Morgunblaðið - 05.02.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.02.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2020 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Reykjavíkurborg hyggst rifta kaup- samningi sem gerður var um eignina Grandagarð 2, oftast nefnt Alliance- húsið. Tillaga skrifstofu borgar- stjóra og borgarritara þessa efnis var lögð fyrir borgarráð á fimmtu- daginn en afgreiðslu málsins var frestað. Jafnframt var óskað eftir heimild borgarráðs til að hefja við- ræður við það félag sem átti næst- hæsta boð í eignina. Reykjavíkurborg stóð fyrir hug- myndasamkeppni um uppbyggingu á Grandagarði 2 og var hún auglýst 27. ágúst 2018. Meðal þeirra sem buðu í var Alliance þróunarfélag (síðar Alliance Grandi ehf.) og skor- aði það hæst í matslíkani sem lagt var til grundvallar. Borgarráð samþykkti 28. nóvem- ber 2019 kaupsamning við Alliance þróunarfélag og var kaupverðið 900 milljónir. Að Alliance-hópnum stóðu fjárfestinga- og þróunarfélögin M3 Capital, eigandi Örn Kjartansson, og Eldborg Capital, eigandi Brynj- ólfur J. Baldursson. Hönnuðir að til- lögu þeirra voru THG arkitektar og Argos arkitektar. Samkvæmt kaupsamningi átti fasteignin Grandagarður 2 að af- hendast 15. janúar 2020 og á sama tíma átti kaupandi að greiða fyrstu greiðslu, 90 milljónir. Afhending eignarinnar fór ekki fram þar sem greiðslur bárust ekki og í framhaldi var lagt til við borgarráð að rifta kaupsamningi, samkvæmt upplýs- ingum frá Reykjavíkurborg. Í greinargerð skrifstofu borgar- stjóra og borgarritara, þegar gengið var frá sölunni í nóvember í fyrra, kom fram að áætlað var að ganga frá henni í apríl. Það dróst, m.a. vegna gjaldþrots WOW air, „og hafa fjár- festingar til ferðaþjónustuverkefna dregist verulega saman vegna óvissu“. Hæstbjóðendur í húseign- ina Grandagarður 2 hugðust m.a. byggja þar upp hótel og hefði þetta haft veruleg áhrif. Til stóð að þýsk hótelkeðja myndi standa að rekstr- inum. Félagið Skipan átti næsthæsta til- boð í eignina, 650 milljónir. Hyggst borgin nú ganga til samninga við fé- lagið um kaupin. Fram kemur í gögnum Reykjavík- urborgar að reynslumikill hópur ein- staklinga standi að baki Skipan. Þeir eru Gísli Hauksson hagfræðingur, Arnar Hauksson húsasmíðameistari og Guðmundur Kristján Jónsson borgarskipulagsfræðingur. Alliance-húsið er steinsteypuhús, 2.000 fermetrar, byggt á árunum 1924 til 1925, eftir teikningum Guð- mundar H. Þorlákssonar húsameist- ara. Húsið er talið hafa mikið bygg- ingarlistarlegt gildi, enda er það friðað. Reykjavíkurborg festi kaup á hús- inu árið 2012 fyrir 340 milljónir. Árið 2017 var samþykkt deiliskipulag fyr- ir lóðina. Samkvæmt því verða ný- byggingar heimilar á lóðinni sem geta orðið alls 4.200 fermetrar. Riftir sölunni á Alliance-húsinu  Greiddu ekki á umsömdum tíma  Reisa átti hótel á lóðinni  Samið við þann næsta í röðinni Ljósmynd/Reykjavíkurborg Grandagarður 2 Sögufrægt hús sem er friðað. Með í kaupunum fylgir byggingarréttur á lóðinni, alls 4.200 fermetrar. Vinnumálastofnun bárust þrjár til- kynningar um hópuppsagnir í ný- liðnum janúarmánuði. Samkvæmt upplýsingum á vef Vinnu- málastofnunar var samtals 95 starfsmönnum sagt upp störfum í hópuppsögnum í mánuðinum. Þar af voru 38 starfs- menn í fiskeldi en tekið er fram að þar verður öllum boðið starf aftur, 32 störfuðu í flutn- ingum og 25 starfsmenn í upplýs- ingum og fjarskiptum var sagt upp í hópuppsögnum samkvæmt tilkynn- ingum sem bárust Vinnumálastofn- un. Flestar þessara uppsagna koma til framkvæmda í maí á þessu ári. Fram hefur komið að á síðasta ári barst Vinnumálastofnun alls 21 til- kynning um hópuppsagnir, þar sem 1.046 manns var sagt upp störfum, misstu flestir vinnuna í flug- og flutningastarfsemi. 95 manns sagt upp í hópuppsögnum Þrjár tilkynningar um hópuppsagnir. Draghálsi 14 -16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is Þú finnur gæðin! Skoðaðu úrvalið í netverslun isleifur.is Vegagerðin hefur samið við danska dýpkunarfyrirtækið Rohde Nielsen A/S um dýpkun í Landeyjahöfn bæði í febrúar og mars. Björgun ehf. hefur annast dýpk- un í Landeyjahöfn samkvæmt samningi vor og haust og í nóv- ember var samið um viðbótardýpk- un frá nóvember og út janúar. Sam- kvæmt upplýsingum. G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, hefur nú verið ákveðið í ljósi reynslunnar í fyrra að reyna að hefja vinnu við dýpkun í febrúar og út marsmánuði eða fram að þeim tíma þegar umsamin vordýpkun tekur við, í því augna- miði að geta opnað höfnina fyrr. Því var samið við danska dýpkunarfyr- irtækið en um tilraunaverkefni er að ræða þar sem beitt verður öðru vísi aðferðum en hingað til, sem gætu mögulega skilað betri árangri. Í stað þess að dæla sandinum upp og sigla með hann út fyrir strönd- ina verður reynt að dæla í straum- inn og láta efnið berast burt með honum. Samningurinn við danska fyrir- tækið gildir um dýpkun frá 15. febrúar út marsmánuð þegar um- samin vordýpkun tekur við og mun Björgun ehf. sinna þeirri dýpkun vor og haust samkvæmt núverandi samningi. Rohde Nielsen A/S er vel þekkt Danskt skip annast dýpkun í tvo mánuði Morgunblaðið Hallur Már Hallsson Landeyjahöfn Samið hefur verið við Rohde Nielsen A/S um dýpkun, sem mun hefjast handa nú í febrúarmánuði. fyrirtæki á þessu sviði og mun það nota dýpkunarskipið Trud R við dýpkunina í Landeyjahöfn. Í um- fjöllun á vef Vegagerðarinnar segir að staða dýpis í Landeyjahöfn sé óvenjugóð um þessar mundir miðað við árstíma og reynslu liðinna ára. Þá hefur veður og sjólag heimilað siglingar í Landeyjahöfn síðustu daga. ,,En nú skiptir sköpum að nýja skipið á mun auðveldara með siglingar í Landeyjahöfn og ljóst að nýi Herjólfur hefur siglt mun oftar til hafnarinnar en Herjólfur III. hefði getað,“ segir þar. omfr@mbl.is  Nota á nýjar aðferðir í Landeyjahöfn  Hægt verði að opna höfnina fyrr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.