Morgunblaðið - 05.02.2020, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2020
Ágreiningur er á milli Garðabæjar
og Íslenskra aðalverktaka vegna
kostnaðar við grundun eða undir-
stöður fjölnota íþróttahúss í Vetrar-
mýri í Garðabæ. Verkið hefur tafist
vegna jarðvegsaðstæðna, en unnið
er að lausn málsins. Gunnar Einars-
son, bæjarstjóri í Garðabæ, segir að
m.a. sé deilt um eiginleika mýrar-
innar og þau gögn sem lágu fyrir á
tilboðstíma. Sigurður R. Ragnars-
son, forstjóri ÍAV, vill ekki tjá sig
um málið að svo stöddu.
Ekki forsendubrestur
Fjallað var um málið á fundi bæj-
arráðs Garðabæjar í gær og gerði
Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildar-
stjóri umhverfis og framkvæmda
hjá Garðabæ, grein fyrir forsendum
útboðs og gögnum sem lágu fyrir á
tilboðstíma. Einnig fór hún yfir
tímalínu vegna samskipta við verk-
taka og ágreining um grundun húss-
ins.
Andri Árnason lögmaður gerði
nánari grein fyrir ágreiningi í mál-
inu út frá lögfræðilegum sjónar-
miðum og fór yfir rök fyrir niður-
stöðu um að ekki væri fyrir hendi
forsendubrestur í málinu, m.t.t. fyr-
irliggjandi ráðgjafar varðandi jarð-
tæknileg atriði. Andri lýsti þeirri
skoðun að rétt væri á þessu stigi,
m.t.t. sérfræðiráðgjafar verkfræð-
inga o.fl., að hafna kröfu verktaka
um viðbótarkostnað vegna grund-
unar hússins, að því er segir í fund-
argerð bæjarráðs.
Kostar rúma fjóra milljarða
Skóflustunga að íþróttahúsinu var
tekin 3. maí í fyrra og var gert ráð
fyrir að verklok yrðu í apríl á næsta
ári. Húsið verður með rými fyrir
knattspyrnuvöll í fullri stærð innan-
húss auk upphitunaraðstöðu ásamt
stoðrýmum alls að flatarmáli um
18.200 fermetrar. Samningsfjárhæð
vegna byggingar hússins var rúmir
fjórir milljarðar. aij@mbl.is
Ágreiningur um að-
stæður í Vetrarmýri
Framkvæmdir við
fjölnota íþróttahús í
Garðabæ hafa tafist
FORNUBÚÐIR 12, HAFNARFIRÐI | S: 555 0800 | SIGN@SIGN.IS
WWW. S IGN . I S
Formaður samninganefndar Reykjavík-
urborgar segir að staðan í kjara-
viðræðum við Eflingu sé erfið. Snúið sé
að ná sátt um launakröfur þar sem þess
sé krafist að launataxtar lægst launaða
hópsins hækki um 50 þúsund krónum
meira en þeirra stóru kvennastétta sem
séu á hærri launum og vinni meðal ann-
ars með þeim í leikskólunum. „Það er
skýr afstaða þessara hópa að aldrei
myndi nást sátt um það,“ segir Harpa
Ólafsdóttir, formaður samninganefndar
Reykjavíkurborgar.
Í mörg horn að líta í dag
Samninganefndir Eflingar og Reykja-
víkurborgar fara á fund hjá ríkis-
sáttasemjara klukkan þrjú í dag. „Ég get
lítið sagt um það fyrr en eftir fundinn.
Við erum full samningsvilja, miðað við
þær forsendur sem liggja fyrir, en stað-
an er mjög snúin,“ segir Harpa þegar
hún er spurð hvort hún sé bjartsýn á ár-
angur.
Í dag er einnig fundað í samfloti opin-
berra starfsmanna við ríki og sveitar-
félög um styttingu vinnutíma hjá vakta-
vinnufólki. Það er ein af kröfum Eflingar
að gengið verði frá þeim málum.
„Vinnunni hefur miðað vel áfram. Ég er
nokkuð vongóð um að það sé að sjást til
lands en það skýrist betur á morgun [í
dag],“ sagði Harpa í gær þegar hún var
spurð að því hvort niðurstaða væri að
nálgast.
