Morgunblaðið - 10.02.2020, Side 26
Í KÓRNUM
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Íslands- og bikarmeistararnir í Val
reyna hvað þær geta til að halda í við
Fram í toppbaráttu Olísdeildar
kvenna í handknattleik. Valur náði í
tvö góð stig á laugardaginn með sigri
á HK í Kópavoginum 25:23 og er
þremur stigum á eftir Fram í 2. sæti
deildarinnar. HK er eftir sem áður í
4. sæti.
Landsliðskonan Lovísa Thompson
sýndi allar sínar bestu hliðar hjá Val
og skoraði 14 mörk eða meira en
helming marka Valsliðsins. Hún
gerði gæfumuninn en í síðari hálfleik
var Valur ávallt með forskot þótt lið-
inu tækist aldrei að hrista HK al-
mennilega af sér. Lovísa sá nánast
um sóknarleikinn hjá Val en hann
hafði verið mjög stirður til að byrja
með gegn 5-1-vörn HK.
Lið HK er mjög áhugavert. Margir
ungir leikmenn sem hafa staðið sig
vel í vetur. Jóhanna Margrét Sig-
urðardóttir sleit krossband í bikar-
leiknum gegn Fram í vikunni en hún
hefur sýnt í deildinni í vetur að hún
er ein efnilegasta handknattleiks-
kona landslins. Sjúkralistinn hjá HK
er því nokkuð langur en Berglind
Þorsteinsdóttir glímir við sömu
meiðsli og hjá HK vantar einnig Haf-
dísi Iura auk þess sem Elva Arin-
bjarnar flutti utan um áramót.
Í því ljósi er spurning hvort HK
takist að halda dampi en miðað við
leikinn á laugardaginn er sá mögu-
leiki fyrir hendi. Mjög snjallt var hjá
félaginu að fá Kristínu Guðmunds-
dóttur til að styðja við þessa ungu
leikmenn en hún slær ekki af þrátt
fyrir háan aldur í íþróttaárum. Með
henni kemur meiri yfirvegun í leik
liðsins, sem oft vantar þegar margir
ungir leikmenn eru. HK náði ekki að
opna hornin í leiknum, sem er blóð-
ugt þegar landsliðskona er í vinstra
horninu.
KA/Þór fékk skell fyrir norðan
Topplið Fram fór illa með KA/Þór
í KA-heimilinu á Akureyri á laug-
ardaginn, 43:24. Framarar byrjuðu
leikinn af miklum krafti og skoruðu
fimm fyrstu mörkin. Fyrsta mark
KA/Þórs kom eftir tíu mínútna leik
þegar Ásdís Guðmundsdóttir kom
Akureyringum á blað.
Framarar léku á als oddi í sóknar-
leiknum en KA/Þór gekk illa að
skora og Framarar fögnuðu nítján
marka sigri í leikslok.
Perla Ruth Albertsdóttir var
markahæst í liði Fram með tíu mörk
og Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði
níu. Ásdís Guðmundsdóttir var
markahæst í liði KA/Þórs með átta
mörk. Fram er áfram í efsta sæti
deildarinnar með 28 stig og hefur nú
þriggja stiga forskot á Valskonur en
KA/Þór er í sjöunda sæti deildar-
innar með 12 stig.
Stjarnan styrkti stöðu sína í þriðja
sæti deildarinnar með 31:22-sigri
gegn Haukum á Ásvöllum í gær.
Mikið jafnræði var með liðunum all-
an fyrri hálfleikinn og var staðan
13:11, Stjörnunni í vil, í hálfleik.
Þegar tuttugu mínútur voru til leiks-
loka leiddi Stjarnan með einu marki,
17:16, en þá fór allt í baklás hjá
Haukum og Stjarnan sigldi fram úr.
Sólveig Lára Kjærnested var
markahæst Garðbæinga með tíu
mörk en Guðrún Erla Bjarnadóttir
atkvæðamest hjá Haukum með sex
mörk.
Stjarnan er með 17 stig í þriðja
sæti deildarinnar en Haukar eru í
sjötta sætinu með 12 stig.
Þá vann ÍBV 29:21-sigur gegn
Aftureldingu á Varmá í Mosfellsbæ
á laugardaginn. Ásta Björt Júlís-
dóttur skoraði tíu mörk fyrir ÍBV
sem er í fimmta sæti deildarinnar
með 12 stig en Kristín Arndís Ólafs-
dóttir var atkvæðamest fyrir botnlið
Aftureldingar með sjö mörk.
Skoraði 14 af 25
mörkum Vals
Stjarnan styrkti stöðu sína í 3. sætinu
Morgunblaðið/Eggert
Óstöðvandi Lovísa Thompson var illviðráðanleg í Kórnum um helgina.
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2020
England
Everton – Crystal Palace........................ 3:1
Gylfi Þór Sigurðsson lék fyrstu 85 mín-
úturnar með Everton.
