Morgunblaðið - 05.02.2020, Side 32

Morgunblaðið - 05.02.2020, Side 32
Jazzklúbburinn Múlinn hefur göngu sína að nýju með tónleikum í kvöld kl. 20 og að þessu sinni fara þeir fram í Kaldalóni í Hörpu. Á þeim kemur fram kvartett Einars Schev- ing og heldur útgáfutónleika í til- efni af útkomu á nýrri hljómplötu hans, Mi Casa, Su Casa. Er það þriðja plata kvartettsins og kom hún út í árslok í fyrra. Auk Einars eru í kvartettinum bassaleikarinn Skúli Sverrisson, píanóleikarinn Eyþór Gunnarsson og saxófónleik- arinn Óskar Guðjónsson. Fagna útgáfu í Hörpu MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 36. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Hin átján ára gamla Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, sem vann þre- faldan sigur í spretthlaupum á Reykjavíkurleikunum um síðustu helgi, stefnir á bæði Evrópu- og heimsmeistaramót á þessu ári. Hún er búin að ákveða sína að- algrein og er með framtíðar- áformin á hreinu hvað varðar keppni og nám. »27 Guðbjörg Jóna með hlutina á hreinu ÍÞRÓTTIR MENNING Erlendir leikmenn í Dominos-deild karla í körfuknattleik eru komnir í meirihluta gagnvart íslenskum leikmönnum ef horft er til þeirra sem spila mest fyrir hvert lið fyrir sig. Af þeim 72 leik- mönnum í liðunum tólf sem mest hafa spilað í vetur eða eru í aðal- hlutverki seinni hluta tímabilsins eru 40 erlendir leikmenn og 32 Íslendingar. »26 Erlendu leikmennirnir eru í meirihluta Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Elsti karl landsins, Lárus Sigfússon, er 105 ára í dag. Hann sér orðið illa og heyrnin er skert en enginn kemur að tómum kofunum hjá honum og glettn- in leynir sér ekki. „Þegar ég var hundrað ára fór ég síðast á hestbak og þá hætti ég líka að keyra bíl en ég hef rafskutluna til að skjótast í búðina þegar færðin er góð,“ segir hann. „Verst er að ég trassaði að læra að prjóna því það er það eina sem ég gæti annars gert svona sjóndapur.“ Afmælisbarnið hefur alltaf verið á ferðinni. Ungur reri Lárus til fiskjar frá Stóru-Hvalsá í Hrútafirði á árabáti með föður sínum og móðurbróður. Hann og Anna, systir hans, voru á fermingaraldri þegar þau reru yfir Hrútafjörðinn, gengu síðan yfir háls- inn og á Hvammstanga þar sem móðir þeirra lá veik á sjúkrahúsi og síðan sömu leið til baka sama dag. „Þegar ég var 16 ára og vetrarmaður í Miðfirði keypti ég tvö lömb á Króksstöðum, teymdi þau yfir hálsinn og fór einsam- all með þau í báti frá Bessastöðum yfir að Stóru-Hvalsá,“ minnir hann á. Lárus var mikill hestamaður og var meðal annars landpóstur frá Stað í Hrútafirði að Hólmavík um árabil. „Það var alltaf gaman að vera á góðum hestum, ómetanlegt, en ég lenti oft í slæmu veðri og ófærð.“ Hann rifjar upp að rétt við Hólmavík hafi vegurinn legið þvert yfir djúpa laut, sem lá niður að sjó. Hún hafi fyllst af snjó og ómögulegt hafi þá verið að koma hest- unum yfir með baggana. „Þeir sukku niður, snjórinn náði þeim í miðja síðu og því varð ég að taka af þeim, bera töskurnar í gegnum skaflinn og búa til stíg fyrir þá. „Á meðan biðu þeir róleg- ir eftir mér í hríðinni.“ Bóndinn fyrrverandi, sem hefur verið framsóknarmaður frá barnæsku, segist hafa hætt að skjóta fugla þegar hann varð grenjaskytta. „Þá gerði ég mér grein fyrir því hvað fuglaveiðar eru ómannúðlegar og óæskilegar á all- an hátt – veiðimenn eru ekkert betri en refurinn.“ Ekki tími til að deyja Í 31 ár starfaði Lárus sem ráðherra- bílstjóri samfara því að keyra leigubíl. Halldór E. Sigurðsson samgöngu- málaráðherra fékk hann til starfans. „Gísli, sonur hans, sagði honum að ráða mig, sagðist aldrei hafa séð eins þrifalegan bíl og minn sem benti til þess að ég hugsaði vel um hann.“ Lárus var þriðji í röðinni af 14 systkinum á Stóru-Hvalsá í Hrúta- firði og er einn eftir, en Anna, sem fæddist 1918, lést 18. janúar síðastlið- inn. Þau voru elstu systkini landsins á lífi. Sjálfur eignaðist hann sex börn með Kristínu Hannesdóttur, fyrrver- andi eiginkonu sinni, og eru fjögur þeirra á lífi. Lárus og Kristín Gísla- dóttir hafa búið saman í um tvo ára- tugi, en hún verður 95 ára síðar á árinu. Hann hefur hægt á ferðinni, styðst við göngugrind eða staf og skýst endrum og sinnum á rafskutl- unni í Kringluna. „Jafnvægið er reyndar svo skratti lélegt að Kristín þarf að styðja mig. Satt best að segja geri ég andskotann ekki neitt nema hlusta á hljóðbækur. Því er nú fjand- ans verr, afsakaðu orðbragðið.“ Lárus segir að langlífið sé í sjálfu sér eðlilegur hlutur. „Ég hef bara staðið mig betur en aðrir í að halda lífi í tórunni en ég hef alltaf sagt að mað- ur, sem er sístarfandi, hefur ekki tíma til að deyja. “ Morgunblaðið/RAX Tímamót Lárus Sigfússon og Kristín Gísladóttir klæddu sig upp á í gær í tilefni dagsins í dag. Trassaði prjónaskapinn  Lárus Sigfússon er elsti karl landsins, 105 ára í dag Sími 580 7000 |www.securitas.is Með öryggishnapp Securitas um úlnlið eða háls eykur þú öryggi þitt ef eitthvað kemur upp á. Þú býrð við meira öryggi á heimilinu og aðstandendum líður betur að vita af þér í öruggum höndum. Þú ýtir á hnappinn, boðin berast samstundis til stjórnstöðvar Securitas þar sem þú færð samband við sérþjálfað starfsfólk. Öryggisverðir Securitas með EMR þjálfun eru alltaf á vakt og bregðast hratt og örugglega við. Hafðu samband við öryggisráðgjafa Securitas í síma 580 7000 og kynntu þér kosti öryggishnappsins og hvaða annan öryggisbúnað hægt er að hafa með honum. SAMSTARFSAÐILI ÖRYGGISHNAPPUR SECURITAS 09:41 100% ÖRYGGI ÖLLUM STUNDUM ÖRYGGIS- HNAPPUR SECURITAS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.