Morgunblaðið - 10.02.2020, Síða 17

Morgunblaðið - 10.02.2020, Síða 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2020 ✝ ÁlfheiðurSigurgeirs- dóttir fæddist á Granastöðum í Köldukinn, S-Þing., 11. ágúst 1935. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Sóltúni 31. janúar 2020. Foreldrar henn- ar voru Sigurgeir Pálsson, f. 1886, d. 1945, bóndi á Granastöðum, og kona hans, Kristín H. Jónsdóttir, f. 1894, d. 1959. Álfheiður var yngst sjö systk- ina sem náðu fullorðinsaldri. Hin eru Stefanía, f. 1915, d. 1992, bjó á Húsavík, síðar í Reykjavík; Jón, f. 1921, d. 2011, bóndi og vélsmiður í Árteigi, Páll, f. 1925, d. 1993, bóndi á Fitjum, og Klemens, f. 1928, bóndi í Ártúni, allt nýbýli úr landi Granastaða; Ólína Þur- íður, f. 1930, býr í Reykjavík, og Sigríður, f. 1933, d. 1960, ljós- móðir, bjó á Húsavík. Eftirlifandi eiginmaður Álf- 1962, stundaði framhaldsnám við Háskólann í Árósum í Dan- mörku 1964-65 og við Kenn- araháskólann í Kaupmannahöfn 1994-95. Hún kenndi við Hús- mæðraskólann á Laugum í Reykjadal 1962-64, við Hús- mæðraskóla Reykjavíkur 1965- 67 og var heimilisfræðikennari við grunnskóla í Reykjavík 1978-2003, lengst við Álfta- mýrarskóla. Meðal forfeðra Álfheiðar voru annálaðir hagleiksmenn og hlaut Álfheiður sinn skerf af þeirri gáfu. Eftir að hún hætti kennslu fékkst hún við búta- saum og glermyndagerð og prýða mörg slík verk heimili hennar og afkomenda. Þau hjón gerðu víðreist um heiminn á seinni árum. Meðal annars fór Álfheiður með hópi ættingja til Kanada, einkum til að hitta af- komendur móðurforeldra sinna, Jóns Klemenssonar og Þuríðar H. Jónsdóttur, sem fluttust vest- ur um haf árið 1904. Eitt barna þeirra, Kristín, móðir Álfheiðar, varð eftir á Íslandi, þá 10 ára gömul. Síðustu ár glímdi Álfheiður við erfiðan sjúkdóm og dvaldist frá 2017 í Sóltúni. Útför hennar fer fram frá Grensáskirkju í dag, 10. febrúar 2020, og hefst klukkan 13. heiðar er Páll Bjarnason, ís- lenskufræðingur og fv. mennta- skólakennari, fæddur á Akranesi 1939. Þau gengu í hjónaband 1966 og bjuggu alla tíð í Reykjavík, lengst af í Brekkuseli 20 og síðan í Miðleiti 3. Börn þeirra eru: 1) Kristín, f. 1968, geislafræð- ingur, gift Gunnari Þór Kjart- anssyni matvælafræðingi, PhD. 2) Heiðrún, f. 1969, stjórnmála- fræðingur, gift Gesti Guðjóns- syni verkfræðingi, börn þeirra eru Elva, Auðunn Páll og Bragi Valur. 3) Bjarni, f. 1972, verk- fræðingur, PhD, kvæntur Unni Ýri Kristjánsdóttur mannauðs- stjóra, börn þeirra eru Kristján Frosti, Álfheiður og Páll Theo- dór. 4) Þuríður Anna, f. 1974, geislafræðingur og upplýsinga- fræðingur. Álfheiður lauk prófi frá Hús- mæðrakennaraskóla Íslands Ástkær móðir okkar lést í faðmi fjölskyldunnar 31. janúar eftir erfið veikindi. Foreldrar okkar eignuðust fjögur börn á sex árum og eins og gefur að skilja var mikið líf og fjör á heimilinu. Mamma var heimavinnandi á meðan við vor- um að komast á legg og fór ekki að vinna aftur fyrr en yngsta barnið byrjaði í skóla. Með hag- sýni og dugnaði gekk allt upp, þótt það væri einungis ein fyrir- vinna. Hún var myndarleg hús- móðir, bólstraði húsgögn, málaði veggi, ræktaði garðinn, prjónaði, saumaði og hafði mjög gaman af því að halda veislur. Þau pabbi bjuggu okkur myndarlegt heim- ili í Brekkuseli 20 og þaðan eig- um við ótal góðar minningar. Milli frumbyggjanna í Brekku- seli ríkti mikil samheldni og vin- átta, sem haldist hefur alla tíð. Mamma hafði gaman af því að ferðast og þreif alltaf hvert horn í húsinu áður en