Morgunblaðið - 26.02.2020, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2020
Hinir óviðjafnanlegu grín-istar Frank Hvam ogCapser Christensenslógu rækilega í gegn
hér á landi sem víðar í gamanþátt-
unum Klovn sem hófu göngu sína ár-
ið 2005 og lauk með sjöundu þátta-
röðinni 2018. Á hápunkti vinsælda
sinna skelltu þeir í kvikmynd sem hét
Klovn: The Movie, nema hvað, og
önnur kom fimm árum seinna, Klovn
Forever. Líkt og þættirnir einkennd-
ust báðar af groddaskap og heimsku-
legum uppátækjum þeirra félaga,
grínið var bleksvart og gróft og oft
farið yfir strikið, þ.e. ef til er slíkt
strik yfirhöfuð. Það er auðvitað af-
stætt og sannarlega er spaug þeirra
félaga ekki allra og alls ekki fyrir við-
kvæma.
Þriðja kvikmyndin, Klovn: The
Final, er nú komin í bíó, fimm árum á
eftir þeirri síðustu og tveimur árum
eftir endalok þáttaraðanna. Tímarnir
hafa breyst að vissu leyti og þá m.a.
með tilkomu #metoo-hreyfingar-
innar. Get ég mér þess til að umburð-
arlyndið fyrir groddalegum karla-
húmor Klovn hafi minnkað með
tilheyrandi hóreríi, fylliríi, framhjá-
haldi og almennum kjánagangi. Vin-
sældir Klovn eru ekki þær sömu og
þær voru þótt enn séu þeir Frank og
Casper bráðfyndnir þegar vel tekst
til.
Sagan hefst að þessu sinni með
fimmtugsafmæli Franks en hann
verður fimmtugur í raun og veru
núna í haust. Casper er tveimur ár-
um eldri en til styttingar skulum við
bara segja að þeir séu fimmtugir.
Eldri en langt frá því að vera vitrari.
Heimskari, ef eitthvað er, enda væri
annars ekkert gaman að þeim. Frank
heldur heljarinnar afmælisveislu og
Mia færir honum lag að gjöf, lag sem
hún syngur fyrir framan veislugesti
en auðvitað missir Frank af því, egó-
istinn sem hann er. Fyrir einhvers
konar kraftaverk er hann enn giftur
vesalings Miu, sem þarf endurtekið
að sætta sig við alls konar niðurlæg-
ingu sem fylgir því að vera gift fá-
bjána.
Casper gefur vini sínum veiðiferð
til Íslands í afmælisgjöf en með ótrú-
lega heimskulegu uppátæki tekst
Frank að láta henda þeim báðum út
úr flugstöðinni og þeir missa af flug-
inu til Íslands. Kemur sér þá vel að
Frank hafi verið falið að gæta húss
nágrannans sem býr beint á móti
þeim Miu. Þar koma þeir Casper sér
fyrir og ætla að bíða eftir næsta flugi.
Fer ekki betur en svo að Eyjafjalla-
jökull fer að gjósa þannig að þeir
neyðast til að dúsa þar um óákveðinn
tíma. Íslandsförin kemur við sögu
síðar og þá í miklum spretti sem
kann að svekkja einhverja bíógesti
sem héldu að stór hluti myndarinnar
gerðist hér á landi. Gunnar Hansson
á fína innkomu sem leiðsögumaður
vitleysinganna hér á landi en telst þó
varla til aðalleikara myndarinnar.
Þó margt sé bráðfyndið í þessari
þriðju kvikmynd félaganna er hún
síst af þeim þremur sem gerðar hafa
verið. Er það einkum vegna þess hve
stór hluti hennar fer fram í sama
húsinu þar sem við fáum að fylgjast
með fíflalátum og drykkju félaganna.
Ekki svo að skilja að fíflalætin séu
ekki skemmtileg, þau eru það oft og
þá einkum í allra svartasta gríninu.
Sumt af því er þó þess eðlis að erfitt
er að sjá hvað getur mögulega verið
fyndið. Það mun særa blygðunar-
kennd margra, tel ég, en annar
sessunauta minna öskraði af hlátri á
meðan hinum stökk varla bros. Eru
kúkabrandarar fimmtugra manna
fyndnir? Jú, stundum. Dvergagrín?
Má það? Erum við ekki lengra komin
en svo að hlæja að dvergvöxnu fólki?
Ég vona það. Að stinga tannbursta
upp í rassinn á sér, er það fyndið?
Hefur það einhvern tíma þótt
fyndið?
Þættirnir Klovn fjölluðu fyrst og
fremst um karla að gera eitthvað af
sér, karla sem virðast annaðhvort
vera siðblindir eða ekki skilja hvað
þykir eðlileg hegðun og hvað ekki.