Brighton – Watford.................................. 1:1
Sheffield Utd – Bournemouth................. 2:1
Manchester City – West Ham........ Frestað
Staða efstu liða:
Liverpool 25 24 1 0 60:15 73
Manch.City 25 16 3 6 65:29 51
Leicester 25 15 4 6 54:26 49
Chelsea 25 12 5 8 43:34 41
Sheffield Utd 26 10 9 7 28:24 39
Tottenham 25 10 7 8 40:32 37
Everton 26 10 6 10 34:38 36
Manch.Utd 25 9 8 8 36:29 35
Wolves 25 8 11 6 35:32 35
Arsenal 25 6 13 6 32:34 31
Grikkland
Lamia – Larissa ....................................... 0:0
Ögmundur Kristinsson varði mark Lar-
issa í leiknum.
PAOK – OFI Krít ..................................... 4:0
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn
með PAOK.
Ítalía
Brescia – Udinese .................................... 1:1
Birkir Bjarnason kom inn á sem vara-
maður hjá Brescia á 69. mínútu.
Þýskaland
Schalke – Paderborn............................... 1:1
Samúel Kári Friðjónsson sat allan tím-
ann á varamannabekk Paderborn.
Olísdeild karla
KA – Selfoss.......................................... 26:31
HK – Stjarnan ...................................... 22:27
Afturelding – ÍBV ................................ 26:32
Fjölnir – FH.......................................... 21:26
Haukar – Valur..................................... 26:32
Staðan:
Haukar 17 11 3 3 462:439 25
Valur 17 11 2 4 468:413 24
Afturelding 17 10 3 4 469:451 23
FH 17 10 2 5 496:465 22
ÍR 16 10 2 4 494:439 22
Selfoss 17 10 1 6 525:518 21
ÍBV 17 9 2 6 484:456 20
Stjarnan 17 5 5 7 448:460 15
KA 17 5 1 11 457:497 11
Fram 16 4 2 10 378:409 10
Fjölnir 17 2 1 14 436:502 5
HK 17 2 0 15 428:496 4
Olísdeild kvenna
KA/Þór – Fram..................................... 24:43
ÍBV – Afturelding ................................ 29:21
HK – Valur............................................ 23:25
Haukar – Stjarnan ............................... 22:31
Staðan:
Fram 15 14 0 1 480:320 28
Valur 15 12 1 2 412:308 25
Stjarnan 15 7 3 5 380:362 17
HK 15 6 2 7 403:414 14
Haukar 15 5 2 8 327:373 12
KA/Þór 15 6 0 9 351:420 12
ÍBV 15 5 2 8 334:353 12
Afturelding 15 0 0 15 281:418 0
EHF-bikar karla
Magdeburg - Gorenje Velenje ........... 32:26
Gísli Þorgeir Kristjánsson lék ekki með
Magdeburg vegna meiðsla.
Bjerringbro/Silkeborg - Benfica ...... 24:33
Þráinn Orri Jónsson komst ekki á blað
hjá Bjerringbro/Silkeborg.
RN Löwen - Nimes ...............................32:31
Alexander Petersson skoraði sjö mörk
fyrir Löwen en Ýmir Örn Gíslason var ekki
í hóp. Kristján Andrésson þjálfar liðið.
Dominos-deild kvenna
Skallagrímur – Breiðablik ................... 75:73
Grindavík – Keflavík ............................ 63:57
Haukar – Valur..................................... 69:75
Snæfell – KR......................................... 56:82
Staðan:
Valur 20 18 2 1671:1330 36
KR 20 15 5 1517:1284 30
Haukar 20 13 7 1451:1367 26
Skallagrímur 20 12 8 1373:1337 24
Keflavík 20 12 8 1459:1411 24
Snæfell 20 6 14 1320:1541 12
Grindavík 20 2 18 1280:1486 4
Breiðablik 20 2 18 1259:1574 4
Spánn
Manresa – Zaragoza ........................... 85:67
Tryggvi Snær Hlinason tók eitt frákast
fyrir Zaragoza á þeim þrettán mínútum
sem hann lék.
Þýskaland
Alba Berlín – Göttingen ..................... 96:71
Martin Hermannsson var ekki í leik-
mannahópi Alba Berlín.
Rússland
UNICS Kazan – Tsmoki Minsk .......... 88:98
Haukur Helgi Pálsson skoraði þrjú stig
og gaf eina stoðsendingu fyrir UNICS Kaz-
an á þeim 22 mínútum sem hann lék.
Fjögur Íslendingalið raða sér í
efstu fjögur sæti í A-riðils
Meistaradeildar Evrópu í hand-
knattleik en Aron Pálmarsson og
liðsfélagar hans í Barcelona eru í
efsta sæti riðilsins með 20 stig eft-
ir fjögurra marka sigur gegn El-
verum í Noregi í gær.
