Morgunblaðið - 29.01.2020, Side 19

Morgunblaðið - 29.01.2020, Side 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2020 Breiðagerðisskóla og strákarnir mínir þrír nutu þess að mennta sig í gamla skólanum hans pabba. Einn daginn hafði hún samband og bað mig að koma á aðalfund foreldrafélagsins og bjóða mig fram í stjórn þess. Ég varð auðvitað við þessari bón og var kosinn. Það kom síðar í ljós að hún ætlaði mér leiða stjórn- ina og stakk hún upp á mér sem formanni á fyrsta stjórnarfundi. Það var samþykkt og hún sagði mér síðar að hún vildi hafa ein- hvern sem hún þekkti og treysti fyrir formann og varð ég nokk- uð uppveðraður yfir slíku hóli, þar sem mig rak ekki minni til að ég hefði verið í neinu sér- stöku uppáhaldi sem nemandi. Líklegra fannst mér að hún bæri þennan hug til okkar allra í gamla H-bekknum. Við áttum gott samstarf þau ár sem ég var viðloðandi for- eldrafélagið og nokkur ár þar á eftir. Hún bjó yfir góðum stjórnunarhæfileikum og kom sínu fram átakalaust. Ég valdi það í foreldraráðinu að skipta mér ekki af kennslustefnunni heldur beina áherslum að auknu félagsstarfi. Hrefnu líkaði vel þessi tilhögun enda voru for- eldrafélög í borginni á þessum árum byrjuð að skipta sér af kennsluháttum, ekki alltaf við mikla hrifningu kennara. Hún var farsæll skólastjóri og hélt vel utan um það sem henni var trúað fyrir. Ég veit að ég tala ekki bara fyrir sjálfan mig þegar ég hrósa happi yfir því að hafa fengið Hrefnu sem kennara öll barnaskólaárin, mestu mótunarár allra barna. Blessuð sé minning þín, Hrefna. Ásgrímur. Trúðu á tvennt í heimi tign sem hæsta ber: Guð í alheimsgeimi, Guð í sjálfum þér. (Steingr. Thorst.) Það er sagt að lengi búi að fyrstu gerð. Það sem við lærum og temjum okkur snemma á æv- inni lifir lengi með okkur, góðir siðir og þekking. Þetta á mjög vel við um kynni okkar af Hrefnu Sigvaldadóttur sem var umsjónarkennari okkar öll árin sem við vorum í barnaskóla. Það er ljóst þegar kemur að leið- arlokum og við kveðjum okkar kæra barnaskólakennara rúm- um sextíu árum eftir að leiðir okkar lágu fyrst saman, að „krakkarnir“ muna aragrúa smáatriða úr skólastarfinu á ár- unum 1958-1964. Minningarorð þessi hefjast á erindi sem Hrefna ritaði í minn- ingabók eins nemandans í átta ára bekk. Gamla bókin er löngu týnd en textinn hefur lifað með viðkomandi öll árin og aldrei gleymst. Hið sama má segja um minninguna um fyrsta kennar- ann okkar. Hennar leiðsögn og góða uppfræðsla tryggir henni ævarandi sess í æskuminning- um okkar skólasystkinanna. Síðla sumars 1958 komum við saman í skólastofu í Háagerðis- skóla, sem þá var meðal þess húsnæðis sem hverfisskólinn okkar, Breiðagerðisskóli, notað- ist við. Kennarinn okkar var hæglát ung kona, með svipmikið upplit og sjálfsöruggt fas. Smám saman bættist í vitneskju okkar um kennarann og við vissum að hún hafði spreytt sig á lögfræði í Háskólanum en kennarastarfið togaði stöðugt og hafði að lokum betur – bless- unarlega. Hópurinn okkar var allur úr hinu nýbyggða Smáíbúðahverfi og Bústaðahverfinu. Á þessum árum bættist ört í hóp íbúa og skólinn varð aldrei nógu stór til að rúma nemendahópinn með góðu móti fyrr en eftir okkar skólagöngu þar. Hópurinn sem hóf nám í sjö ára bekk H hjá Hrefnu var nokkuð svipaður að námsgetu, okkur var skipað í hópa eftir frekar einfaldri viðmiðun, lestrargetu við upphaf skóla. Hrefnu var treyst fyrir ærnu verkefni því hópurinn sem sótti sjö og átta ára bekk í Háagerð- isskóla taldi 31 nemanda við lok átta ára bekkjar og 35 við út- skrift úr tólf ára bekk. Kennslan var með hefð- bundnum hætti að þess tíma venju en þó má segja að „símat“ á námsárangri hafið farið fram. Þetta var gert með athuga- semdum sem færðar voru inn á töflu uppi á vegg, þegar við höfðum til dæmis náð tökum á tiltekinni