Morgunblaðið - 05.02.2020, Page 15

Morgunblaðið - 05.02.2020, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2020 Við Reykjavíkurtjörn Löngum hefur tíðkast að gefa fuglunum við Tjörnina brauð. Þessar þrjár álftir tóku matargjöfinni feginshendi, enda búið að vera kalt í veðri upp á síðkastið. Kristinn Magnússon Í amstri dagsins þar sem við sitjum þar að auki undir stöð- ugum fréttum af því sem miður fer í heiminum, vill að gleymast hve gott það er að búa á Íslandi – hversu mikil gæfa það er að fæð- ast hér eða eiga hér heima. Þrátt fyrir ýmislegt megi færa til betri vegar og mörg óunninn verk séu fram undan, er Ísland eitt mesta velmegunarland heims. Í raun skiptir litlu hvort horft er á efnisleg gæði eða hug- læg. Mér er til efs að nokkur smáþjóð hafi nokk- urn tíma alið af sér jafnmarga hæfileikaríka listamenn og Íslendingar, að ekki sé talað um afreksfólk í íþróttum. Mezzoforte, Björk, Of Monsters and Men og Kaleo. Sinfóníuhljóm- sveit Íslands þykir með þeim bestu. Jóhann Jó- hannsson, sem féll frá langt fyrir aldur fram, var í hópi bestu kvikmyndatónskálda heims. Hildur Guðnadóttir tónskáld er að leggja heiminn að fótum sér. Íslenskt kvikmynda- gerðarfólk hefur haslað sér völl í hörðum heimi. Baltasar Kormákur leikstjóri, Elísabet Ronaldsdóttir klippari og Egill Egilsson leik- stjóri og kvikmyndatökumaður. Arnaldur Indriðason hefur staðið fremstur meðal jafn- ingja í útrás íslenska rithöfunda á síðustu ár- um. Listinn er langur – miklu lengri. Við erum að gera eitthvað rétt Sá kraftur og fjölbreytileiki sem einkennir íslenskt listalíf er ótrúlegur. Það kraumar allt og bendir til að við séum að gera eitthvað rétt. Okkur hefur tekist að búa til frjórri jarðveg fyrir listir og menningu en flestum öðrum þjóð- um. Hið sama á við um íþróttir. Aðeins Íslend- ingar skilja hvernig 360 þúsund manna þjóð tekst að tefla fram hverjum íþróttamanninum á fætur öðrum á keppnisvöllum heimsins. Karla- og kvennalandsliðin í knattspyrnu hafa glæsilegri árangri en nokkurn Ís- lending dreymdi um. Svipað er að segja um landsliðið í körfubolta, að ekki sé talað um handboltann þar sem framtíðin virðist björt með ungum og efnilegum leik- mönnum. Íslenskir fatlaðir íþróttamenn standa margir fremstir í heiminum á sínu sviði. Gunnar Nelson, Anníe Mist Þór- isdóttir, Fanney Hauksdóttir, Ás- dís Hjálmsdóttir og Arnar Davíð Jónsson eru afreksfólk og meðal þeirra fremstu í heiminum í sín- um íþróttagreinum. Í gamni hafa útlendingar haldið því fram að það sé eitthvað í vatninu sem skýri glæsilegan árangur margra íþróttamanna. Hreina loftið – súrefnið – gefi Íslendingum aukakraftinn. Stórbrotin náttúra – landið sjálft, blítt og gjöf- ult en einnig harðneskjulegt og óvægið, hafi hert fámenna þjóða, gefið henni kraft en einn- ig innblástur sem brjótist fram ekki aðeins á íþróttavellinum heldur ekki síður í bók- menntun, tónlist, dansi, kvikmyndum, mynd- list og leiklist. Hlutur launafólks vex Það er langt í frá sjálfgefið að fámennri þjóð takist að byggja upp eitt besta heilbrigðiskerfi heims, að mati Lancet, sem er eitt virtasta vís- indarit heims á sviði læknisfræði. Íslenskir vís- indamenn á sviði læknisfærði standa frama- lega. Með sama hætti gerðist það ekki af sjálfu sér að til hefur orðið jarðvegur fyrir öflug há- tæknifyrirtæki sem eru leiðandi á sínu sviði í heiminum eða framsækin hugbúnaðarfyr- irtæki sem sækja út á erlenda markaði. Og þrátt fyrir að íslenskt þjóðarbú hafi orðið fyrir áföllum hefur okkur tekist að byggja upp velferðarsamfélag sem stenst samanburð við þau bestu í heiminum. Í ýmsu stöndum við framar öðrum þjóðum í lífsgæðum. Síðustu ár