Morgunblaðið - 11.02.2020, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 11.02.2020, Qupperneq 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2020 ✝ Bára Vestmannfæddist á Fá- skrúðsfirði 31. des- ember 1933. Hún lést á líknardeild Landspítalans 2. febrúar 2020 2020. Bára var dóttir hjónanna Ottós Vestmanns, sjó- manns á Fáskrúðs- firði, og Valborgar Tryggvadóttur verkakonu. Bára var næstelst fimm systkina, eldri en hún var Pálína og yngri voru Guð- mundur, Ólafur og Unnur sem lifir systkini sín. Bára lauk námi frá Barna- skóla Fáskrúðsfjarðar og flutti á Seltjarnarnes 1949. Hún giftist Guðjóni Jónatanssyni vélvirkja- meistara, f. 29.10. 1920, d. 10.9. 2000, hinn 3. júlí 1952. Þau bjuggu fyrst á Hauksstöðum við Vallarbraut ásamt móður Guð- jóns og systkinum. Þau fluttu síðan á Melabraut 63 þar sem þau leigðu íbúð á efri hæð en síð- ar fluttu á Melabraut 67, þar sem þau bjuggu allan sinn búskap. Börn: 1) Jónatan, f. 9.7. 1953, vélvirkjameistari. Hann var þau eiga Elínu Björk. 3) Valborg Guðrún, f. 30.8. 1963, ritari, eig- inmaður hennar er Willem Cor- nelis Verheul birgðastjóri, f. 7.11. 1963 í Rotterdam í Hol- landi. Börn þeirra eru Ásta Berglind, f. 23.3. 1990, hennar maki er Jeffrey Oorebeek; Snæ- björn, f. 15.7. 1993 og Magnús Valur, 9.9. 1996. 4) Guðjón Sig- urður, slökkviliðsmaður, f. 10.3. 1969. Kona hans er Hrefna Þórð- ardóttir sjúkraþjálfari, f. 13.3. 1970. Synir þeirra er Bjarki Fjal- ar, f. 16.7. 1999 og Þórður Ottó, f. 13.7. 2009. Bára var heimavinnandi framan af, vann við ræstingar og fór að vinna við það í Mýrar- húsaskóla og seinna í Valhúsa- skóla. Hún vann í nokkur ár á leikskólanum Fögrubrekku en frá 1986 vann hún hjá Krabba- meinsfélagi Íslands sem aðstoð- arkona við myndatökur. Hún lauk starfsferlinum þar við eft- irlaun. Bára tók virkan þátt í ýmsum félagsstörfum á Seltjarnarnesi, var stofnfélagi í Kvenfélaginu Seltjörn, starfaði með Leikfélagi Seltjarnarness og tók þátt í stofnun kvennadeildar Slysa- varnafélags Íslands, Vörðunni. Útför Báru fer fram frá Seltjarn- arneskirkju í dag, 11. febrúar 2020, klukkan 11. kvæntur Ástu Björgu Kristjóns- dóttur, f. 23.3. 1952, þau slitu sam- vistum. Sambýlis- kona Jónatans er Brynja Blumenstein kennari. Börn Jón- atans og Ástu eru María Bára, f. 26.7. 1971, og Guðjón Sigurður, f. 6.7. 1977. Eiginmaður Maríu er Sveinn Logi Björnsson rafvirkjameistari. Börn Maríu úr fyrra sambandi eru Arnar Daní- el og Kristín Ásta, börn Sveins Loga eru Atli Freyr, Axel Fann- ar og Lovísa Birta. Maki Guðjóns er Maríanna Ósk Guðjónsdóttir, þau eiga Oliver Tristan og Jón- atan. Börn Brynju eru Stefanía Björk og Björn Steinar. 2) Ottó Vestmann, f. 17.8. 1958, tölvu- fræðingur. Eiginkona hans er Elín Karólína Kolbeins lyfja- tæknir, f. 20.2. 1959. Börn þeirra eru Erna Kristín, f. 23.11. 1985, hennar maður er Ari Freyr Skúlason, þau eiga Henry Leo, Gabriel Eli og Camillu Ósk; og Andrea Lilja, f. 15.5. 