margföldunartöflu, eða flutt kvæði í heyranda hljóði. Fyrir skrifleg verkefni voru færðar inn athugasemdir á síður vinnuheftanna okkar: Rauð stjarna, blá stjarna, rautt „gott“ og blátt „gott“ í þessari lækkandi virðingarröð! Og árin liðu og allir komust til nokkurs þroska, eins og segir í Heimskringlu. Við útskrifuð- umst úr barnaskóla í maí 1964 og kvöddum Breiðagerðisskóla, kvöddum Hrefnu – í bili. Leiðir hennar og nemenda hennar hafa legið saman endrum og sinnum í áranna rás og ætíð orðið miklir fagnaðarfundir. Nú er komið að öðrum leiðar- lokum og Hrefna er horfin á vit þeirrar tilveru sem við getum bara getið okkur til um hvernig sé. Við þökkum fyrir allt sem hún lét okkur í té á þessum sex árum, blessum minningu hennar og kveðjum Hrefnu – í bili. Fyrir hönd 12 ára H 1964, Flosi Kristjánsson. Kveðja frá Breiðagerðisskóla Fyrir stuttu barst okkur sem störfum við Breiðagerðisskóla í dag sú fregn að Hrefna Sig- valdadóttir, fyrrverandi skóla- stjóri skólans, væri látin. Nokk- uð er um liðið síðan Hrefna lauk sínum síðasta starfsdegi við skólann. Af þeim sökum eru ekki margir af núverandi starfs- mönnum skólans sem muna eft- ir Hrefnu á ferð um ganga skól- ans en einhverjir eru þó hér enn sem það gera. Skólastarf í Breiðagerðis- skóla var rétt nýhafið þegar Hrefna hóf störf við skólann rétt rúmlega tvítug að aldri. Fyrst starfaði hún sem kennari og síðan sem yfirkennari eins og starf aðstoðarskólastjóra kallað- ist þá. Árið 1978 tók hún við starfi skólastjóra og gegndi því til ársins 1996 þegar hún hætti störfum við skólann. Þá hafði hún starfað við skólann í hart- nær fjörutíu ár. Þótt það sé gjarnan viðkvæðið að skóla- stofnanir séu íhaldssamar í eðli sínu þá er staðreyndin sú að þær þróast rétt eins og sam- félagið sem þær þjóna. Í upp- hafi starfsferils Hrefnu var nemendum skipt í námshópa eftir getu, nemendahópar voru mjög fjölmennir og skólarnir þrískiptir. Árið 1977 voru ný grunnskólalög samþykkt og í þeim fólst grundvallarbreyting í allri hugsun í skólastarfi. Það kom í Hrefnu hlut að innleiða þessar breytingar í starf Breiðagerðisskóla og gerði hún það með miklum ágætum. Í hennar tíð sem skólastjóra var hætt að skipta nemendum í námshópa eftir getu, skóla- dagurinn varð samfelldur og hann lengdist. Okkur sem störfum við Breiðagerðisskóla í dag langar með þessum fátæklegu orðum að senda fjölskyldu Hrefnu samúðarkveðjur með þökk fyrir störf hennar í þágu þeirra fjöl- mörgu barna sem við skólann námu á löngum starfsferli hennar. Fyrir hönd starfsfólks Breiðagerðisskóla, Þorkell Daníel Jónsson, skólastjóri Breiða- gerðisskóla. ✝ Kristjón Guð-mannsson fæddist 26. mars árið 1953 í Efri-Sjó- lyst í Garði. Hann lést 17. janúar 2020. Foreldrar hans voru Guðmann Sig- urðsson, f. 1914, d. 1983, og Ingibjörg Guðlaug Þórðar- dóttir, f. 1920, d. 1998. Stjáni, eins og hann var alltaf kallaður, átti eina hálfsystur sammæðra, Kristínu Þóru Jó- hannesdóttur, sem fædd var 1944, dáin 1982, og einn al- bróður, Þórð, fædd- an 1951. Úr Efri-Sjólyst flutti fjölskyldan í Lund, sem nú er Melbraut 12, árið 1958 og bjó hann þar þangað til hann flutti í Kríulandið árið 2007. Stjáni gekk í Gerðaskóla. Að því loknu fór hann í Iðnskóla Suðurnesja og útskrif- aðist þaðan sem trésmiður árið 1976. Snemma byrjaði hann að vinna á sumrin í Hraðfrystihúsi Gerðabáta, fór svo fyrst á sjó árið 1975 en síðan í smíðarnar að lokinni útskrift sem var hans ævistarf. Hann hafði verið á samningi hjá Húsabyggingu hf. Hann stofnaði trésmíðafyrir- tækið Tréborgu ásamt Pálma Einarssyni og störfuðu þeir saman í nokkur ár. Um tíma vann hann hjá Ásgeiri Kjart- anssyni en lengst af starfaði hann hjá Braga Guðmundssyni. Stjáni festi kaup á bát árið 1979 ásamt Þórði bróður sínum og Guðmundi Knútssyni vini sín- um. Báturinn