Morgunblaðið - 29.01.2020, Page 32
Hinn kunni færeyski bassasöngvari
Rúni Brattaberg kemur fram á tón-
leikum með Caput-hópnum í Breið-
holtskirkju í kvöld og flytur verkið
„Úr Egils sögu“ eftir breska tón-
skálið Gavin Bryars sem verður við-
staddur. Tónleikarnir eru á dagskrá
Myrkra músíkdaga og einnig verða
flutt tónverk eftir K.óla og Veroniqe
Vöku, fyrir Unu Sveinbjarnardóttur.
Rúni Brattaberg syng-
ur í Breiðholtskirkju
MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 29. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Íslandsmót karla í handknattleik hófst á nýjan leik í gær eftir langt frí. Topplið
Hauka styrkti stöðu sína í efsta sæti deildarinnar með tveggja marka sigri
gegn Fram og þá unnu Valsmenn níunda sigur sinn í röð í deildinni gegn ÍBV í
Vestmannaeyjum. Hafnfirðingar gerðu síðan góða ferð í Mosfellsbæinn og
lögðu Aftureldingu að velli að Varmá með fjögurra marka mun, 32:28. »26
Haukar með þriggja stiga forskot á toppnum
ÍÞRÓTTIR MENNING
blaðinu. „Þetta er á ábyrgð fulltrúa-
ráðsins, minjanefnd leggur ávallt
eitthvað til, Fálkarnir, Valkyrjurnar,
Valskórinn og svo framvegis.“
Með fyrsta Valsblaðinu voru lín-
urnar lagðar. Guðni bendir á að strax
hafi verið lögð áhersla á að skrá sög-
una og blása mönnum í brjóst kraft
og eldmóð og efla félagsandann. „Það
er föst hefð að fjalla um séra Friðrik
Friðriksson, fyrsta æskulýðsleiðtoga
Vals, í hverju blaði,“ bendir hann á.
Ársskýrslur séu birtar og allar deild-
ir fái sitt pláss, félagsstarfinu séu
gerð góð skil, sjálfboðaliðar dregnir
fram í sviðsljósið og þess sérstaklega
gætt að ekki halli á neinn. Jafnræðið
skipti miklu máli. Myndir séu af öll-
um liðum karla og kvenna og mikið sé
lagt upp úr því að raddir unga fólks-
ins heyrist. „Útgáfa svona blaðs er
besta leiðin til þess að varðveita sögu
hvers árs,“ segir Guðni. „Það er eftir-
tektarvert hvað við erum með margt
ungt og efnilegt fólk sem setur sér
skýr markmið og leggur áherslu á
heilbrigt líferni.“
Öll tölublöð Valsblaðsins eru að-
gengileg á timarit.is og á heimasíðu
Vals. Þau eru líka til innbundin í
vörslu félagsins á Hlíðarenda. „Hver
útgáfa markar alltaf ákveðin tímamót
hjá félaginu og sameinar félagsmenn
enn frekar,“ segir Guðni.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Nýjasta Valsblaðið er komið út og er
það stútfullt af efni í máli og myndum
um atburði í félaginu á nýliðnu ári.
Blaðið er 140 síður í A4-broti og má
fullyrða að það sé það glæsilegasta
innan íþróttahreyfingarinnar. „Fé-
lagið leggur mikinn metnað í að hafa
blaðið sem veglegast,“ segir Guðni
Olgeirsson, sem tók við ritstjórninni
af Þorgrími Þráinssyni fyrir um 17
árum og hefur haft umsjón með
blaðinu síðan.
Knattspyrnufélagið Valur var
stofnað 11. maí 1911. Fyrsta Vals-
blaðið var átta síður og kom út í jan-
úar 1939. Útgáfan var stopul næstu
áratugina en blaðið var endurvakið
1958 með krafti. Það hefur komið út
nánast árlega síðan og nú í 71. sinn.
Leiðir margra inn í íþróttahreyf-
inguna liggja í gegnum foreldra-
starfið. Um aldamótin var Guðni
virkur í foreldrastarfi Vals. Hann
segir stjórnendur félagsins hafa vitað
af því að hann hafi verið í stefnu-
mótunarvinnu í menntamálaráðu-
neytinu og því hafi hann verið feng-
inn til þess að hjálpa til við að móta
knattspyrnustefnu á vegum ung-
lingaráðs. Þegar Þorgrímur Þráins-
son hætti sem ritstjóri Valsblaðsins
hafi hann verið beðinn að taka við
blaðinu 2003. „Mér þótti þetta þá frá-
leit hugsun en ég lét samt tilleiðast og
tók að mér að sjá um eitt blað. Þau
eru nú orðin sautján.“
Margra manna verk
Guðni leggur áherslu á að margir
leggi hönd á plóg. Hann starfi með
öflugri ritnefnd, menn eins og Þor-
steinn Ólafs, Guðlaugur Ottesen
Karlsson og Baldur Þorgilsson gæti
þess að mynda helstu viðburði, marg-
ir leggi til skrifað efni, prófarkalestur
sé í góðum höndum Óttars Felix
Haukssonar og Eyjólfur Jónsson hafi
séð um umbrotið undanfarin 13 ár.
„Ég hef komið mér upp ákveðnum
vinnubrögðum, miklu tengslaneti og
með góðra manna hjálp hefur þetta
gengið á hverju ári. Svona blað verð-
ur aldrei eins manns verk.“ Hann
bætir við að ákveðnir menn, ráð og
nefndir fylgist með afmörkuðum
sviðum starfseminnar. Til dæmis
fylgist Halldór Einarsson með því
hvaða Valsmenn falla frá á hverju ári
og þeir séu kvaddir á viðeigandi hátt í
Valsblaðið sameinar
Guðni Olgeirsson hefur verið ritstjóri ársritsins í 17 ár
Ljósmynd/Þorsteinn Ólafs
Viðurkenning Guðni Olgeirsson var heiðraður fyrir 15 ára samfellda rit-
stjórn Valsblaðsins árið 2017. 71. árgangur þess kom út á dögunum.