Morgunblaðið - 10.02.2020, Síða 24
Hjónin Guðmundur Sigurðsson og Valgerður Knútsdóttir stödd í Róm.
G
uðmundur Sigurðsson
fæddist 10. febrúar
1950 í Reykjavík en
ólst upp í Njarðvík til
ársins 1957 og í
Bandaríkjunum til 1962. Þar var
hann í grunnskóla, lék hafnabolta
og hóf feril sinn í körfuknattleik,
sem hélt síðan áfram í Reykjavík.
Hann bjó í Reykjavík til 1974, í
Kópavogi til 2007, en hefur síðan
verið búsettur á Selfossi.
Guðmundur lauk stúdentsprófi
frá MH 1972, starfaði í gesta-
móttöku Hótels Esju 1974-1981,
vann sem tölvari hjá SKÝRR 1981-
1985, en samhliða því var hann
sendibílstjóri á Sendibílastöðinni
Þresti 1972-1985. Guðmundur vann
við ýmis störf næstu ár og hóf síð-
an eigin rekstur í ferðaþjónustu
2008 og starfar þar enn.
Guðmundur starfaði mikið að fé-
lagsmálum hjá Glímufélaginu Ár-
manni, körfuknattleiksdeild, sem
leikmaður, þjálfari og síðar for-
maður körfuknattleiksdeildarinnar
1975-81. Hann spilaði sjálfur sam-
fleytt í tuttugu og fimm ár með
keppnisliðum.
Árið 1982 skírðist Guðmundur til
Kirkju Jesú Krists hinna síðari
daga heilögu. Hann var kallaður
sem greinarforseti Reykjavíkur-
greinar 1983-1986, kallaður sem
umdæmisforseti kirkjunnar á Ís-
landi 1986-1993 og er nú starfandi
sem ritari í Selfossgrein kirkj-
unnar.
Guðmundur er vinmargur og
þykir óskaplega vænt um vini sína.
Hann er mikill fjölskyldumaður og
hefur mikið yndi af barnabörn-
unum. Hann leikur við þau og
gantast við hvert tækifæri sem
gefst. Hann nýtur útivistar og í
starfi sínu sem leiðsögumaður nýt-
ur hann þess að sýna ferðamönn-
um okkar stórkostlega land og
segja frá landi og þjóð.
Á árum áður fór hann á skot-
veiðar og í stangveiði með bræðr-
um sínum og bleytir enn í öngli
öðru hvoru. Ekki er laust við að
það sé einhver bíladella þar líka.
Fjölskylda
Eiginkona Guðmundar er Val-
Guðmundur Sigurðsson framkvæmdastjóri – 70 ára
Á sólskinsdegi Guðmundur ásamt tveimur dætrum sínum sem búa hér á landi, Rakel Mjöll og Regínu Ösp, tengda-
syninum Hauki Daða Guðmundssyni og barnabörnunum Snædísi Klöru og Hrafnhildi Lilly.
Nýtur þess að segja frá landi og þjóð
Afmælisbarnið Guðmundur.
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2020
Veislulist sér um veitingar fyrir fermingar af öllum
stærðum, hvort sem er í veislusal eða heimahús
Í yfir 40 ár hefur Veislulist lagt áherslu á góða þjónustu og framúrskarand matreiðslu.
FERMINGAVEIsluR
Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal.
Bættu við marsipan fermingartertu með 20% afsl.
3ja rétta sTEIKARhlaðborð
Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal.
Bættu við marsipan fermingartertu með 20% afsl.
PINNAMatur
Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal.
Bættu við kransaköku 30 manna á kr. 16.500
kaffihlaðborð
Ferming
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
SKÚTAN
50 ára Ásgerður er
Garðbæingur, er
íþróttakennari frá
Laugarvatni og sjúkra-
þjálfari frá Álaborg.
Hún rekur fyrirtækið
Vinnuheilsa og er með
vinnustaðaúttektir.
Maki: Jón Garðar Ögmundsson, f. 1963,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins Dagný &
Co.
Börn: Erlingur Gunnarsson, 1996, og
Gunnbjörn Gunnarsson, f. 1999. Börn
Jóns eru Gunnhildur, f. 1993, og Berg-
lind, f. 1997.
Foreldrar: Guðmundur Óskarsson, f.
1932, d. 2017, byggingarverkfræðingur,
og Svava Gísladóttir, f. 1936, félagsliði,
búsett í Garðabæ.
Ásgerður
Guðmundsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Eitt bros getur dimmu í dagsljós
breytt. Farðu á uppáhaldsslóðir þínar og
finndu þann frið og þá ró sem endurnýjar
þig.
20. apríl - 20. maí
Naut Yfirmaður þinn verður að öllum lík-
indum ánægður með störf þín í dag.
Einnig máttu vænta að einhver gefi þér
undir fótinn.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú kannt að meta þrautseigju en
áttar þig samt á því hvenær þú ert að
berja höfðinu við steininn. Sú vitneskja
hefur áhrif á einkalífið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þér lætur vel að leiða aðra í starfi.
Hlustaðu og hvettu aðra til að gera það
sem best er í hverju máli. Kvöldið verður
skemmtilegt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú munt rekast á einhver ummæli
um þig, sem hafa mikil áhrif á þig. Gefðu
þig alla/n í ástarsambandið sem þú hefur
nýlega stofnað til.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Löngun þín í frelsi frá hversdags-
legu amstri er sterk í dag. Gættu þess að
bregðast ekki yngsta fólkinu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Gættu þess að láta fólk ekki hafa of
mikil áhrif á þig. Hafðu hugfast að það ert
þú sem byggir veggina í kringum þig, ekki
aðrir.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Dragðu ekki að ljúka við verk-
efni, sem þú hefur tekið að þér. Láttu þau
samt ekki skemma fyrir þér daginn. Ást-
vinur biður um hjálp.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Hikaðu ekki við að bjóða fram
aðstoð þína. Bjartsýni þín fleytir þér langt
í lífinu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þegar málin eru skoðuð ofan í
kjölinn muntu sjá að eitthvað reynist ekki
eins eftirsóknarvert og þér fannst í upp-
hafi. Hlustaðu á það sem sagt er við þig,
það gæti komið þér að góðum notum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Eins og það er gott, þegar
menn hjálpast að, getur það stundum orð-
ið til trafala, þegar of margir koma að
verki. Börnin eru eitthvað öfugsnúin í dag.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Hlutirnir eru stöðugt að breytast
og því er endurmat skynsamlegt. Þú færð
skemmtilegt símtal sem snertir þig mikið.
40 ára Magnús er
Hafnfirðingur en býr í
Njarðvík. Hann er vél-
virki að mennt frá Iðn-
skólanum í Hafnarfirði
og útskrifaðist frá
Véla- og skipaþjónust-
unni Framtak. Hann er
rörasuðumaður hjá Hagsuðu. Magnús
keppir í sandspyrnu og kvartmílu.
Maki: Sara Björk Bess Kristjánsdóttir, f.
1981, flugfreyja hjá Icelandair.
Börn: Hilmar Þór, f. 2000, Hanna Fjóla, f.
2002 og Helga Lilja, f. 2006.
Foreldrar: Finnbjörn Kristjánsson, f.
1955, vélvirki og eigandi Hagsuðu, og
Oddný Fjóla Lárusdóttir, f. 1955, sjúkra-
liði á Landspítalanum í Fossvogi. Þau eru
búsett í Hafnarfirði.
Magnús Aðalvíkingur
Finnbjörnsson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is