Morgunblaðið - 05.02.2020, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 5. F E B R Ú A R 2 0 2 0
Stofnað 1913 30. tölublað 108. árgangur
SA-STÚLKUR
EINUM SIGRI FRÁ
TITLINUM
BÆTT UPP-
LÝSINGAGJÖF
TIL KÍNVERJA
ÞRJÚ VERKEFNI
TILNEFND TIL
VERÐLAUNA
VIÐSKIPTAMOGGINN EYRARRÓSIN 28ÍSHOKKÍ KVENNA 26
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Nú þegar hagkerfið kólnar er aug-
ljós kostur að losa um eignarhald
ríkisins á fjármálafyrirtækjum og
verja fjármunum sem þannig fást í
innviðafjárfestingar. Með slíku get-
ur ríkið styrkt grunnstoðir og kom-
ið með innspýtingu eins og nú er
þörf á,“ segir Bjarni Benediktsson,
fjármálaráðherra og formaður Sjálf-
stæðisflokksins.
Á morgun, fimmtudag, hyggst
þingflokkur sjálfstæðismanna hefja
fundaherferð um allt land, en Bjarni
segir mikilvægt að heyra sjónarmið
Það er engu að síður rétt að mínu
mati að losa um eignarhaldið í
skrefum og 25% hlutur í bankanum
er tuga milljarða króna virði. Þá
fjármuni ættum við að nýta til arð-
bærra fjárfestinga í innviðum,“ seg-
ir fjármálaráðherra.
Stór verkefni sem bíða
Í haust voru kynnt áform um
uppbyggingu samgöngumannvirkja
á höfuðborgarsvæðinu og í ná-
grenni þess, sem ætlunin hefur ver-
ið að fjármagna að nokkru með
gjaldtöku af vegfarendum. „Verði
af sölu banka gætum við breytt
hugmyndum um gjaldtöku á nýjum
leiðum og hér á Reykjavíkursvæð-
inu, ég sæi fyrir mér að vegtollar
myndi einskorðast við stærstu
mannvirki eins og ný Hvalfjarðar-
göng og Sundabraut og eftir atvik-
um stöku verkefni sem flýta á sér-
staklega. Stór verkefni í vega- og
hafnagerð bíða og svo þarf nýjan
gagnastreng til landsins. Öll þessi
verkefni skapa atvinnu og auka
verðmætasköpun,“ segir Bjarni.
Hann segir að umræða um þessi
mál sé langt komin í ríkisstjórn og
væntir þess að næstu skref verði
ákveðin á næstu vikum.
fólksins í landinu,
nú þegar hag-
kerfið er að kólna
og atbeina ríkis-
ins því þörf á
ýmsum sviðum.
Þá sé tímabært
að hefja nú þegar
undirbúning að
sölu Íslands-
banka, sem er að
fullu í eigu ríkis-
ins. Eigið fé bankans í dag er um
170 milljarðar króna. „Miðað við
verðmat markaðarins á fjármálafyr-
irtækjum er ólíklegt að við fengjum
fullt bókfært verð fyrir bankann.
Sala banka styrki grunnstoðir
Fjármálaráðherra segir tímabært að selja Íslandsbanka í skrefum og nýta fjár-
munina til arðbærra fjárfestinga í innviðum Breytir hugmyndum um gjaldtöku
Bjarni
Benediktsson
MVið fáum ekki óvænta … »10
Verkfall félagsmanna Eflingar hjá Reykjavíkurborg setti daglegt líf og
starf margra borgarbúa úr skorðum. Verkfallið bitnaði einkum á foreldum
leikskólabarna en talið er að sækja hafi þurft um 3.500 börn í leikskólana á
hádegi í gær. Náist ekki samningar verður verkfall allan daginn á morgun
og áfram næstu daga þar til ótímabundið verkfall hefst 17. febrúar.