hafa verið góð og íslenskt launa- fólk stendur betur að vígi en nokkru sinni. Frá 2014 til 2019 jókst kaupmáttur launa um 26% og kaupmáttur lágmarkslauna um 32%. Þetta þýðir að kaupmáttur hafi aukist um 5-6% að meðaltali á hverju ári. Fjárhagsstaða heim- ilanna hefur gjörbreyst á síðustu árum. Skuld- ir lækkað og eigið fé aukist. Í engu ríki OECD rennur stærri hluti af verðmætasköpun efnahagslífsins til launfólks en á Íslandi, eða 64%. Sviss og Danmörk koma þar á eftir með 60,5% og liðlega 59%. Launa- hlutfallið hefur farið hækkandi á undanförnum árum sem þýðir að hlutdeild launafólks hefur aukist en hlutur fyrirtækja dregist saman. Ár- ið 2009 var hlutur launafólks rétt tæp 51%. Jöfnuður er meiri á Íslandi en á öðrum Norðurlöndum (skv. Gini-stuðli). Ekkert land í OECD er með meiri jöfnuð fyrir utan Slóvak- íu, en þar eru lífskjörin töluvert lakari en hér á landi. Hvergi er fátækt eldri borgara minni en á Íslandi og samkvæmt alþjóðaeftirlauna- vísitölunni er hvergi betra að fara á eftirlaun. Samkvæmt OECD er fátækt (hlutfall fólks með lægri tekjur en 50% af miðgildistekjum) hvergi minni en í Danmörku og á Íslandi. Á Íslandi eru greidd hæstu meðallaunin. Næst á eftir koma Lúxemborg, Sviss og Bandaríkin. Lágmarkslaun á Íslandi eru þau þriðju hæstu í löndum OECD. Í Noregi og Danmörk eru lágmarkslaunin hærri. Hagkerfi til fyrirmyndar Jafnrétti kynjanna er hvergi meira en á Ís- landi. Í ellefu ár hefur Ísland verið leiðandi meðal þjóða í jafnréttismálum samkvæmt skýrslu Alþjóða efnahagsráðsins (World Economic Forum). Á síðustu árum hafa Íslendingar notið verð- stöðugleika. Verðbólga hefur aldrei farið yfir 3% að meðaltali síðustu sex ár, í fjögur ár var verðbólga 2% eða lægri. Vextir eru í sögulegu lágmarki. Ísland er fyrirmyndarhagkerfi í úttekt Al- þjóða efnahagsráðsins. Á mælikvarða „Inclu- sive Development Index“, sem mælir ekki að- eins hagvöxt heldur ýmsa félagslega þætti og hvernig ríkjum tekst að láta sem flesta njóta efnahagslegs ávinnings og framfara og tryggja jöfnuð milli kynslóða raða Norðurlöndin sér í efstu sætin; Danmörk, Noregur, Finnland Sví- þjóð og Ísland. Ísland er öruggasta og friðsamasta land heims samkvæmt „Global Peace Index“. Dan- mörk er í fimmta sæti, Finnland í fjórtánda sæti, Svíþjóð í því átjánda og Noregur í tutt- ugasta sæti. Þegar allt þetta er haft í huga er það um- hugsunarvert af hverju reynt er að draga að- eins upp dökka mynd af landi og þjóð. Það er engu líkara en ákveðin öfl nærist á að dvelja við hið neikvæða. Fá tækifæri eru látin ónotuð til að tala Ísland niður. Allt er gert til að byggja undir þá tilfinningu að Ísland sé spillt land þótt landið sé í hópi þeirra óspilltustu að mati alþjóðsamtaka sem berjast gegn spill- ingu. Ísland er í 11. sæti af 180 löndum á lista Transparency International. En þótt margt hafi tekist vel og staðan al- mennt góð, er ekki þar með sagt að ekki sé hægt að gera betur á ýmsum sviðum. Við eig- um ýmis verk óunninn þegar kemur að al- mannatryggingum, skipulagi heilbrigðiskerf- isins og ekki síður menntakerfisins. Við þurfum að gera meiri kröfur til þess að sam- eiginlegir fjármunir okkar nýtist en sé ekki sólundað. Og okkar bíða risaverkefni á sviði innviðafjárfestinga og til þess erum við vel í stakk búin. Tækifæri eru fyrir hendi. Eftir Óla Björn Kárason »Umhugsunarvert er af hverju reynt er að draga aðeins upp dökka mynd af landi og þjóð. Engu er líkara en ákveðin öfl nærist á að dvelja við hið neikvæða. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingsmaður Sjálfstæðisflokksins. Land tækifæra og velmegunar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.