1991, henn- ar maki er Gísli Hrafn Karlsson, Hvað er hægt að segja þegar foreldrar okkar veikjast, fölna og deyja? Við fyllumst sorg og sjáum eftir einhverju sem ekki var gert eða ekki sagt. Samt þurfum við kannski að hugsa frekar um þær minningar sem við eigum, hugsa um þau gildi sem við höfum lært af foreldr- unum og hvað þau hafa skilið eftir hjá okkur. Mamma fæddist á gamlársdag 1933, næstelst fimm systkina. Foreldrar hennar voru sjómaður og verkakona, lífið og innkoman gekk út á það sem hafið gaf. Það var þröngt í búi á köflum, þau fluttu um tíma til Vestmanna- eyja til að elta vinnu við fisk- vinnslu og sjómennsku en þar bjuggu ættingjar sem skutu yfir þau skjólshúsi. Mamma var mjög ung þegar hún hleypti heimdraganum, rösklega 17 ára, en hún hafði hitt sér talsvert eldri mann sem kom austur til þess að vinna við uppsetningu á búnaði fyrir frystihús. Það var Guðjón Jón- atansson, ættaður frá Ólafsvík. Mamma sagði þau hefðu kynnst á balli og dansað saman inn í nóttina. Amma var ekki sátt, enda var minni aldursmunur á henni sjálfri og vonbiðlinum heldur en mömmu og pabba. Mamma flutti inn hjá pabba sem bjó í litlu húsi við Vallar- braut á Seltjarnarnesi ásamt móður sinni og systkinum. Þau pabbi fluttu síðar upp í þar næstu götu þar sem þau leigðu íbúð. Þar bjuggu þau þegar elsta barnið fæddist 1953 en fluttu svo í þarnæsta hús að Melabraut 67 þar sem þau bjuggu allan sinn búskap, fyrst á efri hæðinni þar sem annar sonur bættist í fjöl- skylduna og svo keyptu þau stærri íbúð á neðri hæðinni þeg- ar dóttirin bættist í hópinn. Fjórða barnið bættist svo við og fljótlega flutti elsti sonurinn út en reyndar bara upp á efri hæð- ina. Fyrsta barnabarnið kom svo í húsið skömmu síðar. Mamma var eins og nær allar konur á þessum árum heima- vinnandi húsmóðir. En mamma vann ansi lengi við ræstingar í hlutastarfi, vann svo í skólunum á Seltjarnarnesi og á leikskól- anum Fögrubrekku. Hún hóf störf hjá leitarstöð Krabba- meinsfélagsins 1986 og vann þar til 67 ára aldurs. Mamma var einn af stofn- félögum kvenfélagsins Seltjarn- ar. Hún tók líka þátt í stofnun kvennadeildar Slysavarnafélags Íslands, Vörðunni. Þess utan tók hún virkan þátt í starfi leikfélags Seltjarnarness, saumaði búninga og gerði leikmyndir. Mamma átti vinkonur sem voru í svipaðri stöðu og hún, þær fóru út á vinnumarkaðinn þegar börnin voru vaxin úr grasi. Mamma var mjög hög í hönd- unum, hún saumaði föt á okkur krakkana fram eftir öllu, heklaði og prjónaði. Hún hafði unun af því að hlusta á góða tónlist, ten- órarnir þrír voru spilaðir mikið, þær voru nokkrar vinkonurnar sem stunduðu tónleika Sinfóní- unnar ásamt því að fara á leikrit saman og eins voru þær dugleg- ar að skjótast í frí til útlanda, ýmist einar eða með öðrum í húsmæðraorlofi. Konur eins og mamma bera samfélagið okkar uppi. Þær bera okkur í heiminn, næra okkur og kenna, snupra og hrósa, vaka yf- ir okkur veikum og elska okkur. Móðurástin er sennilega sterk- asta afl sem þekkist. Við höfum öll notið þess sem og börnin okk- ar. Við eigum eftir að sakna mömmu, ömmu og langömmu. Jónatan, Ottó, Valborg og Guðjón. Í dag kveðjum við elsku ömmu Báru. Við systurnar eig- um svo margar fallegar og góðar minningar um ömmu, af Meló og úr ferðalögum um allt Ísland. Það var alltaf gaman að vera í