Morgunblaðið - 29.01.2020, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2020
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Yfirvöld í Hong Kong tilkynntu í
gær að þau hygðust takmarka fjölda
þeirra sem ferðuðust á milli borg-
arinnar og meginlands Kína vegna
lungnabólgufaraldursins sem nú
geisar þar. Staðfest var í gær að
meira en hundrað manns hefðu lát-
ist af völdum nýju kórónaveirunnar,
og er fjöldi smitaðra nú sagður rúm-
lega 4.500 manns, en í fyrradag var
áætlað að um 2.700 hefðu fengið
lungnabólguna.
Carrie Lam, héraðsstjóri Hong
Kong, hvatti í gær íbúa borgarinnar
sem væru á meginlandi Kína til þess
að snúa aftur sem fyrst, en vitað er
um átta tilfelli í Hong Kong. Sagði
hún að þeir sem sneru aftur ættu
svo að halda sig heima við í tvær
vikur, en það er tíminn sem tekur
fyrir veiruna að mynda einkenni.
Flugferðum milli Kína og Hong
Kong hefur verið fækkað um helm-
ing og dregið hefur verið verulega
úr fjölda ferjusiglinga milli sjálf-
stjórnarhéraðsins og meginlands
Kína. Þá hefur öllum sem heimsótt
hafa Hubei-hérað sem ekki eru íbú-
ar Hong Kong verið bannað að
koma til borgarinnar.
Barist við „djöfullegan“ vírus
Xi Jinping, forseti Kína, sagði í
gær að landið ætti nú í baráttu við
„djöfullegan“ vírus, en Xi fundaði í
gær með Tedros Adhanom Ghebre-
yesus, framkvæmdastjóra Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar, WHO.
Xi sagði að ekki mætti „leyfa
þessum djöfli að fela sig“, og lofaði
því í samtali sínu við Ghebreyesus
að kínversk stjórnvöld myndu vera
gagnsæ og senda frá sér allar upp-
lýsingar um faraldurinn eins fljótt
og auðið væri. Kínversk stjórnvöld
gera nú ráð fyrir að faraldurinn
muni ná hámarki í næstu viku eða
tíu dögum.
Á kínverskum samfélagsmiðlum
mátti hins vegar greina reiði með
það hvernig embættismenn í
Wuhan-borg og Hubei-héraði hefðu
brugðist við ástandinu þegar veiran
lét fyrst á sér kræla, en slæleg við-
brögð þeirra hefðu orðið til þess að
lungnabólgan varð að faraldri.
Fyrsta smitið í Evrópu
Tilkynnt var um tvö tilfelli
lungnabólgunnar í gær, sem stað-
fest var að hefðu smitast án þess að
viðkomandi hefði sjálfur farið til
Wuhan-borgar, þar sem kórónaveir-
an var fyrst uppgötvuð. Annars veg-
ar var um að ræða rútubílstjóra í
Japan, sem hafði keyrt tvo ferða-
hópa frá Wuhan-borg fyrr í jan-
úarmánuði. Hins vegar smitaðist
Þjóðverji á fertugsaldri af kín-
verskri samstarfskonu sinni frá
Sjanghæ, sem hafði ferðast til
Þýskalands í síðustu viku. Fólkið
vinnur fyrir bílapartafyrirtækið
Webasto, en það hefur skrifstofur í
báðum ríkjum. Tilkynnti fyrirtækið
í gær að það hygðist ekki senda
starfsfólk sitt til eða frá Kína næstu
tvær vikurnar í kjölfar tilfellisins í
gær, en það var fyrsta skráða tilfelli
smits milli fólks í Evrópu.
Undirbúa brottflutning
Þá tilkynntu fleiri ríki að þau
hygðust flytja ríkisborgara sína
heim frá Wuhan-borg, en bæði
Frakkland og Japan hugðust gera
það á næstu dögum.
Þannig tilkynnti framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins í gær að
hún hefði náð samkomulagi við
frönsk stjórnvöld um að mæta
kostnaði við að sækja Frakka til
Wuhan-borgar, gegn því að ríkis-
borgarar Evrópusambandsríkjanna
yrðu gjaldgengir í seinni flugferðina
af þeim tveimur sem frönsk stjórn-
völd höfðu lagt á ráðin um. Gert er
ráð fyrir að um 250 Frakkar verði
fluttir á brott í fyrri vélinni og að
um hundrað ríkisborgarar Evrópu-
sambandsríkjanna verði með í för í
þeirri seinni.
Í tilkynningu Evrópusambands-
ins var tekið fram að enginn yrði
fluttur á brott nema hann væri heil-
brigður eða án einkenna veirunnar,
en gera má ráð fyrir að viðkomandi
verði settir í tveggja vikna einangr-
un við komuna til Evrópu.
Meira en hundrað látnir
Tilfellum lungnabólgunnar fjölgar hratt Hong Kong takmarkar ferðir til og
frá Kína Fyrsta smit manna á milli í Evrópu ESB undirbýr brottflutning
AFP
Faraldur Hótelstarfsfólk í Wuhan sést hér stunda líkamsrækt meðan farið er yfir nýjar reglugerðir um viðbrögð við
lungnabólgufaraldrinum sem geisar nú í borginni. Meira en 100 manns hafa nú látist af völdum kórónaveirunnar.
