Morgunblaðið - 05.02.2020, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 05.02.2020, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2020 Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Stóra-Rimakot, Rangárþing ytra, fnr. 219-8735, þingl. eig. Kristín Bjarnadóttir, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Suðurlandi, þriðjudag- inn 11. febrúar nk. kl. 11:00. Hemla 2, Rangárþing eystra, , fnr. 219-3099, þingl. eig. Vignir Siggeirs- son og Lovísa Herborg Ragnarsdóttir, gerðarbeiðendur Vátrygginga- félag Íslands hf. og Arion banki hf., þriðjudaginn 11. febrúar nk. kl. 12:00. Sýslumaðurinn á Suðurlandi 4. febrúar 2020 Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30, nóg plás. Hreyfisalur- inn er opinn milli kl. 9.30-11.30, líkamsræktartæki, lóð og teygjur. Jóga 60+ með Grétu kl. 12.15 og13.30. Söngstund við píanóið með Helgu kl. 13.45. Kaffi kl. 14.30-15. Bókaspjall með Hrafni kl. 15. Nánari upp- lýsingar í síma 411-2702. Allir velkomnir. Árbæjarkirkja Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Opið hús, félagsstarf fullorðinna, í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 13 til 16. Stólaleikfimi með Öldu Maríu og þorragleði. Kaffi og með því á eftir í boði kirkjunnar. Allir hjartanlega velkomnir. Árskógar Opin handavinnustofa kl. 9-12. Opin smíðastofa kl. 9-15. Stóladans með Þóreyju kl. 10. Spænskukennsla kl. 10.45-11.30. Brids kl. 12. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Innipútt Skógar- manna kl. 13-14. Opið hús, t.d. vist og brids eða bíó. kl. 13-16. Hádeg- ismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700. Boðinn Handavinna kl. 9-13.30. Bónusrútan kl. 13. Harmonikkuspil og söngur kl. 13.30. Vatnsleikfimi kl. 14.30. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10- 10.30. Slökun með Rás 1, kl. 9.45. Námskeið í tálgun kl. 9.30-12. Spiladagur, frjáls spilamennska kl. 12.30-15.50. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15. Breiðholtskirkja Kyrrðarstund kl. 12, hádegisverður kl. 12.45, félagsstarf kl. 13.45. Bústaðakirkja Félagsstarfið verður á sínum staðfrá kl. 13-16. Spil, handavinna og kaffið góða frá Sigurbjörgu, Kristín Ólafsdóttir frá Hjálparstarfi Kirkjunnar kemur í heimsókn og segir frá starfi þess en nú í ár er Hjálparstarfið 50 ára. Hlökkum til að sjá ykkur, starfsfólk Bústaðakirkju. Dalbraut 18-20 Handavinnusamvera í vinnustofu. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8.50. Púslum saman kl. 9-16. Upplestrarhópur Soffíu kl. 10-12. Línudans kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30. Kynning á nýjum vörum frá Öryggismiðstöð- inni kl. 11.50. Zumba kl. 13. Tálgun kl. 13.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bókband kl. 9. Postulínsmálun kl. 9. Minigolf kl. 10. Tölvu- og snjallsímaaðstoð kl. 10.30. Bókband kl. 13. Frjáls spilamennska kl. 13-16.30. Myndlist kl. 13.30. Dans með Vita- torgsbandinu kl. 14. Hádegismatur kl. 11.30-12.30 alla daga vikunnar og kaffi kl. 14.30-15.30 alla virka daga. Verið öll hjartanlega velkomin. Garðabær Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Brids í Jónshúsi kl. 13. Vatnsleikfimi kl.7.10/7.50/15.15. Kvennaleikfimi Ásgarði kl. 9.30. Kvennaleikfimi Sjálandi kl. 10.30. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11. Leir Smiðja Kirkjuhvoli kl. 13. Zumba salur Ísafold kl. 16.15. Gerðuberg 3-5 Opin Handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16. Qigong 9-10. Leikfimi Helgu Ben kl. 11-11.30. Útskurður / pappamódel með leiðbeinanda kl. 13-16. Félagsvist kl. 13- 16. Döff félag heyrnarlausra kl. 12.30-15. