Morgunblaðið - 10.02.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.02.2020, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Dagur B.Eggerts-son borgarstjóri sagði í gær að staðan í kjaraviðræðum borgarinnar við Eflingu væri erfið og óvænt, en hluti vand- ans væri forystuleysi, þar sem enginn sé að útskýra hvað fel- ist í lífskjarasamningunum. Nú er þetta út af fyrir sig sérstök kenning að því leyti að mikið hefur verið rætt um hvað felist í þessum samn- ingum svo að meginhugsunin í þeim ætti ekki að hafa farið framhjá neinum, hvað svo sem mönnum kann að finnast um þá af ýmsum ástæðum. Kenningin um forystuleysið verður ekki síður vandræðaleg þegar til þess er horft að á sama tíma og borgarstjóri lýs- ir þeirri skoðun stígur fram annar borgarfulltrúi meiri- hlutans í borgarstjórn, Dóra Björt Guðjónsdóttir pírati, og ræðir samningaviðræðurnar á þeim nótum að störf þyrftu að vera metin að verðleikum, að hún stæði með láglaunafólki og fagnaði „upprisu láglauna- stéttarinnar“ og bætti því við að það væri klókt af Eflingu að beina spjótum að Reykja- víkurborg því að borgin væri líklegasti samningsaðilinn til að hlusta á kröf- urnar! Augljóst er að Dagur B. Eggerts- son þarf ekki að leita út fyrir eigin skrifstofu til að finna forystu- leysið. Af orðum Dóru Bjartar blasir við að vandann er að finna innan meirihlutans í Reykjavík og allir vita hver er – eða á að vera – forystusauður þess fríða flokks. Núverandi meirihluti í Reykjavík hefur unnið mikið tjón með margvíslegum axar- sköftum og einstrengingslegri og jafnvel ofstækisfullri stefnu sinni í ótal málum. Það tjón sem hann kann nú að vera að vinna gagnvart stöðunni á vinnumarkaði og þar með gagnvart atvinnustigi í land- inu og velmegun alls almenn- ings er þó líklega mun stærra og gæti haft enn alvarlegri af- leiðingar til lengri tíma litið. Vonandi tekur borgarstjóri eigin orð um forystuleysi til sín og útskýrir fyrir öðrum borgarfulltrúum meirihlutans hvaða afleiðingar það muni hafa ef Reykjavíkurborg stendur ekki í lappirnar gagn- vart kröfum um að vinnumark- aðurinn verði settur í uppnám í því viðsjárverða efnahags- ástandi sem nú er uppi. Borgarstjóri þarf ekki að leita langt að forystuleysinu} Forystuleysi? Samkvæmt fréttá vef The Telegraph um helgina eru ríki Evrópusambands- ins enn að herða kröfurnar gagn- vart veiðum í breskri lögsögu. Orðalag sem hingað til mun hafa verið í kröfugerð Evr- ópusambandsins, að áfram verði „byggt á“ þeim aðgangi sem ríki ESB hafa að bresk- um miðum, hefur sætt gagn- rýni ríkja ESB og nú er kraf- an um að samningamenn sambandsins fari fram á að núverandi réttindi „haldi sér“ að fullu til framtíðar. Nógu slæmt væri fyrir Breta, og auðvitað algerlega óviðunandi, að byggja ætti á fyrri aðgangi eftir að landið er sloppið úr sambandinu. Að gera kröfu um að engin breyt- ing verði á aðgangi Evrópu- sambandsríkjanna að fisk- veiðilandhelgi Bretlands er vitaskuld fráleitt, en sýnir hve langt ríki Evrópusambands- ins eru reiðubúin að ganga gagnvart fullveldi annarra ríkja. Krafan sýnir vitaskuld líka viðhorfið gagnvart því að sleppa ríkjum lausum úr neti sambandsins sem einu sinni hafa álpast í það. Það er verulegt áhyggjuefni að hér á landi skuli enn vera starfandi stjórnmálaflokkar sem berj- ast, leynt eða ljóst, fyrir aðild Íslands að Evrópusamband- inu. Og þetta er enn alvarlega þegar haft er í huga að enginn þessara flokka hefur lýst efa- semdum eða breytt stefnu sinni í þessum efnum við að fylgjast með hremmingum Breta við að reyna að koma sér úr klóm ESB. Fram undan er líklega tæpt ár af átökum Breta við Brussel-elítuna um að reyna að koma á eðlilegum sam- skiptum. Samkvæmt frétt The Telegraph er þó jafnvel talið að harkan sé slík að upp úr viðræðunum kunni að slitna strax í vor. Fróðlegt verður að fylgjast með því hvernig stuðningsflokkar Evrópu- sambandsins hér á landi munu