lagt var af stað, meðan við börnin biðum óþol- inmóð. Fæðingar- og uppeldis- staður hennar í Köldukinn var henni sérstaklega hugleikinn. Þar bjuggu bræður hennar og afkomendur þeirra. Mamma naut þess að komast út úr bæn- um og ef hún sá til berja var varla hægt að koma henni heim fyrr en öll ílát voru orðin full. Foreldrar okkar báru gæfu til þess að ferðast víða um heim á meðan heilsa mömmu leyfði. Þau fóru í ótal borgarferðir, sól- arlandaferðir og í lengri ferðir svo sem til Bandaríkjanna, Kína og Rússlands. Vorið 2014 fór stór hluti fjölskyldunnar til Flórída og átti ógleymanlegar stundir. Við dáðumst að vináttunni sem hún hélt alla tíð við sauma- klúbbinn (stelpurnar), en þær kynntust í Húsmæðrakennara- skóla Íslands (HKÍ) fyrir meira en hálfri öld. Þær voru sérstak- lega duglegar að heimsækja hana síðustu árin og kunnum við þeim miklar þakkir fyrir það. Mamma hjálpaði okkur að koma undir okkur fótunum, tók tengdabörnunum vel, svo ekki sé minnst á barnabörnin, sem voru líf hennar og yndi. Hún ljómaði alltaf þegar hún sá þau. Hún hafði gaman af því að leika við þau, fór með þeim í vatns- rennibrautir, fór í feluleik og á trampólín, þótt hún væri um og yfir sjötugt. Dýrmætustu stund- ir elstu barnabarnanna eru sennilega þegar þau fengu að baka pönnukökur með henni. Síðustu ár glímdi hún við mjög erfiðan taugasjúkdóm, sem smám saman tók frá henni allan mátt. Undir það síðasta fólst eina tjáning hennar í hlátri, hlýju handtaki og glampa í aug- um. Hún kvartaði aldrei og tókst á við veikindi sín af ein- stöku æðruleysi. Við stöndum í sérstaklega mikilli þakkarskuld við starfsfólk hjúkrunarheimilis- ins Sóltúns, þar sem mamma dvaldi hátt á þriðja ár. Alúð þess og umhyggja er einstök. Afmælisdagur hennar var 11. ágúst, á þeim árstíma sem sláttur stóð sem hæst. Þegar hún var barn var haldið upp á daginn með veitingum úti á engi. Þegar hún var spurð að því hvað hún væri gömul svaraði hún: „Þriggja ára ellefta ágúst úti á engi.“ Það var oft gantast með þetta svar hennar og rifjað upp þegar hún átti afmæli. Við trúum því að núna sé hún komin út á sígrænt engi hamingjunnar, svífandi um, laus úr sínum lam- aða líkama. Hvíl í friði, elsku mamma. Kristín, Heiðrún, Bjarni og Þuríður Anna. Í dag kveðjum við Álfheiði móðursystur okkar frá Grana- stöðum í Köldukinn. Hún var yngst af sjö systkinum sem upp komust en móðir okkar elst, og skildu tuttugu ár þær að í aldri. Okkur finnst að þær hafi um margt verið líkar að eðlisfari, hæglátar og hófstilltar, duglegar og vel verki farnar, á allan hátt vandaðar manneskjur. Fyrstu minningar okkar um Álfheiði tengjast Ártúni, þar sem hún á unga aldri hélt heim- ili með bræðrum sínum tveimur. Þar var einn okkar, Palli, í sveit á sumrin og naut umhyggju hennar, en við hin komum í styttri heimsóknir hvenær sem færi gafst og var það jafnan til- hlökkunarefni. Álfheiður stundaði nám við Húsmæðrakennaraskóla Íslands og einnig framhaldsnám í Dan- mörku um eins árs skeið. Ævi- starf hennar var svo kennsla í heimilisfræði, og öll hennar handaverk og myndarlegu veit- ingar báru ótvírætt vitni um eðl- iskosti hennar og menntun. Þessu kynntumst við enn betur eftir að við settumst að í Reykjavík. Álfheiður hafði þá gifst Páli Bjarnasyni íslensku- fræðingi og þau stofnað heimili, sem stóð okkur alltaf opið þegar við áttum leið um eða þurftum á einhverri aðstoð að halda. Þau eignuðust fjögur börn, sem öll eru vel gerð og góðir vinir okk- ar. Barnabörnin eru sex og fóru þau