Morgunblaðið - 05.02.2020, Síða 26

Morgunblaðið - 05.02.2020, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2020 England Bikarkeppnin, 4. umferð: Cardiff – Reading....................... (3:3) 4:7(v)  Jökull Andrésson var varamarkvörður Reading.  Reading mætir Sheffield United. Birmingham – Coventry............. (2:2) 6:3(v)  Birmingham mætir Leicester. Derby – Northampton ............................. 4:2  Derby mætir Manchester United. Liverpool – Shrewsbury .......................... 1:0  Liverpool mætir Chelsea. Oxford United – Newcastle .............(frl.) 2:3  Newcastle mætir WBA. Þýskaland Bikarkeppnin, 16-liða úrslit: Kaiserslautern – Düsseldorf .................. 2:5  Andri Rúnar Bjarnason kom inn á sem varamaður á 79. mínútu hjá Kaiserslau- tern. Eintracht Frankfurt – RB Leipzig......... 3:1 Schalke – Hertha Berlín ..................(frl.) 3:2 Werder Bremen – Dortmund.................. 3:2 Ungverjaland Mezökövesd-Zsóry – Újpest ................... 2:2  Aron Bjarnason var ekki í leikmanna- hópnum hjá Újpest.  Ungverjaland Komloi – Pick Szeged ......................... 23:33  Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði 1 mark fyrir Pick Szeged. Austurríki Bikarkeppnin, 16-liða úrslit: Linz – West Wien ................................. 23:29  Guðmundur Hólmar Helgason lék ekki með West Wien vegna meiðsla.   1. deild karla Álftanes – Skallagrímur ...................... 97:83 Staðan: Breiðablik 16 14 2 1620:1334 28 Hamar 16 14 2 1575:1399 28 Höttur 16 14 2 1376:1199 28 Álftanes 17 9 8 1463:1478 18 Vestri 15 8 7 1328:1227 16 Selfoss 15 5 10 1153:1217 10 Sindri 14 2 12 1147:1284 4 Snæfell 16 2 14 1287:1578 4 Skallagrímur 15 2 13 1219:1452 4 Evrópudeildin Olimpia Mílanó – Alba Berlín .......... 96:102  Martin Hermannsson skoraði 5 stig, tók 2 fráköst og gaf 3 stoðsendingar fyrir Alba Berlín á 25 mínútum.  Efstu lið: Anadolu Efes 20/3, Real Ma- drid 17/6, CSKA Moskva 16/7, Barcelona 16/6, Maccabi Tel Aviv 14/8. Meistaradeild Evrópu D-riðill: Brindisi – Zaragoza ............................ 91:93  Tryggvi Snær Hlinason skoraði 14 stig, tók 9 fráköst, varði 1 skot og stal 1 bolta á 17 mínútum.  Staðan: Zaragoza 10/4, Dijon 9/5, Bonn 8/6, Besiktas 7/7, Szombathely 6/8, Nept- unas 6/8, PAOK 5/9, Brindisi 5/9. Svíþjóð Borås – Djurgården .......................... 116:92  Elvar Már Friðriksson skoraði 21 stig, tók 5 fráköst og gaf 10 stoðsendingar á 28 mínútum með Borås. NBA-deildin Washington – Golden State............. 117:125 Charlotte – Orlando ......................... 100:112 Cleveland – New York............. (frl.) 134:139 Indiana – Dallas................................ 103:112 Brooklyn – Phoenix............................ 119:97 Atlanta – Boston............................... 115:123 Miami – Philadelphia ....................... 137:106 Memphis – Detroit ............................... 96:82 Sacramento – Minnesota ................. 113:109 LA Clippers – San Antonio.............. 