fékk nafnið Æsa í höfuðið á ömmu Stjána og Þórð- ar og gerðu þeir félagar út Æsu í 37 ár, einkum á færi á sumrin. Stjáni stundaði íþróttir á sín- um yngri árum. Hann hóf feril sinn í markinu hjá Víði í Garði og stundaði svo handbolta með Reyni í Sandgerði og Njarðvík. Útför Kristjóns fer fram frá Útskálakirkju í dag, 29. janúar 2020, klukkan 15. Elsku Stjáni. Það má með sanni segja að Stjáni hafi verið hluti af okkur fjölskyldunni og það sama má segja um Dodda bróður Stjána sem á einnig sér- stakan stað í hjörtum okkur systkina. Þó svo að hann hafi ekki verið mikið heima hjá okkur á Lyng- brautinni í seinni tíð var hann mikið í kringum okkur systkinin þegar við vorum yngri. Stjáni átti alltaf sitt sæti við matarborðið þegar hann kíkti í heimsókn, sem var nú bara nánast daglega, og þótti okkur nærvera hans nota- leg. „Doddi og Stjáni“ voru alltaf svo góðir við okkur og þótti þeim alltaf jafn gaman að stríða okkur og ennþá betra var ef við fórum aðeins hjá okkur við það í leiðinni. Okkur þótti alltaf gaman að kíkja í heimsókn í Lund með mömmu og pabba til þeirra bræðra og svo má auðvitað ekki gleyma páfagauknum sem alltaf flaug um frjáls á sínu heimili. Okkur stóð nú ekkert alltaf á sama þegar hann kom fljúgandi á ógnarhraða í átt að okkur en það brást ekki að eftir að flestir sem sátu í eldhúsinu voru búnir að beygja sig til þess að vera ekki fyrir prinsinum lenti hann yfir- leitt alltaf öruggur á öxlinni á húsbónda sínum, jú eða við eld- húsvaskinn til þess að fá sér að drekka þar sem lítil buna var yfirleitt látin renna svo blessaður fuglinn myndi nú ekki þorna upp. Við segjum „páfagaukurinn“ eða „fuglinn“ vegna þess að hann fékk aldrei nafn greyið en það þótti þeim bræðrum ekkert til- tökumál því að „fuglinn“ er bara svo asskoti þægilegt og af hverju að breyta einhverju sem virkar? Hvað er að þegar ekkert er að myndi einhver segja. Æsan okkar góða, trillan sem pabbi, Doddi og Stjáni keyptu svo saman, færði okkur systkin- um óteljandi skemmtilegar og góðar minningar og verðum við alltaf þakklát fyrir þær. Trilluna áttu þeir saman í 37 ár eða frá því við öll munum eftir okkur og höfum við ekki tölu á því hversu marga rúnta við fengum að fara í henni. Í Æsunni var veitt, hlegið, grátið, sofið, fíflast og stöku sinnum ælt en ávallt gaman því félagsskapurinn var dásamlegur. Eldri strákar okkar systra fengu einnig að njóta góðs af henni fyrstu árin sín áður en Æsan var svo seld, en sá dagur var svolítið erfiður, við verðum nú að viðurkenna það. En von- andi er hún komin á stað þar sem aðrar fjölskyldur fá að upplifa það sama og við fengum að upp- lifa öll þessi ár. Nú kveðjum við einn af þess- um mönnum sem áttu stóran þátt í æsku okkar systkina. Elsku Stjáni var með mjög fal- legt hjartalag, góður við allt og alla og aldrei klikkaði að maður fékk alltaf einlægt bros frá hon- um þegar við hittum hann. Við viljum meina að hann Stjáni okkar sitji núna með fólk- inu sínu sem er einnig búið að yfirgefa þennan heim, hristandi á sér fótinn, glottandi með aðra höndina í vasanum og auðvitað með rettu í munnvikinu. Honum líður vel og við vitum að hann mun vaka yfir okkur og bróður sínum þangað til við hittumst næst. Takk fyrir hlýjuna og kærleik- ann. Meira: mbl.is/andlat Sveinlaug, Hafdís og Knútur. Í dag er borinn til grafar góður vinur og félagi, Kristjón Guð- mannsson. Leiðir okkar Stjána, eins og hann var alltaf kallaður, lágu saman þegar hann flutti í Lund (Melbraut 12) og ég í Heiði (Mel- braut 25). Þetta var í kringum 1960 þannig að þetta er búið að vera langt og skemmtilegt ferða- lag. Samgangur fjölskyldna okkar var mjög mikill. Svo liðu ung- lingsárin og ýmislegt var brallað en aðeins slitnaði í sundur með okkur um tíma þó svo að alltaf hafi verið kíkt í Lundinn. Það var svo í