bregðast við áframhaldandi óbilgirni sambandsins í garð Breta. Ef þeir telja áfram að hún skipti engu þá er það í meira lagi umhugsunarvert fyrir íslenska kjósendur. ESB herðir enn kröf- urnar gagnvart Bret- um, þó að þeir séu formlega sloppnir} Skiptir harkan engu? S érstakt ákall um aðgerðir gegn of- beldi í nánum samböndum var sam- þykkt á fundi Efnahags- og fram- farastofnunarinnar (OECD) á fundi stofnunarinnar í París í síðustu viku. Átján aðildarríki standa að ákallinu, þar á meðal Ísland. Ég sat í pallborði á fundinum og greindi þar meðal annars frá breyttu verklagi lögreglu á Íslandi, mikilvægi þess að skoða kerfið út frá upplifun brotaþola auk þess sem ég fjallaði um nýleg lagaákvæði varðandi ofbeldi í nánum samböndum. Alþingi hefur samþykkt heildstæða aðgerða- áætlun gegn ofbeldi og afleiðingum þess sem nær til ársins 2022. Markmið hennar er að vinna að forvörnum og fræðslu. Henni er auk þess ætlað að bæta viðbrögð og málsmeðferð í réttarvörslukerfinu og vinna að valdeflingu þol- enda með þverfaglegt starf að leiðarljósi. Það hefur mikil vakning átt sér stað á þessu sviði á und- anförnum árum. Unnið hefur verið að umbótum á löggjöf, bættu verklagi við meðferð þessara mála innan réttar- vörslukerfisins, aukinni vernd fyrir þolendur, einfaldari meðferð nálgunarbanns og auknum skilningi á þörfum þolenda brotanna. Þá hafa verið stofnaðar sérstakar ráð- gjafarmiðstöðvar, Bjarkahlíð og Bjarmahlíð, fyrir þol- endur heimilisofbeldis. Þangað geta þolendur leitað til að sækja sér ráðgjöf og aðstoð sér að kostnaðarlausu. Sú starfsemi er afar mikilvæg, ekki aðeins fyrir þolendurna sjálfa heldur einnig sem úrræði fyrir lögreglu til að hjálpa þolendum. Þeir fá þar lögfræðiaðstoð og einnig aðstoð til að vinna úr afleiðingum ofbeldisins. Á ráðstefnunni veittu önnur ríki þessu mikilvæga skrefi okkar í að opna ráðgjaf- armiðstöðvar mikla athygli og sérstaklega var fjallað um þörf annarra landa á að stíga þessi skref. Það er mikilvægt að lögreglan, sem oftast mætir fyrst á vettvang, hafi sérþekkingu á af- leiðingum heimilisofbeldis til að geta mætt þol- endum brotanna af skilningi og nærgætni á vettvangi. Menntun lögreglumanna þarf því að fela í sér kunnáttu á eðli og einkennum þess- ara brota og afleiðingum þeirra á þolendurna. Þá er mikilvægt að tryggja endurmenntun lög- reglumanna til að stuðla að færni þeirra og hæfni til að fást við þennan viðkvæma mála- flokk. Við höfum séð gríðarlegar framfarir síð- ustu ár hjá lögreglunni varðandi meðhöndlum heimilisofbeldisbrota og ljóst af umræðu við önnur ríki að þar stöndum við framarlega í samanburði. Þýðingarmikið er að hafa sérstakt ákvæði í hegningar- lögum sem lýsir ofbeldi í nánu sambandi refsivert. Slíkt ákvæði var sett í hegningarlög árið 2016. Með því voru þau skilaboð gefin til samfélagsins að ofbeldi í nánum sam- böndum yrði ekki liðið og að slík brot væru ekki einkamál aðilanna. Þetta eru viðkvæm brot sem varða manneskjur og því er mikilvægt að kerfið okkar hafi burði til að taka á þeim málum. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Ákall og aðgerðir Höfundur er dómsmálaráðherra. aslaugs@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Stjórnvöld hafa boðað þástefnu að fyrir sveitar-stjórnarkosningarnar 2022verði sveitarfélög með 250 íbúa og færri þvinguð til að samein- ast öðrum og fjórum árum seinna verði lágmarkstala íbúa 1.000 manns. Ráðgjafarfyrirtækið RR ráðgjöf sinnir verkefnisstjórn í fjórum sam- einingarverkefnum um þessar mund- ir, en félagið var líka til ráðgjafar við sameiningu Sandgerðisbæjar og Garðs, sem nú mynda Suðurnesjabæ. Róbert Ragnarsson, framkvæmda- stjóri RR ráðgjafar, segir að skriður sé kominn á sameiningarmál. Róbert bendir á að fimmtán sveitarfélög, eða rúm 20% sveitar- félaganna í landinu, hafi ákveðið að taka frumkvæði og hefja viðræður um mögulega sameiningu við ná- granna