ekki varhluta af góðvild og umhyggju Álfheiðar ömmu sinn- ar, meðan hún hafði heilsu og þrek til. Álfheiður og Páll voru alla tíð mjög samhent og bar heimili þeirra smekkvísi beggja fagurt vitni. Þau voru bæði ætt- rækin og vinföst og dugleg að kalla saman ættingja við ýmis tilefni. Voru það ávallt skemmti- legar og glæsilegar veislur. Við minnumst sérstaklega skemmtilegrar ferðar til Kanada 2003, en þangað fórum við tólf saman á ættarmót, þar á meðal Álfheiður og Stína dóttir þeirra Páls. Amma og afi Álfheiðar, Jón og Þuríður, fluttust vestur um haf skömmu eftir aldamótin 1900 með börnum sínum öðrum en Kristínu móður Álfheiðar og ömmu okkar, sem góðu heilli varð eftir hér á landi. Þar vestra eigum við allstóran frændgarð sem efndi til samkomu á Hecla Island. Þar hittum við í fyrsta sinn ýmsa af ættingjum okkar og augljóst var að Álfheiður naut vel ferðarinnar og sam- funda við fólkið sitt. Þau Páll tóku líka vel á móti þessu fólki þegar það kom í heimsókn hing- að til lands. Álfheiður var gæfukona og átti góða ævi með Páli. Síðustu árin voru henni og fjölskyldunni þó erfið, þar sem hún glímdi við vágest sem engum sleppir fyrr en yfir lýkur. Sýndi hún þar mikið æðruleysi og annaðist Páll hana af stakri kostgæfni allt til loka. Við og fjölskyldur okkar minnumst frænku okkar með virðingu og þakklæti og sendum Páli og fjölskyldunni allri inni- legar samúðarkveðjur. Hólmfríður, Sigurgeir og Páll. Álfheiður Sigurgeirsdóttir, vinkona okkar og skólasystir, er látin eftir langa baráttu við sjaldgæfan sjúkdóm. Við sökn- um hennar, en samgleðjumst henni líka að vera loks laus frá áralangri þraut. Lengi gátum við talað við hana og fengið svar með bliki í auga eða þrýstingu á hendi, en smátt og smátt minnk- aði það samtal. Einn er sá sem aldrei gafst upp við að skilja hana og annast, en það er Páll Bjarnason, eiginmaður hennar, sem sýndi henni yfirmáta mikla alúð og skilning hvern einasta dag. Við dáumst allar að þraut- seigju hans og kærleika og er- um honum afar þakklátar. Við vorum 14 sem hófum nám í Húsmæðrakennaraskóla Ís- lands haustið 1960. Hann var þá til húsa í Háuhlíðinni í nýlegu húsi. Skólastjóri okkar fyrri vet- urinn var Helga Sigurðardóttir, hin landsþekkta forystukona í fræðslu húsmæðra, höfundur matreiðslubóka sem enn eru til á flestum heimilum. Fröken Helga mat Álfheiði mjög mikils; þótti fengur í að fá vana sveitastúlku í skólann, hafði séð um heimilið norður í Köldukinn þegar móðir hennar lést. Hún var fáum árum eldri en við hinar, munurinn allt að 8 árum á þeim yngstu, og var hún staðfesta námsmeyjahópsins strax frá upphafi. Sumarið 1961 vorum við sam- an á Laugarvatni í Húsmæðra- skóla Suðurlands. Þetta sumar varð ógleymanlegt og í minning- unni var alltaf góð tíð og við tengdumst enn traustari bönd- um. Hvar sem við fórum var Álfheiður alltaf hin trausta, stillta og ráðagóða, líkt og stóra systirin sem við mátum svo mik- ils. Seinni veturinn var Vigdís Jónsdóttir skólastjóri HKÍ. Við vorum orðnar ábyrgðarmeiri, vorum í æfingakennslu, undir- bjuggum framtíðina og vorum alsælar fram á vorið. Eftir útskriftina fórum við margar að kenna og Álfheiður fór norður að Laugum í nálægð heimahaga sinna og kenndi þar tvo vetur. Þá flutti hún suður og var stundakennari við Hús- mæðraskóla Reykjavíkur og átt- ust þau Páll Bjarnason íslensku- fræðingur og stofnuðu heimili í höfuðborginni og eignuðust fjög- ur indæl börn. Síðan kenndi Álf- heiður heimilisfræði við grunn- skóla Reykjavíkur um áratuga skeið. Samvera okkar skólasystr- anna í öll þessi ár sem liðin eru er afar dýrmæt. Við höfum hist u.