Elverum náði mest þriggja
marka forskoti í fyrri hálfleik en
Barcelona tókst að jafna metin
undir lok fyrri hálfleiks og
spænska liðið leiddi með tveimur
mörkum í hálfleik, 16:14. Barce-
lona hélt forystunni allt til loka,
þrátt fyrir að Elverum hafi tekist
eftir það. PSG er í þriðja sæti rið-
ilsins með 18 stig, eins og Stefán
Rafn Sigurmannsson og liðsfélagar
hans í Pick Szeged sem gerðu jafn-
tefli við Aalborg í Ungverjalandi á
laugardaginn.
Aalborg leiddi með tveimur
mörkum í hálfleik en Janus Daði
Smárason var næstmarkahæstur í
liði Aalborg með sex mörk. Ómar
Ingi Magnússon skoraði tvö mörk
fyrir Aalborg og þá skoraði Stefán
Rafn þrjú mörk fyrir Pick Szeged
sem er í öðru sæti riðilsins en Aal-
borg er í fjórða sætinu með 11
stig.
að minnka muninn í eitt mark þeg-
ar tíu mínútur voru til leiksloka.
Aron Pálmarsson skoraði þrjú
mörk fyrir Barcelona og Sigvaldi
Björn Guðjónsson tvö fyrir Elver-
um, sem er í sjöunda sæti riðilsins,
því næstneðsta, með þrjú stig.
Þá skoraði Guðjón Valur Sig-
urðsson þrjú mörk úr þremur skot-
um fyrir PSG þegar frönsku
meistararnir unnu 33:29-sigur
gegn Celje í Slóveníu í gær. PSG
leiddi með fjórum mörkum í hálf-
leik, 17:13, en náði forystunni í
leiknum um miðjan fyrri hálfleik-
inn og lét forskotið aldrei af hendi
Íslendingaliðin heyja harða baráttu
Barcelona
Sigur Aron Pálmarsson er lykil-
maður í liði Barcelona.
Nýliðar Sheffield United unnu sinn
tíunda leik í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu í gær þegar liðið fékk
Bournemouth í heimsókn á Bramall
Lane í Sheffield. Það var John
Lundstram sem tryggði Sheffield
United 2:1-sigur með sigurmarki á
84. mínútu. Sheffield United er nú
með 39 stig í fimmta sæti deildar-
innar og er aðeins tveimur stigum á
eftir Chelsea sem er í fjórða sætinu
með 41 stig. Chelsea á leik til góða
á Sheffield United en fjögur efstu
lið úrvalsdeildarinnar tryggja sér
þátttökurétt í Meistaradeild Evr-
ópu á næstu leiktíð.
Liðið sem hafnar í fimmta sæti
tekur þátt í Evrópukeppninni á
næstu leiktíð en Gylfi Þór Sigurðs-
son og liðsfélagar hans í Everton
nálgast fimmta sætið óðfluga eftir
3:1-sigur gegn Crystal Palace á
Goodison Park í Liverpool á
laugardaginn. Gylfi Þór var í
byrjunarliði Everton og lék fyrstu
85 mínútur leiksins en Everton er
með 36 stig í sjöunda sæti deild-
arinnar.
AFP
Sigurmark John Lundstram fagnar marki sínu ásamt liðsfélögum sínum.
Nýliðarnir nálgast
Meistaradeildina
Hlauparinn Hlynur Andrésson var
grátlega nálægt því að vinna til
gullverðlauna í 3.000 metra hlaupi
karla á Norðurlandamótinu innan-
húss í frjálsum íþróttum sem fram
fór í Helsinki í Finnlandi um
helgina. Ísland tefldi fram sam-
eiginlegu liði með Danmörku gegn
liðum frá Finnlandi, Svíþjóð og
Noregi en Hlynur kom í mark á
tímanum 8:01,20. Íslendingurinn
var aðeins þrettán hundraðshlutum
úr sekúndu á eftir Simon Sundtröm
frá Svíþjóð sem kom fyrstur í mark
á 8:01,07.
Hástökkvarinn Kristján Viggó
Sigfinnsson varð annar í hástökki
karla er hann stökk hæst 2,11
metra og bætti eigið met innanhúss
sem var 2,10.
Kúluvarparinn Guðni Valur
Guðnason kastaði lengst 18,31
metra og varð þriðji, á eftir þeim
Marcus Thomsem og Jesper Ar-
binge frá Svíþjóð.
Ásdís Hjálmsdóttir varð fimmta í
kúluvarpi kvenna, kastaði lengst
15,59 metra, og Eva María Baldurs-
dóttir varð sjöunda í hástökki
kvenna en hún stökk hæst 1,72
metra.
Þórdís Eva Steinsdóttir varð sjö-
unda í 400 metra hlaupi kvenna á
55,89 sekúndum og Kormákur Ari
Hafliðason varð einnig sjöundi í 400
metra hlaupi karla á 48,77 sek-
úndum. Þá varð Ari Bragi Kárason
sjötti í 200 metra hlaupi karla á
22,04 sekúndum. sport@mbl.is
Grátlega nálægt
gullinu í Helsinki
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tæpt Hlynur Andrésson var nokkr-
um sekúndubrotum frá gullinu.