Morgunblaðið - 10.02.2020, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2020
Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri
Flugvallarþjónusta
BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda.
5-8 manneskjur
19.500 kr.
1-4 manneskjur
15.500 kr.
Verð aðra leið:
Það er ekki að
ástæðulausu að fylgi
Sjálfstæðisflokksins
er okkur flokks-
mönnum hugleikið
þessa dagana. Fylgið
hefur helmingast á til-
tölulega skömmum
tíma og mörg góð
flokkssystkin hafa
yfirgefið flokkinn.
Fyrir þessari alvar-
legu stöðu eru nokkrar ástæður en
stórsókn breska Íhaldsflokksins
sýnir að hægt er að snúa við af
vondri leið með góðum áherslum og
virðingu fyrir upprunanum. Með
vilja flokksmanna og forystu er
hægt að sigra á ný en þá verður
forystan að átta sig á því að eitt-
hvað þarf að breytast. Í umræðunni
um þriðja orkupakkann var vilji
flokksmanna hafður að engu og
flokksmenn uppnefndir einangr-
unarsinnar og gamalmenni því þeir
voru mótfallnir innleiðingunni.
Hvað sem stjórnmálamenn reyna
að telja mönnum trú um hefur
stefna Evrópusambandsins nú tekið
yfir málaflokkinn. Það er mjög al-
varlegt að við megum ekki lengur
hafa okkar eigin orkustefnu nema í
þeim tilfellum sem hún fellur inn í
flókna stefnu sambandsins. Varla
er hægt að tala um sjálfstæða
orkustefnu í slíku árferði og allt tal
um annað eykur vantraust á þeim
sem því heldur fram. Menn geta
stofnað nefndir eða skrifað fallegar
skýrslur hér heima til að fegra en
staðreyndirnar í regluverkinu
breytast ekki.
Orkustefna Íslands gekk alltaf út
á það að hið opinbera átti og sá um
rekstur orkuvera en með þeirri
stefnu dreifðist auðurinn til fyrir-
tækja og almennings með lágu
orkuverði. Sátt ríkti um að nátt-
úrunni yrði stundum fórnað því
dreifingin á auðnum var með slík-
um hætti. Dreifikerfið og fram-
leiðslan gátu jafnframt lifað góðu
samlífi og ekki þurfti risastóran
eftirlitsiðnað. Það þurfti heldur
ekki hina nýju stétt orkumiðlara til
þess að taka einhverja hlutdeild og
orkan var sú ódýrasta sem völ var
á.
Stjórnmálamenn
þurfa að gæta sín bet-
ur og jafnframt huga
að upprunanum, sér-
staklega á tímum þeg-
ar falsfréttir fjölmiðla
og múgmennska spúir
eitri inn í hjörtu fólks.
Sjálfstæðisflokk-
urinn var stofnaður í
kringum kröfu um
frjálsa þjóð í frjálsu
landi. Sú krafa hvarf
ekki við lýðveldis-
stofnun. Jón Þorláks-
son benti á, stuttu eftir stofnun
flokksins, að það er ekki nóg að
berjast fyrir sjálfstæðinu. Ávallt
þarf að halda vörð þar um þegar
sjálfstæðið er fengið. Með öðrum
orðum. Það er ekki nóg að berjast
fyrir frelsinu, fengið frelsi þarf að
verja.
Sjálfstæðisflokkurinn er frjáls-
lyndur íhaldsflokkur. Íhalds-
stefnan, eða varðveislustefnan eins
og hún hefur stundum verið nefnd,
byggist á hugarfari um að varð-
veita það sem vel hefur gefist, að
varðveita fullveldið, að varðveita
það sem sameinar okkur sem þjóð;
hið fallega tungumál, hina einstöku
mannanafnahefð, hinn hreina og
mannúðlega landbúnað, hinn
sterka sjávarútveg, kirkjuna sem
ver og ræktar tengsl okkar við
Guð, hjónabandið sem er burðar-
stoð fjölskyldunnar og fjölskylduna
sem er grunnur samfélagsins.
Þetta þarf að varðveita, jafnvel
þótt það kosti átök og að menn
verði uppnefndir og lítillækkaðir
sem brotamenn óljósra tjáningar-
glæpa. Ísland er eina samfélagið í
veröldinni sem við getum kallað
heimili. Klakinn kann að vera kald-
ur en hann er samt okkar. Stjórn-
málamenn hafa engan rétt á því að
tefla öryggi eða samstöðu þjóðar-
innar í tvísýnu fyrir stundarávinn-
ing gervigóðmennsku eins og gerst
hefur hjá nágrönnum okkar og all-
ir vita en ekki má víst nefna.