þ.b. átta sinnum á ári á heim- ilum okkar, farið í utanlands- ferðir með mökum og til helgar- dvalar á hótelum eða í sumarhúsum, bara við stelp- urnar! Mun slík samheldni ekki alvanaleg og megum við vel við una. Þegar við nú kveðjum Álf- heiði vinkonu okkar með sökn- uði er þakklæti fyrir góðu minn- ingarnar efst í huga, hvernig við allar svo ólíkar völdumst saman í þennan frábæra hóp, og bless- unaróskir til Páls og afkomenda þeirra Álfheiðar. Þau hjónin bjuggu sannarlega við barnalán. Við sendum ykkur hjartans kveðjur. Guð blessi minningu Álfheiðar Sigurgeirsdóttur. Fyrir hönd skólasystra í Hús- mæðrakennaraskóla Íslands 1960-1962, Guðrún L. Ásgeirsdóttir. Nú er komið að leiðarlokum hjá tengdamóður minni, Álfheiði Sigurgeirsdóttur. Ég kveð hana með söknuði og þakklæti fyrir hennar hlutdeild í mínu lífi. Ég kynntist Álfheiði sumarið 1993 þegar ég fór að venja komur mínar í Brekkusel 20 til að hitta Bjarna son hennar. Álfheiður tók mér strax einstaklega vel eins og fjölskyldan öll. Árin okk- ar Bjarna saman eru nú að verða 27 og ég því löngu orðin ein af fjölskyldunni sem eitt sinn bjó í Brekkuselinu. Álfheiður var mikill húmoristi og gaman að vera með henni en hún var þó hlédræg kona sem talaði ekki af sér. Ég hef á til- finningunni að börn hennar og barnabörn þekki lítið til sögu hennar frá því áður en Páll Bjarnason, eiginmaður hennar, kom til skjalanna. Við Álfheiður áttum þó oft ágætar stundir þar sem hún sagði mér undan og of- an af lífi sínu fyrir norðan og hvað á daga hennar hafði drifið á fyrri hluta ævinnar. Þegar barnabörnin fæddust hvert af öðru fékk Álfheiður hlutverk sem hún naut og sinnti einstaklega vel. Eldri barna- börnin eiga góðar minningar um kraftmikla og hlýja konu sem passaði þau oft, prjónaði flíkur bæði á þau og dúkkurnar þeirra, eldaði góðan mat og bakaði mik- ið af pönnukökum. Yngri barna- börnin aftur á móti eiga ekki eins skýrar minningar um þessa kraftmiklu ömmu en seinustu árin var Álfheiður þjökuð af taugasjúkdómi sem gerði henni erfitt um alla tjáningu og hreyf- ingar og dvaldi hún síðustu árin á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Við fjölskyldan heimsóttum hana oft í Sóltúnið en það voru mestmegnis þöglar heimsóknir þar sem Álfheiður var hætt að geta tjáð sig en stundum sáum við þó leiftrandi húmorinn í aug- unum. Elsku Álfheiður, ég kveð þig með vísu sem Þórður afi minn fór oft með og á vel við á þessari stundu: Margt ég vildi þakka þér og þess er gott að minnast að þú ert ein af þeim sem mér þótti gott að kynnast. (Guðrún Jóhannsdóttir) Þín tengdadóttir, Unnur Ýr Kristjánsdóttir. Álfheiður Sigurgeirsdóttir ✝ Ólöf SigríðurRafnsdóttir fæddist 13. júlí 1946 í Reykjavík. Hún lést 30. jan- úar 2020. For- eldrar hennar voru Auður Páls- dóttir, f. 10. sept- ember 1928 í Reykjavík, d. 1. maí 1947 í Reykja- vík, og Rafn Sigurvinsson, f. 14. mars 1924 í Ólafsvík, d. 13. janúar 1996 í Reykjavík. Systkini Ólafar og Baldur Orri, f. 29. júlí 2015. Ólöf giftist 8. júní 1985 Hrafni Ingvari Gunnarssyni, f. 2. október 1950. Þau skildu. Börn þeirra eru: Gunnar Páll, f. 7. maí 1982, og Ólöf Jó- hanna, f. 4. mars 1988, maki Mats Anderson. Börn þeirra eru Saga Ólöf, f. 15. nóvember 2014, og Theo Hrafn, f. 17. júní 2017. Ólöf giftist Arnóri Þórðarsyni, f. 18. október 1932, d. 31 ágúst 2015. Dætur Arnórs eru Erna og Hulda. Ólöf lauk kennaranámi frá