Morgunblaðið - 26.02.2020, Síða 10

Morgunblaðið - 26.02.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2020 TORMEK Brýnsluvélar s Tormek T-4 Verð 58.500 s Tormek T-8 Verð 97.900 Allar stýringar fyrirliggjandi Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is Opið virka daga frá 9 -18 lau f rá 10 -16 SVX-150: Skærastýring Verð 7.980 HTK-706: Aukahlutasett fyrir hnífa, skæri o.fl. Verð 21.950 Tormek T-2 Atvinnu eldhúsbrýni Verð 108.730 SVD-186: Stýring fyrir tréskurðar- og rennijárn Verð 11.980 SVM-140: Hnífastýring Verð 7.740 SVA-170: Axarstýring Verð 2.420 SVM-00: Stýring fyrir tálguhnífa Verð 4.980 SE-77: Stýring fyrir hefiltennur og sporjárn Verð 9.530 Vefverslun brynja.is NÝTT Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Bæjarráð Ísafjarðar hefur tekið jákvætt í erindi um að finna Maríu Júlíu BA nýjan stað á Ísafirði. Skipið er sögufrægt, byggt fyrir 70 árum úr eik í Danmörku og þjónaði sem björgunarskip, varð- skip, rannsóknaskip og fiskiskip. Það er nú í eigu Byggðasafns Vestfjarða og Minjasafns Egils Ólafssonar á Hnjóti. Í fornbáta- skrá, sem Samband íslenskra sjó- minjasafna gaf nýlega út, kemur fram að ástand skipsins sé slæmt og á meðan ekki fáist fé til við- gerða haldi María Júlía áfram að fúna. Leita leiða til fjármögnunar Fjallað var um bréf Jónu Sím- oníu Bjarnadóttur, forstöðumanns Byggðasafns Vestfjarða, á fundi bæjarráðs Ísafjarðar í síðustu viku. Í bréfi hennar kemur fram, að hugmyndin sé að setja skipið upp í Suðurtanganum á Ísafirði, en þar sé renna sem hægt sé að dýpka og renna skipinu upp í. Þar með yrði tryggt að sjór lægi að skipinu. Óskað var eftir 300 þús- und króna framlagi frá bænum vegna þessa, en í bréfinu kemur fram að unnið sé að því að finna leiðir til fjármögnunar á lagfær- ingum á Maríu Júlíu. Vænst er niðurstöðu þar að lútandi fyrir lok þessa árs. Í bréfinu segir m.a. að skipið hafi legið í höfn á Ísafirði býsna lengi og beðið þess að fjármagn kæmi til lagfæringa. „Það er ljóst að skipið tekur dýrmætt hafnar- pláss og safnið greiðir af skipinu rafmagn og gjöld. Í ljósi þess að ástand skipsins fer versnandi og hætta er á að það sökkvi, er æski- legt að því verði fundinn nýr stað- ur þar sem það verður í sjó án þess að taka bryggjupláss,“ segir í bréfinu. Nátengd sögu Vestfirðinga María Júlía er fyrsta björgunar- skúta Vestfirðinga og á sér glæsta sögu sem slík. Skipið er nátengt sögu Vestfirðinga, en það hafði lengi verið baráttumál sjómanna, slysavarnafólks og fleiri á Vest- fjörðum að fá björgunarskip fyrir þennan landshluta. Þegar skipið kom vestur í jómfrúarsiglingu sinni 1950 var því fagnað í hverri höfn. Margir Vestfirðingar lögðu fram fjármuni vegna kaupa á skip- inu, en stærst var gjöf hjónanna Maríu Júlíu Gísladóttur og Guð- mundar Br. Guðmundssonar kaup- manns á Ísafirði, sem árið 1937 gáfu mestallar eigur sínar í björg- unarskútusjóð. Það þótti því vel við hæfi þegar skipið kom til landsins að nefna það eftir Maríu Júlíu, segir m.a. á heimasíðu Byggðasafns Vestfjarða. María Júlía tók þátt í 12 mílna þorskastríðinu sem hófst 1958 og í stefni skipsins var 47 mm fall- byssa. Skipið var einnig notað til fiskveiðirannsókna. Árið 1968 var María Júlía seld einkaaðilum og var eftir það gerð út til fiskveiða, ýmist frá Patreksfirði eða Tálkna- firði, allt til ársins 2003 þegar henni var lagt. Þegar hætt var að gera Maríu Júlíu út til fiskjar var hún enn vel haffær og í góðu ástandi. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Þorskastríð Talsverður stærðarmunur er á bresku freigátunni og Maríu Júlíu. Myndin er tekin 1. september 1959, þegar eitt ár var liðið frá því að fiskveiðilandhelgin við Ísland var færð út í 12 mílur. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Nátengd sögu Vestfirðinga María Júlía á sér merka sögu en þarfnast lag- færingar. Skipið var til viðgerðar hjá Skipavík í Stykkishólmi sumarið 2007. Hætta á að gamla varð- skipið sökkvi  Vilja flytja Maríu Júlíu  Dýrmætt hafnarpláss á Ísafirði  Sögufrægt skip

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.