Morgunblaðið - 11.02.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2020
LC02 hægindastóll
Leður
Verð 285.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Lýðræðishallinn í Evrópusam-bandinu tekur á sig ýmsar
myndir. Styrmir Gunnarsson fjallar
um skort á tengingu sambandsins
við almenning í ríkjum þess og segir:
„Það eru ekki bara
þeir sem standa utan
við ESB, sem sjá, að
Brussel hefur misst
tengslin við hinn al-
menna borgara í
Evrópu.
Á vegum ESB erstarfandi
ráðgjafahópur (e.
Committee of The
Regions) sem er skip-
aður kjörnum fulltrú-
um frá einstökum
svæðum og byggðum
aðildarríkjanna.
Forseti þessa ráðgjafahóps, Karl-Heinz Lambertz, segir að Evr-
ópusambandið verði að hlusta betur
á þá kjörnu fulltrúa til þess að kom-
ast í betra samband við almenna
borgara í aðildarríkjunum.
Hann segir að því er fram kemurá euobserver.eu að það sé eina
leiðin til þess að ESB komist í betra
jarðsamband.“
Einn vandi Evrópusambandsinser auðvitað hve fjarlægir
stjórnendur þess eru almenningi. En
það að þeir setji á fót nefndir til að
reyna að lappa upp á þetta er ekki
líklegt til árangurs, enda enginn
raunverulegur vilji fyrir hendi til að
láta afstöðu fólks á einstökum stöð-
um eða svæðum skipta máli.
Stefnan er þvert á móti sú aðberja allt í sama mót og til að
svo megi verða þykir öllu til fórn-
andi. Það er ekki síst þess vegna sem
Bretar hafa kvatt og skýrir um leið
ótta ESB-elítunnar við að aðrir fari
sömu leið.
Styrmir
Gunnarsson
Þykjustuleikur ESB
STAKSTEINAR
Karl-Heinz
Lambertz
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„Vonandi erum við að nálgast tillögu
sem allir sjá kostina við,“ segir Sonja
Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Nokkur árangur virðist hafa náðst
eftir löng og stíf fundahöld í viðræð-
unum sem fram fara í starfshópi um
útfærslur á styttingu vinnuvikunnar
fyrir vaktavinnufólk.
Um er að ræða eitt af stórum mál-
um BSRB sem ekki hefur tekist að
leiða til lykta í
kjaraviðræðun-
um, sem nú hafa
staðið yfir í hátt í
ellefu mánuði.
Reynt er að ná
samkomulagi um
fyrirkomulag
vaktavinnu og
starfskjör vakta-
vinnufólks í
starfshópnum með fulltrúum BSRB,
BHM, Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga og Starfsgreinasambands-
ins og viðsemjendum hjá ríki, borg
og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
„Það hefur verið fundað mjög stíft
undanfarnar vikur og helgarnar líka
lagðar undir,“ segir hún og bætir við
að í grunninn séu menn alltaf að
vinna með sömu tillöguna og fín-
pússa hana betur og betur út frá
miklum fjölbreytileika þeirra hópa
sem falla þar undir og reyna að finna
gullna meðalveginnn sem hentar öll-
um. ,,Við gengum þannig frá fundi í
gær [sunnudag] að allir færu í sitt
bakland með þá lausu enda sem eftir
eru en eru þó orðnir færri en áður og
heyri hljóðið í baklandinu.
Við hittumst svo aftur á þriðjudag-
inn [í dag].“
Fjöldi annarra stórra mála bíður
úrlausnar í kjaraviðræðunum, s.s.
jöfnun launa á milli markaða,
launaþróunartryggingin og umræða
um ávinnslu orlofs. Launaliðurinn er
síðan á borði aðildarfélaganna hvers
um sig og viðsemjenda þeirra.
Kynna lausa enda í baklandinu
Sonja Ýr
Þorbergsdóttir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Bæjarráð Akureyrar hefur sent
sjávarútvegsráðuneytinu beiðni um
breytingu á skilyrðum um byggða-
kvóta hvað varðar vinnsluskyldu.
Erfitt atvinnuástand í Grímsey er
að baki umsókninni.
Á síðasta ári fóru rúmlega 1.100
þorskígildistonn af kvóta frá
Grímsey til Fjallabyggðar með sölu
á öllu hlutafé í útgerðarfélaginu
Sigurbirni ehf. til Ramma hf., eða
nær helmingur aflaheimilda sem
útgerðir í Grímsey réðu yfir. Níu
ársverk voru hjá Sigurbirni til
lands og sjávar.
Brothætt byggð
Rök fyrir beiðni bæjarráðs Akur-
eyrar eru eftirfarandi: „Grímsey
hefur verið skilgreind sem brot-
hætt byggð og er hluti af sam-
nefndu verkefni á vegum Byggða-
stofnunar en ekki liggur fyrir hvort
og hvernig framhaldið á því verk-
efni verður. Einnig stendur yfir
endurskoðun ríkisins á allri nýtingu
byggðakvóta og hefur starfshóp-
urinn ekki skilað af sér niður-
stöðum.
Atvinnulífið í Grímsey er gríðar-
lega viðkvæmt þar sem hvert starf
skiptir máli og það má ekkert út af
bregða. Ríkið verður, ásamt sveit-
arfélaginu, að gera það sem í þess
valdi stendur til styðja við atvinnu-
lífið hvort sem um er að ræða veið-
ar eða vinnslu. Mestu máli skiptir
að íbúar í Grímsey hafi atvinnu.“
aij@mbl.is
Vilja breyta reglum
vegna Grímseyjar
Mestu skiptir að
íbúar hafi atvinnu
Morgunblaðið/Golli
Grímsey Blikur eru á lofti í atvinnu-
málum eftir sölu á aflaheimildum.