Morgunblaðið - 26.02.2020, Síða 4

Morgunblaðið - 26.02.2020, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2020 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að efnahagsleg áhrif af út- breiðslu kórónuveirunnar séu aðal- lega vegna sóttvarnaaðgerða sem gripið er til. Hann telur líklegast að um skammtímaástand sé að ræða, þótt erfitt sé að gera sér grein fyrir því í dag hver útbreiðslan verði. „Áhrifin af þessum vírus eru fyrst og fremst af sóttvarnarráðstöfunum sem hafa verið gerðar eins og við sjáum til dæmis á Ítalíu núna. Það hefur náttúrlega töluverð efnahags- leg áhrif þegar er verið að loka af hús og heilu borgirnar,“ sagði Ás- geir í samtali við Morgunblaðið í gær. Hafa fyrirvara vegna óvissu „Það er mjög sérstakt við þennan vírus að sumir virðast ekki finna nein einkenni en það er aðallega fólk sem er eldra en 75 ára eða fólk sem er veikt fyrir sem deyr af völdum hans,“ sagði hann. ,,En mér finnst mjög líklegt að þetta verði ekki neitt langvarandi, heldur muni standa yfir í einhverja mánuði,“ bætir hann við. Í erlendum fjölmiðlum er fjallað um að útbreiðsla veirunnar gæti haft veruleg áhrif á ferðalög um heiminn og ferðaþjónustu og CNBC-sjón- varpsstöðin hafði í gær eftir fjár- málaráðherra Frakklands að þar í landi blasti við 30-40% samdráttur í ferðaþjónustu, en 14 hafa greinst með sýkingar í Frakklandi af völd- um COVID-19 veirunnar. Ásgeir segir að veikin geti haft einhver áhrif á ferðaþjónustuna hér á landi fyrir sumarið. Erfitt sé þó að gera sér grein fyrir því og ítrekar hann að hann telji að áhrifin verði ekki langvarandi. Að sögn Ásgeirs hefur Seðlabankinn gert viðbún- aðaráætlun til þess að bregðast við ef veiran berst hingað til lands. „Ég myndi ekki ætla, eins og stað- an er núna, að þetta ætti að hafa nema bara skammtímaáhrif en það segi ég með fyrirvara um alla þá óvissu sem uppi er.“ 141 þúsund á 12 mánuðum Jóhannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar, segir ferðaþjónustuna bíða átekta og sjá hver áhrifin af út- breiðslu veirunnar verði á markað- inn í heild sinni. Enn sem komið er sjáist ekki merki um afbókanir ferða utan Asíu eða í einhverjum stórum stíl eins og átti sér stað fyrst eftir að ferðatakmarkanir voru settar á í Kína. Ljóst er að mikið er í húfi fyrir ferðaþjónustuna. Á síðustu 12 mán- uðum komu tæplega 142 þúsund ferðamenn frá Kína, Taívan og Hong Kong til Íslands. Jóhannes segir að menn verði bara að sjá hverju fram vindur og óvarlegt sé í dag að segja fyrir um hver framvindan verði. „Við fylgj- umst með en áttum okkur á því að ef þetta fer að breiðast eitthvað meira út um Evrópu getur það haft einhver áhrif á áhuga fólks á ferðalögum,“ segir hann. „Það er mjög erfitt að spá fyrir um heildaráhrifin á þessum tímapunkti. Það fer alveg eftir því hvernig þróunin verður í ferðaþjón- ustunni í Evrópu almennt inn í sum- arið. Vissulega getur þetta valdið einhverjum skakkaföllum.“ Verð á niðurleið Aðspurður segir Jóhannes að verðþróunin í ferðaþjónustu hafi verið á niðurleið um hríð. Eftir- spurnin hafi minnkað örlítið á síð- asta ári og verð lækkað töluvert, sér- staklega fyrir gistingu á suðvestur- horninu. ,,Við gerum ráð fyrir að sú þróun muni verða svipuð á þessu ári og að það verði áfram heldur lægra verð hér miðað við framboð á gisti- rými sem er að koma inn á mark- aðinn og fleira,“ segir Jóhannes Þór. Andrés Magnússon, fram- kvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir fréttir síðustu daga um útbreiðslu veirunnar valda áhyggjum. Þróunin næstu eina til tvær vikur geti skorið úr um hver áhrifin verði m.a. á ferðaþjónustuna og í efnahagslífinu. Hlutdeild ferða- þjónustunnar er í kringum 40% af gjaldeyristekjum þjóðarbúsins. Hann segir þess verða vart að fólk sé hikandi við að ferðast. Einn fé- lagsmanna SVÞ er t.a.m. nýkominn af stórri ráðstefnu í smásöluverslun í Evrópu þar sem stórir birgjar létu ekki sjá sig. Verði áhrifin alvarleg eykst að mati Andrésar þrýstingur- inn á stjórnvöld að grípa til ein- hverra aðgerða til að örva hagkerfið. Ólíklegt að verði langvarandi  Efnahagsleg áhrif veirunnar eru vegna sóttvarna að sögn seðlabankastjóra  Viðbúnaðaráætlun í Seðlabanka  Ekki hrina afbókana en skakkaföll gætu orðið Morgunblaðið/Ómar Á ferðalagi Tæpar 2 milljónir ferðamanna komu til landsins á síðustu 12 mánuðum, þar af komu 7,2% eða 141.635 frá Kína, Taívan og Hong Kong. Kristinn R. Ólafsson fararstjóri kynnir spennandi lúxussiglingarVITA í Skógarhlíð 12, fimmtudaginn 27. febrúar kl. 17.30. • Umhverfis hnöttinnmeðCelebrity Solstice, 24. september – 