Morgunblaðið - 05.02.2020, Síða 10

Morgunblaðið - 05.02.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2020 VIÐTAL Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Þjóðfélagið er sífellt að breytast og í því sambandi er eftirtektarvert hvern- ig kröfugerð í viðræðum um gerð nýrra kjarasamninga hefur breyst,“ segir Bjarni Benediktsson fjár- málaráðherra. Í því embætti er hlut- verkið meðal annars að leggja stóru línurnar í kjaraviðræðum ríkisins við opinbera starfsmenn. Þar hefur verið þjarkað án árangurs í langan tíma og huga samtök nokkurra þeirra stétta sem vinna hjá ríkinu nú að verkföllum. Bjarni segist þó vongóður um að samningar náist í tíma, en Morgun- blaðið tók á honum hús í fjármálaráðu- neytinu í Arnarhvoli í gær, hvar farið var yfir stöðu þjóðmálanna. Há laun draga úr samkeppnishæfni „Eftir miklar launahækkanir á und- anförnum árum snúast kröfurnar í kjaraviðræðum nú í auknum mæli um vinnutíma. Með sömu launum en færri stundum á vinnustað vill fólk geta rækt sitt fjölskyldulíf sem er eðlileg krafa. Ég er vongóður um að í viðræð- unum við ríkið náist þarna lending sem allir geti verið sáttir við,“ segir Bjarni sem bætir við að staðreyndir nú geri málin býsna krefjandi. Bæði þurfi að auka framleiðni og skapa meiri verð- mæti. „Þegar öllu er á botninn hvolft gilda hér ákveðin lögmál, líkt og annars staðar, sem við getum ekki skotist undan. Við getum ekki fengið allt í senn; hæstu launin, mesta kaupmátt- inn, stysta vinnutímann og um leið samkeppnishæfasta atvinnulífið. Við höfum hækkað laun verulega undan- farin ár, það hefur dregið úr sam- keppnishæfninni og það birtist okkur í meira atvinnuleysi og lægra fjárfest- ingarstigi atvinnulífsins. Þetta er viss ógn við hagvöxt næstu missera sem við þurfum að fást við. Auknar fjárfest- ingar hins opinbera munu hjálpa en við verðum einnig að huga að starfsskil- yrðum fyrirtækjanna.“ Á síðustu mánuðum hefur ríkið gert kjarasamninga við allmörg félög op- inberra starfsmanna, sem yfirleitt eru í anda lífskjarasamninganna, sem und- irritaðir voru fyrir tæpu ári. „Þegar við horfum til baka munu þær ráðstafanir sem teknar hafa verið í kjaramálum á undanförnum misserum teljast merki- legar og að þar hafi verið teknar stórar ákvarðanir fyrir framtíðina. Dregið hafi verið úr áherslu á nafnlaunahækk- anir og í lífskjarasamningunum hafi sú breyting verið gerð að miða svigrúm til launahækkana og persónuafslátt í skattkerfinu við landsframleiðslu og vöxt hennar. Stóru viðfangsefnin í kjaraviðræðum nú eru að auka lífsgæði fólks og ekki er lengur rætt jafn mikið um tryggja sig gagnvart verðbólgunni, eins og lengi var lykilatriði.“ Engir óvæntir vinningar Á fundum Sjálfstæðisflokksins sem nú standa fyrir dyrum stendur til að hitta fólk að máli og heyra viðhorf þess. Sérstaklega verður horft til atvinnu- rekstrarins og fólk þar hvatt til dáða. Segir Bjarni mikilvægt nú að beita þeim stjórntækjum sem tiltæk eru til að hagvöxtur haldist heilbrigður. Sér- staklega þurfi að huga að nýsköpun og smærri fyrirtækjum, enda skapi þau flest störfin. „Hagkerfið náði mestu skriði árið 2016. Síðan þá hefur smám saman hægt á og jafnhliða því verið dregið úr aðhaldi hins opinbera með því að gefa afgang af ríkisrekstri eftir. Atvinnu- leysi er að aukast og það er alveg ljóst að þjóðarbúið fær engan óvæntan vinning eins og gerðist hér fyrst eftir hrun með fjölgun ferðamanna, makríl og erlendum fjárfestingum. Þvert á móti; nú er ekki veidd loðna annað árið í röð, minna er umleikis í ferðaþjón- ustu og eftir miklar launahækkanir síðustu ár eru vísbendingar um að verulega hafi dregið úr samkeppn- ishæfni Íslands. Við erum komin í allt aðra tíma og aðstæður og þurfum því að hvetja fólk til dáða og skapa því ný tækifæri.