Morgunblaðið - 26.02.2020, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 26.02.2020, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2020 Donald Trump Bandaríkjaforseti og Melania kona hans eru nú í opinberri heimsókn til Ind- lands og hefur forsetahjónunum verið vel tekið. Lögðu forsetahjónin blómsveig að minnis- merkinu áður en þau vörpuðu lituðum rósablöð- um upp í loft Gandhi til heiðurs. Trump-hjónin heimsóttu í gær Raj Ghat, minnismerkið um Mahatma Gandhi, leiðtoga sjálf- stæðisbaráttu Indverja, sem var myrtur 1948. AFP Indlandsheimsókn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta Heimsótti minnismerkið um Mahatma Gandhi Hosni Mubarak, fyrrverandi for- seti Egyptalands, lést í gærmorg- un, 91 árs að aldri. Mubarak var við völd í þrjá áratugi áður en honum var steypt af stóli í kjölfar arabíska vorsins 2011. Mubarak sat í fangelsi næstu sex árin fyrir að hafa valdið dauða mót- mælenda, en var sleppt 2017 þegar stjórnvöld náðuðu hann. Mubarak glímdi við veikindi síðustu árin og var hann nýlega fluttur á her- sjúkrahús í Kaíró. Samúðarkveðjur bárust víða að eftir að tilkynnt var um andlát hans og minntust til dæmis bæði Benja- mín Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas, leið- togi Palestínumanna, Mubaraks fyrir þátt hans í að miðla málum í deilunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Mubarak látinn eftir langvinn veikindi Hosni Mubarak EGYPTALAND Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein var í fyrradag dæmdur sekur um nauðgun og kynferðislegt ofbeldi, og geta brot hans varðað allt að 29 ára fangelsi. Kviðdómur í máli Weinsteins sýknaði hann hins vegar af alvarleg- ustu sakargiftunum um nauðgun af yfirlögðu ráði, sem fólu í sér lífstíðar- fangelsi. Dómnum hefur engu að síð- ur verið hampað sem sögulegum sigri fyrir #MeToo-hreyfinguna gegn kynbundnu ofbeldi. Weinstein, sem er 67 ára, var færður þegar í stað í varðhald á Rikers-eyju, þar sem þekktasta fangelsi New York-borgar er að finna, en hann var fluttur þaðan um kvöldið á sjúkrahús þar sem hann kvartaði undan verkjum í brjóstholi. Hyggst áfrýja dómnum Endanleg refsiákvörðun verður í máli Weinsteins 11. mars næstkom- andi, en Donna Rotunno, aðallög- fræðingur hans, lýsti því yfir að hann hygðist áfrýja dómnum. Raunum Weinsteins í réttarsaln- um er þó ekki lokið, þar sem sak- sóknarar í Los Angeles hyggjast ákæra hann fyrir nauðgun og önnur kynferðisbrot, sem framin voru á árinu 2013. Um 80 konur hafa sakað Wein- stein um að hafa annaðhvort nauðg- að sér eða beitt kynferðislegu of- beldi. Margar af konunum voru leikkonur sem sögðu Weinstein hafa notað stöðu sína sem einn helsti framleiðandinn í Hollywood til þess að neyða þær til samræðis. Ásakanirnar gegn Weinstein urðu ein helsta kveikjan að #MeToo- hreyfingunni svonefndu, og fagnaði Time’s Up-stofnunin, sem mynduð var í kjölfar hreyfingarinnar, dómn- um yfir Weinstein. Sagði í tilkynn- ingu stofnunarinnar að dómurinn markaði „nýtt tímabil réttlætis“. Cyrus Vance yngri, yfirsaksókn- ari í New York-borg, fagnaði einnig niðurstöðunni og sagði að þær konur sem borið hefðu vitni gegn Wein- stein hefðu breytt gangi sögunnar með hugrekki sínu. Þar sem flest af meintum brotum Weinsteins voru fyrnd var hann ein- ungis ákærður fyrir brot gegn tveimur konum, leikkonunni Jessicu Mann og aðstoðarmanninum Mimi Haleyi. Sex konur báru hins vegar vitni við réttarhöldin um að Wein- stein hefði brotið gegn þeim. Meðal annarra sem fögnuðu dómnum voru leikkonan Ashley Judd og Hillary Clinton. Þá sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti að dómurinn væri „stór sigur fyrir kon- ur“ sem hefði sent skýr skilaboð. Dómurinn marki tímamót  Harvey Weinstein sakfelldur fyrir kynferðisbrot  Niðurstöðunni fagnað víða AFP Dæmdur Harvey Weinstein mætir til dómsuppkvaðningar í fyrradag. Stjórnvöld í Sviss, Austurríki og Króatíu tilkynntu öll um fyrstu til- fellin af kórónuveirufaraldrinum í ríkjum sínum í gær. Öll tilfellin mátti rekja til norðurhluta Ítalíu, þar sem faraldurinn hefur dregið sjö manns til dauða. Um 300 tilfelli hafa komið upp í landinu, og hefur veir- unnar nú einnig orðið vart í Tosk- ana-héraði, Sikiley og Lígúríu- héraði. Þá var hótel á Tenerife sett í sóttkví eftir að gestur þar frá Ítalíu var fluttur á sjúkrahús vegna veir- unnar. Heilbrigðisráðherrar Ítalíu og ná- grannaríkja landsins tilkynntu í gær að þau hefðu ákveðið að halda landa- mærunum að Ítalíu opnum þrátt fyr- ir faraldurinn, þar sem það yrðu of harkaleg og óskilvirk viðbrögð að láta loka þeim. Stjórnvöld í Íran tilkynntu í gær um 15. dauðsfallið af völdum veir- unnar, sem er hið mesta utan Kína. Þá greindi Iraj Harirchi, aðstoðar- heilbrigðisráðherra landsins, frá því að hann sjálfur hefði smitast af veir- unni og að hann ætlaði sér að vera í einangrun heima við næstu tvær vik- urnar. Mahmoud Sadeghi, íranskur þingmaður, sagðist einnig hafa smit- ast á Twitter-síðu sinni, en Sadeghi taldi sig ekki eiga mikla von á að halda lífi. Veiran breiðist um Mið-Evrópu  Tilfelli í Sviss, Austurríki og Króatíu Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 KIEL/ - OG FRYSTITJEKI ., '*-�-��,�rKu�, Kæli- & frystibúnaður í allar gerðir sendi- og flutningabíla Sovéski hers- höfðinginn Dmitrí Yazov lést í gær í Moskvu, 95 ára að aldri. Yazov var síðasti mað- urinn sem var út- nefndur sem „marskálkur Sovétríkjanna“ áður en þau liðu undir lok. Yazov átti sinn þátt í því, en hann var einn af „áttmenning- unum“ svonefndu sem stóðu að valdaráninu í ágúst 1991, sem mis- heppnaðist og hraðaði falli Sovét- ríkjanna. Þrátt fyrir það er litið á Yazov sem hetju í heimalandi sínu og minntust bæði Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Sergei Shoigu varnarmálaráðherra hans í gær og sögðu hann hafa sýnt af sér hug- rekki í hverri þrekraun. RÚSSLAND Einn af „áttmenn- ingunum“ allur Dmitrí Yazov

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.