Það er mikilvægt að ítreka og
vekja athygli á þessum gildum
Sjálfstæðisflokksins því ekki hefur
verið hugað að þeim upp á síð-
kastið. Að frumkvæði Sjálfstæðis-
flokksins voru lögfestar margs-
konar varnir sem bæði efldu
frelsisvitund og samheldni á meðal
landsmanna. Það var á slíkum gild-
um sem Sjálfstæðisflokkurinn sigr-
aði hug og hjörtu þjóðarinnar og á
þeim getur hann unnið til baka hið
glataða fylgi enda eru það þessi
gildi sem eiga undir högg að sækja
nú þegar hverslags umrót er fram-
kvæmt undir frjálslyndum
merkjum.
Umrót, sú tilhneiging að vilja
umturna í stað þess að varðveita,
er andstæða íhalds og tengist ekki
á nokkurn hátt frjálslyndi eins og
oft er haldið fram. Þennan hugta-
kamisskilning þarf að leggja mikla
áherslu á að leiðrétta því hann á
sinn þátt í sókn stjórnlyndra um-
rótsflokka sem þykjast frjáls-
lyndir. Andstæða frjálslyndis er
stjórnlyndi og lýsir sér í tilhneig-
ingu að vilja gerast annarra manna
forráðamaður.
Stjórnmálamaður sem hefur litla
þekkingu á upprunanum er óviss
um hvað hann vill eða á hvaða
gildum flokkurinn sinn var stofn-
aður, mun alltaf missa fótfestuna
og leitast við að þóknast öllum
þegar hinar og þessar falsfréttir
birtast. Að lokum mun hann þó
ekki þóknast neinum en með at-
ferli sínu kynda undir múgæði og
ósamstöðu. Rétt eins mun út-
sjónarsamur stjórnmálamaður sem
veit hvað hann vill, þekkir og tem-
ur sér tryggð við grunngildi
flokksins síns, auka velvild og
traust í sinn garð. Slíkur stjórn-
málamaður skeytir ekki um pólit-
íska vinda; hann siglir vindinn,
hlúir að sannfæringu sinni og sýnir
grunngildunum hollustu. Grunn-
gildin eru hans hái turn sem gegn-
ir hlutverki vitans í hinu síbreyti-
lega pólitíska veðurfari. Með þeim
hætti getur hann brotið niður illt
umtal og falsfréttir á þeim stað
sem það skiptir máli – í hjörtum
landsmanna.
Eftir Viðar
Guðjohnsen » Sjálfstæðisflokkur-
inn var stofnaður í
kringum kröfu um
frjálsa þjóð í frjálsu
landi.
Viðar H. Guðjohnsen
Höfundur er lyfjafræðingur og
sjálfstæðismaður.
Fálkinn í felur
Um mannlega hegð-
un er fjallað í stóru rit-
verki eftir Ludwig von
Mises, „Human Ac-
tion“. Mannleg hegðun
er vilji, val í fram-
kvæmd. Frjáls maður
getur valið. Hann vel-
ur yfirleitt það sem
bætir stöðu hans í
hinu stóra og víða
samhengi lífsins.
En menn hafa ekki allir alltaf ver-
ið frjálsir. Hin mikla stéttaskipting
leyfði aðeins litlum meirihluta – yf-
irstéttinni – að búa við frelsi. Allt of
margir voru þrælar. Þrællinn var
háður alræði húsbónda síns og átti
ekkert val til að bæta stöðu sína.
Hann gat bara dregið úr vinnu-
framlagi sínu, en þá var svipunni
beitt miskunnarlaust. Þrællinn hafði
engan hvata til að bæta vinnu sína,
eða auka afköst sín. Þrælahald var
sóun mannlegra hæfileika. Þræla-
vinna varð því með tímanum úrelt
og stóðst ekki samkeppni við laun-
aða vinnu, þar sem aðilar skiptu með
sér afköstum vinnunnar og greitt
var fyrir betri afköst og hugvit. En
þróunin var víða hæg vegna einok-
unar aðalsmanna á landi og eignum
lénsskipulagsins. Eignarréttur var
ekki viðurkenndur né verndaður
nema hjá yfirstéttinni, aðlinum, með
valdi. Í frönsku byltingunni 1789 eru
forréttindi aðalsins afnumin og
mannréttindi lögleidd með stjórnar-
skrá. Ein þýðingarmestu mannrétt-
indin eru eignarrétturinn, því eignir
eru sem fyrr segir (Mbl. 23.1. 2020)
mikil undirstaða valda og betra lífs.
