Morgunblaðið - 11.02.2020, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 11.02.2020, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2020 Blái naglinn Táknræn sýning sem endurspeglar algengi sjö flokka krabbameins er nú í Smáralind. „Ég vildi sýna fólki hvernig þetta er,“ sagði Jóhannes Reynisson. Hann stillti upp 1.647 flösk- um í ýmsum litum. Þær tákna þau sem greindust með einhverja af sjö tegundum krabbameins og þau sem létust að meðaltali á ári þeirra vegna frá 2014-2018. Sýningunni lýkur 16. febrúar. RAX Í fyrstu viku þessa mánaðar urðu mikil tíðindi í þýskum stjórnmálum sem örugglega eiga eftir að draga dilk á eftir sér. Þau fóru hins vegar að mestu fram hjá ís- lenslum fjölmiðlum, Ríkisútvarpi og dag- blöðum sem einblíndu á kórónuveiru og for- kosningar demókrata í Iowa-fylki. Viðburðurinn sem hér er vísað til gerðist í Thüringen, einu af fylkjum („löndum“) Sambandsríkisins Þýskalands. Hér er þetta fylki stundum kallað Þýringaland á ís- lensku, nafn dregið af þjóðflokknum Thuringi. Thüringen er gamalgróið svæði, þekkt frá því á 6. öld, um 16 þúsund ferkílómetra að stærð og með 2,1 milljónir íbúa, stærsta borg- in Erfurt þar sem fylkisþingið situr. Á eftirstríðsárunum var Thüringen suðvestasti hluti Austur-Þýska- lands. Á síðasta kjörtímabili 2014-2019 var vinstrisinnuð fylkisstjórn við völd í Thüringen með aðild vinstri- flokksins (Die Linke), krata (SPD) og græningja (Die Grünen). Fyrst- nefndi flokkurinn hafði þá á bak við sig 28,2% fylgi með Bodo Ramelow, vinsælan formann sem forsætisráð- herra. Reglubundnar kosningar voru haldnar í fylkinu 27. október sl. og bætti Die Linke þá við sig, fékk 31% atkvæða. Næstur kom hægri þjóðernisflokkurinn (Alternativ für Deutschland – Valkostur Þýska- lands) með 23,4%, á meðan kristi- legir (CDU) töpuðu þriðjungi fyrra fylgis, fengu aðeins 21,7%. Fylkisstjórnin missti hins vegar meirihluta sinn vegna slakrar útkomu krata (8,2%) og græningja (5,2%). Frjálsir demó- kratar (FDP) skriðu naumlega inn á fylk- isþingið með slétt 5% atkvæða. Síðan hefur ríkt stjórnarkreppa í fylkinu. Þar eð hvor- ugur borgaralegu flokkanna, kristilegir eða frjálslyndir, hafa viljað styðja stjórn með þáttöku vinstriflokksins og jafnframt sagst útiloka að þiggja stuðning frá AfD. Merkel: „óafsakanlegt“ Fimmtudaginn 5. febrúar sl. fór fram atkvæðagreiðsla í fylkisþinginu um nýja stjórnrforystu þar sem for- ystumaður frjálslyndra bauð sig fram og fékk 45 atkvæði gegn 44 sem forsætisráðherra. Ljóst var að allir fulltrúar AfD höfðu greitt hon- um atkvæði ásamt með kristilegum. Áður höfðu þó frjálslyndir og kristi- legir í Thüringen og á landsvísu svarið og sárt við lagt að þeir vildu engin samskipti hafa við þennan flokk þjóðernissinna. Samt tók ný- kjörinn forsætisráðherra opinber- lega við stöðunni og hélt henni í sól- arhring þegar hann vegna víðtækra mótmæla var neyddur til að segja sig frá þessum óvænta heiðri. For- maður frjálslyndra, Christian Lind- ner, lagðist á þá sömu sveif eftir að hafa orðið tvísaga í fjölmiðlum og forysta kristilegra, formaðurinn An- negret Kramp-Karrenbauer (AKK) og Merkel kanslari, fordæmdu báð- ar þennan gjörning. Merkel sem var í opinberri heimsókn í Suður-Afríku sagði athæfið óafsakanlegt og gerðu báðar kröfu um nýjar kosningar í fylkinu. Því voru kristilegir í Thür- ingen hins vegar ósammála og dugðu fortölur og heimsókn AKK til Erfurt á eins konar neyðarfund ekki til. Það gerir þessa stöðu enn drama- tískari að forystumaður AfD í Thür- ingen og um leið talsmaður þing- flokksins í þýska þinginu (Bundestag) heitir Björn Höcke, sem margir andstæðingar telja dæmigerðan nasista og líkja jafnvel við Göbbels. Hann er talinn arkitekt- inn að þessari síðustu gildru sem frjálslyndir og kristilegri gengu í og sem haft getur víðtækar afleiðingar fyrir flokkana báða og þróun þýskra