Morgunblaðið - 05.02.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 05.02.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2020 Í umfjöllun skipulags- og sam-gönguráðs Reykjavíkurborgar kom skýrt fram viðhorf meiri- hlutaflokkanna til bílaumferðar. Fjallað var meðal annars um gerð fráreinar á Bústaðavegi til að létta á umferð.    Þá bókaði meirihlutinn að ljóstværi „á tímum loftslagsbreyt- inga að ekki er í boði að halda áfram að setja meira fjármagn í framkvæmdir sem skapa aukið rými fyrir bílaumferð þar sem þær framkvæmdir munu bæði skapa aukna bílaumferð og auka losun á CO2 frá samgöngum. Innan fáeinna ára verða umferðartafirnar á Bú- staðavegi orðnar jafn langar og þær voru fyrir framkvæmdina og því er ekki um langtímalausn að ræða“.    Langflestir borgarbúar nota bílasem samgöngumáta og þrátt fyrir að ríki og borg hafi sett háar fjárhæðir í það á síðustu árum að reyna að færa fólk yfir í strætó hef- ur það engu skilað.    Það hefur ekki heldur dregið úrbílaumferð að þrengja að henni eins og gert hefur verið markvisst í tíð núverandi meiri- hluta borgarstjórnar. Ástæðan er sú að fólk vill nota bíla.    En meirihlutinn vill það ekki ognotar nú þau falsrök að þetta sé gert í þágu loftslagsins. Stað- reyndin er þvert á móti sú að allar þessar þrengingar auka útblástur, enda eru bílar lengur á leiðinni á þrengri götum og eyða að auki meira eldsneyti í þessum hæga- gangi í umferðinni. Loftslagið leyfir ekki bílaumferð STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Hilmir Jóhannesson, mjólkurfræðingur, hagyrðingur og leik- skáld, lést á Heilbrigð- isstofnuninni á Sauð- árkróki fimmtudaginn 30. janúar, 83 ára að aldri. Hilmir var fædd- ur á Húsavík 24. maí 1936. Foreldrar hans voru Ása Stefánsdóttir frá Skinnalóni á Mel- rakkasléttu og Jóhann- es Ármannsson frá Hraunkoti í Aðaldal. Eftirlifandi eiginkona Hilmis er Hulda Jóns- dóttir en þau gengu í hjónaband 27. desember árið 1957. Eignuðust þau þrjú börn, Guðrúnu, Jóhannes og Eirík. Hilmir og Hulda bjuggu á Húsa- vík til ársins 1964 en fluttu þá í Borgarnes. Á Sauðárkróki hafa þau búið síðan 1971. Hilmir lærði mjólkurfræði í Dan- mörku og starfaði sem slíkur á Húsavík, í Borgarnesi og á Sauð- árkróki. Eftir að hann hætti sem mjólkurfræðingur var hann starfs- maður Sjúkrasamlags Sauðárkróks og bókavörður á sjúkrahúsinu en starfaði eftir það með Huldu við barnagæslu. Hilmir sat í bæjar- stjórn Sauðárkróks fyrir K-listann í tvö kjörtímabil, 1990-1994 og 1994-1998. Hann var einnig stjórnar- formaður Sauðár- króksveitna í allmörg ár. Hilmir var afkasta- mikill hagyrðingur og leikskáld og samdi mörg leikrit og revíur. Eitt af þekktustu leik- ritum hans er Slátur- húsið hraðar hendur, sem var fyrst sett upp á Borgarnesi árið 1968. Meðal ann- arra leikrita eru Gullskipið kemur, sem sýnt var af Leikfélagi Akureyr- ar 1974, og Tímamótaverk, sem Leikfélag Sauðárkróks setti upp 1991. Hann samdi einnig ógrynni af tækifærisvísum og dægurlagatext- um, þar á meðal Ort í sandinn. Hilmir málaði ófáar myndir, stór- ar og smáar og síðustu árin málaði hann litlar vatnslitamyndir af lands- lagi úr Skagafirði sem hann skrifaði ljóð inn á, tengd myndefninu. Hilmir var mikill veiðimaður og veiddi lax á stöng í ám víða um land. Þá átti hann báta í félagi við aðra á Sauðárkróki og naut þess að róa til fiskjar. Andlát Hilmir Jóhannesson Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14 Misty BEYOND NAKED BÓMULLAR LÍNAN FRÁWACOAL Dásamlega mjúkar og teyjanlegar bómullar buxur í tveimur sniðum (mjaðma eða mittis hæð) Stærðir S-XL Verð 2.990,- stk. Tekjur ríkissjóðs af veiðigjaldi verða áþekkar þeim sem hefðu fallið til ef eldri lög um veiðigjald hefðu verið framlengd óbreytt. Það er í sam- ræmi við markmið laganna. Kemur þetta fram í skriflegu svari sjávarút- vegsráðherra við fyrirspurn frá Þor- steini Víglundssyni, þingmanni Við- reisnar, um fjárhæð veiðigjalda út frá mismunandi lögum. Tekið er fram í svari ráðuneytisins að ekki sé hægt að áætla fjárhæð veiðigjalda fyrri fiskveiðiára sam- kvæmt núgildandi lögum þar sem ekki liggi fyrir allar forsendur, sér- staklega upplýsingar um skattalegar fyrningar veiðiskipa sem er nýr frá- dráttarliður í reiknistofni. Veiðigjald ársins 2017 var 6,2 milljarðar en það hefði orðið 9,3 milljarðar ef reikniformúla nýju lag- anna hefði verið notuð. Þetta snýst við árið 2018. Þá var álagt veiðigjald 11 milljarðar en hefði orðið 8,7 millj- arðar samkvæmt nýju lögunum. Veiðigjald ársins 2019 verður um 7,4 milljarðar kr. en gjald fiskveiði- ársins 2018-19 hefði orðið 11,7 millj- arðar samkvæmt gömlu lögunum. Gjaldið í ár er áætlað 4,9 milljarðar í fjárlögum en það hefði orðið 2,75 milljarðar fyrir veiðiárið 2019-20, samkvæmt gömlu lögunum. Veiði- gjaldið fyrir fiskveiðiárið 2020-21 hefði orðið 3,8 milljarðar kr. skv. gömlu lögunum. helgi@mbl.is Veiðigjaldið áþekkt því sem orðið hefði  Nýju lögin skila svipuðum tekjum af veiðigjaldi og þau gömlu hefðu gert Morgunblaðið/Hari Afli Þorskurinn skilar ríkinu vel.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.