Morgunblaðið - 05.02.2020, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2020
Þýska liðið Alba Berlín með Martin
Hermannsson í broddi fylkingar vann
sterkan 102:96-útisigur á ítalska liðinu
Olimpia Milano á útivelli í Evrópudeild-
inni í körfubolta í gærkvöld. Keppnin
er sú sterkasta í Evrópu. Minna fór
fyrir Martin en oft áður og skoraði
hann fimm stig, tók tvö fráköst og gaf
þrjár stoðsendingar á 25 mínútum, en
hann hitti aðeins úr tveimur af tíu
skotum sínum utan af velli. Alba fær
lítinn tíma til að fagna sigrinum því
strax annað kvöld er heimaleikur gegn
stórliðinu Real Madríd.
Arnór Sveinn Aðalsteinsson, leik-
maður Íslandsmeistara KR, meiddist í
úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í knatt-
spyrnu á laugardag. Arnór verður frá
næstu vikurnar, þar sem liðband í
ökkla togaði, en ekki er um að ræða
meiðsli sem koma í veg fyrir að hann
verði leikfær þegar Íslandsmótið hefst
í lok apríl.
Knattspyrnumaðurinn Ousmane
Dembélé mun ekki leika meira með
Barcelona á leiktíðinni eftir að hann
reif vöðva í læri á æfingu á mánudag.
Dembélé var þá nýkominn aftur af
stað eftir meiðsli í sama læri. Hann lék
aðeins þrjá leiki í spænsku deildinni á
leiktíðinni og hefur alls misst af 63
leikjum með Barcelona síðan hann
kom til félagsins fyrir þremur árum.
Króatíski knattspyrnumaðurinn
Ivan Perisic verður frá keppni næsta
mánuðinn þar sem hann ökklabrotn-
aði á æfingu með Bayern München í
gær.
Knattspyrnumaðurinn Guðmundur
Steinn Hafsteinsson hefur verið
samningslaus frá því hann yfirgaf
Stjörnuna í vetur en hefur nú ákveðið
að dvelja í Þýskalandi fram í maí. Guð-
mundur greindi Fótbolta.net frá þessu
í gær en hann hefur samið við Rot-
Weiss Koblenz sem leikur í D-deildinni
í Þýskalandi. Fram kemur að tímabilið
sé til 16. maí en Guðmundur hefur ekki
tekið ákvörðun um með hvaða liði
hann spilar á Íslandi í sumar eða hvort
hann spili hérlendis í sumar.
KA hefur fengið danska knatt-
spyrnumanninn Mikkel Qvist lánaðan
frá danska úrvalsdeildarfélaginu Hor-
sens. Qvist er 26 ára gamall og mjög
hávaxinn varnarmaður og Bo Henrik-
sen, þjálfari Horsens og fyrrverandi
leikmaður Fram, Vals og ÍBV, staðfesti
við Horsens Folkeblad í gær að hann
væri á förum frá félaginu en ætti
möguleika á að koma aftur og vinna
sér sæti í liðinu á ný. Lánssamning-
urinn gildir út ágústmánuð.
Elvar Már Friðriksson átti afar góð-
an leik með
Borås í
116:92-
sigri á
Djurg-
ården í
sænsku úr-
valsdeildinni í körfu-
bolta í gær. Elvar
skoraði 21 stig,
gaf 10 stoð-
sendingar og
tók 5 fráköst á
28 mín-
útum
spil-
uðum.
Borås er í toppsæti
deildarinnar með
46 stig eftir 27
leiki.
Eitt
ogannað
FRJÁLSAR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
ÍR-ingurinn Guðbjörg Jóna
Bjarnadóttir hóf keppnistímabilið á
hlaupabrautinni afar vel á Reykja-
víkurleikunum um liðna helgi. Guð-
björg vann bæði 60 metra og 200
metra hlaup í Laugardalshöllinni. Í
200 setti hún mótsmet og Íslands-
met stúlkna en Guðbjörg er 18 ára
síðan á aðfangadag. Hljóp hún
vegalengdina á 23,98 sekúndum og
60 metrana á 7,48 sekúndum.
Spurð hvort hún sé ekki ánægð
með tímana á RIG miðað við árs-
tíma segir Guðbjörg svo vera og
bendir á að sér henti betur að
hlaupa utandyra.
