Morgunblaðið - 29.01.2020, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Það hefur ef-laust komiðmörgum
óþægilega á óvart
þegar greint var
frá því í fyrra-
kvöld að íslenskt
par væri í ein-
angrun á Spáni vegna gruns
um að þau hefðu smitast af
nýju kórónaveirunni sem
valdið hefur lungnabólgu-
faraldrinum síðustu vikurnar í
Kína. Sem betur fer kom í ljós
að svo var ekki, en tíðindin
sýna svo ekki verður um villst
að faraldurinn er farinn að
banka allfast á dyrnar hér.
Ríkislögreglustjóri hafði,
áður en fréttist af einangrun
fólksins á Spáni, þegar lýst yf-
ir óvissustigi almannavarna
vegna veirunnar, en slíkri
yfirlýsingu er ætlað að setja
alla viðeigandi aðila í við-
bragðsstöðu fyrir það sem
koma skal. Þetta verður að
teljast hyggileg varúðarráð-
stöfun, en fastlega er gert ráð
fyrir að veiran berist hingað
til lands. Ef til vill hefur hún
gert það nú þegar, þar sem
svo virðist sem hún geti smit-
ast manna á milli löngu áður
en einkenna verður vart.
Það flækir stöðuna að svo
virðist sem fyrstu tilfelli veik-
innar hafi komið upp um
tveimur vikum fyrr en áður
var talið, í upphafi desem-
bermánaðar frekar en rétt um
áramótin eins og áður var
ætlaðs. Allt lítur því út fyrir
að kínversk stjórnvöld hafi
verið of svifasein til þess að
koma í veg fyrir að veikin yrði
að faraldri, þrátt fyrir að þau
hafi síðan sett á laggirnar
stærstu sóttkví sem sögur
fara af.
Þó að kínversk stjórnvöld
hafi brugðist á margan hátt
betur við en þau gerðu þegar
SARS-faraldurinn kom upp
árið 2003 er engu að síður
áleitin spurning hvers vegna
um mánuður leið frá því að
fyrstu tilfellin komu upp þar
til viðurkennt var að um
mögulegan faraldur væri að
ræða.
Borgaryfirvöld í Wuhan,
þar sem veikin kom fyrst upp,
telja raunar að um fimm millj-
ónir manna hafi náð að yfir-
gefa borgina áður en sóttkví
stjórnvalda var sett á lagg-
irnar. Vissulega eru ekki allir
af þeim fimm milljónum smit-
berar, en ýmislegt bendir til
þess að skaðinn sé þegar skeð-
ur. Þannig var greint frá
fyrsta smiti veirunnar manna
á milli í Evrópu, en þýskur
maður, sem hafði hvergi kom-
ið nærri Kína eða
Wuhan-borg,
smitaðist af kín-
verskri samstarfs-
konu sinni.
Í þessu sam-
hengi vekur vitan-
lega athygli
hversu treg Alþjóðaheil-
brigðisstofnunin, WHO, hefur
verið til þess að lýsa því yfir að
um alþjóðlegt hættuástand sé
að ræða. Slík yfirlýsing hefði
kallað á að ríki heims gerðu
viðeigandi ráðstafanir til að
koma í veg fyrir að veikin yrði
að alheimsfaraldri, meðal ann-
ars með ferðabönnum.
Þá var það fyrst nú á sunnu-
daginn sem stofnunin viður-
kenndi að hún hefði gert mis-
tök með því að lýsa því ekki
yfir að hættustig sjúkdómsins
væri „hátt“ á alþjóðavísu frek-
ar en „miðlungshátt“. Og fátt
benti til þess í gær eða fyrra-
dag að stofnunin teldi ástæðu
til að lýsa yfir neyðarástandi,
en rök forsvarsmanna hennar
hafa verið á þá leið að slík yfir-
lýsing gæti haft mikil og nei-
kvæð áhrif í sjálfu sér, sem
erfitt væri að réttlæta ef
ástandið hefði svo ekki reynst
eins alvarlegt og talið var.
WHO hefur reyndar áður
verið gagnrýnt fyrir slæleg
vinnubrögð að þessu leyti, en
stofnunin var heldur sein til að
lýsa því yfir að Ebólu-
faraldurinn árið 2014 kallaði á
alþjóðlegt neyðarástand, jafn-
vel þó að ljóst væri að sá far-
aldur hefði þegar lagt nokkur
ríki í Vestur-Afríku að fótum
sér.
Reynslan af SARS virðist
raunar hafa orðið til þess að
ríki heims hafa ekki beðið eftir
yfirlýsingu WHO, heldur hef-
ur í mörgum ríkjum verið tek-
ið upp á því að mæla hita flug-
farþega frá Wuhan og setja
fólk í einangrun sem grunur
leikur á að hafi smitast. Því
miður virðist sem þau úrræði
muni duga skammt til að hefta
útbreiðslu veirunnar.
