Morgunblaðið - 05.02.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2020
Stykkishólmi | Snæfell, félag smábáta-
eigenda á Snæfellsnesi, hélt nýlega
fund í Stykkishólmi um grásleppu-
veiðar. Veiðarnar eru mikilvæg at-
vinnugrein í Hólminum og þar er
landað mestu
magni af grá-
sleppu á Íslandi.
Nú stendur til að
gjörbreyta reglu-
gerð um veiðarn-
ar, meðal annars
er fyrirhugað að
fækka netum
verulega.
Hingað til hefur
veiðunum verið
stjórnað frá ári til árs, með mismun-
andi fjölda daga og neta. Að vonum
eru skiptar skoðanir meðal grásleppu-
sjómanna um breytingarnar og hags-
muni. Á fundinn mættu Kristján Þór
Júlíusson sjávarútvegsráðherra, Axel
Eyfjörð Friðriksson, gæðastjóri hjá
Vigni G. Jónssyni ehf., og Kristinn
Hjálmarsson, verkefnastjóri Icelandic
Sustainable Fisheries.
Kristján Þór gerði grein fyrir hug-
myndum sínum um breytingar á grá-
sleppuveiðum. Tímarnir væru breytt-
ir og taka yrði tillit til þess. Núverandi
stjórnun væri barn síns tíma miðað við
þær kröfur sem nú væru gerðar til
veiðanna, hráefnis og sölumála. Fram
að þessu hafa grásleppusjómenn
reynt að afla sem mest þá daga sem
þeim er úthlutað.
Kvótasetning til framtíðar
Ráðherra var afdráttarlaus á þeirri
skoðun að til framtíðar bæri að kvóta-
setja veiðarnar. Markmiðið með því
væri að koma á ábyrgri stjórn á grá-
sleppuveiðar, hagkvæmari útgerð og
meira atvinnuöryggi þeirra sem
stunda veiðarnar. Með kvótasetningu
myndu sjómenn stýra veiðum sínum
betur til að forðast meðafla eins og t.d.
landsel.
Ráðherra lagði áherslu á að líta á
grásleppuveiðar og vinnslu sem al-
vöruatvinnugrein sem nú skilar þjóð-
arbúinu um þremur milljörðum króna
í útflutningstekjur. Hann sagði vilja
sinn að leiða breytingarnar í gegn með
sem mestri sátt við sjómenn. Breyt-
ingar væru ekki settar fram af illvilja
heldur til að styrkja atvinnugreinina í
heild svo hún væri hagkvæm og skil-
aði sem mestum verðmætum.
15% hærra verð með vottun
Axel Eyfjörð og Kristinn ræddu um
sölumálin og sögðu að varðandi er-
lenda kaupendur skipti öllu máli að
veiðarnar hefðu MSC-vottun. Grá-
sleppuveiðar misstu MSC-vottun fyrir
nokkrum árum vegna mikils meðafla,
einkum landsels. Með breyttum hugs-
unarhætti og ábyrgari stjórnun væru
gefnar vonir um að fljótt yrði hægt að
uppfylla skilyrði til að fá vottun MSC
að nýju. Grænlendingar og Norðmenn
eru með slíka vottun og er talið að þeir
fái um 15% hærra verð fyrir grá-
sleppuhrogn. Það munar um það!
Að loknum erindum framsögu-
manna urðu líflegar og fræðandi um-
ræður. Fundarmenn lögðu margt til
málanna, enda flestir með áralanga
reynslu af grásleppuveiðum. Lögðu
þeir m.a. áherslu á að svæðaskipting
veiðanna yrði eins og verið hefði til að
jafna veiðina kringum landið.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Þétt setið Fundurinn um veiðar á grásleppu var haldinn í Ráðhúsinu í Stykkishólmi og var vel sóttur.
