Morgunblaðið - 10.02.2020, Síða 20

Morgunblaðið - 10.02.2020, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2020 ✝ Þuríður Egils-dóttir fæddist á Króki í Biskups- tungum 26. júlí 1926. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum, þar sem hún dvaldi síðustu þrjú ár ævi sinnar, 10. janúar 2020. Foreldrar hennar voru hjónin Þórdís Ívarsdóttir húsfreyja, f. 20.5. 1901, d. 10.7. 1999 og Egill Eg- ilsson, bóndi og ferjumaður, f. 14.7. 1898, d. 9.1. 1984. Systkini hennar: Steinunn, f. 3.9. 1927, d. 29.4. 1947, Egill, f. 25.8. 1929, d. 21.8. 2019, Ívar Grétar, f. 6.9. 1930, d. 23.3. 2003 og Jóna Kristín, f. 29.11. 1942. Fyrri maður Þuríðar var Kristinn Þorsteinsson. Sonur þeirra Unnsteinn Egill, f. 22.5. 1947. Eiginkona hans er Guðný Helga Jóhannsdóttir, f. 18.9. 1947. Börnin eru Egill, f. 10.11. 1969, Þórir, f. 11.4. 1981 og Anna, f. 14.11. 1982. Dóttir Guð- nýjar er Jóhanna Berglind, f. 3.8. 1966. Barnabörnin eru 14 og Viktoría Mjöll, f. 23.2. 1994. Árið 1955 fluttu Þura og Daníel í Kópavog. Þar vann hún við hin ýmsu störf, þar á meðal á Stelluróló, hjá Ömmubakstri, við ræstingar á Kópavogshæli og við heimilishjálp. Daníel og Þuríður stofnuðu og ráku Raf- tækjaverslun Kópavogs í fimm- tán ár. Áhugamál Þuru voru söngur, hannyrðir og ferðalög. Hún söng í Samkór Kópavogs, Kór Kópavogskirkju og „Ömmu- kórnum“. Hún var í Kvenfélagi Kópavogs og Félagi eldri borg- ara í Kópavogi. Á seinni árum las og söng Þura fyrir „gamla fólkið“ á Sunnuhlíð, sem var jafnvel yngra en hún. Hún prjónaði fleiri hundruð ung- barnapeysur fyrir Rauða kross- inn ásamt peysum, sokkum og vettlingum á flesta af sínum af- komendum. Í kringum 1950 fór Þura í sína fyrstu utanlandsferð, sem var skógræktarferð til Nor- egs. Eins heimsótti hún dóttur sína og hennar fjölskyldu í Sví- þjóð 18 sinnum frá árinu 1994. Þura fór einnig til Rúmeníu, Ungverjalands, Danmerkur og Finnlands. Útför fór fram 24. janúar 2020 frá Kópavogskirkju í kyrr- þey að ósk hinnar látnu. barnabarnabörnin eru tvö. 1. desember 1954 giftist Þur- íður Daníel Skapta Pálssyni, f. 20.9. 1915, d. 1.7. 2002. Foreldrar hans voru Pálína Daní- elsdóttir, húsfreyja á Rauðabergi á Mýrum í Vestur- Skaftafellssýslu, f. 1.12. 1884, d. 19.2. 1985 og Páll Bergsson bóndi, f. 16.12. 1862, d. 11.5. 1946. Börn Þuríðar og Daníels eru: 1) Páll Pálmar, f. 28.6. 1956, 2) Unna, f. 31.7. 1958, eiginmaður John Edward Go- yette, f. 17.7. 1961, börn: Dana Þuríður, f. 31.3. 1983, David Andri, f. 6.6. 1989, Aron Edw- ard, f. 4.3. 1991 og Alex Edward, f. 4.3. 1991. Barnabörnin eru orðin sex, 3) Guðjón Grétar, f. 14.12. 1964, eiginkona Ingileif Jóhannesdóttir, f. 3.1. 1966, börn: Halldóra Hrund, f. 30.11. 1987, Sunna Dís f. 29.7. 1992, Aníta Mjöll, f. 4.3. 1994, Ísak Dan, f. 5.1. 1998 og Arna Diljá, f. 18.10. 