Morgunblaðið - 10.02.2020, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2020
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-15. Opin vinnustofa kl. 9-12. Opin
handavinnuhópur kl. 12-16. Leikfimi með Hönnu og Maríu kl. 9.
Morgunsagan kl. 11. Göngubretti, æfingarhjól með leiðbeinanda kl.
12.30. Félagsvist með vinningum kl. 12.45. Opið fyrir innipútt.
Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könn-
unni. Allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Botsía kl. 10.30, gönguhópur kl. 10.30, félagsvist (FEBK) kl.
13, myndlist kl. 13, vatnsleikfimi kl. 14.30.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7-8. Við hringborðið kl.
8.50. Frjáls í Listasmiðju kl. 9-12. Púslum saman kl. 9-16. Byrjendur í
línudansi kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30. Myndlistarnámskeið kl. 12.30-
15.30. Foreldrastund kl. 13. Félagsvist kl. 13. Handavinnuhornið kl. 13.
Síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í
síma 411-2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Leirmótun kl. 8.30. Núvitund kl. 10.30.
Silkimálun kl. 12.30. Gönguferð kl. 13. Handaband kl. 13. Brids kl. 13.
Bókabíllinn á svæðinu kl. 13.10-13.30. Skák kl. 14. Handavinnuhópur
hittist kl. 15.30. Hjartanlega velkomin. Nánari uppl. í síma 411-9450.
Garðabær Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga í Jónshúsi
kl. 11. Brids í Jónshúsi kl. 13. Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.10/7.50/15.15.
Kvennaleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Kvennaleikfimi Ásgarði kl. 11. Zumba
salur Ísafold kl. 16.15.
Gerðuberg 3-5 Opin Handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður með
leiðbeinanda kl. 9-16. Qigong kl. 9-10. Leikfimi Maríu kl. 10.30-11.15.
Leikfimi Helgu Ben kl. 11.15-11.45. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 90 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
10.50 jóga, kl. 13.15 kanasta, kl. 16.30 kóræfing, kl. 19 skapandi skrif.
Gullsmári Postulínshópur kl. 9. Jóga kl. 9.30 og 17. Brids og handa-
vinna kl. 13. Félagsvist kl. 20.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9–14. Jóga kl. 100–11. Hádegismatur kl. 11.30.
Sögustund kl. 12.30-14. Prjónaklúbbur kl. 14-16.
Hraunsel Ganga alla daga í Kaplakrika frá kl. 8-12. Myndmennt kl. 9,
Gaflarakórinn kl. 11, félagsvist kl. 13. Ganga frá Haukahúsi kl. 10.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Jóga með
Carynu kl. 9. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Samverustund kl. 10.30. Jóga
með Ragnheiði kl. 11.10 og kl. 12.05. Tálgun, opinn hópur kl. 13-16.
Frjáls spilamennska kl. 13. Liðleiki í stólum kl. 13.30.
Korpúlfar Ganga kl. 10 frá Borgum, Grafarvogskirkju og inni í Egils-
höll. Prjónað til góðs kl. 13 í Borgum, allir vekomnir í prjónagleðina
og gefið til líknarmála. Félagsvist kl. 13 í Borgum. Tréútskurður í
umsjón Gylfa kl. 13 á Korpúlfsstöðum. Kóræfing Korpusystkina með
Kristínu kórstjóra kl. 16 í Borgum.
Seltjarnarnes Gler neðri hæð Félagsheimilisins kl. 9 og 13. Leir
Skólabraut kl. 9. Billjard Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi í króknum
kl. 10.30. Jóga Skólabraut kl. 11. Handavinna með leiðbeinanda kl. 13.
Vatnsleikfimi kl. 18.30. Á morgun þriðjudag kl. 14 verður kynningar-
fundur í Hátíðarsal Gróttu á hreyfingarnámskeiðinu Farsæl öldrun.
Allir velkomnir 60+.
Stangarhylur 4, Zumba Gold, dans, leikfimi og teygjur fyrir byrjend-
ur kl. 9.20, nýr viðbótarhópur hefst mánudaginn 10. febrúar. ZUMBA
Gold framhald kl. 10.30, umsjón Tanya.
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
Atvinnublað
Morgunblaðsins
fimmtudaga og laugardaga
Er atvinnuauglýsingin þín á besta stað?
Sendu pöntun á atvinna@mbl.is
eða hafðu samband í síma 569 1100
Allar auglýsingar birtast í
Mogganum, á mbl.is og finna.is
✝ Sævar Sigur-steinsson
fæddist á Selfossi
6. júlí 1941. Hann
lést á Heilbrigðis-
stofnun Suður-
lands á Selfossi 2.
febrúar 2020.