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, opinn kennslutími, kl. 13 félagsvist, kl. 13 postulínsmálun. Guðríðarkirkja Þorrablót félagsstarfs eldri borgara í dag kl. 12. Byrj- um á helgistund í kirkjunni, síðan verður farið inn í safnaðarheimili og borðaður þorramatur. Maturinn kostar 2000 kr. Syngjum saman skemmtileg þorralög. Hlökkum til að sjá ykkur, sr. Leifur Ragnar, Hrönn og Lovísa. Gullsmári Myndlist kl. 9, botsía kl. 9.30, gönguhópur kl. 10.30, postu- línsmálun, kvennabrids og silfursmíði kl. 13. Línudans fyrir lengra komna kl. 16 og 17. Línudans fyrir byrjendur kl. 18. Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Útskurður og tálgun með leiðbeinanda frá kl. 9-12, 500 kr. dagurinn og allir velkomnir. Botsía kl. 10–11. Hádegismatur kl. 11.30–12.30. Hraunsel Ganga alla daga í Kaplakrika kl. 8-12, línudans kl. 11, bingó kl.13, handverk kl.13, Gaflarakórinnn kl. 16, pútt Hraunkoti kl. 10-11.30. Hvassaleiti56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Framhaldssaga kl. 10.30. Frjáls spilamennska kl. 13. Handavinnuhópur 13-16. Korpúlfar Stjórnar- og nefndarfundur kl. 10. Glerlistanámskeið kl. 9. Gönguhópar kl. 10 frá Borgum og í Egilshöll, keila í Egilshöll kl. 10. Gaman saman í Borgum kl. 13 og Þorrablót Korpúlfa í kvöld í Borg- um, húsið opnað kl. 18 og borðhaldið hefst kl. 19. Uppselt. Pálmar Ólason leikur ljúfa tónlist og undir dansi. Minni kvenna, minni karla, dansatriði og óvænt skemmtiatriði. Muna aðgangsmiðahappadrætti. Qigong fellur niður. Seltjarnarnes Gler og bræðsla á neðri hæð félagsheimilisins kl. 9 og 13. Leir Skólabraut kl. 9. Botsía Skólabraut kl. 10. Kaffispjall í króknum kl.10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. timburmenn Valhúsaskóla kl. 13. Handavinna með leiðbeinanda á Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi kl. 18.30. Minni á félagsvistina sem verður í salnum Skólabraut á morg- un og kl.13.30 og skráninguna í ferðina þriðjudaginn 18. febrúar nk. Stangarhylur 4 Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4, kl. 10, kaffi og rúnnstykki eftir göngu. Söngfélag FEB kóræfing kl. 16.30, stjórnandi Gylfi Gunnarsson. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Bíll með öllum mögu- legum aukabúnaði Skráður 10/2012, ný tímareim (skipt í 152 þ.km. Framhjóladrif, 1,6 TDI, ekinn 153 þ.km. beinskiptur, dökkbrúnn, leðurklæddur, rafmagn í sætum, minni í sætum, stafrænt mælaborð, dráttarbeisli, skynjarar allan hringinn, álfelgur, navigation, skjár með bluetooth og öllu mögulegu, tölvustýrð miðstöð bæði fram í og aftur í, Xenon ljós sem elta í beygjum, kastarar, langbogar, sumar og vetrardekk. Uppl. í síma 615 8080 TILBOÐ 1.250 þús. staðgreitt SKODA Superb Station Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is IÐNAÐARMENN VERSLANIR VEITINGAR VERKSTÆÐI BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á ✝ HallfríðurBjarnadóttir fæddist í Aðal- stræti 16 í Reykja- vík 20. apríl 1922. Hún lést í Reykja- vík 20. janúar 2020. Foreldrar hennar voru hjón- in Bjarni Þorgeir Magnússon, f. 10.8. 1891, d. 7.3. 1933, og Helga Enea Andersen, f. 23.7. 1894, d. 18.4. 1986. Systkini Hallfríðar eru Ellen, f. 23. september 1919, d. 3.6. 2013, Agnar, f. 2.3. 1921 og Jakob, f. 29.12. 1926, d. 15.1. 1989. 10. nóvember 1945 giftist Hallfríður Árna Kristni Valde- marssyni prentsmiðjustjóra, f. 27.6. 1923, d. 14.8. 1969. For- eldrar Árna voru: Valdimar Árnason, f. 11.4. 1893, d. 26.12. 1962 og Guðlaug I. Sigurðar- dóttir, f. 1.6. 1894, d. 8.3. 1956. Börn þeirra eru: 1) Þorgeir Logi, f. 17.4. 1946, d. 5.4. 1997, maki Ingunn Erna Stefánsdótt- ir, f. 5.8. 1947). 2) Haraldur, f. 19.4. 1948, maki Guðríður Kristjánsdóttir, f. 18. nóvem- ber 1951, d. 27. maí 2019. 3) Ingibjörg, f. 2.12. 1951, d. 8.1. 2008, maki Guðmundur F. Baldursson, f. 22.1. 1952. Ömmubörn Hallfríðar eru 9 og langömmubörn 17. Árið 1975 giftist Hallfríður seinni eiginmanni sínum, Bárði Óla Pálssyni, f. 27.8. 1910, d. 26.4. 1986. Börn Óla frá fyrra hjónabandi eru: Tómas Grétar Óla- son, f. 11.2. 1935, d. 4.10. 2015, Pálmar Ólason, f. 5.10. 1938, Smári Ólason, f. 10.7. 