Kórónaveiran
» 106 manns eru nú sagðir
látnir af völdum lungnabólg-
unnar.
» Rúmlega 4.500 eru sagðir
hafa smitast af veirunni.
» Tvö staðfest tilfelli hafa
komið upp hjá fólki sem ekki
hefur komið sjálft til Kína.
» Nokkur ríki undirbúa að
flytja þegna sína frá Kína.
Þrír þingmenn
repúblikana í
öldungadeild
Bandaríkjaþings
hafa gefið til
kynna að þeir
vilji kalla John
Bolton, fyrrver-
andi þjóðar-
öryggisráðgjafa
Donalds Trumps
Bandaríkja-
forseta, til sem vitni í réttarhöld-
unum sem nú fara fram í deildinni.
Mitt Romney, þingmaður Utah-
ríkis, sagðist telja mikilvægt að
heyra hvað Bolton hefði fram að
færa um málið. Þingmennirnir
Susan Collins frá Maine og Lisa
Murkowski frá Alaska hafa einnig
gefið til kynna að þær vilji kalla
Bolton til sem vitni. Óvíst er hvort
tilskilinn atkvæðafjöldi til að svo
megi verða náist og er líklegt að
greidd verði atkvæði um vitna-
leiðslur á föstudaginn.
Mögulegt að kallað
verði á Bolton
BANDARÍKIN
Mitt
Romney
Bresk stjórnvöld
samþykktu í gær
að veita kín-
verska síma-
fyrirtækinu Hua-
wei takmarkað
leyfi til þess að
taka þátt í upp-
byggingu 5G-
samskiptanets
fyrir Bretlands-
eyjar.
Bandaríkjastjórn lýsti yfir von-
brigðum sínum með ákvörðun
Breta, en Bandaríkjamenn hafa
haldið því fram að Huawei sé ekki
treystandi fyrir aðgangi að upp-
byggingu 5G þar sem fyrirtækið
hafi of náin tengsl við stjórnvöld í
Kína og gæti því liðkað fyrir
njósnatilraunum Kínverja á Vest-
urlöndum. Dominic Raab, utan-
ríkisráðherra Bretlands, sagði hins
vegar enga ástæðu til að óttast að
leynileg samskipti stjórnvalda við
bandamenn sína yrðu í hættu, þrátt
fyrir ákvörðunina.
Veita Huawei tak-
markað 5G-leyfi
Dominic
Raab
STÓRA-BRETLAND
Donald Trump Bandaríkjaforseti
kynnti í gærkvöldi nýja áætlun sína
um varanlegan frið í deilunum fyrir
botni Miðjarðarhafs. Sagði Trump
að áætlunin færði bæði Ísraelsmönn-
um og Palestínumönnum ávinning
frá núverandi ástandi. Í áætluninni
er gert ráð fyrir að Jerúsalem verði
óskipt höfuðborg Ísraels en að
höfuðborg Palestínumanna verði í
austurhluta borgarinnar.
Friðaráætlunin er á um 80 blaðsíð-
um og sagði Trump á blaðamanna-
fundi sínum að hún væri líklega síð-
asta tækifæri Palestínumanna til
þess að tryggja sér sjálfstætt ríki. Í
áætluninni er gert ráð fyrir að pal-
estínska ríkið myndi ná yfir sam-
liggjandi landsvæði, en væri ekki
skipt í tvo mismunandi hluta, líkt og
sjálfstjórnarsvæði þeirra eru nú.
Benjamín Netanyahu, forsætis-
ráðherra Ísraels, var viðstaddur til-
kynningu Trumps og sagði áætlun
hans vera sögulega. Hún viður-
kenndi bæði rétt Ísraels til land-
svæða sem skiptu máli til að verja
öryggi landsins, sem og rétt Palest-
ínumanna til að mynda eigið ríki.
Sagði Netanyahu að áætlun Trumps
næði réttu jafnvægi og lýsti því yfir
að hann væri reiðubúinn til að ræða
frið á grundvelli áætlunarinnar.
Óvíst um samþykkt
Ekki var hins vegar vitað hvort
leiðtogar Palestínumanna væru jafn-
reiðubúnir til friðarviðræðna.
Mahmoud Abbas, leiðtogi Palestínu-
manna, lýsti sig andvígan áætluninni
áður en nokkuð hafði verið kynnt um
innihald hennar, en talið var að hún
yrði vilhöll Ísraelsmönnum.
Mótmælt var víða í sjálfstjórnar-
héruðum Palestínu í gær. Þúsundir
Palestínumanna tóku þátt í mótmæl-
um á Gaza-svæðinu, brenndu myndir
af Trump sem og bandaríska fánann.
Jerúsalem verði
höfuðborg beggja
Donald Trump
leggur til tveggja
ríkja lausn
AFP
Áætlun Donald Trump og Benjamín
Netanyahu í Washington í gær.
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000
www.itr.is