pössun á Melabrautinni hjá ömmu og afa, þar sem alltaf var tekið á móti okkur með hlýjum faðmi. Amma Bára fór með okk- ur í sund í Seltjarnarneslauginni þar sem mesta sportið var úti- klefarnir í öllum veðrum og að kveikja á hitalampanum til að hlýja sér. Eftir sundið var alltaf stoppað í Skara og keyptur ham- borgari og franskar handa prins- essunum. Að fá að komast í skartið, föt- in og skóna hennar ömmu Báru var líka algjör lúxus fyrir litlar skvísur! Alls kyns hringar, háls- men og armbönd sem við hengd- um á okkur og dáðumst að í speglinum. Einnig voru ferðirn- ar í Kolaportið með ömmu al- gjört ævintýri, þar sem aldrei var skortur á alls konar dóti að skoða, og svo splæstu amma og afi í lakkríspoka, sem var sko ekki verra. Amma elskaði að ferðast, og voru ófáar ferðirnar í sumar- bústaðinn, eða sunnudagsbíltúra með fjölskyldunni. Amma Bára kom líka oft í mat á sunnudögum með ömmu Ernu, og þá voru oft notalegar stundir við matarborð- ið og mikið hlegið. Eftir að við eignuðumst börn- in okkar var heimsókn til lang- ömmu Báru alltaf í miklu uppá- haldi, og það sem hún hafði gaman af litlu gullunum sínum. Hún spjallaði við þau og las fyrir þau, og knúsaði þau fast og mik- ið. Elsku hjartans amma Bára, þín verður sárt saknað, og við eigum góðar minningar sem aldrei gleymast. Við erum vissar um að þið afi eruð sameinuð í Sumarlandinu, saman að eilífu. Við kveðjum þig með bæninni sem þú kenndir okkur systrum og fórst alltaf með með okkur: Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt, hafðu þar sess og sæti signaður Jesús mæti. Þínar ömmustelpur, Erna Kristín og Andrea Lilja. Það eru ótal minningar sem vakna til lífsins þegar hugsað er til ömmu. Í fyrsta lagi var hún afskaplega dugleg og algjör skvísuamma. Hún var mjög vel til fara með allskonar glingur. Hún passaði vel upp á útlitið, alltaf með farða, varalit og skartið sitt. Oft á tíðum í fínum klæðnaði sem hún hafði saumað sjálf. Amma var alltaf í megrun en gat samt ekki staðist sætindi og góðan mat sem hún taldi vera „algjört sælgæti“. Við biðum alltaf spennt eftir þessari setn- ingu við matarborðið og við lit- um hvert á annað og héldum í okkur hlátrinum í hvert skipti. Hún var þó dugleg að passa upp á línurnar með því að fara í göngur og sund. Þessa líkams- rækt stundaði hún nær daglega og var dugleg að taka okkur barnabörnin með sér. Göngurnar með ömmu voru oft notaðar í að því að tína dósir sem voru síðan settar í endur- vinnslu. Fengum við krakkarnir oft ágóðann og keyptum okkur ís fyrir. Sundlaugaferðirnar voru óteljandi margar og var amma dugleg að taka þátt í sundleik- fiminni sem var boðið upp á úti í Neslaug. Svo var tekin gæða- stund í heita pottinum þar sem amma þekkti hreinlega alla sem komu ofan í pottinn. Þessar sundferðir urðu því oft fremur langar og við krakkarnir komnir með rúsínuputta áður en amma hafði náð að spjalla við alla. Ef sólin skein þá tafðist ferðin tölu- vert þar sem amma varð að ná smá lit. Hún var algjör sólarunn- andi og naut þess að vera úti. Ef hún var ekki í sundi þá vildi hún helst vera í stuttbuxum úti í garði með bolinn undir