Fjöldi félagsmanna Eflingar mætti á samstöðufund í Iðnó í hádeginu í
gær. Þaðan var gengið yfir í Ráðhús Reykjavíkur þar sem Sólveig Anna
Jónsdóttir, formaður Eflingar, gerði laun borgarstjóra að umtalsefni og
bar laun hans fyrir fundarsetu saman við laun félagsmanna. Viðstaddir fé-
lagsmenn lýstu skoðunum sínum með því að púa.
Ingibjörg Birna Geirsdóttir og Guðrún Helga Reynisdóttir voru í hópi
þeirra þúsund félagsmanna Eflingar sem lögðu niður störf í leikskólum.
Þær segja mikinn samhug meðal leikskólaliða og finna fyrir stuðningi for-
eldra þótt áhrif verkfallsins séu ekki ákjósanleg. »4
Líf margra fjöl-
skyldna úr skorðum
Verkfall Eflingar hafði þau áhrif að sækja þurfti 3.500 börn í leikskóla um hádegið
Morgunblaðið/Hallur Már Hallsson
Mótmæli Borgin er í okkar höndum var meðal áletrana á kröfuspjöldum sem Eflingarfólk fór með í Ráðhúsið að loknum samstöðufundi í Iðnó.
Morgunblaðið/Eggert
Verkfall Leikskólaliðar yfirgáfu Árborg í Árbæ klukkan 12.30 í gær.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sigurður Hannesson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins,
skorar á Seðlabankann og ríkis-
stjórnina að gera meira til að örva
hagkerfið. Það
standi á kross-
götum. Án að-
gerða muni verð-
mætasköpunin
staðna og það
koma niður á lífs-
kjörum. „Af
hverju segi ég þá
að það séu
óveðursský. Það
er vegna þess að
eins og staðan er
í dag gætum við verið að sigla inn í
langt tímabil lítils hagvaxtar,“ segir
Sigurður um stöðuna í hagkerfinu.
Skilaboðin frá félagsmönnum SI
séu skýr: rekstrarskilyrðin eru
krefjandi og fyrirtækin leita allra
leiða til að hagræða. Þar með talið
með því að segja upp starfsfólki.
Aðlögun með atvinnuleysi
Ólíkt fyrri niðursveiflum hafi
krónan ekki gefið eftir og þannig
styrkt samkeppnishæfni landsins.
Þvert á móti fari aðlögunin nú fram
í gegnum aukið atvinnuleysi. Til að
vinna gegn þeirri þróun þurfi Seðla-
bankinn og ríkissjóður að grípa til
aðgerða. Aðhaldið sé of mikið.
Þá telur Sigurður að raforkuverð
sé farið að skerða samkeppnishæfni
íslensks iðnaðar. Telur hann raun-
hæfar líkur á að einhver stórnot-
enda raforku hætti starfsemi á
næstu árum. Álverin séu þar stórir
notendur.
Með þetta í huga sé rétt að
endurmeta stefnu Landsvirkjunar.
Horfa þurfi á alla virðiskeðjuna.
»ViðskiptaMogginn
Grípa
þarf til
aðgerða
Samtök iðnaðarins
benda á óveðursský
Sigurður
Hannesson
Kvörtun Símans til Fjölmiðla-
nefndar vegna þess að þáttaröðin
Exit sem er stranglega bönnuð
börnum er opin öllum á spilara
RÚV, bæði á netinu og í sjónvarpi,
er komin í formlegt ferli hjá starfs-
fólki nefndarinnar. Elfa Ýr Gylfa-
dóttir, framkvæmdastjóri Fjöl-
miðlanefndar, segir að málið fari
fyrir nefndina á næsta fundi. Í
málsmeðferðarreglum Fjölmiðla-
nefndar segir að starfsmenn skuli
afla sjónarmiða fjölmiðilsins sem
kvörtunin beinist að. Síðan tekur
Fjölmiðlanefnd ákvörðun í málinu
eða gefur álit. Í ákvörðun getur fal-
ist sekt. Ekki fengust viðbrögð Rík-
isútvarpsins við kvörtun Símans,
þegar eftir þeim var leitað í gær.
Kvörtun Símans
í formlegu ferli