1946. Hallfríður hóf ung störf í prentiðnaðinum. Árið 1961 stofnaði hún ásamt Árna manni sínum Prentsmiðju Árna Valdemarssonar – PÁV og unnu öll börnin þeirra þrjú í fyrirtækinu til lengri eða skemmri tíma. Hallfríður var virk í fé- lagslífi og íþróttum. Hún var meðlimur í Oddfellow- reglunni. Hún æfði sund með Sundfélagi Reykjavíkur, fim- leika með KR og var mikil skíðakona alla tíð. Hallfríður var meðal fyrstu iðkenda jóga á Íslandi og var ein stofnenda jógastöðvarinnar Heilsubótar þar sem hún leiðbeindi um ára- bil. Hallfríður var listfeng og stundaði nám í vatnslitamálun á efri árum. Hún naut þess að ferðast og ferðaðist víða um heim, allt til 97. aldursárs. Útförin fer fram frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík í dag, 5. febrúar 2020, klukkan 13. Tökum spil, fáum okkur púrtvín! Svona var Halla amma mín, alltaf glöð og til í að gera eitt- hvað skemmtilegt. Það er mikil gæfa að hafa átt hana svona lengi að. Hún var fyrirmynd okkar barna- barnanna og yngsta kynslóðin var ekki síður stolt af lang- ömmu. Lífsþorstinn og gleðin sem fleyttu ömmu í gegnum þungar raunir eru veganesti okkar allra. Amma hafði unun af því að ferðast og vildi helst alltaf vera með næsta ferðalag á sjóndeild- arhringnum. Hún fór því víða, um allt Ísland og líka heimsálf- anna á milli. Hún sótti líka í áhugaverðan félagsskap og skemmtilega hreyfingu. Skíða- ferðirnar voru ófáar og í miklu uppáhaldi. Þegar hún varð átt- ræð ákvað hún að gefa sjálfri sér forláta „carving“-skíði í af- mælisgjöf til að komast hraðar. Áhugi hennar á íþróttum og hreyfingu var mikill frá fyrstu tíð. Fyrst fimleikar, sund, skíði og síðar jóga. Hún þreyttist ekki á að leiðbeina okkur barnabörnunum í því hvernig best væri að gera höfuðstöður og stinga sér af sundlaugar- bakkanum. Ég man eftir því að horfa á hana með aðdáun og monta mig endalaust við vini mína. Hver annar gat stært sig af því að eiga ömmu sem gat staðið á haus úti á miðju gólfi, stungið sér listilega í laugina og skíðað yfir fjöll og firnindi? Og það á áttræðisaldri! En fyrst og síðast var skap- gerðin alveg einstök; þraut- seigja, hógværð, nægjusemi, já- kvæðni og óþrjótandi lífsgleði. Og kappið! Asinn! Hlutirnir voru kláraðir eins fljótt og unnt var, amma var hamhleypa til allra verka. Ég var tæplega tvítug þegar pabbi minn, sonur hennar, dó. Fram að þeim tíma hafði amma verið ævintýra-amma, kraft- mikla amma, jóga- og skíða- amma, en eftir að pabbi dó breyttist samband okkar. Þá myndaðist nýr strengur. Ég fann frið nálægt henni, bæði af því þannig fannst mér ég nær pabba en líka vegna þess að hjá henni voru hlutirnir ekki flóknir. Lífið snerist um að njóta þess sem það hafði upp á að bjóða, hversu dásamleg for- réttindi það væru að ferðast og skoða nýja staði, á Íslandi og úti í heimi, að sitja saman og spila, sötra kaffi og stundum púrtvín með. Að takast á við líf- ið, vera þakklát fyrir það sem er, horfa spennt til framtíðar og halda óhrædd í næsta ferða- lag. Ég kveð ömmu mína, Hall- fríði Bjarnadóttur, með söknuði og virðingu. Auður Rán Þorgeirsdóttir. Hallfríður Bjarnadóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐFINNA HREFNA ARNÓRSDÓTTIR, Guffý, andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 28. janúar. Útför hennar fer fram frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 8. febrúar klukkan 14. Kransar og blóm eru afþökkuð. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á félagsstarf Dvalarheimilis aldraða í Stykkishólmi. Banki: 0309-26-002000, kt. 620269-7009. Karvel Hólm Jóhannesson Guðlaugur Ari Karvelsson Þórunn Inga Gísladóttir Hermann K. Karvelsson Kristín Þorbjörg Sverrisdóttir Kjartan J. Karvelsson Ólöf Inga Stefánsdóttir Ívar Sindri Karvelsson Jóhanna Kristín Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabarn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.