Foreldrar Sæv-
ars voru Guðrún
Dagbjört Giss-
urardóttir hús-
móðir, f. 1910, d.
1990, og Sigursteinn Ólafsson
mótoristi, bílstjóri og síðast af-
greiðslumaður, f. 1914, d. 2010.
Sævar ólst upp hjá foreldrum
sínum í húsinu Múla á Selfossi,
en vegna veikinda móður sinn-
ar sem barðist við berkla var
hann langdvölum í æsku hjá
föðurfólki sínu á bænum Syðra-
Sigurðardóttir bóndi og mat-
ráðskona, f. 1918, d. 2011.
Börn Sævars og Gerðar eru:
1) Sigurður Bogi, f. 19. janúar
1971, blaðamaður á Morgun-
blaðinu. 2) Sigursteinn Gunnar,
f. 10. mars 1974, flugvirki hjá
Icelandair, búsettur í Sandgerði
í Suðurnesjabæ. Eiginkona hans
er Nikki Kwan Ledesma, f.
1985. Börn þeirra eru Elías
Atli, f. 2018, og Margrét Ólöf, f.
2019. Dætur Sigursteins úr
fyrri sambúð eru Alexandra, f.
1994, Ísabella Diljá, f. 2001,
Emilíana Eik, f. 2005, og Karól-
ína Katrín, f. 2010. 3) Ragnhild-
ur, f. 22. júní 1982, bú- og nátt-
úrufræðingur, búsett á
Hjálmsstöðum í Laugardal í
Bláskógabyggð. Eiginmaður
hennar er Daníel Pálsson, f.
1981, bóndi og smiður. Börn
þeirra eru Kári, f. 2007, Védís,
f. 2012, og Dagur Steinn, f.
2015.
Útför Sævars fer fram frá
Selfosskirkju í dag, 10. febrúar
2020, og hefst klukkan 13.
Velli í Flóa. Sævar
hóf árið 1957 nám í
rafvirkjun og fór á
námssamning hjá
Kaupfélagi Árnes-
inga. Starfaði þar
næstu 16 árin og þá
mikið úti í sveit-
unum. Árið 1973
fór Sævar svo til
starfa hjá Rafveitu
Selfoss sem HS
veitur tóku seinna
yfir og vann þar til sjötugs.
Eftirlifandi eiginkona Sæv-
ars er Sigrún Gerður Bogadótt-
ir, f. 20. apríl 1948, sjúkraliði á
Selfossi. Foreldrar hennar voru
Bogi Nikulásson bóndi á Hlíð-
arbóli í Fljótshlíð og seinna
verkamaður á Selfossi, f. 1912,
d. 1996, og Ragnhildur
Íslandskort, Öldin okkar og
Nonnabækurnar sem pabbi
minn, Sævar Sigursteinsson, átti
opnuðu mér ungum undraheima.
Frásagnir fylgdu með og vöktu
óstöðvandi áhuga ungs drengs á
að kynnast landi, fólki, sögu og
málefnum. Við fórum saman
þvert og endilagt um Selfossbæ,
Suðurland og seinna landið þvert
og endilagt til að fræðast og
skoða staði. Leiðsögnin var frá-
bær og orðin höfðu alltaf inni-
stæðu en voru sjaldan mörg, því
pabbi var í verunni dulur og
fremur lokaður maður. Undir
skelinni bjó samt einlæg um-
hyggjusemi gagnvart fólkinu
sínu.
Pabbi fæddist á Selfossi og
bjó þar alla tíð. Dvaldist þó mik-
ið vegna veikinda móður sinnar
hjá föðurfólki sínu á bænum
Syðra-Velli í Flóa og minntist
daganna þar með gleði og þakk-
læti. Myndir frá liðnum árum
segja frá skemmtilegum æsku-
dögum í bænum við brúna. Pabbi
var fjölfræðingur í sögu Selfoss
enda mikið á ferðinni, tók marga
tali og var áhugasamur um nær-
samfélag sitt. Hafði rökstuddar
skoðanir á mönnum og málefn-
um, sem hann lét í ljós ef honum
þótti ástæða til. Þau tilefni voru
ekki endilega mörg, en vel valin.
Á yngri árum starfaði pabbi
mikið úti í sveitunum sem raf-
virki og átti þar sína bestu daga í
starfi. Tók þátt í að rafvæða
dreifbýlið og sagði mér margt
um straumhvörfin sem urðu til
dæmis á afskekktum bæjum
þegar blessað rafmagnið kom.
Rafvirkinn var af lýsingunum að
dæma rammgöldróttur og verk-
færi hans töfrasprotar. Hann
kynntist á þessum tíma fjölda
fólks úti um sveitir og eignaðist
þar með lífstíðarvini. Starfsvett-
vangurinn var þó lengst við raf-
veituna á Selfossi eða 38 ár.