Casper virðist þannig meðvitaður
um hvað má og hvað ekki en honum
er bara alveg sama, hann gerir það
sem honum sýnist. Hann hlýtur því
að teljast siðblindur. Frank vekur
meiri samúð því hann er fyrst og
fremst heimskur og bestu brand-
ararnir í myndinni snúast um hvern-
ig hann misskilur orð félaga síns og
þá einkum þegar kemur að því að
heilla konur. Að konur skuli falla
fyrir Casper er auðvitað spaugilegt
eitt og sér og á væntanlega að vera
það. Að ungar og föngulegar konur
séu til í að sænga hjá þessum mið-
aldra drykkjurúti eftir fáránlega
lélega pikköpp-línu eða -aðferð er
endurtekið stef í Klovn-gríninu.
Gaman þætti mér að vita hvernig
þetta grín leggst í kvenkyns áhorf-
endur myndarinnar. Er þetta fynd-
ið? Þætti körlum fyndið ef kynja-
hlutverkunum væri snúið við?
Líkt og í fyrri myndum stigmagn-
ast vandræðin sem þeir félagar
koma sér í eftir því sem á líður en
fyrir kraftaverk er þeim alltaf fyrir-
gefið af sínum nánustu. En endirinn
er þess eðlis að óvíst er hvort þeim
verður fyrirgefið í þetta sinn. Ef
marka má titilinn er nú mál að linni.
Takk, Frank og Casper. Þið eruð nú
meiri fávitarnir!
Vandræði Glatt á hjalla hjá Frank og Casper en fljótlega syrtir í álinn eins og venja er með þá Klovn-félaga.
Fimmtugir fábjánar
Laugarásbíó, Smárabíó
og Háskólabíó
Klovn: The Final bbbnn
Leikstjórn: Mikkel Nørgaard. Handrit:
Frank Hvam og Casper Christensen.
Aðalleikarar: Frank Hvam, Casper Chris-
tensen, Mia Lyhne, Christian Sørensen
og Cassius Aasav Browning. Danmörk,
2020. 94 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Bandaríski tón-
listarmaðurinn
Beck heldur tón-
leika í Laugar-
dalshöll 2. júní
ásamt hljóm-
sveitinni Two
Door Cinema
Club, að því er
fram kemur í til-
kynningu frá
skipuleggjendum, Senu Live. Beck
er 49 ára og öðlaðist heimsfrægð
með laginu „Loser“ sem skaust upp
á vinsældalista víða um heim árið
1994. Hann hefur gefið út 14 plötur
og eru tvær þeirra á lista tónlistar-
tímaritsins Rolling Stone yfir 500
bestu plötur allra tíma. Hann hefur
unnið til fjölda verðlauna og þá
m.a. sjö Grammy. Nýjasta plata
Beck, Hyperspace, kom út í árslok í
fyrra en upptökustjóri hennar var
Pharell Williams. Two Door Ci-
nema Club er norðurírsk sveit og
þekktasta plata hennar er Tourist
History.
Beck heldur
tónleika á Íslandi
Beck
Sparibollinn
nefnist verð-
launahátíð um
fegurstu ástar-
játninguna sem
Bókabæirnir
halda í Tryggva-
skála á Selfossi á
morgun kl. 19.30.
Fimm höfundar
eru tilnefndir:
Andri Snær
Magnason fyrir fallegustu ástar-
játningu til fjölskyldunnar í bókinni
Um tímann og vatnið, Dagur
Hjartarson fyrir fallegustu lýs-
inguna á ást sem leiðir til harmleiks
í bók sinni Við erum ekki morð-
ingjar, Guðrún Eva Mínervudóttir
fyrir fallegustu lýsinguna á hvunn-
dagslegum ástum venjulegs fólks í
Aðferðir til að lifa af, Ragna Sig-
urðardóttir fyrir fallegustu ástar-
játninguna til listarinnar og lita-
palletu veraldarinnar í Vetrargul-
rætur og Sölvi Björn Sigurðsson
fyrir fallegustu lýsinguna á ást sem
stenst tímans tönn í Seltu.
Fegursta ástar-
játningin 2019
Guðrún Eva
Mínervudóttir
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
Rás 2
FBL
m.a.
ÓSKARSVERÐLAUN3
BESTA KVIKMYNDATAKAN
BESTA MYNDIN
m.a.
ÓSKARSVERÐLAUN4
ÓSKARSVERÐLAUN
BESTI LEIKARINN: Joaquin Phoenix
BESTA TÓNLISTIN: Hildur Guðnadóttir2