2003. Dóttir Ingileifar er Elsku amma mín, loksins ert þú komin í Sumarlandið þitt. Í júní 2016 sat ég við hlið þér á Landspítalanum í Fossvogi og kvaddi þig, þar sem við héldum að þín lokastund væri komin. Þú varst tilbúin að kveðja okkur þá og sagðir mér, bæði þá og eins oft áður, hvað þú hlakkaðir til að koma í Sumarlandið, þar sem all- ir sem þú hefur saknað bíða þín. En þinn tími var ekki kominn, þú fékkst gangráð og hjarta þitt sló sterkt aftur. En amma eins og við þekktum þig var ekki lengur. Við horfðum á þig hverfa frá okkur inn í sjálfa þig. Ó, hversu sárt það var þau skipti sem ég kom til þín á Droplaugarstöðum og þú vissir ekki hver ég var. En elsku amma, það var mér svo mikils virði að koma til þín og faðma þig, finna hlýjuna þína, halda í hendurnar þínar og strjúka þér um kinn, þó svo að þú vissir ekki hver ég var. Hversu dýrmætt það var að fá að vera hjá þér og strjúka vanga þinn þegar þú lagðir af stað í ferðalagið í Sumarlandið og kvaddir þennan heim. Alla mína ævi hefur heimili ykkar afa verið mitt annað heim- ili. Ég man þegar ég var sex ára og bjó á Sæbólsbrautinni og labbaði til ykkar, án leyfis, þar sem mamma hafði ekki tök á að fara með mig til ykkar þann dag- inn. Pönnukökurnar og jólakök- urnar sem þú áttir alltaf, göngu- túrarnir okkar til að gefa öndunum brauð, veiða úti á bryggju eða versla í matinn í Hamraborginni, og alltaf tíndir þú upp ruslið eftir sóðana. Ég man rólóferðirnar okkar saman, þegar ég lá í dekkjarólu og þú ýttir mér hærra og hærra og ég söng Maístjörnuna fyrir þig aftur og aftur. Þú elskaðir að syngja og það voru ófá skiptin sem ég fór með þér í messu í Kópavogskirkju. Þú last fyrir mig sögur úr Biblíunni og söguna um þá Bakkabræður, sem var í uppá- haldi hjá mér, og í minni mínu er fast „Gísli-Eiríkur-Helgi, faðir vor kallar kútinn“. Ég elskaði að kúra í ömmubóli og þú sagðir nánast alltaf sögur á kvöldin og fórst með bænir með mér. Þegar ég var tíu ára flutti ég til Svíþjóðar, þar sem ég bý enn. Ég var alltaf hjá ykkur afa þegar ég kom til Íslands og alveg sama hvað við komum mörg var alltaf pláss, þrátt fyrir að íbúðin væri ekki stór. Alltaf var vel tekið á móti okkur öllum. Þú hefur kennt mér að ef það er pláss í hjarta, þá er pláss fyrir alla. Þú og afi hafið átt svo stórt hlutverk í mínu lífi og ykkar er sárt saknað, en ég mun ávallt geyma minningarnar. Ég veit að þið eruð í Sumarlandinu, um- kringd ástvinum, og við munum öll sameinast þar á ný þegar okkar tími er kominn. Við allt viljum þakka amma mín, indælu og blíðu faðmlög þín, þú vafðir oss vina armi. Hjá vanga þínum var frið að fá þá féllu tárin af votri brá, við brostum hjá þínum barmi. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. Leiddu svo ömmu góði guð í gleðinnar sælu lífsfögnuð, við minningu munum geyma. Sofðu svo amma sætt og rótt, við segjum af hjarta góða nótt. Það harma þig allir heima. (Halldór Jónsson frá Gili) Dana Þuríður Jóhannsdóttir. Þuríður Egilsdóttir ✝ Þórir Krist-jónsson fæddist á Hellissandi 25. júní 1932. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Seltjörn 31. janúar 2020. Foreldrar hans voru Kristjón Árna- son verslunar- maður, f. 17. september 1901, d. 4. janúar 1992, og Guðný Ásbjörnsdóttir verka- kona, f. 20. september 1907, d. 8. mars 2014. Bróðir Þóris var Svavar, f. 4. júní 1927, d. 18. maí 2012. Þórir fluttist 11 ára gamall með fjölskyldu sinni frá Hellis- sandi til Njarðvíkur og síðar til Reykjavíkur. Þórir kvæntist Ingu Jónu Ólafsdóttur 8. ágúst 1953, f. 27. maí 1931 í Hafnarfirði. Þeirra börn eru 1) Ólafur, f. 1953, d. 1995, maki Júlía Sigurðardóttir, synir þeirra eru a) Sigurður Sigmundsson, synir þeirra eru a) Gunnar, f. 1979, hans sonur er Mikael Bjarni, b) Jóhann f. 1988. Þórir hóf sjómennsku árið 1949 sem háseti á ýmsum fiski- skipum fram til ársins 1956. Þá réðst hann til Skipaútgerðar ríkisins og var háseti á strand- ferðaskipum útgerðarinnar. Frá því í júlí 1961, eða eftir að Þórir lauk farmannaprófi frá Stýri- mannaskólanum, var hann stýri- maður á skipum útgerðarinnar. Árið 1965 varð Þórir fyrsti stýri- maður á ms. Önnu Borg og síðar skipstjóri á ms. Ísborgu til 1973. Stofnaði hann þá ásamt fleirum Fraktskip hf. og var skipstjóri á skipum félagsins, ms. Vegu og Hansa Trade, til ársins 1977 er hann gerðist framkvæmdastjóri félagsins til ársins 1979. Gerði Þórir út og var skipstjóri á fiski- bátnum Árna frá Hafnarfirði til ársins 1982 er hann réðst til Sjó- leiða hf. í Reykjavík og var skip- stjóri á ms. Sögu til ársins 1985. Þórir hóf þá störf hjá Eimskipa- félagi Íslands og var skipstjóri á ms. Selfossi allt þar til hann lét af störfum við 67 ára aldur. Útför Þóris fer fram frá Kópa- vogskirkju í dag, 10. febrúar 2020, og hefst athöfnin klukkan 15. Grétar, f. 1978, í sambúð með Úlf- hildi Guðjónsdóttur. Þeirra börn eru Skarphéðinn Krummi, Kristín Hanna og Ylfa Matt- hildur. b) Kári, f. 1981, hans börn eru Ólafur Veigar og Eva Ísey. Móðir þeirra er Guðbjörg Hulda Einarsdóttir. c) Þórir Ingi, f. 1988. 2) Helga, f. 1955, maki Gísli Sveinbjörnsson, sonur hennar er Þórir f. 1979, giftur Kristjönu Þorbjörgu Jóns- dóttur. Þeirra börn eru Ingvar Örn og Katrín Ása. Sonur Helgu og Gísla er Hlynur, f. 1993. 3) Inga Þóra, f. 1965, maki Guð- mundur Helgason, þeirra sonur er Ýmir, f. 1997. 4) Guðný, f. 1969, maki Egill Sveinbjörnsson, synir þeirra eru a) Darri, f. 1994, b) Nökkvi, f. 2000 og c) Hugi, f. 2008. Fyrir átti Þórir dótturina Ásgerði, f. 1953, maki Kristinn Nú er komið að ferðalokum hjá tengdapabba mínum. Ég er fullur þakklætis fyrir þann tíma sem við fjölskyldan fengum með honum. Frá honum geislaði ávallt hlýja og ástúð sem fjölskylda og vinir fengu að njóta. Þegar ég kom inn í fjöl- skylduna varð ég þess strax áskynja að hann og Inga Jóna voru einstaklega samrýnd og samstiga í að hlúa að fjölskyldu og vinum og kunnu að njóta lífsins. Atvinna Þór- is kallaði á fjarveru frá heimilinu svo mánuðum skipti en fljótlega eftir að ég kem inn í fjölskylduna hefur hann störf hjá Eimskip og þá voru túrarnir ekki eins langir og fríin reglulegri. Mér var fljótt ljóst að Þórir hafði lifað viðburðaríku lífi og oft á tíðum ævintýralegu. Það var alltaf sérstök hátíðarstemning þegar Þórir kom í land því þá slógu hjónin