Lagði strengi, setti upp staura
og skipti um perur í ljósastaur-
um. Og mörg voru þau aðfanga-
dagskvöldin þegar rafmagn sló
út, að hann var ræstur út til að
kippa málum í liðinn. Ljósa-
meistari jólanna.
Engan veit ég jafn nægjusam-
an og pabbi minn var. Skyr og
brauðsneið nægðu svo úr yrði
veisla, sjónvarpsfréttir, Rás 1 og
Mogginn dugðu sem andleg nær-
ing og dagleg ferðalög náðu
sjaldan út fyrir bæjarmörkin, að
minnsta kosti síðustu árin.
Heimsótti þá gjarnan Björn Jen-
sen frænda sinn, en milli þeirra
voru sterk bönd og vinátta til
síðustu stundar.
Við systkinin og nánasta fjöl-
skylda sátum hjá pabba síðustu
dagana. Margt rifjaðist upp, góð-
ar og glaðar stundir og bjartar
minningar. Ég tók mér hlé frá
vaktinni við sjúkrabeðinn og fór
niður í fjöru við Stokkseyri, en
þangað fórum við feðgar svo oft í
gamla daga til að sjá svarrandi
brimið og fylgjast með fuglum
og bátum. „Vorið byrjar alltaf
við sjóinn,“ sagði pabbi þá gjarn-
an, svo vel sem hann fylgdist
með öllu í gangverki náttúr-
unnar. Og víst var ég ofurlítið
meyr vitandi að stundaglasið
væri að tæmast. Allt mun þó
áfram streyma og nú er daginn
farið vel að lengja og ástæða til
bjartsýni. Pabbi hefði ekki tekið
annað í mál nú þegar vorið er á
næsta leiti.
Sigurður Bogi Sævarsson.
Í dag kveðjum við frænda
okkar, vin og samferðamann,
Sævar Sigursteinsson. Sam-
fylgdin hefur varað öll okkar
bernsku- og fullorðinsár.
Bernsku- og æskuárin okkar
Sævars bjuggum við í Múla á
Selfossi. Uppi bjuggu Sigur-
steinn og Guðrún og Sævar
einkabarn þeirra. Niðri bjó fjöl-
skylda Jónu systur, Guðrúnar,
ásamt Katrínu móður þeirra,
Robert föður okkar og við þrjú
systkinin. Húsnæðið var nú ekki
stórt á mælikvarða nútímans en
sambýlið var alla tíð hið besta.
Við systkinin niðri nutum þess
að eiga aukaforeldra uppi, því
alltaf vorum við velkomin á
loftið.
Síðar þegar búsetunni í Múla
lauk höguðu atvikin því svo að
systurnar fluttu báðar á Sunnu-
veginn í hús hlið við hlið, svo að
fjarlægðin var aldrei mikil á milli
þeirra, enda einstaklega sam-
rýndar. Síðar byggði Björn sér
hús við hlið Steina og Gunnu.
Sævar hóf svo sinn búskap í húsi
foreldra sinna. Þannig að þessi
litla fjölskylda bjó lengi í góðu
nábýli. Að leiðarlokum viljum við
þakka samfylgdina öll árin.
Innilegar samúðarkveðjur
sendum við Gerði, Sigga Boga,
Steina og Ragnhildi og fjölskyld-
um þeirra.
Björn og Jóhanna Jensen.
Sævar
Sigursteinsson
Siggi í Vík var
einn af okkur sem
drekkum morgun-
kaffi á kaffihúsinu
Bryggjunni á hverjum morgni,
Bryggjukörlunum. Hann var allt-
af mættur fyrstur, en hafði ekki
komið um nokkurt skeið. Hann
kenndi sér lasleika, var kominn á
hjúkrunardeildina í Víðihlíð og
treysti sér ekki lengur til okkar á
morgnana.
Einhver hitti mágkonu hans
og fékk þá fréttir af því að Sigga
hefði versnað, fengið hæga heila-
blæðingu sem varð honum að ald-
urtila að lokum.
Siggi var einn af mínum bestu
vinum, hef þekkt hann frá því við
vorum fimm ára gamlir. Ég var
Sigurður
Þorláksson
✝ Sigurður Þor-láksson fæddist
26. maí 1949. Hann
lést 27. janúar
2020.
Útför Sigurðar
fór fram 7. febrúar
2020.
nýkominn heim frá
Færeyjum eftir
þriggja ára dvöl og
talaði bara fær-
eysku. Siggi, Gilli og
Lína, systkinin,
kenndu færeyska
stráknum að tala ís-
lensku, hlógu pínu-
lítið að honum til að
byrja með.