Virði verkfallsréttinn
Spurð um áhrif verkfalls Eflingar á
gang kjaraviðræðna segist Harpa ekki
tjá sig um það. „Ég virði þeirra verkfalls-
rétt. Staðreyndir málsins eru hins vegar
þær að við þurfum að semja við fjöl-
marga aðra hópa. Ég nefni stóra kvenna-
hópa sem telja á sig hallað,“ segir hún.
helgi@mbl.is
„Staðan
er mjög
snúin“
Fulltrúi borgarinn-
ar telur að ekki náist
sátt við aðra hópa um
kröfur Eflingar
Hallur Már Hallsson
Erla María Markúsdóttir
Helgi Bjarnason
Augljóst er að félagsmenn Efling-
ar sem starfa hjá Reykjavíkurborg
eru samstiga í kröfum sínum um
betri kjör. Það sást á samstöðu-
fundi félagsins í Iðnó í hádeginu í
gær. Þaðan var gengið yfir í Ráð-
húsið þar sem Sólveig Anna Jóns-
dóttir, formaður Eflingar, fór yfir
mismuninn á kjörum borgarstjór-
ans og almennra starfsmanna.
„Hann er með 2,2 milljónir á
mánuði. Hann fær fyrir það að sitja
einn fund í klukkutíma næstum því
jafnmikið og við fáum fyrir að
vinna fulla vinnu í heilan mánuð,“
sagði Sólveig Anna fyrir nánast
fullum sal. Undirtektir Eflingar-
fólks voru fyrirsjáanlegar. „Púúú,“
var svarið.
Verkfall Eflingar hjá Reykjavík-
urborg stóð frá klukkan 12.30 í gær
fram til miðnættis. Hafði það mest
áhrif í leikskólum borgarinnar og
þar með á daglegt líf fjölda fjöl-
skyldna. Foreldrar þurftu að ná í
börn sín áður en verkfallið hófst.
Áætlað var að 3.500 börn þyrftu að
vera heima eftir hádegið.
Verkfallið bitnaði afar misjafnt á
leikskólunum og fór eftir því
hversu hátt hlutfall félagsmanna
Eflingar er í leikskólunum. Það
hafði mikil áhrif í leikskólanum Ár-
borg í Árbæ. 43 af 54 börnum voru
send heim og aðeins ellefu eftir í
skólanum. Sigríður Þórðardóttir
hefur verið leikskólastjóri á Ár-
borg í 32 ár og þetta var í fyrsta
sinn sem starfsfólk skólans leggur
niður störf.
„Þetta er rosalega skrítið, mað-
ur eiginlega trúir þessu ekki. En
eitthvað verður að gera, það þarf
að breyta einhverju,“ segir Ingi-
björg Birna Geirsdóttir, deildar-
stjóri á Árborg, sem lagði niður
störf í gær eins og um eitt þúsund
félagsmenn Eflingar í leikskólum
borgarinnar.
Þarf sínar kjarabætur
Sverrir Örn Guðnason var meðal
hundraða foreldra sem sækja
þurftu börn sín í leikskóla. „Auðvit-
að viljum við að starfsfólk fái sínar
kjarabætur. Þau eru á allt of lágum
launum, það sjá allir,“ segir Sverr-
ir sem þurfti að endurskipuleggja
vinnudaginn vegna verkfallsins.
Ef ekki semst verða áfram
skæruverkföll hjá Eflingu, næst á
morgun. Þá hefur verið boðað til
ótímabundins verkfalls frá og með
17. febrúar.
Morgunblaðið/Hallur Már Hallsson
Samstaða Fjölmenni var á baráttufundi Eflingar í Iðnó þar sem Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, talaði. Síðan var stormað í Ráðhúsið.
Morgunblaðið/Eggert
Árborg Leikskólaliðar yfirgáfu vinnustaðinn klukkan 12.30 í gær.
Samstiga í kröfum sínum
Verkfall Eflingar hafði mest áhrif í leikskólum Reykjavíkurborgar