oft upp veislu fyrir sína nán- ustu, ef ekki samdægurs þá næsta dag. Við þessar aðstæður held ég að Þóri hafi liðið hvað best, um- kringdur sínu fólki, höfðingi heim að sækja. Þarna sagði hann oft skemmtilegar sögur af ferðum sínu um heiminn og því sem hann hafði upplifað en um leið sóttist hann eft- ir því að fá fréttir af okkur. Þegar þau hjónin buðu fjöl- skyldunni í árlegt þorrablót þá hafði Þórir sérstaklega gaman af því að stofna til keppni meðal barnabarnanna. Keppni sem fólst í því að borða sem flesta hákarlsbita. Hann lagði fram ríflega peninga- upphæð fyrir sigurvegarann. Eftir því sem börnin lögðu sig meira fram þeim mun meira var honum og öðrum skemmt. Þegar Þórir fór á eftirlaun notaði hann starfsork- una í að byggja við sumarbústaðinn við Þingvallavatn. Þar dvöldu þau hjónin oft og iðulega yfir sumarið. Á vorin var alltaf stemning að setja bátinn á flot með barnabörnunum og fara út á vatnið til veiða. Auðvit- að lauk deginum á því að borða læri og drekka eitthvað gott. Fáir fara í gegnum langt líf án áfalla. Árið 1995 sáu þau hjónin á eftir Óla einkasyni sínum. Eitt af því síðasta sem Óli náði að gera áð- ur en hann kvaddi þessa jarðvist var að mynda sumarbústað for- eldra sinna úr lofti og færa þeim. Ég er viss um að hann tekur nú á móti pabba sínum og þar verða fagnaðarfundir. Á tímabili var ég svo heppinn að vinna nærri heimil þeirra í Fel- lasmáranum. Ég hitti þau oft í há- deginu þar sem við náðum að ræða mál líðandi stundar og skiptast á skoðunum. Ég er fullur þakklætis fyrir samverustundirnar og þann hlýhug sem ég fann alltaf. Þróttur Þóris minnkaði jafnt og þétt hin síðari ár en aldrei missti hann húmorinn. Hann sá alltaf spaugilegar hliðar á lífinu og tilver- unni. Fyrir sjö mánuðum fluttist Þórir á Seltjörn þar sem honum var sérstaklega vel tekið af starfs- mönnum og heimilisfólki. Þar leið honum vel. Aðstandendur Þóris standa í ævarandi þakkarskuld við það góða starfsfólk sem þar starfar og annaðist hann þessa síðustu mánuði. Það er erfitt að kveðja svo mætan mann en ég veit að hann naut lífsins á öllum stigum þess og skilur eftir sig gott starf hvort heldur litið er til starfsferils eða fjölskyldu. Ég kveð hann ánægður með að hafa verið hluti af hans lífi og hann af mínu. Guðmundur Helgason. Það eru forréttindi að fá að eiga afa – hvað þá jafn góðan afa og hann Þóri afa minn og nafna. Það var alltaf mikið um að vera í Fögru- brekkunni þar sem þau hjónin, afi Þórir og amma Inga Jóna, höfðu byggt sér heimili. Við frændurnir áttum alltaf víst skjól hjá ömmu og afa, hvort sem okkur langaði í bita eða spjall. Sumarbústaðaferðir, fjölskylduhittingar og allt hitt sem brallað var verður lengi í minnum haft. Sögurnar margar og sumar þannig að ég skildi aldrei hvernig amma og afi héldu þolinmæðinni fyrir öllum uppátækjunum, enda margt brallað. Hurðirnar í Fögru- brekku voru einkar vel til þess fallnar að festa í þær hurða- sprengjur og eftir því sem við elt- umst náðum við að fela þær betur, ömmu til nokkurrar armæðu. Eitt