108:105   Íslenska karla- landsliðið í hand- bolta verður í efsta styrk- leikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir und- ankeppni EM 2022 í Ungverja- landi og Slóvakíu hinn 23. apríl næstkomandi. Handknattleikssamband Evrópu gaf út nýjan styrkleikalista í gær. Mögu- leikarnir á að komast á Evrópumótið eftir tvö ár ættu því að vera góðir, en það yrði í tólfta skipti í röð sem Ís- land væri með á lokamóti EM. Ís- lenska liðið er í 11. sæti á styrkleika- listanum, en átta þjóðir verða í efsta styrkleikaflokki. Þar sem þrjár þjóðir í efsta styrkleikaflokki hafa þegar tryggt sér sæti á lokamótinu, færist Ísland upp í efsta styrkleikann. Efsti styrkleiki: Noregur, Svíþjóð, Danmörk, Þýskaland, Frakkland, Slóvenía, Tékkland og Ísland. Annar styrkleiki: Austurríki, Hvíta-Rússland, Portúgal, Norður- Makedónía, Serbía, Rússland, Svart- fjallaland og Holland. Þriðji styrkleiki: Sviss, Litháen, Rúmenía, Bosnía, Úkraína, Lettland, Pólland og Belgía. Fjórði styrkleiki: Finnland, Ítalía, Tyrkland, Ísrael, Eistland, Grikk- land, Kósóvó og Færeyjar. Tvö efstu lið hvers riðils tryggja sér sæti á lokamóti EM, sem og fjög- ur lið með bestan árangur í þriðja sæti. Ísland í efsta styrk- leikaflokki Aron Pálmarsson. KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin: Borgarnes: Skallagrímur – Keflavík .. 19.15 DHL-höllin: KR – Grindavík............... 19.15 Smárinn: Breiðablik – Valur ............... 19.15 Stykkishólmur: Snæfell – Haukar ...... 19.15 HANDKNATTLEIKUR Coca Cola-bikar karla, 8-liða úrslit: TM-höllin: Stjarnan – Selfoss ............. 19.30 Ásvellir: Haukar – Fjölnir ................... 19.30 Coca Cola-bikar kvenna, 8-liða úrslit: Austurberg: ÍR – KA/Þór......................... 19 Kaplakriki: FH – Valur........................ 19.30 Kórinn: HK – Fram.............................. 19.30 KNATTSPYRNA Faxaflóamót kvenna: Reykjaneshöll: Keflavík – Selfoss....... 19.15 Í KVÖLD! KÖRFUBOLTI Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Erlendir leikmenn í Dominos-deild karla í körfuknattleik eru komnir í meirihluta gagnvart íslenskum leik- mönnum ef horft er til þeirra sem spila mest fyrir hvert lið fyrir sig. Af þeim 72 leikmönnum í liðunum tólf sem mest hafa spilað í vetur eða eru í aðalhlutverki seinni hluta tímabilsins, þar sem taldir eru til sex hjá hverju liði, eru 40 erlendir leikmenn og 32 Íslendingar. Í hópi þessara 40 erlendu leik- manna eru þrír Bandaríkjamenn sem hafa fengið íslenskt ríkisfang, þeir Collin Pryor og Danero Thom- as hjá ÍR og Reggie Dupree hjá Keflavík. Bæði Collin og Danero hafa leikið með íslenska landsliðinu. Þeir Kristófer Acox hjá KR, Frank Booker hjá Val og Austin Magnus Bracey hjá Val eiga allir ís- lenskt foreldri og eru að sjálfsögðu taldir með Íslendingunum. Flestir á Norðurlandi Hlutföllin á milli liða eru mjög mismunandi. Flestir erlendu leik- mannanna eru á Norðurlandi því hjá bæði Tindastóli á Sauðárkróki og Þór á Akureyri eru fimm af sex leikjahæstu mönnum erlendir. Pét- ur Rúnar Birgisson hjá Tindastóli og Júlíus Orri Ágústsson hjá Þór eru þeir einu sem eru í hópi sex fyrstu manna í lið hjá þessum fé- lögum. Hjá Val er hinsvegar aðeins einn erlendur leikmaður í hópi þeirra sex sem mest hafa spilað, hinn banda- ríski Philip Alawoya. KR, Haukar og Grindavík eru með tvo erlenda leikmenn hvert í þessum hópi. Flestir erlendu leikmennirnir, af þessum sex leikjahæstu í hverju liði, eru bandarískir, eða sextán talsins. Einhverjir þeirra eru mögulega einnig með evrópskt ríkisfang. Átta koma frá Króatíu, fjórir frá Lithá- en, tveir frá Bretlandi, tveir frá Slóveníu, tveir frá Spáni og