Miklar breytingar fyrirhug-
aðar á grásleppuveiðum
Fjölmennur fundur með ráðherra í Stykkishólmi
Kristján Þór
Júlíusson
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Endurupptökunefnd hefur sam-
þykkt beiðni manns um að mál gegn
honum verði tekið fyrir á ný fyrir
dómstólum. Maðurinn var dæmdur í
sex mánaða fangelsi fyrir hylmingu
í Héraðsdómi Suðurlands í desem-
ber 2016 fyrir að hafa keypt átta
málverk á árunum 2012-2013 og
Porsche 911 Carrera bifreið. Hvort
tveggja geymdi hann í félagi við
annan mann þrátt fyrir að honum
hefði mátt vera ljóst að umræddir
gripir væru stolnir. Brotin voru
framin erlendis.
Maðurinn óskaði eftir því í mars
2017 að málið yrði tekið fyrir að
nýju. Því hafnaði endurupptöku-
nefnd í nóvember sama ár. Í kjölfar-
ið höfðaði maðurinn mál gegn ís-
lenska ríkinu og með dómi
Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í
maí 2019 var úrskurður endurupp-
tökunefndar felldur úr gildi.
Í beiðni sinni um endurupptöku
bendir maðurinn á verulegan ágalla
á meðferð málsins sem sneri að birt-
ingu ákæru. Hafi hann ekki fengið
réttláta málsmeðferð. Jafnframt
bendir hann á að í sakamálinu hafi
löglærður aðstoðarmaður dómara
dæmt hann en ekki dómari. Engin
heimild sé í lögum fyrir slíkri með-
ferð máls. Héraðsdómur féllst á þá
röksemd að lögmæt birting ákæru
hefði ekki farið fram þegar mál
ákæruvaldsins var dómtekið á hend-
ur manninum og því hafi ekki verið
skilyrði til að dæma í því að honum
fjarstöddum. Endurupptökunefnd
úrskurðaði því í annarri atrennu að
fallast bæri á beiðni mannsins um
endurupptöku málsins. Kostnaður
mannsins, 100 þúsund krónur auk
virðisaukaskatts, skal greiddur úr
ríkissjóði.
Stolin málverk
aftur fyrir dóm
Var dæmdur í sex mánaða fangelsi
Morgunblaðið/Þór
Héraðsdómur Reykjavíkur Sneri
við úrskurði endurupptökunefndar.
Framkvæmdir við brú yfir Foss-
vog og landfyllingu beggja vegna
eru ekki taldar líklegar til að hafa
í för með sér umtalsverð umhverf-
isáhrif og séu því ekki háðar mati
á umhverfisáhrifum.
Skipulagsstofnun óskaði um-
sagnar Umhverfisstofnunar um
verkefnið og í henni kemur fram
að framkvæmdin muni hafa veru-
lega jákvæð áhrif með tilliti til al-
menningssamgangna og vistvænna
samgangna á milli Reykjavíkur og
Kópavogsbæjar. Áhrif á ásýnd geti
talist talsvert neikvæð en stað-
bundin og áhrif á samfélag séu
neikvæð með tilliti til siglinga og
sjósunds.
Áætlað er að leggja 270 metra
langa brú yfir Fossvoginn, sem
tengir norðurenda Bakkabrautar á
Kársnesi við flugbrautarenda
Reykjavíkurflugvallar vestan
Nauthólsvíkur. aij@mbl.is
Yfir Fossvog Brúin er ætluð fyrir almenningssamgöngur milli Reykjavíkur og Kópavogs auk hjólandi og gangandi umferðar.
Framkvæmdir
við Fossvogsbrú
ekki matsskyldar
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is |
Opið alla virka daga kl. 10-17
Starfsmannamyndir
fyrir öll fyrirtæki og stofnanir
Skjót
og hröð
þjónust
a
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Við kynnum
• Nýja glæsilega vorlínu 2020
• Nýja liti í varalitablýöntum og
Rouge Allure Velvet varalitum
• Nýtt Le Lift krem og augnkrem
Gréta Boða verður á staðnum
og veitir faglega ráðgjöf
CHANEL KYNNING
í Snyrtivöruversluninni Glæsibæ
5. og 6. febrúar
20% afsláttur
af CHANEL vörum
kynningardagana
Verið velkomin