Morgunblaðið - 10.02.2020, Side 11

Morgunblaðið - 10.02.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2020 HÁDEGIS- TILBOÐ Mánudaga-föstudaga kl. 11.00-14.30 Borðapantanir í síma 562 3232 Verð frá 990 til 1.990 kr. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Okkur vantar meira af öllum teg- undum,“ segir Guðni Hólmar Krist- insson, framkvæmdastjóri afurða- sviðs Sölufélags garðyrkjumanna, um stöðuna á grænmetismarkaðn- um. Litlar breytingar urðu í inn- flutningi og innlendri framleiðslu á síðasta ári og ekki útlit fyrir miklar breytingar á þessu ári. Tölur liggja aðeins fyrir um fram- leiðslu á þeim grænmetistegundum sem beingreiðslur eru greiddar út á, það er að segja gúrkum, tómötum og papriku. Hagstofa Íslands safnar upplýsingum um allar tegundir og hefur ekki lokið þeirri vinnu. Fram- leiðsla á gúrkum og tómötum var í fyrra svipuð og á árinu áður en nokk- ur aukning er í papriku en lítill hluti sölunnar er framleiddur innanlands. Innflutningurinn er svipaður á milli ára. Þó hefur innflutningur á gúrk- um og sveppum aukist. 26 ylræktarbændur njóta bein- greiðslanna sem bændur semja um við ríkið í búvörusamningum og námu alls um 290 milljónum króna á síðasta ári. Enn er verið að flytja út gúrkur og fleiri tegundir grænmetis, til Dan- merkur, Færeyja og Grænlands, en það er í mjög smáum stíl vegna þess að þessar vörur vantar á markaðinn hér, að sögn Guðna. Huga að aukningu „Við upplifðum það í sumar að gríðarleg eftirspurn var eftir brokk- ólí og blómkáli. Allt var rifið út um leið og það kom úr görðunum og lítið hægt að setja í kæli til geymslu fyrir veturinn,“ segir Gunnar Þorgeirs- son, formaður Sambands garðyrkju- bænda. Hann segir að einhverjir garðyrkjubændur hyggist auka framleiðslu á þessum og öðrum kál- tegundum til þess að mæta þörfum markaðarins. Segir Gunnar að bændur hafi náð ágætis árangri í ræktun á gulrótum og þær séu enn til í búðum ásamt einhverjum teg- undum káls frá síðasta hausti. Gunnar segir að ef litið er til tíu söluhæstu grænmetistegundanna sé hlutur innlendra framleiðenda vel undir helmingi. Það sé dapurt en feli jafnframt í sér mikil sóknarfæri. „Það er mikil jákvæðni í garð ís- lenskrar framleiðslu,“ segir Gunnar. Mesta uppbyggingin sem vitað er um er hjá salatframleiðandanum Lambhaga sem er að reisa stóra garðyrkjustöð í Mosfellsdal. Guðni segir að bændur séu að hugsa sér til hreyfings á fleiri sviðum, meðal ann- ars að auka framleiðslu á gúrkum. Innflutningur grænmetis og innlend framleiðsla Innflutningur 2018-2019 Innlend framleiðsla 2015-2019 3.500 3.000 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 2.250 2.000 1.750 1.500 750 500 250 0 Tonn Tonn Sveppir Tómatar Paprika Kartöflur 2015 2016 2017 2018 2019 10% -2% 4% 2% Innlend framleiðsla 2018-2019 Innlend framleiðsla Innflutningur Innlend fram- leiðsla, tonn Breyting 2018-2019 Gúrkur 2018 2019 tonn % 1.927 1.924 -3 0% Tómatar 2018 2019 tonn % 1.213 1.183 -30 -2% Paprika 2018 2019 tonn % 181 202 21 12% 2018 2019 Gúrkur Tómatar Paprika Magn innflutnings og breyting 2018-2019 3% 56% 89% 1.924 1.183 202 Vantar meira af öllum tegundum  Kálið var rifið út um leið og það kom úr görðunum Hollusta Litfagurt grænmeti. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Kampavínssala hélt áfram að aukast í janúarmánuði frá sama mánuði 2019, samkvæmt tölum sem ÁTVR hefur tekið saman fyrir Morgunblaðið. Alls seldust ríflega 734 lítrar í mánuðinum, samanborið við ríflega 687 lítra í janúar árið á undan. Jafngildir það 6,8% aukningu milli ára. Athygli vekur að vinsælasta varan frá Moët & Chandon, þ.e. Brut Imperial-vínið, tekur fram úr Veuve Clicquot og seldist í 233,4 lítrum í mánuðinum. Í janúar í fyrra var salan 125,5 lítrar og því nemur aukningin í þessari tegund 86%. Er þetta eina kampavínið sem selt er í þremur stærðarflokkum í Vínbúðunum, þ.e. 200, 750 og 1.500 ml flöskum. Veuve Clicquot, sem jafnan geng- ur undir nafninu Gula ekkjan, seld- ist hins vegar litlu minna nú í jan- úar en fyrir ári. Nam salan nú 150,75 lítrum og nam samdrátt- urinn 3% frá fyrra ári. Ekki aukning hjá öllum Meiri samdráttur varð í sölu vin- sælustu tegundarinnar frá Boll- inger, þ.e. Brut Special Cuvee, en þar seldust 75 lítrar, samanborið við 94,5 lítra í janúar í fyrra. Gríðarleg aukning varð í sölu tveggja tegunda frá Moët. Annars vegar Rosé en af þeirri tegund seld- ust nú 50,25 lítrar, samanborið við 12 lítra í janúar 2019. Jafngildir það 319% aukningu. Þá jókst salan á Ice Imperial-víninu frá Moët um 417. Fór úr 4,5 lítrum í janúar í fyrra í 23,25 lítra nú. Taittinger styrkti einnig stöðu sína með Brut Reserve og reyndist fimmta vinsælasa kampavínið. Þar seldust 33,75 lítrar en 24 lítrar í fyrra. Costco styrkti einnig stöðu sína með Kirkland-kampavíninu sem seldist í 26,25 lítrum og nam aukn- ingin frá fyrra ári 40%. Neðar á sölulistum Vínbúðanna mátti sjá áhugaverða þróun. Nokkrar flöskur í dýrari kantinum fóru til kaupenda í janúar. Ein flaska af R.D. 2004 frá Bollinger, sem kostar ríflega 25 þúsund krónur. Þá seldust tvær flöskur af Winston Churchill 2004 frá Pol Roger en slíkar flöskur kosta tæpar 23 þúsund krónur. Þá seldust fjórar flöskur af Dom Per- ignon 2009 sem kosta 24 þúsund krónur. Sama magn seldist af Com- tes 2007 frá Taittinger en þær kosta tæpar 15.800 krónur. Moët styrkir enn stöðu sína  Kampavínssala í Vínbúðunum 6,8% meiri í janúar en í sama mánuði í fyrra  Moët & Chandon, Veuve Clicquot og Bollinger fyrirferðarmest á markaðnum Sala á kampavíni í janúar 2019 og 2020 Sæti 2019 2020 Aukning 1 Moët & Chandon Brut Imperial* 125,5 233,4 86% 2 Veuve Clicquot Brut** 155,25 150,75 -3% 3 Bollinger Brut Special Cuvee*** 94,5 75 -21% 4 Moët & Chandon Rose Imperial 12 50,25 319% 5 Taittinger Brut Reserve 24 33,75 41% 6 Drappier Brut Nature Pinot Noir 4,5 30 567% 7 Kirkland Champagne 18,75 26,25 40% 8 Moët & Chandon Ice Imperial 4,5 23,25 417% 9 Moët & Chandon Nectar Imperial 23,25 19,5 -16% 10 Laurent Perrier Brut Cuvee Rose 0 12 - * 200, 750 og 1.500 ml. flöskur. ** 750 og 1.500 ml. flöskur. *** 375 og 750 ml. flöskur. Auglýsingaleik- stjórarnir Samúel Bjarki Pétursson og Gunnar Páll Ólafsson fengu í liðinni viku til- nefningu til bresku auglýs- ingaverð- launanna The British Arrows. Þetta staðfesti Samúel við Morgunblaðið en tilnefn- inguna fengu Samúel og Gunnar fyr- ir auglýsingaherferð sem þeir unnu fyrir McDonalds. Auglýsingarnar voru fyrir sendingarþjónustu Mc- Donald’s og Ubereats í Bretlandi. Verðlaunin verða veitt 31. mars næstkomandi. Íslendingar tilnefnd- ir til British Arrows Tilnefndir Samúel og Gunnar Páll. Svo virðist sem enn sé verið að bóka flug á Boeing 737-MAX-vélar Icelandair en Morgunblaðið fékk ábendingu um að í flugferðaupplýs- ingum fyrir flug til Kaupmanna- hafnar í lok mánaðar væri slík vél skráð. Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair eru MAX-vélarnar jafn- óðum teknar úr kerfi félagsins í þann tíma sem ákveðið hefur verið að kyrrsetja þær. Ekki þekktist til þessa tiltekna flugs en Icelandair sagði engan þurfa að óttast að vera á leið í flug í MAX-vél á næstunni, nú þegar tilkynnt hefur verið að þær verði ekki í flotanum fram yfir sumar. Enn hægt að bóka flug með MAX

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.