Morgunblaðið - 10.02.2020, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 10.02.2020, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2020 TWIN LIGHT RÚLLUGARDÍNA Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is Við erum sérhæfð í gluggatjöldum alnabaer.is Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Að minnsta kosti 813 eru látnir af völdum kórónuveirunnar sem á upp- tök sín í Wuhan í Kína. Veiran hefur því dregið fleiri til dauða en hin mannskæða SARS-veira sem varð 774 að bana á árunum 2002 og 2003. Allir nema tveir þeirra látnu létust á meginlandi Kína, að því er fram kemur í frétt BBC. Um 35.000 manns hafa sýkst af veirunni, langflestir í Kína. Í gær var um 3.600 manns hleypt af skemmtiferðaskipi í Hong Kong sem höfðu verið þar í sóttkví í fjóra daga. Þeim var hleypt af skipinu eftir að rannsóknir leiddu í ljós að farþegar skipsins væru ekki sýktir. Rasísk viðbrögð við veiru Farþegar annars skemmtiferða- skips sem liggur við japanska höfn eru þó ekki jafn heppnir. Farþegar og áhöfn eru 3.711 talsins og hafa þau verið í sóttkví í sex daga. Tugir far- þega skipsins eru smitaðir af veirunni og því ekki útlit fyrir að þeim verði hleypt frá borði í bráð. Veiran hefur vakið rasísk viðbrögð víða um heim og eru dæmi um að fólk af asískum uppruna sé litið hornauga vegna hennar. mbl.is greindi frá því um helgina að asískir íbúar Finnlands hefðu orðið fyrir aðkasti og upplifað ótta og óbeit á götum úti vegna veirunnar. Borið hefur á því að notendur almennings- samgangna forðist að sitja nálægt fólki af asískum uppruna, börn as- ískra innflytjenda verði fyrir aðkasti í skólum og vegfarendur hrópi fúkyrði að fólki af asískum uppruna. Sömu sögu er að segja af Bretlandi en Guardian greindi frá því í gær að eigendur asískra veitingastaða í Bret- landi fyndu fyrir samdrætti eftir að umræða um veiruna komst í hámæli og fólk af asískum uppruna hefði orð- ið fyrir aðkasti. Kórónuveiran skæðari en SARS  813 látnir og um 35.000 sýktir  Gestir skemmtiferðaskips frjálsir AFP Grímur Í fjöldabrúðkaupi í Suður-Kóreu í gær huldu margir vit sín til þess að forðast smit. Þar hafa 24 tilfelli veirunnar greinst. 260 eru í sóttkví. Þúsundir Breta voru án rafmagns, fresta þurfti stórum íþrótta- viðburðum og hundruðum flugferða var aflýst þegar stormurinn Ciara gekk yf- ir Bretlands- eyjar í gær. Gríðarleg rign- ing og mikið hvassviðri var yfir eyjunum öllum og mikið um flóð. Þá voru í gærkvöld í gildi miklar veðurviðvaranir víða um land og vöruðu stjórnvöld við því að á svæðum nærri ströndum gætu öldur og fjúk ógnað fólki. Einnig lá fyrir að gul viðvörun myndi gilda um Bretlandseyjar til mið- nættis. Sterkastar voru vindhviðurnar í Wales en þar mældist vindhraði í Aberdaron ríflega 41 m/s. Aflýsa þurfti flugi víðar en í Bretlandi, sem dæmi var um 240 flugferðum aflýst frá Amsterdam í gær, en Ciara hafði áhrif víða í V-Evrópu. BRETLAND Mikið um flóð og þús- undir án rafmagns Öldugangur við vita á S-Englandi. Um 550 hafa týnt lífi í mótmælum í Írak gegn ríkisstjórn landsins og hafa allt að 30.000 særst að sögn heilbrigðisyfirvalda í Írak. Mótmælin hafa staðið frá 1. október en öryggissveitir í Írak hafa beitt táragasi, skot- vopnum og sprengjum í þeim tilgangi að leysa mótmælin upp. Á myndinni má sjá stúdenta sem límdu bláan kross yfir munn sinn í mótmælum sem fram fóru í írösku borginni Karbala í gær. AFP Um 550 látnir vegna mótmæla í Írak Alls létust 29 þegar taílenski hermað- urinn Jakraphanth Thomma hóf skot- árás á fólk í borginni Nakhon Ratcha- sima í Taílandi á laugardag. Hann leitaði skjóls í verslunarmiðstöð í bænum, vopnaður hríðskotarifflum sem hann stal úr herstöðinni sem hann starfaði í. Hafði hann skotið yfirmann sinn til bana rétt áður en hann hélt inn í borgina og framdi ódæðisverkin. Við tók margra klukkustunda ófremdarástand, en árásarmaðurinn hélt fólki m.a. í gíslingu í verslunar- miðstöðinni. Lauk hryllingnum með því að lögregla felldi árásarmanninn í fyrrinótt. Ástæða morðanna er ekki ljós en talið er að hvatinn hafi verið að mað- urinn áliti sig hafa verið hlunnfarinn í fasteignaviðskiptum. Fylgdist með í símunum Hundruð manna voru stödd í versl- unarmiðstöðinnni þegar árásarmað- urinn hóf voðaverkin. Faldi fólk sig víða, m.a. inni á salernum, og náðu einhverjir að fylgjast með ferðum mannsins í símum sínum, með upp- lýsingum sem þeim voru sendar utan frá. „Vinur minn sem vinnur í versl- unarmiðstöðinni talaði við mann sem vinnur við öryggismyndavélarnar og hann gaf okkur upplýsingar um stað- setningu árásarmannsins,“ sagði Cha- nathip Somsakul, 33 ára tónmennta- kennari sem lifði ódæðisverkið af. Fjöldi fólks kom saman á bæna- stund í gærkvöldi og minntist hinna látnu. Fyrr um daginn hafði forsætis- ráðherrann Prayut Chan-O-Cha heimsótt fólk sem særst hafði í árás- inni og sagt: „Þetta er fordæmalaust í Taílandi. Ég óska þess að þetta sé í síðasta skipti sem slíkt ástand skapast.“ Lögregla felldi fjöldamorðingja  Bænastund í Taílandi í gærkvöldi AFP Bænastund Hundruð manna minnt- ust fórnarlambanna í gærkvöldi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.