Morgunblaðið - 10.02.2020, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2020
Alexander Petersson átti stórleik
fyrir Rhein-Neckar Löwen þegar liðið
vann eins marks sigur gegn Nimes í
EHF-bikarnum í handknattleik í
Mannheim í gær. Alexander var næst-
markahæstur í liði Löwen með sjö
mörk en leiknum lauk með 32:31-sigri
Ljónanna eftir að jafnt hafði verið í
hálfleik, 16:16. Andre Schmid var
markahæstur í liði Löwen með átta
mörk en Ýmir Örn Gíslason, sem
skrifaði undir samning við Rhein-
Neckar Löwen í síðustu viku, var ekki
í leikmannahópi liðsins í gær. Krist-
ján Andrésson er þjálfari liðsins en
þetta var fyrsti leikur Löwen í riðla-
keppni EHF-bikarsins. Löwen er með
Nimes, Cuenca og Holstebro í riðli.
Knattspyrnukonan Cloé Lacasse
heldur áfram að gera það gott í
portúgölsku 1. deildinni en hún skor-
aði tvívegis fyrir lið sitt SL Benfica í
5:0-heimasigri gegn Estoril Praia í
gær. Cloé hefur nú skorað 21 mark í
fjórtán deildarleikjum á tímabilinu en
SL Benfica er í efsta sæti deildar-
innar með 42 stig og hefur þriggja
stiga forskot á Sporting sem er í
öðru sætinu með 39 stig. Cloé fékk
íslenskan ríkisborgararétt á síðasta
ári og er því gjaldgeng með íslenska
landsliðinu.
Grímur Hergeirsson lætur af
störfum sem þjálfari Íslandsmeistara
Selfoss í handknattleik eftir þetta
tímabil en þetta staðfesti hann í
samtali við Vísi.is á laugardaginn.
Grímur tók við Selfossliðinu af Pat-
reki Jóhannessyni síðasta sumar en
hann var áður aðstoðarþjálfari Pat-
reks.
Andrea Jacobsen, landsliðskona í
handknattleik og leikmaður sænska
B-deildarfélagsins Kristianstad, er
með slitið krossband en þetta stað-
festi hún í samtali við mbl.is í gær.
Andrea meiddist í leik gegn Eskil-
stuna í lok janúar og reiknar með því
að vera frá keppni í að minnsta kosti
ár. Viðtal við Andreu er hægt að nálg-
ast inn á mbl.is/handbolti.
Liverpool ætlar að leggja fram til-
boð í Timo Werner, framherja þýska
knattspyrnufélagsins RB Leipzig,
næsta sumar en það er The Athletic
sem greindi fyrst frá þessu. Werner,
sem er 23 ára gamall, hefur átt frá-
bært tímabil í Þýskalandi þar sem
hann hefur skorað 20 mörk í tuttugu
deildarleikjum og þá
hefur hann skorað 25
mörk í öllum keppn-
um á tímabilinu.
Werner kostar 60
milljónir evra en
The Athletic
greinir einnig frá
því að Jürgen
Klopp, knatt-
spyrnustjóri
Liverpool, vilji
bæta við vinstri
bakverði næsta
sumar til þess að
berjast við Andy Ro-
bertson um stöðuna.
Eitt
ogannað
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Austurberg: ÍR – Fram ....................... 19.30
KNATTSPYRNA
Faxaflóamót kvenna:
Ásvellir: Haukar – Breiðablik ............. 19.30
Í KVÖLD!
HANDBOLTI
Jóhann Ingi Hafþórsson
Kristófer Kristjánsson
Bjarni Helgason
Valsmenn unnu sannfærandi 32:26-
sigur á toppliði Hauka í 17. umferð
Olísdeildar karla í handbolta í gær-
kvöld. Valur náði mest ellefu marka
forskoti í seinni hálfleik og gat leyft
sér að slaka á síðasta korterið án
þess að Haukar ógnuðu forskotinu.
Síðasta tap Vals í deildinni kom 12.
október á síðasta ári, einmitt gegn
Haukum. Þá höfðu Valsmenn leikið
fimm leiki í röð án þess að vinna og
tapað fjórum sinnum. Snorri Steinn
Guðjónsson, þjálfari Vals, á mikið
hrós skilið fyrir að rífa sína menn
upp og finna lausnir á því sem betur
mátti fara. Nú munar aðeins einu
stigi á Val og Haukum, eftir tíu sigra
í síðustu ellefu leikjum.
Ýmir Örn Gíslason er farinn til
Þýskalands en Valsmenn söknuðu
hans ekki neitt. Þorgils Jón Svölu
Baldursson spilaði virkilega vel í
hans stað og Róbert Aron Hostert
lék betur í vörninni en oft áður.
