Morgunblaðið - 26.02.2020, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 26.02.2020, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 6. F E B R Ú A R 2 0 2 0 Stofnað 1913  48. tölublað  108. árgangur  FERÐAST UM LANDIÐ Í HJÓL- HÝSI Á SUMRIN ATLANTA LANDAR RISA- SAMNINGI ELDRI EN ENN JAFN VITLAUSIR VIÐSKIPTAMOGGINN KLOVN  29JÓHANNES FERTUGUR 24  Mikill meirihluti sparifjár heim- ilanna í bönkunum er óverð- tryggður og er því langtímum saman með lægri vexti en nemur verðlagsþróun. Aðeins 91 millj- arður var í verðtryggðum al- mennum innlánum í lok síðasta árs af alls 955 milljarða króna innlánum. Samkvæmt samantekt á tölum úr skattframtölum fyrir árið 2018 voru vextir af innstæðum í bönk- um að meðaltali 2,5% og af inn- stæðum barna 1,5%. Hvoru- tveggja er undir verðlagsþróun því verðbólga á árinu var 3,7% samkvæmt mælingu Hagstofu Ís- lands. »6 Innstæður í bönkum skerðast Ný rannsókn, sem tveir íslenskir læknar eiga hlut að, bendir til þess að svefnleysi og svefntruflanir séu arfgeng vandamál í meiri mæli en að þau stafi af lífsvenjum eða umhverfisáhrifum. Um þriðjungur allra fullorðinna glímir við svefnleysi einhvern tíma á ævinni og hjá um 10- 15% verður svefnleysið langvinnt. Greint er frá rannsókninni í tímarit- inu Sleep Medicine. Þetta þýðir að þeir sem eiga erfitt með að festa svefn og vakna oft á nóttunni eru líklegri en aðrir til að eiga foreldra sem glímt hafa við sömu erfiðleika. Fram kemur að svefnleysi og aðrar svefntruflanir eru algengt vandamál í öllum löndum. Rannsóknir sýna að um þriðjungur fullorðinna glímir við svefnleysi einhvern tímann á ævinni. Hjá um 10-15% verður svefnleysið langvinnt. Fyrri rannsóknir hafa tengt svefntruflanir kynferði, aldri, lífsvenjum og umhverfisþáttum. Hefur m.a. verið bent á tengsl við of- fitu, reykingar o.fl. En nú voru í fyrsta sinn rannsakaðar svefntrufl- anir tveggja kynslóða, þ.e. foreldra og barna þeirra. »14 Svefntruflanir arfgengar  Stafa ekki aðeins af lífsvenjum og umhverfisáhrifum Svefn Nægur svefn er er mikil- vægur heilsu allra manna. Kórónuveiran » Kórónuveirunnar hefur orðið vart víða um veröld að undanförnu » Sjö Íslendingar í sóttkví á hóteli á Tenerife þar sem maður greindist. Einn heldur sig heima á Egilsstöðum. » Ólíklegt að efnahagsleg áhrif verði langvarandi, segir seðlabankastjóri. » Enn ekki merki um afbókanir í ferð- þjónustunni. Verð á gistingu að lækka. Ómar Friðriksson Sigurður Bogi Sævarsson Íslensk stjórnvöld efla nú á ýmsum stigum við- búnað vegna kórónuveirunnar sem átti upptök sín í Kína en verður nú vart æ víðar um veröld- ina. Starfsfólk Embættis landlæknis var í gær í sambandi við Íslendinganna sjö sem eru í sóttkví á hóteli á Tenerife eftir að gestur þar greindist með með veiruna. Fólkið er meðal 1.000 gesta hótelsins H10 Costa Adeje Palace og er ytra á vegum ferðaskrifstofunnar Vita. Þá opnaði borgaraþjónusta utanríkisráðuneyt- is í gær gagnagrunn fyrir Íslendinga erlendis sem vilja vera á skrá og þiggja ráð. Austur á Egilsstöðum er kennari í sóttkví, en hann er nýkominn frá einu af fjórum hér- uðum á Norður-Ítalíu þar sem kórónuveiran hefur greinst. Þó var það ekki á svæðinu þar sem kennarinn dvaldi og hann er frískur. Ekki er talin ástæða til, skv. upplýsingum frá samhæfingarmiðstöð almannavarna, að vara við ferðum til Tenerife. Fólk sem þangað heldur er þó hvatt til að huga að persónulegu hreinlæti og fylgja fyrirmælum. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að efnahagsleg áhrif vegna útbreiðslu kórónu- veirunnar stafi af þeim sóttvörnum sem gripið hefur verið til í einstökum löndum. Hann telur ólíklegt að áhrifin verði langvarandi. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir ferðaþjón- ustuna bíða átekta og sjá hver áhrifin af út- breiðslu veirunnar verði á markaðinn í heild sinni. Enn sem komið er sjáist ekki merki um afbókanir ferða utan Asíu eða í einhverjum stórum stíl eins og átti sér stað fyrst eftir að ferðatakmarkanir voru settar á í Kína. Verð á gistingu hefur verið á niðurleið hér á landi, einkum á suðvesturhorninu. Viðbúnaður efldur meðan beðið er átekta  Kórónuveiran breiðir úr sér  Íslendingar í sóttkví  Enn er talið óhætt að ferðast til Tenerife MÓlíklegt að verði langvarandi »4, 12 AFP Sóttkví Sjö Íslendingar eru meðal um eitt þúsund gesta hótelsins H10 Costa Adeje Palace á Tenerife sem settir hafa verið í sóttkví. Kórónuveiran hefur greinst í einum gesti hótelsins. Í Keflavík Mikill viðbúnaður var vegna veiks farþega í flugi Icelandair frá Amsterdam.  Allt að 68% verðmunur er á vin- sælum tegundum áfengis í Vínbúð- unum og verslun Costco. Verð var kannað á nokkrum þekktum teg- undum sem fást í báðum verslunum og reyndist mesti verðmunurinn vera á 12 ára gömlu Chivas Regal viskíi sem kostar ríflega 11 þúsund krónur hjá ÁTVR en 6.660 krónur í Costco. Kassi af Stella Artois-bjór er 61,7% dýrari í Vínbúðunum en í Costco. Í dag geta aðeins þeir sem eru með vínveitinga- eða víninn- flutningsleyfi keypt áfengi í Costco en nái frumvarp dómsmálaráð- herra um netverslun með áfengi fram að ganga gæti það breyst. »ViðskiptaMogginn Allt að 68% verð- munur á áfengi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.