öxlunum svo hún fengi ekki far. Hún naut hvers sólargeisla. Amma var með græna fingur og var hún dugleg að halda garð- inum í toppstandi þegar hún bjó á Melabrautinni. Ef hún var ekki að sinna garðyrkjunni var hún eflaust að búa til önnur lista- verk. Hún var ávallt með ein- hverja handavinnu við höndina og fengum við barnabörnin að njóta góðs af. Nú eru stofur okk- ar fullar af púðum sem hún saumaði, bollum sem hún bjó til í leirnum, teppum sem hún prjón- aði eða heklaði. Gestir okkar dást að verkum hennar. Amma elskaði að ferðast. Þegar afi var á lífi þá komu þau hvert einasta sumar til Hollands þar sem við bjuggum með for- eldrum okkar. Þau voru þá oft í heilan mánuð og voru það mjög notalegar samverustundir. Oft var farið í stuttar dagsferðir hingað og þangað og ýmsa skemmtigarða. Amma fór þá með okkur í tækin og heyrðist hláturinn í henni langar leiðir og hún skemmti sér konunglega. Þegar við komum í frí heim til Íslands tóku afi og amma okkur mjög oft með sér í Skorradalinn í bústað og vorum við alsæl í sveitasælunni með þeim. Þegar afi dó ákvað amma að halda ferðalögum sínum áfram. Hún átti það til að skreppa í bíltúr á Þingvelli og tók okkur stundum með í þær ferðir. Hún var einnig dugleg að fara í ferðir með vin- konum sínum til sólarlanda eða borgarferðir. Síðasta ferðin hennar ömmu er hafin í sum- arlandið og viljum við þakka henni fyrir skilyrðislausu ástina sem við fengum og allar gæða- stundirnar, hlýjuna og hlátur- sköstin sem við höfum átt með henni í gegnum tíðina. Við elsk- um þig, amma. Góða ferð. Ásta Berglind, Snæ- björn og Magnús Valur. Í dag kveð ég elsku ömmu Báru sem var mér svo kær, hún kvaddi eftir stutt en erfið veik- indi 2.2. 2020. Amma var alltaf glæsileg, í fínum fötum, með naglalakk og ekki fór hún út úr húsi fyrr en varaliturinn var kominn á varirnar. Auðvitað valdi glæsikonan eina af flott- ustu dagsetningum ársins til að kveðja og hitta afa í sumarland- inu. Þegar ég fæddist var amma 10 árum yngri en ég er í dag, með barn sem var tveggja ára og fékk þá titilinn amma, 38 ára gömul. Mér fannst hún mjög gömul þegar ég var 10 ára, en þá var hún jafn gömul og ég er í dag, unga konan. Ég er svo þakklát og heppin að hafa fengið að eiga svona langan og yndislegan tíma með ömmu. Fyrstu árin mín hugsaði hún um mig, þegar foreldrar mínir voru að vinna og læra og seinna þegar ég var í vandræð- um með yngsta barnið, mitt sem fékk ekki gæslu eftir skóla, þá fékk dóttir mín að fara til ömmu, borða kornflex með fullt af sykri og teiknaði endalaust myndir handa langömmu sinni. Það var mér ljúft og skylt að þakka gamlan greiða og hef ég síðustu árin fengið að dekra við ömmu og hjálpa henni í daglega lífinu þegar aldurinn færðist yfir og fór að segja til sín. Amma var handlagin og mikill listamaður, hún heklaði, prjón- aði, saumaði og í seinni tíð gerði hún marga fallega hluti úr leir. Hún hefði orðið frábær fata- hönnuður ef hún hefði viljað og fengið tækifæri til. Ég á endalausar minningar um ömmu og afa, útilegur, Skorradalur, uppblásinn heitur pottur, allar sundferðirnar í Vesturbæjarlaugina, sumardag- arnir