Menn þjappa sér betur saman þegar
lykilmaður hverfur á braut. Hreiðar
Levý Guðmundsson lék allan leikinn
í markinu og lék glæsilega vel, enda
með lúxusvarnarleik fyrir framan
sig. Í sókninni hjá Val fór Anton
Rúnarsson á kostum og gerðu stór-
skytturnar Magnús Óli Magnússon,
Agnar Smári Jónsson og Róbert Ar-
on sitt. Allir spiluðu vel í sannfær-
andi sigri á útivelli toppliðsins.
Haukar eru búnir að tapa þremur
af síðustu fjórum deildarleikjum.
Þeir áttu enga möguleika í Vals-
menn í gær og geta þeir þakkað
frændfélaginu fyrir að slaka á undir
lokin, annars hefði sigurinn orðið
miklu stærri.
Adam Haukur Baumruk spilaði
ágætlega síðasta korterið, en annars
var lítið jákvætt hjá Haukamönnum.
Leikmenn eins og Tjörvi Þorgeirs-
son, Atli Már Báruson og Heimir Óli
Heimisson verða að spila miklu
betur. Haukar mæta sjóðheitu liði
ÍBV á útivelli í næsta leik og svo
Aftureldingu, sem hefur verið í topp-
baráttu í allan vetur. Þar verða
Haukar að spila miklu betur, ætli
þeir sér að halda í toppsætið.
johanningi@mbl.is
Eyjamenn að komast á skrið
ÍBV er að komast á skrið á Ís-
landsmótinu, en liðið vann sterkan
32:26-sigur á Aftureldingu í íþrótta-
miðstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ í
gær. Eyjamenn unnu sannfærandi
sigur á Íslandsmeisturum Selfoss í
síðustu umferð og voru verðskuld-
aðir sigurvegar í gær, gegn liðinu
sem hefur verið í öðru sæti nærri all-
an vetur.
Það leit hreinlega út fyrir að
Eyjamenn myndu stinga af snemma
leiks í gær, svo góðir voru þeir í
byrjun, eða svo slakir voru heima-
menn, sem tóku fljótt tvö leikhlé til
að rétta kútinn. Gestirnir voru mest
sex mörkum yfir í fyrri hálfleik en
Afturelding kom þá með áhlaup.
Spilaði þar inn í rauða spjaldið sem
Fannar Þór Friðgeirsson fékk en við
það riðlaðist leikur ÍBV aðeins.
Mikið var um stimpingar í leiknum,
nokkuð um brottvísanir og mörg
vítaköst.
Aftureldingu tókst að jafna metin
snemma í síðari hálfleik á góðum
kafla. Guðmundur Árni Ólafsson var
markahæstur heimamanna með átta
mörk, fimm úr vítum, og Birkir
Benediktsson skoraði sjö. Að lokum
hrukku Eyjamenn hins vegar aftur í
gang, Hákon Daði Styrmisson skor-
aði 11 mörk, fimm úr vítum, og Dag-
ur Arnarsson skoraði níu, þar af sjö í
síðari hálfleik. Eyjamenn virðast
verða betri og betri eftir slitrótta
byrjun á mótinu og gætu því verið að
toppa á réttum tíma. Lið Aftureld-
ingar hefur verið sterkt í allan vetur
og takist Mosfellingum að tryggja að
leikurinn í gær hafi verið óheppilegt
frávik ættu þeir að geta fundið sitt
besta form á ný. kristoferk@mbl.is
Átján ára fór á kostum
FH er komið í fjórða sæti deildar-
innar eftir öruggan fimm marka sig-
ur gegn Fjölni í Dalhúsum í Grafar-
vogi í gær. Leiknum lauk með
26:21-sigri Hafnfirðinga sem náðu
mest tólf marka forskoti í síðari hálf-
leik.
FH er nú í fjórða sæti deildar-
innar með 22 stig, eins og ÍR sem á
leik til góða á FH, en Fjölnismenn
eru í ellefta sætinu með 5 stig, einu
stigi meira en botnlið HK.
Haukur Þrastarson og hinn 18
ára gamli Alexander Hrafnkelsson
áttu báðir stórleik fyrir Íslands-
meistara Selfoss gegn KA á Akur-
eyri á laugardaginn. Haukur skoraði
ellefu mörk og Alexander varði 20
skot í markinu í 31:26-sigri Selfyss-
inga sem eru í sjötta sæti deild-
arinnar með 21 stig. KA er í níunda
sætinu með 11 stig.
Þá styrkti Stjarnan stöðu sína í
áttunda sæti deildarinnar með
27:22-sigri gegn HK í Kórnum.