„Jú þetta var mjög fínt. Mér
finnst mjög erfitt að hlaupa inni,
sérstaklega 200 metrana. Meðal
annars vegna þess að ég er frekar
hávaxin. Ég hlakka hins vegar til
að komast út og hlaupa vegna þess
að ég hef aldrei verið í jafn góðu
formi. Það sést á tímunum því ég
hef aldrei byrjað árið á jafn góðum
tímum og ég gerði nú,“ sagði Guð-
björg þegar Morgunblaðið heyrði í
henni þegar hún var á milli tíma í
Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Hafi hún komið örlítið of seint í
kennslustundina klukkan 15:10 á
mánudag þá er við blaðamann að
sakast.
Stefnir að þátttöku á EM
Árið sem er nýhafið verður með
hækkandi sól vafalaust spennandi
hjá Guðbjörgu. Hún gæti átt
möguleika á því að komast inn á
EM sem fram fer í París í ágúst
þótt hún sé ekki eldri en raun ber
vitni. Þá verður HM 20 ára og
yngri haldið í júní og verður fróð-
legt að sjá hvar Guðbjörg stendur
gagnvart hlaupurum á svipuðu
reki.
„Fyrsta mótið hjá mér utanhúss
verður Smáþjóðameistaramótið í
maí. Ég kem einnig til með að fara
á sterkt mót í Þýskalandi þar sem
mörg af efnilegustu ungmennum í
Evrópu og í heiminum keppa. Ég
mun líklega finna einhver stigamót
til að freista þess að komast á Ól-
ympíuleikana en það á eftir að
koma í ljós. Það er svo sem ekkert
stress í kringum það. Ég er bara
18 ára.
HM undir 20 ára verður í júní í
Keníu og þar langar mig að kom-
ast í úrslit í 200 metra hlaupinu.
Vonandi kemst ég inn á EM full-
orðinna í ágúst vegna þess að ég er
mjög nálægt lágmarkinu. Það má
kannski segja að það sé aðalmark-
miðið fyrir árið 2020,“ benti Guð-
björg á.
200 metrarnir í forgangi
Guðbjörg hefur tekið þá ákvörð-
un að leggja megináherslu á 200
metrana þótt hún keppi einnig í
100 metra hlaupum. Hún segir það
ekki hafa verið erfitt val. „Það er
alveg klárt. 200 er miklu meira mín
grein. Ég ætla að einbeita mér að
200 metrunum á árinu og stefni að
því að setja fleiri Íslandsmet í
greininni. Um leið stefni ég að því
að bæta tímana mína í 100 metr-
unum,“ sagði Guðbjörg. Hún æfir
hér heima hjá ÍR en fer í æf-
ingabúðir í hlýrra loftslagi um
páskana.
„Ég fer til Spánar í æfingabúðir
um páskana en við förum alltaf í
æfingabúðir erlendis fyrir sumarið.
Það er nauðsynlegt að komast í
meiri hita og æfa tvisvar á dag.“
Á Íslandi í náinni framtíð
Guðbjörg stefnir að því að ljúka
stúdentsprófi frá MH í vor. Hún
hefur gert upp við sig hvernig hún
vill haga næstu skrefum og ætlar
að æfa á Íslandi í náinni framtíð.
Gerir hún jafnframt ráð fyrir því
að hefja nám í sálfræði í haust.
„Ég ætla að fara í sálfræði í HR
þegar ég lýk stúdentsprófinu. Mér
finnst fínt að æfa hér hjá Brynjari
(Gunnarssyni) þjálfara mínum og
hef ekki áhuga á að fara í háskóla-
íþróttirnar í Bandaríkjunum. Ég
hef mjög mikinn áhuga á sálfræð-
inni,“ sagði Guðbjörg Jóna enn-
fremur í samtali við Morgunblaðið.
Tímarnir gefa góð fyrirheit
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir segist aldrei hafa byrjað keppnistímabil jafn vel
Fer til Keníu í sumar til að keppa á heimsmeistaramóti U20 ára
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Sigursæl Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir gat leyft sér að brosa í Laugardals-
höllinni þar sem hún sigraði í 60 og 200 metra hlaupum, auk boðhlaups.