21. október • Frá Evrópu til Suður-AmeríkumeðCelebrity Silhouette, 17. nóvember – 10. desember Bókaðu draumaferðina þína á vita.is Á vit ævintýranna með Kristni R. Njóttu þess að hlakka til Hlökkum til að taka á móti þér! Lítið er hægt að spá fyrir um að svo stöddu hvort út- breiðsla kór- ónuveir- unnar kunni að hafa áhrif á komur skemmtiferðaskipa til Íslands. Ein afboðun var þó að berast frá Japan á komu skipsins Asuka en engin sérstök við- brögð hafa komið frá fyrir- tækjum sem bókað hafa komur skemmtiferðaskipa, að sögn Ernu Kristjánsdóttur, markaðs- og gæðastjóra Faxaflóahafna. Hún segir um viðbúnað ef veir- an berst hingað að aðgerðir hafi verið undirbúnar ef á þurfi að halda. Fyrsta farþegaskip ársins kemur 9. mars þegar Magellan siglir til Reykjavíkur með 1.452 farþega og Astoria er væntan- legt 17. mars. „Árið í ár verður tvímælalaust það stærsta hvað varðar farþegafjölda hingað til lands (um 8% aukning) en skipakomum fækkar samt sem áður örlítið (um 2%). Alls eru áætlaðar 187 skipakomur far- þegaskipa til Faxaflóahafna ár- ið 2020 með 203.214 farþega. Það má því segja að vægi Ís- lands sem viðkomustaðar fyrir farþegaskip er því að aukast og landið ásamt innviðum virðist standast væntingar,“ segir á vef Faxaflóahafna. Eitt skip af- boðaði komu METFJÖLDI VÆNTANLEGUR Samkaup hf. hafa yfirtekið versl- unarrekstur Kaupfélags Steingríms- fjarðar á Hólmavík (KSH). Búðin sem félagið hefur starfrækt verður opnuð í dag undir merkjum Sam- kaupa, sem yfirtekur samninga við starfsfólk. Hornsteinar fasteigna- félag, sem að stórum hluta er í eigu sveitarfélagsins Strandabyggðar, hefur eignast fasteignir sem áður voru í eigu KSH og leigir húsnæði áfram til Samkaupa, ÁTVR og kaup- félagsins sem áfram rekur pakkhús með rekstrarvörum fyrir landbúnað og útgerð. „Erfið fjárhagsstaða ógnaði rekstrinum og í húfi voru störf heimamanna og sú hætta sem var á að á Hólmavík yrði ekki lengur rekin matvöruverslun, segir í frétt sem birt var á vef Strandabyggðar í gær. Þar segir að sveitarfélagið hafi lagt talsvert af mörkum til að tryggja áfram verslunarrekstur með að- komu sinni að fasteignafélaginu sem nú eigi kaupfélagshúsið svonefnda að Höfðatúni 4. Þurfti sveitarfélagið vegna þess raunar að losa um aðrar eignir og var það gert í samvinnu við Sparisjóð Strandamanna. Í fréttinni á vef Strandbyggðar segir að ekki sé sjálfgefið að sveitar- félag taki á sig svona skuldbindingar sem þessar eða stígi inn í rekstur fyrirtækja. Sveitarstjórn hafi hins vegar talið að mikið væri í húfi fyrir samfélagið á Ströndum og það rétt- læti aðgerðir. sbs@mbl.is Yfirtaka verslun á Hólmavík  Kaupfélag Steingrímsfjarðar í vanda  Samkaup á svæðið  Sveitarfélagið steig inn með kaupum á fasteigunum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hólmavík Kaupfélagshúsið við Höfðatún þar sem verslunin er. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa- dóttir, ráðherra nýsköpunarmála, kynnti á ríkisstjórnarfundi í gær þau áform að leggja niður Nýsköpunar- miðstöð Íslands (NMÍ) um næstu áramót. Verður þeim verkefnum sem þar eru unnin í dag og til stend- ur að halda áfram að vinna fundinn nýr farvegur. „Það er mikilvægt að endurskoða hlutverk opinberra stofnana reglu- lega svo stjórnvöld geti sem best þjónað hlutverki sínu um stuðning við nýsköpun í landinu,“ er haft eftir Þórdísi Kolbrúnu á vef Stjórnar- ráðsins og jafnframt að hún vilji „stuðla að öflugum opinberum stuðningi þar sem hans er þörf í nú- verandi um- hverfi“. Þar kem- ur einnig fram að Sigríður Ingvars- dóttir, forstjóri NMÍ, muni leiða vinnu innan stofnunarinnar út árið og njóta til þess stuðnings stýrihóps ráðu- neytisins. Alls starfa 81 manns hjá NMÍ í 73 stöðugildum. Nýsköpunarmiðstöðin var sett á fót árið 2007 með samein- ingu Iðntæknistofnunar og Rann- sóknastofnunar byggingariðnaðar- ins. Bein framlög ríkissjóðs til NMÍ nema 700 milljónum króna, fyrir ut- an kostnað við húsnæði stofnunar- innar í Keldnalandi, og í tilkynningu segir að áætlað sé að um 350 millj- ónum verði í framhaldinu veitt ár- lega til verkefna sem haldi áfram á öðrum stöðum. Í tilkynningu ráðuneytisins segir að niðurstaða greiningarvinnu sé sú að hluta verkefna NMÍ megi fram- kvæma undir öðru rekstrarformi. Sum verkefnanna geti verið fram- kvæmd af aðilum á markaði og sum þeirra séu ekki forgangsverkefni hins opinbera í nýsköpun vegna þroskaðra umhverfis nú. Þeim verði því hætt. Nýsköpunarmiðstöð lögð niður um áramót  Mikilvægt að endurskoða hlutverk stofnana reglulega Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.