kringum Iðn- skólaárin sem við Stjáni fórum að starfa meira saman. Ég og Anna fórum að byggja á Lyngbrautinni og leituðum við auðvitað til Stjána um að aðstoða okkur með smíðina. Við vorum ekki gamlir eða reynslumiklir þarna enda rétt um tvítugt en Stjáni fór létt með þetta enda með eindæmum útsjónarsamur og góður smiður. Alltaf höfðum við Stjáni haft mikinn áhuga á bátum, aldir upp í fiskinum og við sjóinn. Það var því rökrétt framhald hjá okkur að kaupa bát. Við fengum Dodda bróður Stjána með okkur í lið, fundum svo bát sem okkur leist bara nokkuð vel á en ákváðum að fá álit hjá reyndum manni, Ingv- ari á Bjargi. Skemmst er frá því að segja að Ingvari leist ekkert á flyituna: „Þið farið ekki á sjó á þessu, þetta er manndráps- fleyta.“ Þar fór það. Við fundum svo ókláraðan bát (Færeying) sem við keyptum, kláruðum,g- ræjuðum og gerðum sjókláran. Þetta var 1979. Báturinn var nefndur Æsa eftir ömmu strák- anna Stjána og Dodda og hluta- félagið nefndum við svo Heiða- lund ehf. eftir heimilum okkar. Þennan bát áttum við í 10 ár, þá var keyptur stærri bátur (Sómi) sem við áttum saman í 27 ár. Á þeim tíma sem við áttum Sóma- bátinn var hann lengdur og dekk- aður, þannig að það er mikið búið að brasa saman til sjós og lands á þeim 37 árum sem við áttum sam- an Æsu. Stjáni var fastagestur á heimili okkar Önnu og fylgdist með krökkunum okkar vaxa úr grasi og var alltaf mjög góður við þau. Heimsóknum hans á Lyngbraut- ina fækkaði seinni árin en í stað- inn fjölgaði mínum ferðum í Kríulandið til hans, oft til að kíkja saman á enska boltann. Hans lið var Leeds og Chelsea. Einn mann langar mig að minnast sérstaklega á sem var einstaklega tryggur og góður vinur Stjána en það er Óli Tryggva. Þeir voru einstakir vin- ir og félagar síðustu árin, ferð- uðust og skemmtu sér saman, ræddu málin og þrösuðu stund- um aðeins en alltaf í góðu, flottir vinir enda öðlingar báðir tveir, mikill missir fyrir Óla. Doddi bróðir Stjána hringdi reglulega í bróður sinn, ég held að það hafi verið a.m.k. einu sinni á dag til að fá fréttir og fylgjast með bróður sínum. Stjáni kallaði þessi símtöl tilkynningarskyld- una. Kæri Doddi vinur og félagi, þó að tilkynningarskyldunni sé ekki lengur svarað geymum við minn- ingu um góðan dreng, bróður og vin. Það er margs að minnast og margt að þakka, hér er aðeins minnst á fáein atriði. Við fjöl- skyldan á Lyngbrautinni þökk- um þér kæri vinur innilega allt sem þú gerðir fyrir okkur. Minn- ingin lifir um góðan dreng. Meira: mbl.is/andlat Guðmundur Jens og Anna Marý. Kristjón Guðmannsson Ástkær móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamamma, amma og langamma, GUÐBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR húsmóðir, Bolungarvík, lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Ísafirði, aðfaranótt föstudagsins 24. janúar. Útförin fer fram frá Hólskirkju í Bolungarvík laugardaginn 8. febrúar klukkan 14. Hafþór Gunnarsson Guðbjörg Hjartardóttir Jóhanna S. Gunnarsdóttir Páll Benediktsson Bæring Freyr Gunnarsson Rayong Ngosanthiah Elín Gunnarsdóttir Sigurgeir Sveinsson Fanný Gunnarsdóttir Hörður Gunnarsson ömmubörn og langömmubörn Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT JÓNSDÓTTIR, Neðstaleiti 5, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstudaginn 24. janúar. Friðjón Alfreðsson Halldóra Þórdís Friðjónsd. René Andersen Jón Arnar Friðjónsson Þórhallur H. Friðjónsson barnabörn og barnabarnabörn Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURLAUGUR ÞORKELSSON, fv. skrifstofumaður, lést á hjúkrunarheimilinu Grund föstu- daginn 24. janúar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 4. febrúar klukkan 13. Halla H. Skjaldberg Þorkell Sigurlaugsson Kristín H. Vignisdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.