Morgunblaðið - 26.02.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2020
Varðberg, sam-
tök um vestræna
samvinnu og al-
þjóðamál, heldur
hádegisfund í
fyrirlestrasal
Þjóðminjasafns á
morgun, fimmtu-
dag, og hefst
fundurinn kl. 12.
Fyrirlesari er
bandaríski flota-
og herfræðingurinn Magnus
Nordenman. Í fyrra sendi hann frá
sér bókina: The New Battle for the
North Atlantic – Emerging Naval
Competition with Russa in the Far
North – Nýja orrustan um Atlants-
haf, vaxandi flotasamkeppni við
Rússa á norðurslóðum.
Fram kemur í tilkynningu frá
Varðbergi að Magnus Nordenman
sé mikils metinn sérfræðingur í
málefnum Atlantshafsbandalags-
ins, NATO, í Bandaríkjunum. Hann
hafi stýrt rannsóknarverkefni á
vegum hugveitunnar Atlantic
Council í Washington um öryggi á
Atlantshafssvæðinu. Þá hafi hann
verið ráðgjafi bandarískra og evr-
ópskra stjórnvalda við mótun
stefnu varðandi NATO og hlutverk
bandalagsins í flotamálum og varn-
ar- og öryggismálum Norður-
Evrópu. Hann flytji reglulega fyrir-
lestra um flotamálefni á NATO-
ráðstefnum og í æðri menntastofn-
unum beggja vegna Atlantshafs.
Fundur um flotamál-
efni á Atlantshafi
Magnus
Nordenman
Boðað hefur verið til fundar hjá
Ríkissáttasemjara í eftirmiðdaginn
í dag í kjaradeilu Eflingar – stéttar-
félags og Reykjavíkurborgar. Síð-
asti fundur í deilu þessara aðila var
á miðvikudag í síðustu viku og var
hann árangurslaus. Allsherjar-
verkfall borgarstarfsmanna sem
eru í Eflingu hefur staðið frá mánu-
deginum í liðinni viku, 17. febrúar.
Fram hefur komið í fjölmiðlum á
síðustu dögum að samningarnefnd
Eflingar telur að yfirlýsingar Dags
B. Eggertssonar í fjölmiðlum að
undanförnu gefi ástæðu til að ætla
að borgin sé tilbúin að koma betur
til móts við Eflingarfólk og kröfur
þess en kynnt hafi verið á samn-
ingafundum.
Fundur í dag í deilu
Eflingar og borgar
Þorsteinn Ásgrímsson
thorsteinn@mbl.is
Mannréttindadómstóll Evrópu
komst að þeirri niðurstöðu í gær að
brotið hefði verið gegn ákvæði
mannréttindasáttmála Evrópu sem
kveður á um réttláta málsmeðferð
fyrir dómstólum
þegar Hæstirétt-
ur dæmdi í máli
Sigríðar Elínar
Sigfúsdóttur,
fyrrverandi
bankastjóra
Landsbankans.
Elín var í
Hæstarétti
dæmd til átján
mánaða fangels-
isvistar fyrir um-
boðssvik og hlutdeild í markaðsmis-
notkun í svonefndu Ímon-máli þegar
hún var framkvæmdastjóri fyrir-
tækjasviðs Landsbanka Íslands.
Elín höfðaði mál gegn ríkinu fyrir
Mannréttindadómstólnum á þeim
grundvelli að hlutabréfaeign þriggja
dómara við Hæstarétt Íslands í ís-
lensku viðskiptabönkunum fyrir
hrun hefði haft áhrif á niðurstöðu
þeirra í málinu. Málsmeðferðin í
Hæstarétti hefði þannig verið á
skjön við bæði íslensku stjórnar-
skrána og ákvæði mannréttindasátt-
mála Evrópu.
Mannréttindadómstóllinn komst
að þeirri niðurstöðu að hlutabréfa-
eign eins dómara málsins, Viðars
Más Matthíassonar, hefði verið það
mikil að hægt hefði verið að draga
hlutleysi hans í efa í málinu og það
teldist brjóta í bága við sjöttu grein
mannréttindasáttmálans. Voru El-
ínu því dæmdar skaðabætur að fjár-
hæð 12 þúsund evrur, jafnvirði um
1,7 milljóna króna, auk 5 þúsund
evra í málskostnað.
Bent var á í niðurstöðu dómstóls-
ins að hlutabréfaeign Viðars í Lands-
bankanum hefði verið rúmlega 87
þúsund hlutir, eða sem nam á þeim
tíma um 8,5 milljónum króna, og því
hefði fjárhagslegt tap hans verið um-
talsvert. Mannréttindadómstóllinn
vísaði til þess að endurupptökunefnd
hér á landi hefði horft til þessarar
hlutabréfaeignar Viðars þegar hún
heimilaði að mál Elínar yrði tekið
upp aftur fyrir dómstólum hér á
landi.