Við lékum okkur
saman í æsku, sát-
um saman í skóla. Við hlupum af
okkur hornin og skemmtum okk-
ur, fórum í Glaumbæ og Röðul.
Seinna urðum við fullorðnir
menn og hófum lífsbaráttuna
eins og gengur.
Það fóru margir Grindvíkingar
í Stýrimannaskólann í byrjun átt-
unda áratugarins. Siggi var einn
af þeim og útskrifaðist úr far-
mannadeildinni. Það leið ekki á
löngu áður en honum var treyst
fyrir flutningaskipi. Hann varð
skipstjóri á Keflavíkinni og sigldi
út um allt. Keflavíkin flutti salt-
fisk til Portúgals og salt frá Spáni
og Marokkó aftur heim. Þeir fóru
með skreið til Nígeríu og síld til
Múrmansk. Hann sigldi til
Norðurlanda, Bretlands, Þýska-
lands, Hollands, Belgíu og
Frakklands. Hann fór til Suður-
Ameríku. Ég sá mynd sem tekin
var af Sigga í skipstjórastólnum á
Keflavíkinni á jólum 1984 á leið
til hafnar í New York með frels-
isstyttuna í baksýn. Siglingarnar
áttu vel við Sigurð Þorláksson.
Hann hafði alltaf mikinn áhuga á
landafræði og sögu, það voru ekki
margir sem stóðust honum snún-
ing á þeim sviðum. Hann var
mjög vel að sér í Íslandssögu,
mannkynssögu, hugmyndasögu
og tónlistarsögu. Hann var vel
lesinn í stjórnmálasögu Íslands
og Bandaríkjanna. Eftir jólin
2018 kom Siggi eins og endranær
niður á Bryggju í kaffi. Hann
hafði fengið bókina um Skúla
Magnússon í jólagjöf. Við rædd-
um bókina eftir því sem lestrin-
um miðaði fram hjá Sigga. Þetta
gerðum við oft í gegnum árin.
Þetta voru fróðlegar og skemmti-
legar samræður þar sem við fé-
lagarnir vorum báðir á þessu
áhugasviði. Ég er þakklátur fyrir
spjallið og geymi það í minning-
unni um góðan vin.
Siggi var ekki bara í fragtinni.
Hann var í mörg ár á netavertíð-
um, loðnu og síld með Sveini Ís-
akssyni skipstjóra á Hrafni
Sveinbjarnarsyni, Jóni Sigurðs-
syni og Víkingi frá Akranesi.
Eftir að hann fór í land vann
hann hjá mér á netaverkstæðinu
og naut sín vel þar á meðal vina.
Hann varð að hætta að vinna
eftir erfitt heilablóðfall og náði
sér aldrei eftir það. Hann varð
ekki samur á eftir.
Sigurður Þorláksson hafði
mjög gaman af tónlist. Enginn
sem var ungur á sjöunda áratug
síðustu aldar komst hjá því að
verða fyrir áhrifum af bresku
bylgjunni, Bítlunum, Stones,
Kinks og fleirum. Síðan kom am-
eríska bylgjan og fór inn í sálina á
unga fólkinu. Hann átti góðar
græjur og keypti margar plötur.
Á tímabili fór hann að kaupa plöt-
ur með sígildri tónlist og naut
þess að hlusta á þær í sínum
flottu tækjum.
Bítlarnir voru samt í fyrir-
rúmi, þeir voru frá Liverpool.
Það er klárt mál og víst að þeir
voru áhrifavaldar að vali hans á
fótboltaliði í enska boltanum.
Honum leið alla tíð vel þegar
Liverpool vann.
Þegar honum fannst hallað
réttu máli gegn vinum sínum eða
fótboltafélagi frá Liverpool greip
Sigurður til varna og sparaði þá
hvorki orð né kraft.
Farðu vel minn kæri, „You’ll
never walk alone“.
Ég sendi fjölskyldunni frá Vík
samúðarkveðjur.
Ég minnist vinar míns með
söknuði, þakklæti og virðingu.
Aðalgeir (Alli).
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
GUÐFINNA SNORRADÓTTIR,
lést á heimili sínu í Torrevieja 17. janúar.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Ásta María Benónýsdóttir Styrmir Ingi Bjarnason
Ólafur Björn Benónýsson
Arnór Freyr og Birna Mjöll
Kára Dís, Krista Bríet og Hrannar Ben
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru
vinsamlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi lið-
ur, „Senda inn minningar-
grein,“ valinn úr felliglugg-
anum. Einnig er hægt að slá
inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Minningargreinar