Morgunblaðið - 10.02.2020, Page 10

Morgunblaðið - 10.02.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2020 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Minningarstund var haldin í gær í Hafnarfjarðarkirkju um sjómenn sem fórust í Halaveðrinu mikla 7.-8. febr- úar 1925, fyrir 95 árum. Jafnframt var opnuð sögusýning um Halaveðrið í safnaðarheimili kirkjunnar. Hægt verður að skoða sýninguna næstu vik- ur. Safnaðarheimilið er opið virka daga kl. 10-16 og á föstudögum kl. 10- 12. Í guðsþjónustunni var sérstaklega minnst 35 sjómanna sem fórust með togaranum Field Marshal Robertson. Sex þeirra voru breskir og 29 ís- lenskir. Nafn hvers og eins var lesið upp og tendruð kertaljós við minn- ingartöflu í kirkjunni. Sungnir voru sömu sálmar og við minningar- athafnir um týndu sjómennina 10. mars 1925. Hundruð börðust fyrir lífi sínu Togarinn Field Marshal Robertson var gerður út frá Hafnarfirði af út- gerðarfélagi Hellyersbræðra í Hull. Einnig fórust 33 sjómenn með togar- anum Leifi heppna frá Reykjavík og sex menn með vélbátnum Sólveigu sem fórst við Stafnes. Fleiri létust bæði á sjó og á landi. Þegar veðrið skall á voru 16 tog- arar á Halamiðum og þurftu 400-500 sjómenn að berjast fyrir lífi sínu. Mik- il leit var gerð að togurunum tveimur sem týndust og stóð hún frá 12. febr- úar og til 5. mars 1925. Haldnar voru minningarstundir í Hafnarfjarðar- kirkju og Dómkirkjunni. Á allraheil- agramessu 1926 afhenti útgerð Field Marshal Robertson Hafnarfjarðar- kirkju minningartöflu um skipverjana 35 sem fórust með togaranum. Taflan er varðveitt í kór kirkjunnar. Sögusýning um sjóslysin Séra Þorvaldur Karl Helgason og Egill Þórðarson loftskeytamaður undirbjuggu sögusýningu sem var opnuð í gær í safnaðarheimili Hafnar- fjarðarkirkju. Þar koma fram ýmsar nýjar upplýsingar. Séra Þorvaldur grófst fyrir um ættir og uppruna íslensku sjómann- anna sem fórust með Field Marshal Robertson. Einnig aflaði hann gagna um landssöfnun sem efnt var til í kjöl- far sjóslysanna, minningar- athafnirnar sem voru haldnar og fleira. Hann flutti hugleiðingu við minningarstundina og greindi frá því sem hann hafði safnað saman. Gerð er grein fyrir hverjum og einum ís- lensku skipverjanna á sögusýning- unni. Leiðarbók sýnir leitina Egill Þórðarson loftskeytamaður vann veggspjöld um Halaveðrið og flutti ávarp við opnun sýningarinnar. Kristinn Halldórsson aðstoðaði hann við að gera samanburð á Field Mars- hal Robertson og nútíma 45 metra löngu línuskipi hvað stærð og sjó- hæfni varðar. Einnig er fjallað um veiðislóðina, veðurþjónustuna, fjar- skiptin og áföllin. Spjald sem gert var með aðstoð Trausta Jónssonar veðurfræðings sýnir veðurathugandir og veðurspár daginn sem Halaveðrið brast á. Einnig er þar nýleg endurgreining á Halaveðrinu sem bandaríska haf- og loftfræðistofnunin NOAA gerði. Á þriðja spjaldinu er gerð grein fyrir þremur leitum sem gerðar voru að Field Marshal Robertson og Leifi heppna. Í henni tóku þátt danska varðskipið Fylla og meira en 20 tog- arar. Egill skoðaði leiðarbók Fyllu á skjalasafni í Kaupmannahöfn og gat því sett út siglingu skipsins á kort. gudni@mbl.is Sögusýning um Halaveðrið opnuð  Minningarstund haldin í Hafnarfjarðarkirkju í gær Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir Hafnarfjarðarkirkja Sjómannanna sem fórust í Halaveðrinu var minnst í gær, nöfn þeirra lesin upp og kertaljós tendruð í minningu þeirra. Safnaðarheimilið Sögusýningin er á veggspjöldum og geymir ýmsar upp- lýsingar sem sr. Þorvaldur Karl Helgason og Egill Þórðarson öfluðu. Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Engar samningaviðræður áttu sér stað á milli Eflingar og Reykja- víkurborgar um helgina vegna kjara- samninga félagsmanna Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg. Næsti fundur Eflingar og borgar- innar er í dag klukkan tvö. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að af málflutningi borgarstjóra að dæma muni lítið koma út úr þeim fundi. Ef samningar nást ekki í dag eða fyrir hádegi á morgun fer starfsfólk Eflingar sem vinnur hjá borginni, þar á meðal starfsfólk á leikskólum og hjúkrunarheimilum, í verkfall á morgun frá klukkan 12.30 til klukkan 23.59. Sólveig Anna segir að á síðasta fundi hafi Efling krafist þess að samninganefnd Reykjavíkurborgar kæmi með nýjar lausnir á samninga- borðið, á það hafi ekki endilega verið hlustað. „Miðað við málflutning borgar- stjóra í Silfrinu virðist hann því miður algjörlega genginn í björg og virðist alls ekki vera búinn að hlusta á okkar málflutning og heyra hvað við höfum að segja og spólar bara í sama farinu,“ segir Sólveig Anna. Í Silfrinu í gær sagði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri að ef borg- in samþykkti kröfur Eflingar myndu laun ófaglærðra færast hættulega nálægt launum faglærðra. Við því segir Sólveig að hún vinni fyrir sína félagsmenn og faglært starfsfólk leikskólanna hafi sýnt kjarabaráttu þeirra mikinn stuðning. Morgunblaðið/Eggert Verkfallsvarsla Verkfallsverðir heimsóttu um 116 vinnustaði í vinnustöðv- un á fimmtudag. Sólveig segir að eitt mögulegt brot hafi komið upp. Kjaradeila Efling- ar og borgar óleyst Vinnustöðvanir » Í komandi viku eru þrjár vinnustöðvanir fyrirhugaðar hjá starfsmönnum Eflingar. » Auk vinnustöðvunarinnar á morgun verða vinnustöðvanir allan daginn á miðvikudag og fimmtudag. » Semjist ekki í vikunni hefst ótímabundin vinnustöðvun mánudaginn 17. febrúar. Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, er nú staddur á Nýja- Sjálandi í opin- berri heimsókn. Með honum í för eru Helgi Hrafn Gunnarsson, 6. varaforseti Al- þingis, og Hanna Katrín Friðriks- son, þingflokksformaður Við- reisnar, ásamt Jörundi Kristjáns- syni, forstöðumanni forseta- skrifstofu. Hópurinn mun eiga fund með Trevor Mallard, forseta nýsjá- lenska þingsins, auk funda með nýsjálenskum þingmönnum, utan- ríkismálanefnd þingsins, Fletcher Tabuteau aðstoðarutanríkis- ráðherra og dr. Megan Woods, orku- og auðlindaráðherra. Þá munu þau hitta starfandi ferða- málastjóra, Billie Moore, og kynna sér jarðhitaverkefni, ferðaþjónustu og sjávarútveg á Nýja-Sjálandi. Steingrímur á Nýja-Sjálandi Steingrímur J. Sigfússon Snarpur jarðskjálfti, 3,7 stig, varð á Hengilssvæðinu klukkan 7.24 í gær- morgun, nánar tiltekið á 6,8 km dýpi 2,7 km austnorðaustur af Litlu kaffistofunni. Hann hafði ekki nein áhrif á rekstur Hellisheiðarvirkj- unar, að sögn Orku náttúrunnar. Virkjunin framleiðir rafmagn og heitt vatn til húshitunar. Skjálftinn fannst greinilega í byggð því hann varð ekki langt frá höfuðborgarsvæðinu. Veðurstof- unni bárust tugir tilkynninga um að skjálftinn hefði fundist víða. Auk höfuðborgarsvæðisins í Hveragerði og á Akranesi. Í kjölfarið mældust minni eftirskjálftar. „Miðað við staðsetningu eru þetta líklega flekahreyfingar. Þetta er á mjög virku jarðskjálftasvæði,“ segir Einar Bessi Gestsson, nátt- úruvársérfræðingur Veðurstofu Ís- lands. Þessi skjálfti tengist ekki beint landrisi á Reykjanesi og mögulegri kvikusöfnun þar, að sögn Einars Bessa. Snarpur skjálfti fannst víða í gærmorgun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.