Morgunblaðið - 05.02.2020, Side 25

Morgunblaðið - 05.02.2020, Side 25
saman, fórum í ferðalag til Póllands sumarið 2015 og svo skipulagði ég fjölskylduferð til Vínar 2016 þegar þau fögnuðu demantsbrúðkaupinu sínu og 80 ára afmæli þar sem stór- fjölskyldan hittist. Amma kenndi mér að prjóna og sauma þegar ég var sex ára og ég hef alltaf verið iðin í höndunum, að sauma út eða prjóna eitthvað. Í löngu stjórnarviðræð- unum eftir kosningarnar 2016 prjón- aði ég fjögur eða fimm pör af vettl- ingum, húfur, sokka og ég veit ekki hvað. Svo finnst mér notalegt að lesa bækur, sögulegar skáldsögur, ævi- sögur og ýmislegt fleira.“ Fjölskylda Maki Ástu er Stefán Rafn Sigur- björnsson, f. 27.12. 1989, upplýsinga- fulltrúi Seðlabanka Íslands. For- eldrar hans eru Sylvía Marta Borg- þórsdóttir, f. 27.12. 1968, og Sigur- björn Úlfarsson, f. 19.12. 1966, kvæntur Dóru Jónsdóttur. Alystur Ástu eru Lovísa Irpa Helgadóttir, f. 9.11. 1985, verkfræð- ingur, búsett í Reykjavík; Rakel Björt Helgadóttir, f. 13.8. 1991, tón- listarmaður og námsmaður, búsett í Reykjavík; Margrét Ása Helgadótt- ir, f. 28.1. 1999, námsmaður, búsett í Amsterdam. Hálfbróðir Ástu sam- feðra er Heiðar Óli Helgason, f. 21.11. 2011, búsettur í Reykjavík Foreldrar Ástu er Ingibjörg Sara Benediktsdóttir, f. 17.7. 1965, tann- læknir, búsett í Førde í Noregi, maki: Øystein Vasset lögfræðingur, og Helgi Njálsson, f. 7.4. 1965, við- skiptafræðingur, búsettur í Reykja- vík. Kjörhundur Ástu er Lubbi, sem er um 11 ára. Foreldrar hans eru Sig- ríður Ingibjörg Ingadóttir og Birgir Hermannsson. Ásta Guðrún Helgadóttir Jónína Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Akureyri Þorkell Valdemar Þorkelsson Ottesen prentari á Akureyri Ásta Þorkelsdóttir Ottesen húsfreyja og sjúkrahús- starfsmaður á Húsavík Benedikt Ingvar Helgason tónlistarkennari á Húsavík Ingibjörg Sara Benediktsdóttir tannlæknir í Førde í Noregi Hólmfríður Benediktsdóttir húsfreyja á Húsavík Helgi Ólafsson verkamaður á Húsavík Guðrún Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík Marinó Ólafsson kaupmaður í Reykjavík Lovísa Margrét Marinósdóttir fv. verslunarkona, bús. í Kópavogi Njáll Þorsteinsson fv. verslunarmaður, bús. í Kópavogi Guðrún Friðrika Guðmundsdóttir saumakona í Reykjavík Þorsteinn Guðbrandsson kaupmaður í Reykjavík Úr frændgarði Ástu Guðrúnar Helgadóttur Helgi Njálsson viðskiptafræðingur í Reykjavík DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2020 Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri Flugvallarþjónusta BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda. 5-8 manneskjur 19.500 kr. 1-4 manneskjur 15.500 kr. Verð aðra leið: Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞETTA ER TVÍBURABRÓÐIR KONUNNAR MINNAR, ARNALDUR.” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að eiga ferðafélaga um lífsins stigu. ÞRJÁR MÍNÚTUR OG FJÖRUTÍU OG FIMM SEKÚNDUR SVO LENGI ENTIST ÞÚ Í MEGRUNINNI NÝTT MET! HVERSU MIKIÐ HELDURÐU AÐ SNATI SKILJI AF ÞVÍ SEM VIÐ SEGJUM? HANN SKILUR „MATARTÍMI” OG „ÚT AÐ LABBA” … OG „FÖRUM MEÐ HANN TIL DÝRALÆKNISINS”… STJÓRNIN FYRIRSKIPAÐI ALLSHERJAR YFIRHALNINGU EFTIR GAGNALEKANN– HÚN VISSI HVER VÆRI RÉTTI MAÐURINN Í VERKIÐ Ég hitti karlinn á Laugaveginumvið hegningarhúsið, þar sem hann stóð og horfði upp til Hall- grímskirkju: „Já, há er hún, há er hún,“ tautaði hann og sagði við mig án þess að heilsa: „Ég las það í Morgunblaðinu á sunnudaginn að Ögmundur sé genginn í þjóðkirkj- una.“ Hann þagnaði til þess að leggja áherslu á orð sín og bætti síðan við: „Ég hef aldrei verið í sama trúarsöfnuði og hann og hef ekki hugsað mér það:“ Ég ekki veit hvað um mig verður núna, – orð mér hrutu enda af munni: „Ég er utanveltu í þjóðkirkjunni“. Og snerist á hæl án þess að kveðja. Sigmundur Benediktsson skrifar á Leir að kyndilmessuvísa sem birt- ist í Vísnahorni í gær spái góðu. Hann orti á ferð um Suðurland: Dagsins hlýja dofnar því dapur lýist vaki. Sólarglýja sofnuð í sæng að skýjabaki. Á laugardaginn fór Sigmundur í andlega og líkamlega nærandi sól- skinsgöngu við Langasand, en þar segir hann að vísur vilji gjarnan fæðast og best sé að deila einni með lesendum Leirsins: Fægir aldan fjörustein frjó í skvaldurs brýnu. Hún þar sjaldan erjar ein, aðrar valda sínu. Skagfirðingurinn Þorleifur Kon- ráðsson yrkir í tilefni af jarðhrær- ingum við Grindavík: Ótti slær þar öngvan mann eins og margir vita. Þó er hætta þegar hann Þorbjörn er með hita. Jón Gissurarson yrkir og gefur þá skýringu að Wuhan sé borgin þar sem kórónuveiran kom fyrst upp. Þorbjörn sé að sjálfsögðu fjall- ið fræga við Grindavík. Wuhan-pestin kræf er kella kunnum henni ekki par. Okkur munu einnig hrella iðraverkir Þorbjarnar. Ljótt er það! Pétur Stefánsson skrifaði fyrir viku í Leirinn: „Hvergi er maður óhultur. Um dag- inn var stolið frá mér rándýrri þvottagrind úr sameiginlegu þvottahúsi blokkarinnar. Einnig var stolið handklæðum frá ná- granna mínum úr sama þvotta- húsi“: Víst er að heimurinn versnandi fer, vaða hér uppi bófar. Siðblindir leynast í húsinu hér helvítis rummungs þjófar. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Þjóðkirkjan og fjallið Þorbjörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.