Morgunblaðið - 29.01.2020, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 29.01.2020, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2020 England Deildabikar, undanúrslit, seinni leikur: Aston Villa – Leicester ............................ 2:1  Aston Villa áfram, 3:2 samanlagt, og mætir Manchester City eða Manchester United í úrslitaleiknum. B-deild: Leeds – Millwall....................................... 3:2  Jón Daði Böðvarsson lék fyrstu 72. mín- úturnar með Millwall. Blackburn – QPR ..................................... 2:1 Brentford – Nottingham Forest............. 0:1 Cardiff – WBA.......................................... 2:1 Hull – Huddersfield ................................. 1:2 Luton – Derby .......................................... 3:2 Wigan – Sheffield Wednesday ................ 2:1 Reading – Bristol City ............................. 0:1 Staða efstu liða: Leeds 29 16 7 6 46:26 55 WBA 29 14 11 4 51:33 53 Nottingham F. 29 14 9 6 40:28 51 Fulham 29 14 7 8 42:30 49 Brentford 29 14 5 10 44:22 47 Bristol City 29 13 8 8 43:40 47 Preston 29 13 7 9 42:34 46 Swansea 29 12 9 8 34:33 45 Millwall 29 11 11 7 38:35 44 Blackburn 29 12 7 10 42:36 43 Sheffield Wed. 29 12 6 11 40:33 42 Cardiff 29 10 12 7 41:42 42 Frakkland Bikarkeppnin, 16-liða úrslit: Limonest – Dijon............................. (frl.) 1:2  Rúnar Alex Rúnarsson varði mark Dijon í leiknum. Ítalía Bikarkeppnin, 8-liða úrslit: AC Milan – Torino ........................... (frl.) 4:2  Napoli og Juventus eru komin í undan- úrslit. Inter og Fiorentina mætast í síðasta leiknum í kvöld.  Olísdeild karla ÍBV – Valur........................................... 25:26 ÍR – KA ................................................. 34:22 HK – Selfoss ......................................... 29:34 Haukar – Fram..................................... 23:21 Fjölnir – Stjarnan................................. 25:26 Afturelding – FH.................................. 28:32 Staðan: Haukar 15 11 3 1 408:376 25 Afturelding 15 10 2 3 415:391 22 Valur 15 10 1 4 408:359 21 ÍR 15 9 2 4 461:413 20 Selfoss 15 9 1 5 465:456 19 FH 15 8 2 5 439:416 18 ÍBV 15 7 2 6 416:401 16 Stjarnan 15 4 5 6 395:405 13 KA 15 5 1 9 408:439 11 Fram 15 3 2 10 357:389 8 Fjölnir 15 2 1 12 395:455 5 HK 15 1 0 14 379:446 2 Grill 66 deild karla Þróttur – Valur U ................................. 26:29 Staðan: Þór Ak. 10 8 2 0 307:264 18 Valur U 11 8 1 2 332:305 17 Grótta 10 7 0 3 293:283 14 Haukar U 10 6 1 3 294:262 13 Þróttur 11 4 2 5 325:315 10 KA U 10 4 0 6 294:304 8 FH U 10 4 0 6 288:302 8 Víkingur 10 3 1 6 267:271 7 Fjölnir U 10 2 0 8 251:282 4 Stjarnan U 10 1 1 8 249:312 3 Svíþjóð Lugi – Skuru ........................................ 21:27  Eva Björk Davíðsdóttir komst ekki á blað hjá Skuru.   Svíþjóð Norrköping – Borås ............................ 80:93  Elvar Már Friðriksson skoraði 25 stig, tók tvö fráköst og gaf sjö stoðsendingar fyrir Borås. NBA-deildin Detroit – Cleveland .......................... 100:115 Miami – Orlando................................. 113:92 Oklahoma City – Dallas ..................... 97:107 Chicago – San Antonio..................... 110:109 Minnesota – Sacramento ........ (frl.) 129:133 Utah – Houston ................................ 117:126   KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: Origo-höllin: Valur – Keflavík ............. 18.15 Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin: Borgarnes: Skallagrímur – KR........... 19.15 Mustad-höll: Grindavík – Snæfell ....... 19.15 Ásvellir: Haukar – Breiðablik ............. 19.15 Origo-höllin: Valur – Keflavík ............. 20.30 HANDKNATTLEIKUR 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: TM-höllin: Stjarnan U – Valur U............. 20 1. deild karla, Grill 66-deildin: Kaplakriki: FH U – Fjölnir U ............. 