sína. Sveitarfélögin eru flest landstór og ná samanlagt yfir um 42% af landrými Íslands. Í þeim búa hins vegar aðeins tæp 4% íbúanna, eða rúmlega 13 þúsund manns. Sam- þykki íbúar sameiningartillögurnar mun sveitarfélögum fækka um 11 og verða sveitarfélögin þá 61 árið 2022. Róbert var áður bæjarstjóri í Vog- um og í Grindavík. Samstarfsmaður hans, Jón Hrói Finnsson, var sveit- arstjóri á Svalbarðsströnd. Segir Ró- bert að í þeim stóru sameiningar- verkefnum sem nýlega séu farin af stað, Þingeyjarsýslu, Austur- Húnavatnssýslu og fimm sveitar- félögum á Suðurlandi, sé horft til þess að kosið verði um sameiningu um mitt næsta ár eða í lok ársins. „Það eru allir að miða við niðurstöðu árið 2021. Þá er hálft ár eða ár fram að reglubundnum kosningum. Ég held að búast megi við því að það verði talsvert um kosningar árið 2021.“ Tillögur um lágmarksíbúafjölda í sveitarfélögum hafa mætt nokkurri andstöðu fulltrúa fámennari sveitar- félaga. Telja margir að lögþvingun sameiningar brjóti á sjálfstjórnar- rétti sveitarfélaga og óttast að íbúar fái ekki næga aðkomu að ákvarðana- tökunni. Helsti ávinningur samein- ingar er jafnan talinn vera rekstrar- hagræði sem skili sér í aukinni þjónustu. Hins vegar eru dæmi þess að íbúar í jaðarbyggðum í samein- uðum sveitarfélögum þurfi að búa við skerta þjónustu, svo sem að skólum eða sundlaugum hafi verið lokað. Þá telja þeir gjarnan að áhrif þeirra séu minni í ákvarðanatöku sameinaðra sveitarfélaga. Róbert segir að horft hafi verið til þessa sjónarmiða þegar hann vann að sameiningu fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi. Hann segir að á grunni lærdóms af fyrri samein- ingum og rannsóknum á þeim hafi verið ákveðið að skipa þriggja manna heimastjórnir í sveitarfélaginu. Þær starfa á tilteknum svæðum innan þess og stjórna ákveðnum þjónustu- verkefnum á hverjum stað. Íbúar hvers svæðis kjósa sér fulltrúa í heimastjórn en einn er skipaður af sveitarstjórn. „Okkar reynsla er að íbúarnir vilja tryggja ákveðna nærþjónustu eins og skóla, íþróttahús og menningarstarf á hverjum stað, auk þess að eiga full- trúa í beinum tengslum við sveitar- stjórnina. Þeir vilja raunverulegt lýð- ræði og áhrif. Heimastjórnir koma til móts við þær óskir. Menn þurfa að finna að þeir hafi enn þá áhrif. Að mínu mati ætti Alþingi að skoða breytingar á sveitarstjórnarlögum og lögum um kosningar til sveitar- stjórna til að koma enn betur til móts við þessi sjónarmið,“ segir Róbert. Mögulegar sameiningar sveitarfélaga Sveitarfélög sem eiga í viðræðum Flatarmál, km2 Íbúafjöldi Fjöldi sveitarf. Austurland 10.671 4.866 4 Þingeyingur 12.024 1.396 2 Austur-Hún 4.542 1.752 4 Suðurland 15.672 5.086 5 Alls 42.909 13.100 15 Ísland allt 102.695 356.991 72 30 blokkir á stærð við Æsufell í Reykjavík myndu rúma alla íbúa þessara 15 sveitarfélaga Sveitarfélögin 15 sem nú hafa ákveðið að hefja viðræður um mögulegar samein- ingar ná samanlagt yfi r um 42% af landrými Íslands Í þeim búa hins vegar tæp 4% íbúa landsins, eða 13.100 manns 42% 4% Sameiningarhugur í yfir 20% sveitarfélaga Fulltrúar frá fimmtán sveitar- félögum á Suðurlandi fara í næsta mánuði í kynnisferð til Danmerkur. Allt að þrír fulltrúar fara frá hverju sveitarfélagi og alls verða rétt tæplega fjörutíu manns með í för. Ferðin er skipu- lögð af Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og greiða samtökin hluta af útlögðum kostnaði þátttakenda meðan á ferðinni stendur, en ekki flug eða gistingu. Samkvæmt upplýsingum frá SASS verður haldið út að morgni 9. mars og komið heim síðdegis hinn 12. Heimsótt verða sveitar- félög í nágrenni Kaupmanna- hafnar og munu þátttakendur geta kynnt sér hvernig staðið er að rekstri sveitarfélaga þar, at- vinnumálum, nýsköpun, sorp- málum og hvernig heimsmark- miðum SÞ er fylgt eftir. 40 manna kynnisferð LÆRA AF DÖNUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.