í garðinum á Melabraut- inni, fjöruferðir út í Gróttu, kart- öflugarðarnir að taka upp í soðið, jól og áramót alltaf hjá þeim og jólakjóllinn sem amma keypti og fékk nafnið „tólfþús- undkrónakjóllinn“, öll fallegu fötin sem hún saumaði, allur góði maturinn hennar ömmu og smákökurnar og síðast en ekki síst þá fengum við hjónin að njóta þess að hafa hana, glaða og káta, í óvæntu brúðkaupi okkar síðasta sumar. Það er alltaf erfitt að kveðja, en lífið heldur áfram og verðum við því að leyfa minningunni um glæsilega góða konu að lifa. Ég veit að hún er á betri stað núna með afa að dansa í sumarland- inu. Elsku amma Bára, farðu í friði, minning þín mun lifa. María Bára, Sveinn Logi og fjölskylda. Í dag er yndisleg fyrrverandi tengdamóðir mín Bára Vest- mann borin til grafar eftir stutt en erfið veikindi. Þegar ég, 14 ára, kom inn á heimili Báru og Gauja var mér tekið sem einu af þeirra börnum og eignaðist litla systur (mágkonu) sem ég gat dúllast við, fléttað hárið og krull- að í hana slöngulokka. Bára var glæsileg kona, há- vaxin, bein í baki, teinrétt í fal- legum fötum, alltaf svo elegant, ekki fór hún út af heimilinu, t.d. í búðina, án þess að skipta um föt og setja á sig varalit. Stundum heyrðist pískrað að Gaui þyrfti að vinna svo mikið til að Bára gæti keypt sér ný föt, en raunin var ekki sú, hún saumaði flestöll sín föt sjálf og gömul föt fengu nýtt líf í hennar höndum, hagsýn og nýtin. Við Jonni vorum svo heppin að geta keypt litlu risíbúðina á Melabrautinni, þar byrjuðum við okkar búskap, í sama húsi og Bára og Gaui bjuggu, sem hent- aði vel því Bára gætti frumburð- arins Maríu Báru þegar hún fæddist, þótt Bára væri sjálf með lítið barn, Gauja tveggja ára. Bára var mín fyrirmynd og er ég henni afar þakklát fyrir allt sem hún kenndi mér, þar á með- al að sauma, ég vildi líka getað saumað eins vel og hún og lagði í það verkefni undir hennar leið- sögn að sníða og sauma buxur á Maríu Báru, fór upp á loft með Burdablað til að sníða eftir og var svo allt í einu komin með fjóra efnisbúta sem ég vissi ekk- ert hvernig ég ætti að koma saman, fór því niður til Báru, sem nældi skálmarnar saman, og úr urðu þessar fínu buxur sem ég svo saumaði. Ég á margar góðar minningar um þau hjón á Melabrautinni og ekki er hægt að sleppa því að minnast á allar tjaldútilegurnar og ferðalögin sem farin voru. Þegar leiðir okkar Jonna skildi hélst vinátta og væntumþykja okkar Báru áfram og þegar við Halli fórum að búa saman sagð- ist hún hafa fengið nýjan tengdason og varð vináttan þeirra á milli mikil. Við Halli þökkum Báru samfylgdina og vonum að henni líði nú vel og sé búin að hitta Gauja sinn í sum- arlandinu. Ásta Kristjónsdóttir. Kveðja frá Slysavarna- deildinni Vörðunni Seltjarnarnesi Í dag kveðjum við einn af stofnfélögum okkar, Báru Vest- mann. Bára var mikil slysavarna- kona sem og öll hennar fjöl- skylda annaðhvort í slysavarna- deild eða björgunarsveit. Félagsaðstaða deildarinnar, Gaujabúð, var nefnd eftir eig- inmanni Báru, Guðjóni Jónat- anssyni, sem var mikill slysa- varnamaður. Bára hefur verið ötull fé- lagsmaður í gegnum árin og