20.15 Í KVÖLD! HANDBOLTI Jóhann Ingi Hafþórsson Guðmundur Tómas Sigfússon Kristján Jónsson Bjarni Helgason FH vann mjög sterkan 32:28-sigur á Aftureldingu á útivelli í 15. umferð Olísdeildar karla í handbolta í gær- kvöld. Afturelding var sterkari að- ilinn í fyrri hálfleik, en FH-ingar miklu sterkari í þeim seinni. Aftur- elding skoraði aðeins eitt mark á fyrstu tíu mínútum seinni hálfleiks og það nýttu FH-ingar sér vel. Björgvin Franz Björgvinsson í marki Aftureldingar var eina ástæða þess að sigurinn var ekki stærri hjá FH. Hvorki Ágúst Birgisson né Bjarni Ófeigur Valdimarsson léku með FH í leiknum og þá hefur Ásbjörn Frið- riksson oft leikið betur. FH-ingar kölluðu Jóhann Birgi Ingvarsson úr láni hjá HK og það er ljóst að tíminn í Kópavoginum hefur reynst honum vel. Jóhann lék virkilega vel, sem og Einar Rafn Eiðsson, sem sýndi gamalkunna takta með neglum fyrir utan. Þeir tveir gætu reynst FH- ingum afar mikilvægir þegar leik- irnir fara að skipta sem mestu máli. FH olli vonbrigðum fyrir áramót en gæti verið að toppa á réttum tíma. Afturelding missti Hauka þremur stigum á undan sér með tapinu og þá eru Valsmenn aðeins einu stigi fyrir aftan. Leikmenn eins og Einar Ingi Hrafnsson, Birkir Benediktsson og Arnór Freyr Stefánsson verða að spila mun betur, ætli Afturelding sér að eiga möguleika á deildarmeistara- titlinum. johanningi@mbl.is Hádramatík í Vestmannaeyjum Valsmenn sóttu tvö stig til Vest- mannaeyja í gærkvöldi þegar liðið lagði ÍBV að velli í stórskemmti- legum háspennuleik. Lokatölur voru 25:26 en Valsmenn voru mikið sterk- ari aðilinn í síðari hálfleik, Eyjamenn leiddu með fjórum mörkum í hálfleik 16:12. Byrjun Valsmanna í síðari hálfleik var það sem gerði að lokum gæfu- muninn en þeir náðu strax að komast yfir 17:18 eftir 40 mínútna leik. Vörn Vals var óaðfinnanleg á löngum köfl- um í seinni hálfleik og fundu Eyja- menn varla lykt af marktækifærum. Lokamínúturnar voru æsispenn- andi en Agnar Smári Jónsson snögg- hitnaði og sá til þess að gestirnir voru skrefinu á undan á lokamín- útunum. Það var þó Finnur Ingi Stefánsson sem fann glufu framhjá Petar Jokanovic á lokasekúndunum eftir að Petar hafði varið fimm skot frá Finni í leiknum. Eyjamenn töldu sig hafa jafnað metin á lokasekúndunni en skot El- liða Snæs Viðarssonar var ekki kom- ið inn að mati dómara leiksins og tel ég að sú ákvörðun hafi verið hárrétt, tæpt var það en Valsmenn tóku bæði stigin. Petar Jokanovic var öflugur í leiknum en hann varði 12 skot, þar af tvö víti, níu af þessum tólf vörðu skotum voru í fyrri hálfleik, Björn Viðar Björnsson bætti síðan við einu vörðu skoti í fyrri hálfleik. Hjá gest- unum var það Hreiðar Levý Guð- mundsson sem varði sjö skot, þar af tvö vítaköst, öll í seinni hálfleik. Hákon Daði Styrmisson skoraði átta mörk en þeir Fannar Frið- geirsson og Kristján Örn Kristjáns- son bættu við fjórum hvor. Hjá Vals- mönnum var Anton Rúnarsson markahæstur með sex mörk og þeir Agnar Smári Jónsson og Finnur Ingi Stefánsson gerðu fimm mörk hvor. gudmundurtomas@gmail.com Nú snerist dæmið við hjá Stjörnunni Tandri Már Konráðsson skoraði níu mörk í síðari hálfleik fyrir Stjörn- una þegar liðið vann dramatískan sigur, 26:25, gegn Fjölni í Grafarvog- inum. Tandri skoraði sigurmarkið þegar fjórar sekúndur voru eftir og alls tíu mörk í leiknum. Fjölnismenn eru í fallsæti eftir að hafa safnað saman fimm stigum fyrir áramót. Þeir misstu af upplögðu tækifæri til að ná í stig því Fjölnir náði sex marka forskoti í fyrri hálf- leik. Að honum loknum var staðan 15:11 fyrir Fjölni. Sóknir Stjörn- unnar voru mjög hægar og báru með sér að liðið væri að fara af stað eftir undirbúningstímabil númer tvö, eins og stórmótspásurnar í janúar eru gjarnan kallaðar. Fjölnismenn nýttu tækifærið og sóknir þeirra voru mun markvissari. Bjarki Snær Jónsson varði þá vel í markinu og Fjölnis- menn virtust til alls líklegir. Allt annar bragur var á Garðbæ- ingum í síðari hálfleik. Tandri og Ólafur Bjarki