Samherji Arons Pálmarssonar hjá
Barcelona, Victor Tomás, mun láta
gott heita í handboltanum í sumar
vegna hjartveiki sem nýlega kom í
ljós við læknisskoðun. Tomás er fyr-
irliði liðsins og hefur verið hjá félag-
inu allan sinn feril. Tomás er 34 ára
og hefur verið hjá aðalliði Barcelona
í átján ár. Í ljósi stöðunnar segir
Tomás að skynsamlegast sé fyrir sig
að hætta en líkur benda til þess að
heilsufarið hafi versnað með ár-
unum. Ef hann héldi áfram þjálfun
sem afreksmaður gæti hann sett sig
í hættu vegna hjartveikinnar.
Fyrirliði hættir
vegna hjartveiki
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fyrirliðinn Víctor Tomás hefur leik-
ið með Barcelona í átján ár.
Alfreð Gíslason, sigursælasti hand-
knattleiksþjálfari Íslands fyrr og
síðar, er tilbúinn að fara að þjálfa á
ný eftir hálfs árs hvíld. Alfreð hætti
hjá Kiel síðasta vor eftir að hafa
stýrt þýska stórliðinu í ellefu ár og
ætlaði að taka sér langt frí. „Fyrir
ári hefði mér ekki dottið í hug að ég
yrði tilbúinn aftur eftir hálfs árs
hvíld. Það var nauðsynlegt fyrir
mig að taka mér frí en nú er ég klár
á ný,“ sagði Alfreð í viðtali við Kie-
ler Nachrichten og fram kemur að
það gæti hvort sem er verið sem
þjálfari landsliðs eða félagsliðs.
Alfreð vill þjálfa
á nýjan leik
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Endurkoma? Alfreð Gíslason er
tilbúinn til að taka við liði.
Þýska félagið Erlangen tilkynnti í
gær þá ákvörðun sína að segja
handknattleiksþjálfaranum Aðal-
steini Eyjólfssyni upp störfum.
Tæplega er um áfall að ræða fyrir
Aðalstein því fyrir lá að hann
myndi láta af störfum í sumar.
Raunar var haft eftir René
Salke, framkvæmdastjóra Erlang-
en, í fjölmiðlinum Nordbayern að
fyrirhuguð brottför Aðalsteins
kynni að hafa haft áhrif á andann
í liðinu.
Erlangen er í 11. sæti í þýsku
bundesligunni og er fjórum stigum
fyrir ofan fallsæti.
Salke hrósaði Aðalsteini fyrir
hans störf: „Við erum Alla mjög
þakklátir fyrir hans góðu vinnu.
Hann var réttur maður á réttum
tíma hjá okkur, þróaði frábæran
varnarleik liðsins, en við getum
ekki haldið áfram á þessari
braut.“
Huga þarf að ýmsu
Í lok nóvember á síðasta ári var
tilkynnt að Aðalsteinn myndi láta
af störfum hjá Erlangen sumarið
2020. „Ég framlengdi samning
minn í byrjun þessa árs eftir langt
og erfitt ferli. Litlu munaði að upp
úr slitnaði í samningum og við
flyttum heim á liðnu sumri. Segja
má að við höfum hætt við það á
síðustu stundu og tókum við þá
ákvörðun að vera áfram hjá Er-
langen ár til viðbótar og sjá svo
til,“ sagði Aðalsteinn í viðtali við
Morgunblaðið 27. nóvember.
Þá sagði hann jafnframt að að-
stæður fjölskyldunnar væru þann-
ig að taka þyrfti ákvörðun um
hvort þau vildu flytja heim til
Íslands eða búa áfram erlendis.
„Elsti sonur okkar er að verða
sex ára og fer að byrja í grunn-
skóla, svo það er að ýmsu að
hyggja áður en við hjónin stígum
næsta skref.“
Stuttgart sagt hafa áhuga
Aðalsteini stendur sjálfsagt eitt-
hvað til boða í Þýskalandi eftir að
hafa bæði sannað sig í efstu deild
og einnig farið með Hüttenberg
upp um tvær deildir á tveimur
árum.
Nordbayern segist hafa heim-
ildir fyrir því að mjög líklegt sé
að Aðalsteinn muni taka við liði
Stuttgart fyrir næsta tímabil.
sport@mbl.is
Aðalsteinn lætur af störfum
Ljósmynd/Erlangen
Hættur Aðalstein Eyjólfsson getur
nú velt fyrir sér næstu skrefum.