá. Hún hefur gefið upplýs- ingar um gosmekki sem stigið hafa upp frá eldfjöllum innan sjónsviðs hennar á undanförnum árum. Veð- urstofan á tvær færanlegar ratsjár sem eru staðsettar við eldfjöll sem talin eru líkleg til að gjósa hverju sinni. Ein hefur verið í Gunnarsholti á Rangárvöllum þaðan sem sér til Kötlu og Heklu. Hin hefur verið á Kirkjubæjarklaustri þaðan sem sér til Vatnajökuls. Önnur þeirra verður nú flutt á Reykjanesskagann. Þá á Veðurstofan einnig færan- legan LIDAR-mæli sem er notaður til að mæla gosösku í lofti. Það skipt- ir m.a. máli þegar ákveðið er hvort flugvellir eiga að vera opnir eða lok- aðir vegna ösku. LIDAR-mælirinn verður einnig fluttur á svæðið. „Við viljum vera viðbúin öllu og ætlum að vakta þetta eins vel og við mögulega getum,“ sagði Óðinn. Grindavík í gjörgæslu vöktunar  Veðurstofa Íslands bætir við mælitækjum á Reykjanesskaga  Fær aðgang að gögnum úr mælum í eigu annarra  ÍSOR hóf þyngdarmælingar í gær  Veðurstofan vaktar svæðið eftir bestu getu Bandaríska flotanum var strax gert viðvart um mögulega hættu á eldgosi vestan við Þor- björn en þar á hann fjarskipta- stöð. Advania sér um rekstur stöðvarinnar, það er fjarskipta- möstrin, viðhald, uppitíma og vöktun í stöðinni. Hún er þar ná- lægt sem landrisið hefur mælst. Flotinn fylgist náið með stöð- unni. Samkvæmt upplýsingum frá Advania fara þau eftir ráðlegg- ingum almannavarna og geta rýmt vinnustöðina með skömm- um fyrirvara, gerist þess þörf. Fjarskiptatöðin hefur verið rek- in frá því á 7. áratug 20. aldar. Hæsta mastur hennar er yfir 300 metra hátt. Er nálægt landrisinu FJARSKIPTASTÖÐ FLOTANS Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Reykjanesskagi Horft til Grindavíkur. Fjallið Þorbjörn er til vinstri og fjarskiptastöð bandaríska flotans til hægri. Grindavík Bæjarbúar fylgjast vel með og eru upplýstir um gang mála. Vel er fylgst með þróuninni og mikill tækjabúnaður notaður við vöktunina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.