Morgunblaðið - 05.02.2020, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2020
Maesaiah Thabane, eiginkona Thom-
as Thabane, forsætisráðherra Lesótó,
var í gær ákærð fyrir mögulega aðild
sína að morðinu á Lipolelo Thabane,
fyrri eiginkonu ráðherrans. Gaf
Maesaiah sig fram við lögregluyfir-
völd í gær eftir að ákæran var gefin
út, og var hún sett í gæsluvarðhald.
Paseka Mokete, aðstoðarlögreglu-
stjóri í Lesótó, sagði við fjölmiðla að
átta aðrir hefðu einnig verið ákærðir
fyrir morðið og að rannsókn málsins
væri lokið. Sagði Mokete að lögreglan
hefði „sterkan málatilbúnað“ á hend-
ur ráðherrafrúnni.
Segist ætla að segja af sér
Thomas, sem er áttræður, og Lipo-
lelo voru að ganga í gegnum erfiðan
skilnað þegar hún var skotin til bana
fyrir utan heimili sitt í höfuðborginni
Maseru í júní 2017, tveimur dögum
áður en Thomas tók við embætti for-
sætisráðherra.
Thabane hefur boðist til að segja af
sér embætti vegna málsins, en hefur
ekki enn sett dagsetningu á afsögn
sína. Hann hefur verið sakaður um að
hafa beitt áhrifum sínum til að hamla
rannsókn málsins.
Ráðherrafrúin
ákærð fyrir morð
Níu bendlaðir við morðmál í Lesótó
AFP
Morðmál Thomas Thabane greiðir
atkvæði í kosningunum 2017. Eigin-
kona hans var myrt stuttu síðar.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Villa í snjallsímaforriti olli því að ekki
var hægt að birta niðurstöður kjör-
funda demókrata í Iowa í fyrrinótt.
Töfðust niðurstöðurnar því um meira
en sólarhring og birtust fyrstu tölur
um tíuleytið í gærkvöldi að íslenskum
tíma.
Pete Buttigieg, fyrrverandi bæj-
arstjóri í South Bend í Indiana-ríki,
beið ekki eftir niðurstöðunum til þess
að lýsa yfir sigri, en hann sagði upp-
lýsingar framboðs síns benda til þess
að hann myndi halda til New Hamp-
shire, þar sem næstu forkosningar
fara fram, sem sigurvegari.
Öldungadeildarþingmaðurinn
Bernie Sanders var einnig sigurreifur
og sagðist viss um að framboð hans
hefði fengið góðan stuðning í Iowa.
Þegar greint var frá fyrstu töl-
um í ríkinu um tíuleytið í gærkvöldi
reyndist Buttigieg hafa hlotið 26,9%
þegar búið var að telja 62% atkvæða.
Sanders, sem hafði fengið mest fylgi í
skoðanakönnunum í aðdraganda
kjörfundanna, var þar í öðru sæti
með 25,1% fylgi.
Biden í fjórða sæti
Joe Biden, fyrrverandi varafor-
seti, sem til þessa hefur verið talinn
sigurstranglegastur af öllum fram-
bjóðendum, var hins vegar í fjórða
sætinu samkvæmt fyrstu tölum, með
15,6%, en Elizabeth Warren endaði
með 18,3% fylgi.
Vandræðagangurinn í talning-
unni olli miklu fjaðrafoki í gær, og
nýtti Donald Trump Bandaríkja-
forseti tækifærið til þess að hæðast
að Demókrataflokknum. Sagði
Trump að hann væri sá eini sem gæti
lýst yfir „sigri“ í gær en hann hlaut
98% atkvæða í forvali repúblikana
sem fram fór á sama tíma.
Buttigieg efstur eftir fyrstu tölur
Tæknibilun tafði niðurstöður hjá demókrötum í Iowa Trump forseti lýsti yfir „sigri“ sínum
AFP
Iowa Pete Buttigieg lýsti yfir sigri
þó að niðurstaðan lægi ekki fyrir.
Stjórnvöld í Singapúr, Malasíu og
Taílandi staðfestu í gær að tilfelli
kórónuveirunnar hefðu komið þar
upp hjá fólki sem ekki hafði ferðast
til Kína. Þá tilkynntu yfirvöld í Hong
Kong um fyrsta dauðsfallið af völd-
um veirunnar þar.
Var þar um að ræða 39 ára gamlan
karlmann, en fjölmiðlar í borginni
sögðu hann hafa glímt við önnur
undirliggjandi heilsufarsvandamál.
Maðurinn smitaðist þegar hann var
á ferð í Wuhan, borginni þar sem
sjúkdómurinn kom fyrst upp, í síð-
asta mánuði.
425 manns hafa nú látist í Kína af
völdum lungnabólgufaraldursins, en
tilkynnt var í gær að 64 til viðbótar
hefðu látist í landinu. Er það hið
mesta frá upphafi faraldursins. Þá
hafa rúmlega 20.000 tilfelli verið
staðfest innan landamæra Kína.
Sjúkrahúsið sem kínversk stjórn-
völd létu reisa á tíu dögum í borginni
Wuhan tók á móti fyrstu sjúklingum
sínum í gær. Sjúkrahúsið er með
1.000 sjúkrarúmum, en borgaryfir-
völd hafa einnig látið breyta sýning-
arsal, leikfimihúsi og safnahúsi í
tímabundin sjúkrahús meðan á far-
aldrinum stendur.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin,
WHO, sagði að neyðarráðstafanir
Kínverja hefðu opnað fyrir þann
möguleika að koma í veg fyrir frek-
ari útbreiðslu veirunnar, en kínversk
stjórnvöld hafa sett á víðtækustu
sóttkví sem sögur fara af, en millj-
ónir manna eru nú í farbanni. Að
mati WHO uppfyllir faraldurinn ekki
enn þau skilyrði sem þarf til að hægt
sé að kalla hann „alheimsfaraldur“.
AFP
Fyrsta andlátið
í Hong Kong
Kórónuveiran borist til um 20 ríkja
Faraldur Þessi sýningarhöll í Wuhan á nú að taka á móti sjúklingum.
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástS s vinnuföt í
PFAFF • Grensásvegi 13 • Sími: 414 0400 • www.pfaff.is
SkÍNaNdI
LjÓSaÚRvAl