einn frá Búlgaríu, Sviss og Ungverjalandi. Sumir þessara Evrópubúa eru með tvöfalt ríkisfang og til dæmis er Hansel Atencia hjá Þór á Akureyri skráður sem Spánverji hjá KKÍ en er kólumbískur landsliðsmaður. Alls hafa 55 erlendir leikmenn spilað í deildinni í vetur, ef taldir eru allir þeir sem hafa komið við sögu í deildinni, að meðtöldum þeim þremur sem eru með íslenskt rík- isfang. Enn hefur þó ekki verið sett nýtt met á þessu sviði því samtals léku 57 erlendir leikmenn í úrvals- deildinni tímabilið 2007-2008. Erlendir leikmenn eru í meirihluta  40 af þeim 72 sem mest hafa spilað Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Garðabær Nikolas Tomsick frá Króatíu, Sinisa Bilic frá Slóveníu og Urald King frá Bandaríkjunum í leik Stjörnunnar og Tindastóls á dögunum. Liverpool tryggði sér í gær sæti í 16- liða úrslitum ensku bikarkeppn- innar í fótbolta, þrátt fyrir að tefla fram varaliðinu gegn C-deildarliði Shrewsbury á Anfield. Sigurmarkið, sem var sjálfsmark, kom á 75. mín- útu. Liverpool mætir Chelsea í næstu umferð. Þá mætir Derby úr B-deildinni Manchester United á heimavelli sín- um eftir 4:2-sigur á Northampton úr D-deildinni. Wayne Rooney, sem skoraði eitt marka Derby, mætir þar sínum gömlu félögum. Öll úrslitin úr bikarnum má sjá hér til vinstri. Varalið Liverpool komst áfram AFP Gaman Caoimhin Kelleher og Sepp van den Berg fagna í gærkvöldi. Tryggvi Snær Hlinason átti afar góð- an leik fyrir spænska liðið Zaragoza í sætum 93:91-útisigri á Brindisi frá Ítalíu í Meistaradeild Evrópu í körfu- bolta í gær. Tryggvi var með flesta framlagspunkta allra, skoraði 14 stig, tók 9 fráköst, varði eitt skot og stal einum bolta á tæplega 17 mín- útum. Með sigrinum tryggði Zara- goza sér toppsæti D-riðils og sæti í 16-liða úrslitunum. Hefur tímabilið verið afar gott hjá Tryggva og Zara- goza. Liðið er í þriðja sæti spænsku deildarinnar, tveimur stigum á eftir toppliði Barcelona. Maður leiksins í Meistaradeildinni Ljósmynd/FIBA Troðsla Tryggvi Snær Hlinason treður með tilþrifum á Ítalíu í gær. skoraði sitt annað mark í annarri lotu og þær Linda Sveinsdóttir og Ragnhildur Kjartansdóttir bættu við mörkum í annarri lotu og komu SA í 6:0. Sigrún Árnadóttir og Guðrún Viðarsdóttir löguðu stöðuna fyrir Reykjavík í þriðju lotu en gátu ekki komið í veg fyrir öruggan sigur SA. Liðin mætast öðru sinni í Egils- höll á fimmtudag klukkan 19:15, SA fer vel af stað í úrslitaeinvígi sínu við Reykjavík á Íslandsmóti kvenna í íshokkí. Akureyringar unnu öruggan 6:2-sigur á heima- velli sínum í gærkvöld og geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í Egilshöll á fimmtudag- inn kemur. Arndís Sigurðardóttir, Hilma Bergsdóttir og Sarah Smiley komu SA í 3:0 í fyrstu lotunni. Hilma en tvo sigra þarf til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. Takist Reykjavík að jafna metin í einvíg- inu mætast þau í oddaleik á Akur- eyri næstkomandi sunnudag. Liðin mættust níu sinnum á tímabilinu og SA vann sjö leiki á meðan Reykjavík vann tvo. Einu sinni var SA dæmdur 5:0-sigur, þar sem lið Reykjavíkur mætti ekki til leiks. Ljósmynd/Þórir Tryggvason Skot SA-konan Sarah Smiley skýtur að marki í gær. Markvörðurinn Andrea Jóhannesdóttir er til varnar. SA vantar einn sigur í viðbót

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.