Morgunblaðið - 29.01.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2020
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
Stóll á snúningsfæti
í ítölsku nautsleðri
75 cm á breidd
Verð frá 120.000 kr.
Ómar Ragnarsson, flugmaðurmeð meiru, segir að hugsan-
lega verði „umbrotin við Svarts-
engi til þess að menn fari að
endurskoða þann einbeitta vilja
ráðamanna að
leggja Reykjavíkur-
flugvöll niður og
reisa hundraða
milljarða flugvöll
við Hvassahraun í
staðinn.
Í umræðunni um
gildi flugvallar-
svæðisins í Reykja-
vík hefur verið þrástagast á því, að
þangað þurfi að laða hátæknifólk
og hátæknistörf og því haldið
fram, að ef þessi flugvöllur hefði
ekki verið gerður, hefði engin
byggð risið austan Elliðaáa, held-
ur hefðu þeir, sem á því svæði búa
nú, safnast í þétta og „betri
byggð“ í Vatnsmýrinni – 130 þús-
und íbúar í mýrinni, hvorki meira
né minna!
Á bak við hátæknitalið liggur sáhugsunarháttur, að flug og
tengd starfsemi sé lágtækni með
skítugan flugvirkja með skiptilykil
sem nokkurs konar tákn. En 75
prósent af starfi flugvirkja er
reyndar hátæknilegt bókhald við
skrifborð.
Þessi löngu úrelti hugsunar-háttur um einföldu skíta-
djobbin er í besta falli broslegur,
en einnig skaðlegur og lýsir mikilli
vanþekkingu á eðli þeirra starfa,
sem vinna þarf til þess að halda
uppi flugstarfsemi í fremstu röð í
heiminum, sem eigi með tengdum
störfum næstum 40 prósent hlut-
deild í þjóðarbúskapnum.“
En auðvitað veit Ómar innstinni að það þarf meira en eld-
gos ofan í nefið á mönnum og
borðleggjandi staðreyndir til þess
að þagga niður þráhyggju sem
þeir hafa bitið í sig.
Ómar
Ragnarsson
Hraunað yfir
þráhyggjuna
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Herjólfur sigldi í fyrsta sinn á
hreinu rafmagni á milli Vestmanna-
eyja og Landeyjahafnar fyrir há-
degi í gær.
„Við fyrstu sýn lítur þetta bara
vel út,“ sagði Guðbjartur Ellert
Jónsson, framkvæmdastjóri Herj-
ólfs ohf., um rafmagnssiglinguna.
Hann segir rafmagnssiglingarnar
enn í prufufasa og enn sé ekki hægt
að hlaða Herjólf við bryggju í Land-
eyjahöfn. Unnið sé að því að forrita
hleðslubúnaðinn sem þar hefur ver-
ið settur upp fyrir skipið. „Góðir
hlutir gerast hægt,“ segir fram-
kvæmdastjórinn.
„Á næstu dögum fáum við ein-
hverjar frekari fregnir af því
hvernig þessu verkefni mun fram
vinda, en allavega var þessi sigling í
morgun ágæt, hún gefur þægilega
niðurstöðu,“ sagði Guðbjartur í
samtali eftir siglinguna í gær.
Gefið var út í gær að Herjólfur
myndi sigla til Landeyjahafnar
næstu daga, en mikið hefur verið
siglt á Þorlákshöfn í vetur vegna
veðurs. „Aðstæður þar eru ágætar,
það er ágætt dýpi eins og staðan er
og við erum bara ánægðir með það,
þegar færi gefst á að sigla í Land-
eyjar,“ segir Guðbjartur.
Rafmögnuð sigling til Landeyjahafnar
„Við fyrstu sýn lítur þetta bara vel
út,“ segir framkvæmdastjóri Herjólfs
Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson
Herjólfur Skipið mun sigla til Land-
eyjahafnar næstu daga.
Minjastofnun gerir ýmsar athuga-
semdir við lagafrumvörp um Þjóð-
garðastofnun og þjóðgarða annars
vegar og
Hálendis-
þjóðgarð
hins vegar.
Á heimasíðu
stofnunar-
innar segir
m.a. að ljóst
sé að verði
frumvörpin að lögum óbreytt muni
það hafa veruleg áhrif á fram-
kvæmd minjavörslu í landinu og
skapa óvissu um stjórnsýslu mála-
flokksins á um 40% landsins. Mikil-
vægt sé að hin nýju lög verði ekki
til þess að flækja umhverfi minja-
vörslu og skapa óvissu um valdsvið
og hlutverk stofnana eins og yrði ef
ekki verður unnið betur með frum-
varpið.
Í umsögn er bent á að samhliða
stofnun Hálendisþjóðgarðs sé nauð-
synlegt að gert sé ráð fyrir auknu
fjármagni til Minjastofnunar. Nú
þegar hafi stofnunin þurft að verja
miklum tíma í vinnu vegna friðlýs-
inga og verndunaráforma á vegum
Umhverfisstofnunar og umhverfis-
og auðlindaráðuneytis á sama tíma
og hún hafi þurft að sleppa og velta
mikilvægum og nauðsynlegum
verkefnum á undan sér vegna fjár-
skorts.
Efla þarf Minjastofnun
„Ekki hefur verið gert ráð fyrir
auknu fjármagni til stofnunarinnar
af hálfu yfirvalda í tengslum við
þessa vinnu, sem er til komin vegna
áherslu á friðlýsingar. Ljóst er að
útgjöld Minjastofnunar og vinnu-
álag muni aukast verulega með
stofnun þjóðgarðs. Er því nauðsyn-
legt að efla Minjastofnun Íslands
eigi að vera hægt að uppfylla mark-
mið þjóðgarðsins um verndun
menningarminja,“ segir í umsögn
um Hálendisþjóðgarð. Í umsögn um
Þjóðgarðastofnun segir einnig að
gera þurfi ráð fyrir auknum fjár-
veitingum til Minjastofnunar.
Í umsögn sinni um Hálendisþjóð-
garð vekur Minjastofnun athygli á
því að ekkert samráð var haft við
stofnunina meðan á vinnu tveggja
nefnda um Hálendisþjóðgarð stóð.
aij@mbl.is
Vinnuálag og út-
gjöld munu aukast
Minjastofnun gerir athugasemdir við
lagafrumvörp Óvissa um stjórnsýslu