stjórnmála. Kristilegir hafa undan- farið verið að tapa fylgi yfir til AfD, ekki aðeins í Thüringen heldur víða um land og opinber afstaða CDU um að hafa við þá engin samskipti er áfram umdeild innan flokksins. Stjórnarsamstarf á brauðfótum Samstarf kristilegu flokkanna (CDU/CSU) og krata (SPD) í rík- isstjórn Þýskalands hefur enn veikst við þessa síðustu atburði og var þó tæpast á bætandi. Á jólaföstunni lá fyrir kjör nýrrar forystu hjá þýskum krötum, þeirrar þriðju sem kosin er á jafn mörgum árum. Þar er nú tví- höfða forysta, karl og kona, eins og hjá græningjum og vinstriflokknum. Um er að ræða Saskia Esken (f. 1961) þingmann síðan 2013 og Nor- bert Walter-Borjans (f. 1951) utan- þings, bæði lítið þekkt utan flokks- ins. Þau náðu naumum sigri í beinni kosningu meðal flokksmanna sl. haust af fjármálaráðherranum Olaf Scholz sem einnig hafði konu sem frambjóðanda sér við hlið. Vart hef- ur þessi niðurstaða orðið til að styrkja stjórnarsamstarfið, sem nú- verandi formenn gagnrýna í mörg- um atriðum. – Kristilegra megin í ríkisstjórninni hafa líka nýlega orðið breytingar með því að áðurnefnd AKK tók við formennsku af Merkel sem heldur áfram sem kanslari á út- leið. Formaðurinn nýi situr þó ekki á neinum friðarstóli því að sótt er að henni úr ýmsum áttum og varnar- málaráðuneytið sem hún leiðir sem ráðherra er ekki sérlega til vinsælda fallið. Mat þýskra fréttaskýrenda eftir atburði síðustu daga í Thür- ingen virðist einróma í þá átt að staða AKK hafi veikst til muna og þá jafnframt styrkur þýsku ríkisstjórn- arinnar sem er að glíma við mörg vandasöm og umdeild mál, m.a. á sviði loftslagsbreytinga. Sú opinbera stefna kristilegra að hafna samstarfi við vinstriflokkinn Die Linke og leggja hann að jöfnu við AfD sætir nú gagnrýni úr mörgum áttum, m.a. frá ráðherrum CDU í Schleswig- Holstein. Grunnstoðir Evrópu- sambandsins veikjast Um leið og vaxandi óvissa ríkir um hvert stefnir í þýskum stjórn- málum er ljóst að styrkustu stoðir Evrópusambandsins eru að veikjast frá því sem verið hefur. Merkel kom því að vísu til leiðar að samstarfs- kona hennar í CDU og ráðherra um langt skeið, Ursula van der Leyen, tók nýlega við formennsku í fram- kvæmdastjórn ESB í Brussel. Mátti þó minnstu muna að hún fengi til- skilinn stuðning á Evrópuþinginu við útnefningu sinni. Á sama tíma hefur staða Macrons Frakklands- forseta beðið hnekki við átök innan- lands á mörgum sviðum sem birst hafa í götuóeirðum gulvesta og fleiri í meira en ár. Nú reynir hann að knýja á um aukna miðstýringu innan ESB og gyllir hlut Frakka á hern- aðarsviði sem eina kjarnorkuveldis innan ESB eftir útgöngu Breta. Framundan þarf ESB í kjölfar Brexit að fást við flókna samninga við bresk stjórnvöld á sama tíma og mikil spenna ríkir áfram í hópi aðild- arríkja. Lönd eins og Ísland og Nor- egur sem tengst hafa ESB gegnum Evrópska efnahagssvæðið í aldar- fjórðung gerðu rétt í að hugsa nú sinn gang í ljósi breyttra og óvissra aðstæðna og stefna að tvíhliða samn- ingi við ESB í stað óvirkrar yfirtöku á regluverkinu frá Brussel. PS: Grein þessa skrifaði ég á sunnudegi. Morguninn eftir, 10. febrúar, varð opinbert að Annegret Kramp-Karrenbauer hafi ákveðið að segja sig frá formennsku í CDU og gefi þar með heldur ekki kost á sér sem kanslaraefni. Sem viðbrögð við þessum tíðindum hefur Der Spiegel eftir Peter Altmeier efnahags- ráðherra Þýskalands, að nú blasi við „óvenjulega alvarleg staða fyrir CDU, fyrir alla í flokknum“. Það er þannig ekkert ofsagt í fyrirsögn greinarinnar. Eftir Hjörleif Guttormsson » Björn Höcke sem margir telja nasista er arkitektinn að þess- ari gildru sem frjáls- lyndir og kristilegir gengu í og haft getur víðtækar afleiðingar. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Gífurleg ólga í þýskum stjórnmálum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.