Morgunblaðið - 29.01.2020, Page 11

Morgunblaðið - 29.01.2020, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2020 Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14 40-50% AFSLÆTTI Misty ÚTSALA ÚRVAL AF NÁTT- OG HEIMAFATNAÐI Á Hamraborg 10, Kópavogi Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18 VERIÐ VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU ——— Tilvikum þar sem lögreglumenn voru beittir ofbeldi eða hótað of- beldi fjölgaði í seinasta mánuði frá mánuðinum á undan. Á öllu sein- asta ári voru skráð um 23 prósent fleiri tilvik þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi en skráð voru að meðaltali síðustu þrjú ár á undan. Þetta kemur fram í mán- aðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu þar sem teknar eru saman upplýsingar um tölfræði afbrota í desember- mánuði. Skráð voru samtals 633 hegn- ingarlagabrot á höfuðborgarsvæð- inu í desember og kemur fram í skýrslunni að þessum brotum fækkaði töluvert á milli mánaða. „Skráðum ofbeldisbrotum fækk- aði töluvert á milli mánaða og á fækkunin við um bæði minniháttar og meiriháttar líkamsárásir. Árið 2019 bárust um sex prósent færri tilkynningar um ofbeldisbrot en bárust að meðaltali síðustu þrjú ár á undan,“ segir í umfjöllun. Þar kemur hins vegar fram að skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði lítillega á milli mánaða og voru tvö stórfelld fíkniefnabrot skráð á höfuðborgarsvæðinu í desember. Fleiri umferðarlagabrot Tilkynningum um þjófnaði fækkaði á milli mánaða og var þar helst að sjá fækkun á þjófnuðum á farsímum og reiðhjólum en á hinn bóginn fjölgaði tilkynningum lítið eitt þar sem ökumaður var grun- aður um ölvun við akstur. Samtals voru skráð 757 um- ferðarlagabrot í seinasta mánuði að undanskildum brotum sem náð- ust á hraðamyndavélar og yfir allt seinasta ár má sjá að skráð voru 8% fleiri umferðarlagabrot en að meðaltali síðustu þrjú ár á undan. Morgunblaðið/Eggert Brot Tilvikum fjölgaði þar sem lögreglumenn urðu fyrir ofbeldi. Fleiri ofbeldisbrot gegn lögreglu  633 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í desember  Færri þjófnaðir Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Samningur um iðnþjarka eða róbóta upp á rúmlega einn milljarð, sem tæknifyrirtækið Samey í Garðabæ gerði á síðasta ári við norskt laxeld- isfyrirtæki, er með stærri samning- um sem fyrirtækið hefur gert. Samey hefur selt róbóta og kerfi sem tengjast þeim víða, en af alls 120 þjörkum er um helmingurinn í Noregi. Flestir eru þeir í fyrirtækj- um sem tengjast laxeldi og segir Kristján Ármannsson, yfirmaður tæknilegra lausna hjá Samey, að gott orðspor sé besta auglýsingin. Eldisfyrirtækið Sinkaberg- Hansen í Rörvik fyrir norðan Þrándheim er að byggja nýtt hátæknisláturhús. Það samdi við Samey um kaup á sex þjörkum og voru tveir þeirra settir upp í eldra sláturhúsi. Fjórir róbótar fara beint í nýtt sláturhús sem verður komið í rekstur vorið 2021. Síðasti áfangi samningsins verður að flytja eldri róbótana tvo yfir í nýja húsið. Þjarkarnir koma frá japanska fyrirtækinu Fanuc Robotics, en Samey sér um lagnir, færibönd, ör- yggiskerfi og fleira og smíðar marg- víslegan annan búnað sem sérhæf- ing hússins kallar á. Þjarkarnir sjá um að taka frauðplastskassa með pökkuðum laxi af færiböndum og koma á bretti. Tengdir fjölda færibanda Kerfið getur afgreitt 44 kassa á mínútu og er tengt fjölda færi- banda. Sambærilegar verksmiðjur eru keyrðar 10-16 tíma á dag. Miðað er við að afkastageta aukist með til- komu nýja sláturhússins úr 45 þús- und í 100 þúsund tonn á ári. Þar vegur framlag hraðvirkra þjark- anna mikið og nokkur tonn sem hver þeirra lyftir. Kristján segir að rúmlega 20 manns starfi hjá Samey hér á landi við smíðar á tæknibúnaði og upp- setningu, en fyrirtækið er einnig með rekstur í Litháen. Hann segir að verkefnastaðan fram undan sé góð. Morgunblaðið/Hari Samey Kristján Ármannsson segir að róbótar frá fyrirtækinu séu víða not- aðir hjá fiskeldisfyrirtækjum, en yfir 20 manns starfa hjá Samey í Garðabæ. Selja þjarka fyrir rúmlega milljarð  Margir róbótar frá Samey í Noregi „Við erum vel í stakk búin fyrir framtíðarviðræður okkar við Bret- land og hlökkum til að takast á við þetta mikilvæga verkefni. Markmið okkar er að gera nýjan samning sem tryggir langvarandi tengsl ríkjanna, þar á meðal á sviði við- skipta,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. Guð- laugur undirritaði í gær ásamt utanríkisráðherrum Noregs og Liechtenstein samning við Bretland vegna útgöngu Bretlands úr Evr- ópska efnahagssvæðinu. Samning- urinn við Ísland og hin EFTA-ríkin innan EES leysir úr viðeigandi út- gönguskilmálum með sambæri- legum hætti og gert er í útgöngu- samningi Bretlands og ESB. Samningur vegna útgöngu Bretlands Undirritun Utanríkisráðherrar Noregs, Liechtenstein og Íslands ásamt útgöngu- málaráðherra Bretlands við athöfn í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.