Morgunblaðið - 05.02.2020, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2020
ICQC 2020-2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
LOKAKAFLINN
Í SKYWALKER SÖGUNNI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
6 ÓSKARSTILNEFNINGAR ÓSKARSTILNEFNINGAR11
Rás 2
FBL
LEIKSTÝRÐ AF CLINT EASTWOOD
Hin kunni sýn-
ingar- og safn-
stjóri Hans Ul-
rich Obrist, sem
stýrir Serpen-
tine-sýningar-
salnum í London
jafnframt því að
koma að fjöl-
mörgum sýn-
ingum og mynd-
listaruppákomum víða um lönd,
segir að fólk sem hrærist í hinum
alþjóðlega listheimi þurfi að gæta
betur að vistspori sínu og safnanna.
Í samtali við The Art Newspaper
í tilefni af dagskrá Serpentine á 50.
starfsárinu kveðst Obrist hafa heit-
ið því að leggja sitt af mörkum
vegna aðkallandi loftslagsvárinnar.
Hyggst hann til að mynda standa
fyrir sýningaverkefnum sem standi
lengur en tíðkast hefur, hvort sem
þau verða á vefnum, í eða við Lond-
on eða í öðrum stórborgum. Þá
þurfi að huga vel að vistspori varð-
andi flutning á listaverkum og
ferðalögum stjórnenda og draga úr
slíku eins og unnt er.
Söfn hugi betur
að vistsporinu
Hans Ulrich Obrist
Sviðsupptaka af söngleiknum
Hamilton eftir Lin-Manuel Miranda
verður frumsýnd 15. október 2021.
Söngleikurinn vinsæli og margverð-
launaði var tekinn upp í Richard
Rodgers-leikhúsinu á Broadway í
júní 2016 meðan upprunalegi leik-
hópurinn var enn að sýna verkið, en
stuttu síðar fóru nýir leikarar að
taka við einstökum hlutverkum. Lin-
Manuel Miranda, sem upphaflega
fór með titilhlutverkið, hefur sam-
kvæmt frétt The New York Times
um málið beðið færis hvenær best
væri að sýna upptökurnar í kvik-
myndahúsum. Upptökunum stýrði
Thomas Kail, sem einnig leikstýrði
söngleiknum á sviði. Kail framleiðir
myndina í samstarfi við Miranda,
Jeffrey Seller og The Walt Disney
Company, en samkvæmt fréttinni
greiddi Disney 75 milljónir banda-
ríkjadala fyrir sýningarréttinn. Frá
því söngleikurinn var frumsýndur á
Broadway 2015 hafa 2,6 milljónir
áhorfenda séð sýninguna þar, en
söngleikurinn hefur einnig verið
settur upp á fjórum mismunandi
stöðum í Bandaríkjunum og London
auk þess sem hann verður tekinn til
sýningar í Ástralíu á næsta ári og í
Þýskalandi við tækifæri.
„Við vörðum miklum tíma í að búa
til frábæra leiksýningu og Tommy
hefur umbreytt sviðsuppfærslunni
með spennandi hætti í kvikmynd,
þar sem sjónarhornið er alltaf eins
og best verður á kosið,“ segir Mir-
anda í viðtali við The New York
Times og tekur fram að það séu mik-
il forréttindi að geta gert uppfærsl-
una aðgengilega almenningi, en
færri komust að á sínum tíma í Rich-
ard Rodgers-leikhúsinu til að sjá
upprunalega leikhópinn fara á kost-
um.
Hetja Lin-Manuel Miranda sem Hamilton.
Sviðsupptaka af
Hamilton á tjaldið
Dansverkið DuEls eftir Ernu Óm-
arsdóttur og Damien Jalet var frum-
sýnt á hinu sögufræga Vigeland-
safni í Osló um helgina.
DuEls er samstarfsverk Íslenska
dansflokksins (Íd) og norska dans-
flokksins Nagelhus Schia Produc-
tions. Verkið er samið af Ernu Óm-
arsdóttur, listrænum stjórnanda Íd,
og hinum belgíska Damien Jalet en
þau hafa áður starfað saman sem
danshöfundar. Á meðal verka þeirra
má nefna Transaquania out of the
Blue (2009) og Black Marrow (2009),
sem verður endursýnt á Stóra sviði
Borgarleikhússins í apríl.
DuEls er samansett úr nýju efni,
sem og brotum úr eldri verkum
danshöfundanna sem þau endur-
unnu fyrir þessa sýningu. Verkið
nýtir danslistina til að leysa úr læð-
ingi þá orku sem býr í hinum frægu
styttum myndhöggvarans Vigeland.
Í tilkynningu frá Íd segir að með því
að nýta sér goðsagnakennda eigin-
leika myndastyttnanna nái dansarar
að lýsa innri baráttu mannsins við
náttúruna, tækni, kyn, ást, trú og
dauða.
Uppselt er á allar sjö sýningarnar
sem sýndar verða í Vigeland-
safninu. Stefnt er að því að setja
DuEls upp á Íslandi á næsta ári.
Ljósmynd/Valdimar Jóhannsson
Formleikur Dansararnir vinna út frá hinum frægu höggmyndum Vigelands í safninu sem kennt er við hann.
DuEls sýnt
í safni Vige-
lands í Osló
Líkamar Samspil líkama úr steini og lifandi vekur athygli í DuEls en uppselt
er á allar sýningar á verki Ernu Ómarsdóttur og Dereks Jalet í Osló.
Breski leik-
stjórinn Terry
Hands er lát-
inn, 79 ára að
aldri. Hands
var einn virt-
asti leikhús-
maður Breta og
gegndi stöðu
listræns stjórn-
anda Konung-
lega Shakespeare-leikhússins í
Stratford-upon-Avon í aldarfjórð-
ung og hlaut mikið lof fyrir upp-
færslur sínar þar. Leikstjórn hans á
Hinriki VI færði honum bresku
leikhúsverðlaunin Olivier árið
1978.
Terry Hands látinn
Terry Hands