“ Hreyfanleiki vinnuaflsins minni Frá atvinnurekendum heyrist að tryggingagjaldið sem greitt er til rík- isins og er 6,35% af heildarlaunum starfsfólks sé of hátt og íþyngjandi. Bjarni segist þekkja vel til þessara sjónarmiða en leggur jafnframt áherslu á að tryggingagjaldið sé að lækka – nú um áramótin um 0,25%. Séu málin skoðuð yfir lengra tímabil sé lækkunin meiri og þar muni um tugi milljarða króna fyrir fyrirtækin. „Stóra málið er að laun hafa hækkað mikið á undanförnum árum og það er fyrst og fremst launaliðurinn sem er íþyngjandi. Lækkun tryggingagjalds um hálft prósentustig skiptir miklu en ekki sköpum á meðan launhækkanir eru 6-8% á ári eins og átti við und- anfarin ár. Meðal þess sem trygginga- gjaldið fjármagnar eru atvinnuleys- isbætur og greiðslur í fæðingarorlofi og í þessu hvoru tveggja hafa réttindi verið stórlega bætt að undanförnu fyr- ir utan aukin réttindi í almannatrygg- ingum. Samt höfum við lækkað gjald- ið. Það er áhyggjuefni hve margir aðfluttir eru atvinnulausir nú. Við höf- um styrkt öryggisnet atvinnulausra. Eftir hrun fóru margir sem flutt höfðu til landsins til að fá vinnu aftur til heimalands síns, en líkur eru á því að hreyfanleiki vinnuaflsins nú sé minni. Ein af ástæðum þess er vafalítið að gjaldmiðill okkar hefur ekki gefið eftir í líkingu við það sem gerðist í síðustu niðursveiflu.“ Höldum ótrauð áfram Að undanförnu hefur fylgi Sjálf- stæðisflokksins gjarnan verið á bilinu 22-23% og telur formaðurinn að á miðju kjörtímabili í þriggja flokka stjórn sé það ekki óvænt. Í tvennum síðustu alþingiskosningum hafi flokk- urinn t.d. fengið talsvert meira fylgi en kannanir bentu til. „Ég gef lítið fyrir skoðanakannanir á miðju kjörtímabili. Ekki þarf að líta langt aftur til að sjá að slíkt hefur enga merkingu. Við höldum því ótrauð áfram og hlökkum til að eiga samtal við fólkið í landinu á fundum á næstunni,“ segir Bjarni Benediktsson að lokum. Við fáum ekki óvænta vinninga  Áskoranir í hagstjórn og aðstæður breyttar  Kröfur um lífsgæði áberandi í kjarsamningum  Huga þarf að nýsköpun og stöðu smærri fyrirtækja  Fylgi Sjálfstæðisflokksins nú er ekki óvænt Morgunblaðið/Sigurður Bogi Fjármálaráðherra Hvetja þarf fólk til dáða og skapa því ný tækifæri, segir Bjarni Benediktsson. Í DAG, MIÐVIKUDAGINN 5. FEBRÚAR KL. 8.30-11.30 Í HÖRPU – NORÐURLJÓSUM MENNTADAGUR ATVINNULÍFSINS 2020 Dagskrá og skráning á vef SA: www.sa.is SKÖPUN Núverandi ríkisstjórn sem Vinstri grænir, Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn standa að tók við í nóvemberlok 2017. Bjarni Benedikts- son segir að milli for- ystufólks flokkanna ríki traust og gangi vel að ná málamiðlunum í helstu álitaefnum. „Við þurftum að hafa þroska til að vinna úr þeim aðstæðum sem úr- slit kosninga færðu okk- ur. Eftir síðustu kosningar var tveggja flokka ríkisstjórn ekki í boði og mér fannst þá sem Sjálfstæðisflokknum bæri skylda til þess að skapa stöðugleika. Núverandi stjórnarandstaða er tvístruð og það eykur ekki jafnvægi í stjórnmálum á Íslandi að flokkum haldi áfram að fjölga og svo verður enginn þeirra kjölfesta,“ segir Bjarni og bætir við: „Að stjórnarsamstarfið gangi vel mæli ég fyrst og fremst á því að tek- ist hefur að skila heimilunum ávinningi. Í efnalegu tilliti hafa Íslendingar sennilega aldrei haft það jafn gott og nú. Slíkt finn ég vel því margir senda mér tölvupóst, ýmsa hitti ég á förnum vegi, úti í búð, á fundunum og víðar. Fyrir stjórnmálamann er afar mikilvægt að vera í góðu sambandi við fólk og ræða við það um hugðarefni þess. “ Ávinningur til heimilanna GOTT SAMSTARF Í RÍKISSTJÓRN OG GAGNKVÆMT TRAUST Heimsókn Bjarni Benediktsson kynnti sér stöðuna við byggingu nýs Landspítala í gær og ræddi við fólk. Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.