Ragnarsson fóru af krafti í allar aðgerðir og þá lentu Fjölnismenn í meiri vandræðum. Tandri raðaði inn mörkunum með skotum fyrir utan. Föst skot í hornin sem erfitt var fyrir Bjarka að verjast. Stjarnan er enn án Bjarka Más Gunnarssonar og væntanlega eflist vörn liðsins mjög þegar hann snýr aftur eftir hnémeiðsli. Stjarnan kastaði frá sér mörgum leikjum fyrir áramót eftir að hafa verið með gott forskot. Í gær snerist dæmið við og væntanlega var ljúft fyrir Garðbæinga að fá að vera hin- um megin við borðið. Fyrir Fjölnismenn er blóðugt að fá ekkert út úr leiknum en liðið hefði getað sett pressu á Framara með sigri. Fjölnismenn hafa örugglega ekki fengið sín síðustu stig í deildinni í vetur því margt gott mátti sjá í leik liðsins. Liðið skapaði sér fín færi með gegnumbrotum og góðu hornaspili. Breki Dagsson var alveg sérlega klókur. Hann lætur ekki mikið yfir sér á velli en tekur góðar ákvarðanir. kris@mbl.is Toppliðið styrkti stöðu sína Haukar eru með þriggja stiga for- skot á toppi deildarinnar eftir nokk- uð þægilegan 23:21-sigur gegn Fram á Ásvöllum. Haukar náðu mest fimm marka forskoti í fyrri hálfleik og Framarar voru aldrei líklegir til þess að koma til baka í síðari hálfleik þrátt fyrir að minnka forskot Hauka í tvö mörk á lokamínútu leiksins. Grétar Ari Guðjónsson átti stór- leik í marki Hauka, varði 16 skot og var með 46% markvörslu. Þá átti Tjörvi Þorgeirsson mjög góðan leik fyrir Hauka og skoraði átta mörk en hjá Frömurum var Matthías Daða- son markahæstur með fjögur mörk, þar af þrjú af vítalínunni. Haukar eru með 25 stig í efsta sæti deildarinnar, þremur stigum meira en Afturelding sem er í öðru sætinu, en Framarar eru í því tíunda með 8 stig, þremur stigum frá fallsæti. Haukur Þrastarson fór á kostum í liði Selfyssinga þegar Íslandsmeist- ararnir unnu 34:29-sigur gegn HK í Kórnum í Kópavogi. Haukur skoraði ellefu mörk og lagði upp önnur tíu fyrir liðsfélaga sína en Selfoss er með 19 stig í fimmta sæti deildarinnar. HK er sem fyrr á botninum með 2 stig. Þá vann ÍR stórsigur gegn KA í Austurbergi, 34:22, þar sem Hafþór Vignisson átti stórleik fyrir ÍR og skoraði 9 mörk. ÍR er í fjórða sæti deildarinnar með 20 stig, einu stigi minna en Valsmenn, en KA er í ní- unda sæti deildarinnar með 11 stig. bjarnih@mbl.is Toppa FH- ingar á rétt- um tíma?  Dramatískur sigur Vals í Eyjum  Stjarnan vann í fallslagnum Morgunblaðið/Árni Sæberg Mörk Einar Rafn Eiðsson skoraði sjö mörk í gær og var markahæstur. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vörn Fjölnismenn réðu illa við Tandra Má Konráðsson í Dalhúsum í gær. Skautafélag Akureyrar styrkti stöðu sína á toppi Hertz-deildar karla í íshokkí með 3:1-sigri gegn Skautafélagi Reykjavíkur í Laugar- dalnum í gær. SA byrjaði leikinn af krafti og Jóhann Leifsson og Heið- ar Kristveigarson skoruðu hvor sitt markið fyrir SA í fyrsta leikhluta. Níels Hafsteinsson minkaði muninn fyrir SR áður en Jakobsson sem skoraði þriðja mark SA undir lok annars leikhluta. SA er með 24 stig á toppi deildarinnar, sex stigum meira en Fjölnir sem er í öðru sæt- inu. SR rekur lestin án stiga. Akureyringar með gott forskot Morgunblaðið/Eggert Sigur Heiðar Kristveigarson skor- aði annað mark SA í leiknum í gær. Knattspyrnumaðurinn Guðmundur Þórarinsson, 27 ára, er genginn til liðs við bandaríska félagið New York City. Guðmundur kemur til félagsins frá sænska úrvalsdeildar- félaginu Norrköping þar sem hann hefur leikið frá árinu 2017. Guð- mundur er þriðji Íslendingurinn til þess að spila í bandarísku MLS- deildinni á eftir þeim Guðlaugi Victori Pálssyni og Kristni Stein- dórssyni. Liðið vann Austurdeild MLS-deildarinnar á síðustu leiktíð en féll úr leik í undanúrslitum úr- slitakeppninnar. Selfyssingurinn samdi í New York Ljósmynd/@ProSoccerUSAcom Þriðji Guðmundur Þórarinsson á að baki 5 A-landsleiki fyrir Ísland.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.