Stjarnan er nú fjórum stigum á
undan KA í baráttunni um sæti í úr-
slitakeppninni. HK er á botninum
með fjögur stig, sex stigum frá
öruggu sæti. bjarnih@mbl.is
Skýr skilaboð Valsmanna
Hart tekist á þegar ÍBV lagði Aftureldingu að velli í Mosfellsbæ Þriðji sigur
FH-inga í röð kom gegn Fjölni Stjarnan styrkti stöðu sína í áttunda sætinu
Morgunblaðið/Eggert
Sterkur Róbert Aron Hostert lék vel í sigri á toppliðinu í gærkvöldi.
Aldís Kara Bergsdóttir varð um
helgina fyrst íslenskra einstakl-
ingsskautara til að tryggja sér
tæknistig Alþjóðaskautasambands-
ins.
Aldís Kara náði tæknistigum í
stutta prógramminu á Halloween
Cup í Ungverjalandi í október á síð-
asti ári, á Reykjavíkurleikunum
fyrir rétt tveimur vikum og á
Norðurlandamótinu í Noregi um
helgina. Stigin veita henni keppnis-
leyfi á heimsmeistaramóti unglinga
sem fram fer í Tallinn í Eistlandi
2.-8. mars næstkomandi.
Braut blað í
skautasögunni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Brautryðjandi Aldís Kara Bergs-
dóttir er aðeins 16 ára gömul.
Frjálsíþróttakonan María Rún
Gunnlaugsdóttir, FH, varði um
helgina Íslandsmeistaratitil sinn í
fimmtarþraut kvenna í Laugardals-
höll. María Rún fékk 3.965 stig og
var ekki langt frá sínum besta ár-
angri í fimmtarþraut sem hún náði í
fyrra þegar hún fékk 4.094 stig.
Þá fagnaði Ísak Óli Traustason,
UMSS, sigri í sjöþraut karla en Ísak
fékk 5.336 stig og var átta stigum
frá sínum besta árangri sem hann
náði í fyrra. Ísak var með mikla
yfirburði og sigraði í öllum sjö
þrautum greinarinnar.
Meistaravörn
hjá Maríu og Ísaki
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Best María Rún Gunnlaugsdóttir er
fremsta fjölþrautarkona landsins.
Skallagrímur er kominn í fjórða
sæti úrvalsdeildarkvenna í körfu-
knattleik, Dominos-deildarinnar,
eftir nauman tveggja stiga sigur
gegn Breiðabliki í Borgarnesi á
laugardaginn. Leiknum lauk með
75:73 sigri Skallagríms en Breiða-
blik leiddi með einu stigi í hálfleik,
37:36. Blikar mættu sterkari til
leiks í þriðja leikhluta og leiddu
með átta stigum fyrir fjórða leik-
hluta. Skallagrímur var hins vegar
sterkari aðilinn í undir restina og
innbyrti afar mikilvægan sigur.
Keira Robinson skoraði 32 stig
fyrir Skallagrím, tók níu fráköst og
gaf sex stoðsendingar en Skalla-
grímur er nú með 24 stig í fjórða
sæti deildarinnar, jafn mörg og
Keflavík, en Skallagrímur hefur
unnið Keflavík tvívegis á tímabilinu
og stendur því betur að vígi þegar
kemur að innbyrðisviðureignum
liðanna. Breiðablik er í neðsta sæt-
inu með 4 stig.
Grindavík vann óvæntan sigur
gegn nágrönnum sínum í Keflavík í
Mustad-höllinni í Grindavík, 63:57.
Grindavík leiddi með þremur stig-
um í hálfleik, 34:31, en Keflavík
kom til baka í seinni hálfleik og
leiddi með þremur stigum fyrir
fjórða leikhluta, 49:46. Grindvík-
ingar skoruðu hins vegar sautján
stig gegn átta stigum Keflvíkinga í
fjórða leikhluta og þar við sat.
Jordan Reynolds var stigahæst
Grindvíkinga með 24 stig og níu
fráköst. Liðið fer með sigrinum upp
í sjöunda sæti deildarinnar og upp
fyrir Breiðablik, en bæði lið eru
með 4 stig. Þetta var þriðja tap
Keflavíkur í röð, en liðið fer úr
fjórða sætinu niður í það fimmta og
gæti nú misst af sæti í úrslitakeppn-
inni.
Í Hafnarfirði vann topplið Vals
sex stiga sigur gegn Haukum,
75:69, þar sem Íslandsmeistararnir
voru með frumkvæðið allan tímann.
Þá styrkti KR stöðu sína í öðru sæti
deildarinnar með 82:56-stórsigri
gegn Snæfelli í Stykkishólmi.
bjarnih@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lykill Keira Robinson hefur skorað
25 stig að meðaltali í leik í vetur.
Skallarnir hirtu fjórða sætið