Eins og fram kemur í frétt
hér að framan mælir sótt-
varnalæknir með því að ferða-
menn láti vera að ferðast að
nauðsynjalausu til svæða þar
sem kórónaveiran er orðin
faraldur. Þetta gefur í sjálfu
sér augaleið. En þó að eftir
þessu verði farið breytir það
engu um að líkur eru á að veir-
an berist hingað til lands og að
mikilvægt er að viðbúnaður sé
með besta móti. Þetta á meðal
annars við um flughöfnina í
Keflavík, þar sem líklegast er
að smit berist til landsins, og
heilbrigðisstofnanir landsins.
Líklegt er að kór-
ónaveiran berist
hingað og viðbún-
aður þarf að vera
samkvæmt því}
Hyggileg
varúðarráðstöfun
Í
síðustu viku var mælt fyrir fjölda Pír-
atamála á þingi og í gær bættust fleiri
á dagskrá, allt í allt 14 þingmál um alls
kyns málefni.
Þar er að finna gæðamál eins og raf-
ræn fasteignaviðskipti og ástandsskýrslur fast-
eigna, til þess að auka öryggi allra í kaupum og
sölu á fasteignum. Afnám takmarkana um
þjóðsöng Íslendinga af því að við eigum alveg
að geta flutt þjóðsönginn á nýjan og skapandi
hátt. Afnám banns við heimabruggun, af því að
þó að það sé bannað núna þá er því banni ekki
framfylgt. Það veldur ákveðnu óöryggi og
óvissu um geðþótta í framfylgni laga. Afnám
ókeypis lóða fyrir trú- og lífsskoðunarfélög því
það á ekki að lagalega skylda sveitarfélög til
þess að gefa frá sér lóðir. Gjaldfrjálsa rafræna
útgáfu stjórnartíðinda og lögbirtingablaðs, til
þess að bæta upplýsingaflæði og aðgengi að ákvörðunum
stjórnvalda. Rannsókn á fjárfestingarleið Seðlabanka Ís-
lands af því að það er rökstuddur grunur um að hún hafi
verið misnotuð. Uppgjörsmynt arðgreiðslna svo það sé
ekki hægt að hola banka út að innan með því að greiða eig-
endum arð í formi skuldabréfa, fasteigna og hlutabréfa.
Stofnun þings kjörinna fulltrúa innan Sameinuðu þjóð-
anna til þess að auka lýðræðislega aðkomu almennings á
þeim vettvangi. Afnám takmarkana í fæðingar- og for-
eldraorlofi þannig að foreldrar geti tekið fæðingarorlof í
styttri tíma en tvær vikur í senn, til dæmis þrjá daga í
viku. Afnám skerðingar lífeyris vegna miskabóta vegna
þess að miskabætur sem eru dæmdar fólki
eiga ekki að skerða lífeyri þess. Kjötrækt
vegna þess að ef við hættum verksmiðjufram-
leiðslu á dýrum leysum við loftslagsvandann
að mestu leyti. Breytingar á kosningarétti, að
afnema þörfina fyrir fólk að kæra sig inn á
kjörskrá af því að það er vesen að halda utan
um það hver detta út af kjörskrá og hver hald-
ast inni á kjörskrá ef þau muna eftir að kæra.
Breytingu á ársreikningum og hluthafaskrá
þannig að það sé gjaldfrjáls aðgangur að raf-
rænni útgáfu þeirra, af því að það skiptir máli
að allir geti skoðað eignatengsl og ársreikn-
inga. Að lokum er umræða um stofnun emb-
ættis tæknistjóra ríkisins sem er nýkomið úr
nefnd og skiptir miklu máli til þess að ná sam-
ræmingu í tæknimálum í öllum stofnunum og
ráðuneytum.
Öruggara húsnæði, meira lýðræði, meira frelsi, meira
gagnsæi, skýrari réttindi, loftslagsaðgerðir, aukin gæði.
Þetta er til viðbótar málum sem þegar eru komin í
vinnslu nefnda; fullgildingu þriðju valfrjálsu bókunar við
barnasáttmála SÞ, kæruheimildar samtaka til jafns á við
aðra aðila í umhverfismálum, afglæpavæðingu neyslu-
skammta ásamt átta öðrum málum í viðbót sem er ekki
pláss í þessum pistli til þess að nefna. Eitt hefur þegar
verið samþykkt; sjálfstætt eftirlit með störfum lögreglu.
Nóg að gera.
Björn Leví
Gunnarsson
Pistill
Fullt af Píratamálum
Höfundur er þingmaður Pírata. bjornlevi@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hveragerði, Garðabær ogMosfellsbær eru þausveitarfélög landsinssem íbúarnir eru ánægð-
astir að búa í. Garðabær og Hvera-
gerði skora síðan hæst í flestum lið-
um þjónustu, þegar viðhorf íbúanna
eru könnuð.
Gallup hefur í mörg ár gert
könnun á viðhorfum íbúa til þjón-
ustu sveitarfélaganna sem þeir búa í.