mál leystist þó aldrei og það var rannsókn á því hver málaði nýja Volvo-inn hans afa. Við Siggi frændi vorum grunaðir en héldum því staðfastlega fram að Kári frændi hefði málað – þótt athugun leiddi í ljós að tæplega tveggja ára gamall Kári gæti varla haldið á málningarbrúsa, hvað þá málað bíl. Afi hló bara og var ekkert að stressa sig óþarflega á svona uppá- tækjum. Í sumarbústað þurfti að vinna mörg verk og bera margar vatns- fötur. Í minningunni vorum við frændurnir þar heilu og hálfu sumrin – ekkert sjónvarp, lítið raf- magn en hlustað á kvöldsögur Jón- asar og gripið í spil. Okkur frænd- unum þótti afi ekki sérlega íþróttamannslega vaxinn og minnt- um hann stöku sinnum á það. Eitt skiptið sagði afi að nú væri kominn tími til að reyna á það – en það skyldi gert með spretthlaupi! Hlaupið fór fram á malarvegi fyrir utan sumarbústaðinn Fögru- brekku og skemmst er frá því að segja að gamli gat hlaupið og vann okkur unglingana, okkur til algerr- ar undrunar. Þrátt fyrir margar áskoranir lét hann aldrei hafa sig út í að taka aðra slíka keppni – og naut þess að vera fjölskyldumeist- ari í 50 m hlaupi með blandaðri að- ferð. Ein skemmtilegasta minningin er þó að hafa fengið að fara með afa í siglingu, en við sigldum með salt- fisk til Spánar og Portúgal – þar var farið á strönd og enn man ég eftir því þegar ég stóð í brúnni með afa þegar siglt var að landi í Bilbao. Það eru forréttindi að hafa fengið að upplifa slíkt. Í dag kveðjum við afa. Sú kveðjustund var raunar byrjuð. Afi greindist með alzheimer og var sjúkdómurinn búinn að taka hluta af honum. En gegnum alla þá göngu missti hann aldrei gleðina – sem var alltaf stærsti hlutinn af honum. Þórir Ingvarsson. Mig langar í fáum og fátækleg- um orðum að minnast sæmdar- mannsins Þóris Kristjónssonar en hann lést á heimili sínu Seltjörn 31. janúar sl. umvafinn elsku konu sinnar og dætra. Það er mikilvægt í lífinu að kynnast góðu fólki og njóta þess að vera því samferða. Það er skemmtilegt frá því að segja hvernig kynni við Þóri og Ingu Jónu urðu til. Þórir var skipstjóri og vann við það í áratugi. Eitt sinn kom hann með skip sitt til Húsavík- ur, hitti þar á afa minn sem tók á móti skipinu. Þórir segist þurfa að hringja trúnaðarsímtal og hvort afi geti útvegað sér síma. Afi tekur hann með sér heim til sín og ömmu minnar sem tók á móti Þóri, eins og öllum, af mikilli gestrisni. Úr þessu varð ævarandi vinátta sem ég og mín fjölskylda höfum öll fengið að njóta alla tíð. Þórir og Inga Jóna reyndust afa mínum ávallt einstak- lega vel og ekki síst eftir að hann varð ekkill á besta aldri. Heimili Þóris og Ingu Jónu stóð okkur öllum opið. Í áratugi bjó ég hjá þeim þegar ég kom suður, hvort sem ég var að vinna eða í fríi og máttum við fjölskyldan helst hvergi vera nema hjá þeim og aldr- ei var neitt nógu gott fyrir okkur. Með þeim höfum við átt alveg ómetanlegar stundir bæði á heimili þeirra, paradísinni í Grafningnum, og hér fyrir norðan. Minningarnar, þegar Inga Jóna var að töfra fram besta