Kennaraskóla Íslands og starf- aði sem grunnskólakennari meðal annars í Kársnesskóla og Fossvogsskóla. Ólöf lét af störfum vegna veikinda. Útförin fer fram frá Há- teigskirkju í dag, 10. febrúar 2020, klukkan 13. samfeðra eru Sveinn og Björg. Ólöf giftist 15. nóvember 1969 Halldóri Þorláki Sigurðssyni, f. 11. október 1947. Þau skildu. Dætur þeirra eru: Sól- veig, f. 10. júní 1971, og Kristín Auður, f. 28. októ- ber 1975, eig- inmaður Þorsteinn Sigurður Guðjónsson. Börn þeirra eru Atli Rafn, f. 16. febrúar 2012, Ég heyrði þá syngja, ég sá er þeir flugu mót svalandi blænum, þá grænt var í hlíðum og geisladýrð hvíldi sem gull yfir sænum. En loftvegir blánuðu, laðandi fjarri, hve langt var að ströndum. Og vorskýin mændu, sem marmarahallir, í morgunsins löndum. Ég bað, er þeir hurfu mér hátt yfir fjöllin og hreimarnir eyddust, að þeir mættu líða eins langt út í geiminn og litirnir breiddust. – Í hafið þeir féllu – og hljótt er nú orðið að háfjallabaki, þar heyrist ei bergmál af blíðróma söngum né blikvængjataki. En loftvegir blána í laðandi fjarska; hve langt er að ströndum! Og hver veit þó nema að svanir þeir syngi í sólfegri löndum? (Hulda) Sólveig Halldórsdóttir. Mig langar til að minnast Ólafar, fyrrverandi mágkonu minnar, með nokkrum orðum, hæfileikaríka kennaranemans sem kom inn í líf okkar þegar ég var barn að aldri. Hún var fyrsta tengdabarnið í fjölskyld- unni og fannst mér, krakk- anum, hún einstaklega spenn- andi. Hún var líka dálítið framandi þar sem hún kom úr umhverfi listrænna bóhema og úr fjölskyldu þar sem flækju- stigið var mun meira en við áttum að venjast okkar megin. Hún var á fyrsta ári þegar ung móðir hennar lést. Hún var öll- um harmdauði. Fyrstu árin ólst Ólöf upp hjá móðurömmu sinni, sem reyndist henni alla tíð afar vel. Ólöf var frjó í hugsun, skemmtileg, viðræðugóð, list- ræn en viðkvæm. Hún hafði stundað nám í píanóleik í Tón- listarskólanum og myndlistar- nám og ég leit mjög upp til þessarar flottu ungu konu og reyndi að apa teikningarnar eftir henni með misgóðum ár- angri. Hún tengdist einnig inn í flugið, en Rafn faðir hennar, sá ljúfi maður, hafði unnið sem loftskeytamaður á vélum Flug- félags Íslands. Eftir að hún lauk kennara- námi kenndi hún eitt ár í grunnskólanum í Hveragerði. Síðan kenndi hún um tíma í Kársnesskóla áður en hún hóf störf í Fossvogsskóla sem var starfsvettvangur hennar lengst af meðan heilsa leyfði. Þetta var á upphafsárum Rauðsokka- hreyfingarinnar og auðvitað var ég sammála henni um að hæfileikar kvenna ættu að blómstra rétt sem karla. Þetta var líka á fyrstu árum Listahá- tíðar í Reykjavík og voru sóttir á þessum árum fjölmargir tón- leikar sem nú eru komnir á spjöld sögunnar. Lífið fór ekki alltaf mjúkum höndum um Ólöfu og örlaga- nornirnar spunnu sína snörpu þræði sem skildu eftir ör á fjölda sálna. Erfiðar aðstæður í lífi hennar urðu til þess að leið- ir skildi þegar elstu dætur hennar tvær voru ennþá börn. Þær fylgdu föður sínum sem ól þær upp og naut við það að- stoðar foreldra okkar fyrstu árin og einnig okkar systranna. Ef það væri ekki fyrir hana Ólöfu þá ætti ég ekki yndis- legu, hæfileikaríku og duglegu frænkurnar sem leikið hafa stór hlutverk í lífi mínu frá því að ég var táningur. Innilegar samúðarkveðjur til barna Ólafar, barnabarna, systkina og móðursystur. Það er ósk mín að góðir kraftar hafi tekið vel á móti henni og muni varðveita hana. Kristín. Ólöf Sigríður Rafnsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.