Aðrir dómarar ekki vanhæfir
Hlutabréfaeign Eiríks Tómas-
sonar, annars hæstaréttardómara í
málinu, í Landsbankanum var 87.383
hlutir að verðmæti um 1,7 milljónir
og urðu þeir verðlausir við fallið.
Dómurinn telur þá upphæð ekki
vera það verulega að hún eigi að
valda vafa um hlutleysi dómsins.
Markús Sigurbjörnsson, þriðji
dómarinn í Hæstarétti sem tiltekinn
er í málinu, átti hins vegar enga hluti
í Landsbankanum. Dómurinn tekur
sérstaklega fram að eign dómara í
öðrum bönkum eða sjóðum hafi ekki
áhrif í þessu tiltekna máli, en það var
meðal þess sem lagt var upp með í
málflutningi Elínar. Átti Markús
meðal annars bréf í Glitni fyrir um
350 þúsund krónur, auk annarra
fjárfestinga á fjármálamarkaðinum
fyrir um 61,45 milljónir. Kemur fram
að tap hans hafi verið um 7,6 millj-
ónir vegna þess, eða rúmlega níuföld
mánaðarlaun hans á þeim tíma.
Elín var sýknuð í héraðsdómi en
Hæstiréttur sneri þeim dómi við.
Taldi hún að þetta sýndi fram á að
Hæstiréttur hefði fyrir fram gefið
sér niðurstöðu í málinu. MDE tekur
ekki undir þetta og segir ekkert í
gögnum málsins benda til þess.
Elín hafði farið fram á 2,5 milljónir
evra í bætur í málinu, eða um 354
milljónir. Dómurinn sagði hins vegar
að ekki hefði tekist að sýna fram á
bein tengsl milli dómsins og þess
fjártjóns og dæmdi henni sem fyrr
segir 12 þúsund evrur í bætur.
Sterkt innlegg í
endurupptökumál
Helga Melkorka Óttarsdóttir, lög-
maður Sigríðar Elínar, segir að dóm-
ur Mannréttindadómstólsins í gær-
morgun sé staðfesting á því sem lagt
hafi verið upp með í málflutningnum
fyrir mannréttindadómstólnum.
Hins vegar liggi ekki fyrir hver
áhrif dómsins verði í tengslum við
málflutning um endurupptöku þess
fyrir Hæstarétti sem fer fram í
næsta mánuði. Helga segir dóminn
þó væntanlega sterkt innlegg í það
mál.
„Það var fallist á hennar málatil-
búnað og þetta er staðfesting á að
dómurinn var ekki óhlutdrægur,“
segir Helga í samtali við mbl.is.
„Hvort það var einn, tveir eða þrír
dómarar, það skiptir ekki öllu máli,
vanhæfið var staðfest,“ segir hún.
Fær skaðabætur vegna dóms
Draga mátti hlutleysi hæstaréttardómara í efa að mati Mannréttindadómstóls
Evrópu vegna hlutabréfa sem dómarinn átti í Landsbankanum og urðu verðlaus
Morgunblaðið/Þórður
Dómstóll Hús Mannréttindadómstóls Evrópu í Strassborg í Frakklandi. Dómstóllinn dæmdi í gær íslenska ríkið
bótaskylt vegna fangelsisdóms sem Hæstiréttur kvað upp yfir fyrrverandi yfirmanni Landsbankans árið 2015.
Sigríður Elín
Sigfúsdóttir
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
Peysur • Bolir • Buxur
Kjólar • Töskur
NÝ SENDING
Vinsælu
Velúrgallarnir
Alltaf til í mörgum litum
og í stærðum S-4xl
Fermingar-
myndatökur
Einstök
minning
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is |
Opið alla virka daga kl. 10-17
Davíð Stefánssyni, öðrum ritstjóra
Fréttablaðsins, hefur verið sagt
upp störfum. Tilkynnt var um þetta
á vef blaðsins í gær og jafnframt að
Sunna Karen Sigurþórsdóttir, rit-
stjóri vefsins frettabladid.is, léti
einnig af störfum. Sunna hafði
starfað um árabil á Fréttablaðinu
en Davíð tók við starfi ritstjóra þess
í júní í fyrra.
Eftir þessar breytingar verður
Jón Þórisson titlaður aðalritstjóri
Fréttablaðsins og ábyrgðarmaður.
Garðar Örn Úlfarsson, sem hefur
fylgt Fréttablaðinu frá því í árdaga
þess, verður annar fréttastjóra þess
ásamt Ara Brynjólfssyni. Kristjón
Kormákur Guðjónsson verður rit-
stjóri frettabladid.is og hring-
braut.is.
Ritstjórum sagt upp á Fréttablaðinu