mat í heimi og Þórir að blanda drykk og segja skemmtileg- ar sögur, eru okkur dýrmætar. Hann sagði einstaklega skemmti- lega frá og var mikill húmoristi. Gerði góðlátlegt grín að Ingu sinni og hló svo sínum dillandi hlátri. Þórir var farsæll í sínu einkalífi, dáður af fólkinu sínu og vel liðinn í starfi sínu sem skipstjóri. Við Heiðar, Rebekka og Sif þökkum afa Þóri fyrir allt sem hann gerði fyrir okkur. Elsku Inga Jóna og ykkar afkomendur, inni- legar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Þóris Krist- jónssonar. Margrét Þórhallsdóttir. Þórir Kristjónsson HINSTA KVEÐJA Elsku afi, takk fyrir minningarnar, takk fyrir að kenna mér að tefla, takk fyrir heimagerðu rúllupyls- una – hún var alltaf ansi góð hjá þér, takk fyrir að hlæja að misfyndnum sög- um sem ég sagði, takk fyrir samveruna í sveitinni, og takk fyrir allar hinar stund- irnar. Ég vildi að þær hefðu orðið fleiri. Darri. Það er dálítið erf- itt að skrifa nokkur orð til tengda- mömmu sem nú hef- ur kvatt þessa tilvist okkar. Didda, eins og hún var yfirleitt kölluð, var sterka manneskjan í sinni fjölskyldu. Didda var sú sem allir leituðu til og sú sem hvatti og studdi alla sem til henn- ar leituðu með sín mál og erfið- leika. Ég kom inn í Stóragerðis- fjölskylduna þegar við Birna fundum hvort annað og ákváðum að ganga saman lífið. Didda tók mér strax með opnum faðmi og þó við ættum okkar stundir í upp- hafi þar sem stálin mættust stinn, enda tveir sterkir persónu- leikar, þá þótti okkur ætíð vænt hvoru um annað og bárum virð- ingu hvort fyrir öðru. Didda var manneskja með stóra sál og var persóna sem allt gat gert enda var hún mjög greind. Didda bar kannski ekki tilfinningar sínar á borð fyrir alla. Hún ræddi al- mennt sín mál ekki við ókunnuga eða yfirleitt aðra en sína nánustu Þuríður Unnur Björnsdóttir ✝ Þuríður UnnurBjörnsdóttir fæddist 22. febrúar 1930. Hún lést 13. janúar 2020. Útför Þuríðar fór fram í kyrrþey 24. janúar 2020. og að þessu leyti vorum við kannski ólík. Didda vann ætíð fyrir sínu og skuldaði engum neitt en margir skulduðu henni fyrir hennar gjörðir en á móti ætlaðist hún ekki til launa fyrir sín góðverk. Þær mæðgur Birna og Didda áttu mjög sterkt og fallegt samband sem gott var að fylgjast með og dást að. Didda þurfti mjög snemma að sjá á eftir föður sínum sem lést langt fyrir aldur fram og var það henni sennilega mjög erfið lífs- reynsla en hún var víst mikil pabbastelpa. Á síðari hluta lífs- keiðs síns barðist Didda við vond- an óvin, parkinsonsveiki. Í þess- ari baráttu gerði hún allt til að lifa með reisn, sem óbeygð mann- eskja. Það er þó eitt sem við ekki getum flúið og að lokum nær sá sem okkur öllum nær. Didda kvaddi þetta jarðlíf í faðmi sinna kærustu ástvina og þó alltaf sé sárt að þurfa kveðja sitt fólk þá held ég að Didda hafi kvatt okkur í sátt við að þessu jarðlífi væri lokið. Sumarlandið bíður hennar og vissan um að Anton muni taka á móti henni með opinn faðminn. Sveinbjörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.