tek- ið virkan þátt í starfinu, alltaf boðin og búin þegar eitthvert verkefni var í gangi. Hún var útnefndur „Vinur Vörðunnar“ árið 2012, sem er heiðursnafnbót til þeirra sem hafa stutt starfið ötullega. Við sendum fjölskyldu Báru innilegar samúðarkveðjur en hún er nú komin í sumarlandið til Gauja síns. Hvíldu í friði Bára okkar. Fyrir hönd Slysavarnadeildar- innar Vörðunnar, Seltjarnarnesi, Þóra Einarsdóttir og Petrea Jónsdóttir. Enn þræði ég dagana eins og skínandi perlu upp á óslitinn silfurþráðinn (Vilborg Dagbjartsdóttir) Þessar ljóðlínur eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur duttu mér í hug er hún Bára vinkona mín kvaddi og hélt í sumarlandið. Þráðurinn hefur slitnað og perlurnar verða ekki fleiri. Hún elskaði sólina og sumarið og vonandi hefur sumarlandið tekið henni fagnandi. Eftir nærri sextíu ára vináttu er margs að minnast sem hægt væri að telja en það geymist í minningabank- anum. Við tengdumst fjölskyldu- böndum er Ottó þinn og Elín mín urðu par og eignuðust tvær yndislegar stúlkur, barnabörn, og saman eigum við fjögur lang- ömmubörn sem hafa veitt okkur mikinn kærleik og gleði. Fjölskyldan fór í margar úti- legur á sumrin meðan eiginmenn okkar voru með, alltaf sama vin- áttan. Ég get sagt að silfurþráð- urinn hafi myndast er Gaui pass- aði mig sem barn. Og ekki síst þegar hann bar mig í poka á bakinu í stórhríð í fjárhúsin. Enn tel ég perlur á, fjölskyld- um okkar til heilla. Síðasti kafli okkar lífs hefur tengst okkur fjórum, Báru, Bíu, Guðbjörgu og mér. Farnar ferðir utanlands sem innanlands og ekki margir sem þekkja Suðurlandið betur en við. Þar könnuðum við hvern einasta vegarspotta. Fasta miða á tónleika í Hörpu og leikhús. Fórum síðast í haust á báða staði en fundum að farið var að halla á heilsu Báru. Átt- um góðan dag þann 4. janúar sem var okkar síðasta samvera og gátum við rifjað upp glaða og góða daga. Þessi tími kemur ekki aftur. Ég og við allar þökk- um allar gleðistundir. Sendum afkomendum bestu kveðjur og þakkir okkar. Nú er sál þín rós í rósagarði Guðs kysst af englum döggvuð af bænum þeirra sem þú elskaðir aldrei framar mun þessi rós blikna að hausti (Ragnhildur Ófeigsdóttir) Kveðja, Erna Kristinsdóttir. Kveðja frá kvenfélaginu Seltjörn Seltjarnarnesi Þeim fækkar óðum konunum sem stóðu að stofnun kven- félagsins Seltjarnar og nú hefur hún Bára okkar lagt í ferðina til sólarlandsins. Hún var virkur félagi í félag- inu okkar, starfaði í ótal nefnd- um og var meðal annars formað- ur. Hún var ein af þeim sem stóðu fyrir að vatnsleikfimi var komið á fót á Seltjarnarnesi og það er allt í fullum gangi enn og mikil heilsubót fyrir þá sem þar hafa mætt. Hún tók þátt í ferðum okkar bæði innan lands og utan, mætti á alla fundi og jólafundurinn var hennar síðasta samvera með okkur. Við félagskonur þökkum Báru fyrir góð og gefandi störf og sendum aðstandendum hennar innilegar samúðarkveðjur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Fyrir hönd kvenfélagsins Sel- tjarnar, Erna Kristinsdóttir og Birna E. Óskarsdóttir. Bára Vestmann

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.