Í þeim liggur máttur eigandans til
þroska og framfara. Í bókinni „Auð-
fræði“ (Hið ísl. bókmf. 1880, bls. 28)
eftir Arnljót Ólafsson, fyrsta hag-
fræðing landsins, segir: „Vér höfum
séð og vér höfum reynt, að vér hljót-
um að vinna, og það oftlega þunga
vinnu og erfiða, til þess að fá bætt úr
þörfum vorum. Nú mundi enginn
vilja leggja á sig erfiði, nema hann
fengi sjálfur að njóta ávaxtanna af
vinnu sinni, allra þeirra fjármuna er
hann ávinnur sér með henni. Eign-
arrétturinn er því nauðsynlegt skil-
yrði þess, að vér viljum leggja á oss
vinnu og erfiði. Nauðsyn og gagn
eignarréttarins viðurkenna nú ef-
laust allir.“
Þegar fyrirkomulagið er þannig
hjá hinu opinbera að allir eiga, óháð
frammistöðu, að vinna fyrir sömu
laun í viðkomandi launaflokkum og
allir eiga að vita um
launakjör allra, er
minna svigrúm til að
umbuna fyrir meiri
gæði og afköst. Þess
vegna fara sumir opin-
berir starfsmenn
gjarna í störf hjá einka-
geiranum.
Ein helsta ástæða fá-
tæktargildru millistétt-
arinnar er sú staðreynd
að hún fær ekki að
draga neinn kostnað frá
tekjuskatti og fjár-
magnstekjuskatti, svo sem vaxta-
kostnað, viðhald, læknisþjónustu,
menntunarkostnað og ýmsan kostn-
að sem leiðir til betri efnahags og
framfara. Skattleysismörk ákveðin
af nánös duga engan veginn til að
skapa einstaklingum það svigrúm og
frelsi sem hann á rétt á til að þrosk-
ast og efnast. Auk þess er skatt-
heimta sífellt meir að færast yfir í
flata, beina og ósýnilega skatta. Var
einhver að tala um gagnsæi?
Fjórða iðnbyltingin?
Sjálfvirknivæðing er grundvöllur
fjórðu iðnbyltingarinnar. Stóraukin
sjálfvirkni á öllum sviðum hefur
mikil áhrif á stöðu launþega, sem
óttast atvinnuleysi. Sjálfvirkir ró-
bótar vinna ýmis störf sem fólk vann
áður. Launþeginn eignast hvorki ró-
bótann, sem leysir hann af hólmi, né
tekjur af honum. Róbótinn er bara
ný vél í verksmiðjunni. Það þarf víð-
tæka lausn á þessu vandamáli og
snúa framförum sjálfvirkninnar inn
á jákvæða braut fyrir alla. Meiri
eignajöfnuður í þjóðfélaginu eins og
ég hef lagt til áður gæti verið þáttur
í að milda afleiðingar fjórðu iðnbylt-
ingarinnar og gefa fólki meira svig-
rúm og tíma til þess að bregðast við.
Atvinnuleit, endurmenntun, stofnun
fyrirtækja og fleira. Í fámennu landi
eins og Ísland er alltaf þörf fyrir
störf manna og þjónustu. Borgara-
laun leysa ekki vandann.
Eftir Jóhann J.
Ólafsson
Jóhann J. Ólafsson
»Meiri eignajöfnuður
í þjóðfélaginu gæti
verið þáttur í að milda
afleiðingar fjórðu iðn-
byltingarinnar og gefa
fólki meira svigrúm
og tíma til þess að
bregðast við.
Höfundur er fv. stórkaupmaður.
Mannleg hegðun
Það vill svo til að ég hef komið
nokkrum sinnum í „Ríkið“ síðustu
mánuði. Það er nefnilega risin
flunkuný vínbúð við hliðina á stór-
markaðinum mínum og freistandi að
kíkja þar inn eftir stórinnkaupin,
sem eru orðin að léttri líkamsæfingu
með beygingum og réttingum og
sjálfs(af)greiðslu. Í nýju vínbúðinni
er ekki sama tæknikeyrslan og allt
rólegra, þó að engan sæi ég forma að
draga upp tékkhefti. Hins vegar tók
ég eftir því í öll skiptin sem ég beið
við kassann að flestir borguðu með
reiðufé. Tíndu fram misgljáandi
þúsundkalla og alls kyns myntsláttu
sem hefði sómt sér jafnvel á þjóð-
menjasafninu.
Hvað skyldi valda því að fólk sem
höndlar nýjustu innkaupatækni í
markaðinum sínum skuli, þegar það
kemur í vínbúðina, hverfa aftur til
þess gamla; að leysa frá lúðri buddu
og telja fram krónur og aura? Má
heimsóknin í vínbúðina kannski ekki
koma á yfirlitið í bankanum? Er ver-
ið að villa um fyrir tortryggnum
maka, eða er hér komið þetta marg-
fræga alþjóðlega peningaþvætti?
Sunnlendingur
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
… lét fögur vínber vaxa