Undanfarin ár hafa það verið 19 fjöl-
mennustu sveitarfélögin en í ár eru
teknar saman niðurstöður fyrir 20
stærstu. Starfsmaður Gallup er
þessa dagana að ferðast um landið
til að kynna niðurstöður hvers og
eins sveitarfélags fyrir stjórnendum.
Sum sveitarfélögin birta ákveðna út-
gáfu af niðurstöðunum, sem þau
hafa leyfi til, en trúnaður á að ríkja
um aðrar, til dæmis röðun sveitar-
félaganna miðað við önnur. Þá kynn-
ir Gallup aðeins munnlega upplýs-
ingar þar sem fram kemur saman-
burður á milli nafngreindra sveitar-
félaga. Matthías Gísli Þorvaldsson,
viðskiptastjóri hjá Gallup, segist
vera í miðju verki að kynna niður-
stöðurnar fyrir kaupendum þjónust-
unnar en telur ekki útilokað að þær
verði síðar birtar opinberlega.
Ofan meðaltals
Með skoðun á fundargerðum
sveitarfélaga, viðtölum við sveitar-
stjórnarfólk og lestri greina í blöð-
um má sjá ákveðna mynd af því
hvaða sveitarfélög standa sig best, á
þennan mælikvarða skoðað.
Í könnuninni er spurt um við-
horf íbúa til 12 atriða auk þess sem
spurt er um úrlausn mála hjá starfs-
fólki hvers sveitarfélags. Sveitar-
stjórnarfólk lítur mikið til spurn-
ingarinnar um ánægju eða óánægju
fólks í heildina með sveitarfélagið
sem stað til að búa á. Þar eru þrjú
sveitarfélög með hæstu einkunn, 4,5
þegar meðaltalið er 4,2. Það eru
Hveragerði, Garðabær og Mosfells-
bær, í þessari röð þótt litlu muni.
Garðabær og Hveragerði eru í
efstu sætum í svörum við flestum
viðhorfsspurningum og yfir meðal-
tali á öllum sviðum nema í þjónustu
við fatlaða. Þar eru bæði þessi
sveitarfélög í meðallagi. Þau hafa
bætt sig á mörgum sviðum frá síð-
ustu könnun en dalað í einhverjum
tilvikum, eins og gengur. Garðabær
er í efsta sæti í ánægju með þjón-
ustu grunnskóla og í tveimur af
efstu sætum í nokkrum flokkum.
Hveragerði er í efsta sæti í nokkrum
spurningum.
Suðurnesjabær, sem varð til
með sameiningu Sandgerðis og
Garðs, tekur þátt í viðhorfskönn-
uninni í fyrsta skipti. Athygli vekur
hvað sveitarfélagið skorar hátt. Það
er til dæmis í 2.-3. sæti varðandi
ánægju með grunnskóla og í öðru
sæti þegar íbúar eru spurðir hvernig
starfsfólk sveitarfélagsins hafi leyst
úr málum þeirra.
Mikilvægt stjórntæki
„Við lítum á þessa könnun sem
mikilvægt stjórntæki þar sem við
sjáum hvar við stöndum. Stundum
höfum við rýnt nánar í niðurstöður
þátta þar sem við skorum ekki nógu
hátt og farið í markvissar aðgerðir
til að reyna að bæta okkur,“ segir
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri
Garðabæjar.
„Það er einstök samheldni og
samkennd í íbúahópnum. Það kemur
fram í svona könnun. Íbúar eru
ánægðir. Við erum ekki aðeins að
reka sveitarfélag heldur að búa til
samfélag. Allir eru samtaka í því,“
segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjar-
stjóri í Hveragerði.
Íbúar Hveragerðis og
Garðabæjar ánægðir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Blómstrandi bær Hvergerðingar eru í hópi þeirra íbúa sem eru ánægðir
með bæina sína og gefa þjónustu og starfsfólki almennt góða einkunn.
Reykjavíkurborg hefur lengi
komið illa út úr mælingum
Gallup á ánægju íbúanna með
þjónustu. Svo virðist einnig
vera nú. Reykjavíkurborg
hætti fyrir nokkrum árum að
kaupa þessar kannanir enda
væri þjónustan könnuð á ann-
an hátt á hennar vegum. Eigi
að síður eru Reykvíkingar
spurðir í könnuninni. „Meiri-
hlutinn vill ekki láta mæla sig
í samræmdum prófum sveitar-
félaganna. Ástæðan er
kannski sú að borgin hefur
mælst ákaflega lág og vill
kannski ekki fá upplýsing-
arnar upp á borðið,“ segir Ey-
þór Arnalds, oddviti sjálf-
stæðismanna í borgarstjórn.
Hann segir að samanburður
við önnur sveitarfélög sé
marktækur. Ekki sé gott þegar
þjónusta borgarinnar mælist
lágt. Stærsta sveitarfélag
landsins eigi að vera fyrir of-
an meðallag.
Vilja ekki
upplýsingar
REYKJAVÍK KEMUR ILLA ÚT