Morgunblaðið - 11.02.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.02.2020, Blaðsíða 32
Tónlistarhópurinn Umbra ensemble kemur fram í Salnum í Kópavogi í kvöld kl. 19.30 og eru tónleikarnir hluti af röðinni Tíbrá. Umbra mun flytja efnisskrá með fornri tónlist og nýrri, þjóðlög sem tilheyra eyj- um og að auki frumflytja nýtt verk eftir Arngerði Maríu Árnadóttur. Fyrir tónleikana verður sófaspjall við flytjendur í umsjón Arndísar Bjarkar Ásgeirsdóttur í fordyri Sal- arins. Húsið verður opnað kl. 18 og sófaspjallið hefst kl. 18.30. Eylönd með Umbru ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 42. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. „Mig langar að fara í atvinnu- mennsku og horfi út en það er ekk- ert í vinnslu núna. Samningur minn við Val rennur út í vor og því er aldr- ei að vita hvað gerist. Ég er opin fyrir öllu,“ segir Lovísa Thompson meðal annars þegar hún er spurð hvort ekki sé tímabært hjá henni að reyna fyrir sér í atvinnumennsk- unni. »27 Aldrei að vita hvað gerist eftir tímabilið ÍÞRÓTTIR MENNING Þó að Lovísa Thompson sé aðeins tvítug er hún að leika sjöunda tímabil sitt í úrvalsdeild kvenna í handbolta, hefur unnið titla með tveimur liðum og skorað hátt í 700 mörk í deildinni. „Kannski þarf maður að komast í um- hverfi þar sem hafa þarf enn meira fyrir hlutunum. Ég stefni að því ef gott tæki- færi býðst,“ segir Lovísa þegar hún er spurð hvort hún sé á leið í atvinnu- mennsku erlend- is að þessu tíma- bili loknu. »27 Stefnir utan ef gott tækifæri býðst Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Árlegt þorrablót Íslendingafélagsins í Arizona í Bandaríkjunum fór fram í Phoenix á dögunum og að þessu sinni voru matreiðslumennirnir Vignir Hlöðversson, sem rekur veit- ingasalinn í golfskála Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar, og Krist- ófer Helgi Helgason, matreiðslu- maður Árvakurs, fengnir til þess að sjá um matinn. „Við vorum með yfir 100 gesti,“ segir Davíð Hill, forseti félagsins. Íslenskir nemendur í háskólanum í Arizona (Arizona State University, ASU) stofnuðu stúdentafélag 1991 og varð það síðar að Íslendingafélag- inu. Davíð segir að yfir 200 manns taki þátt í föstum viðburðum þess. „Þorrablótið er okkar stærsta samkoma, en margir koma líka sam- an 17. júní og fá sér íslenskar pylsur með öllu meðlæti,“ segir hann. Bætir við að félagið standi auk þess fyrir gleðistundum af og til; karaokí- kvöldi, golfmótum og einstöku sinn- um taki það þátt í skandinavískum hátíðum á svæðinu. „Kristín Ólafs- dóttir, fyrrverandi forseti félagsins og einn af stofnendum þess, býður í jólaglögg á hverju ári og eru það okkar litlu jól. Síðast en ekki síst eru nokkrar íslensku kvennanna saman í saumaklúbbi.“ Gestir víða að Fyrsta þorrablótið var haldið í febrúar 1992 og yfirleitt hefur ís- lenskur matur verið á boðstólum. Davíð segir að í seinni tíð hafi mat- reiðslumenn frá Íslandi stundum verið fengnir til að sjá um matinn. „Til að byrja með komu foreldrar konu í félaginu með mat frá Íslandi og fámennur hópur fólks sá um að útbúa hann á veisluborðið.“ Íslenskir skemmtikraftar hafa líka tekið þátt í að halda uppi fjörinu. Davíð segir að Greifarnir hafi til dæmis komið tvisvar sinnum og Kristján Viðar Haraldsson, söngvari þeirra, einu sinni skemmt einn. „Þeir komu af greiðasemi við okkur og gistu heima hjá félagsmönnum enda hefur félagið ekki burði til þess að borga fyrir gesti. Undanfarin ár hef- ur Gísli Jóhannsson, sem býr í Nash- ville, leikið á gítar og sungið og skemmt okkur vel.“ Davíð segir að hátt í 300 Íslend- ingar og fólk af íslenskum ættum búi í Arizona á veturna en eitthvað færri á sumrin. „Fljótlega eftir að félagið var stofnað fóru ættingjar og vinir félaga að mæta á þorrablótin okkar, það hefur spurst út og nú er svo komið að við fáum gesti víða að.“ Í því sambandi má nefna að hjónin Wayne og Loretta Kay Bernhoft, kjörræðismaður Íslands í Norður- Dakóta, voru á meðal gesta á ný- afstöðnu þorrablóti. Davíð fór til Arizona 1983 til þess að hitta bandarískan föður sinn í fyrsta sinn. „Ég ætlaði bara að vera hjá honum yfir sumarið en nú, tæp- um 37 árum seinna, er ég enn í þess- ari heimsókn.“ Hann hefur lengst af búið í Phoenix og Tucson í Arizona, en einnig í San Diego, Washington DC, Kansas City og Chicago. Hann er meðal annars með BS-gráðu í dýrafræði og endurnýjanlegum nátt- úruauðlindum og meistaragráðu í viðskiptafræði og upplýsingatækni- fræði. „Ég hef unnið við ýmislegt og var meðal annars í bandaríska sjó- hernum og hef verið hjá fyrirtækjum á borð við Sprint, American Ex- press, British Telecom og DHL.“ Er enn í heimsókn- inni 37 árum síðar Í Phoenix Wayne Bernhöft, Vignir Hlöðversson, Kristófer Helgi Helgason og Loretta Bernhöft komu langt að á þorrablótið.  Kristófer og Vignir sáu um matinn á þorrablótinu í Phoenix Kylfingar Vignir, Davíð og Kristófer fóru í golf daginn eftir þorrablótið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.