Morgunblaðið - 26.02.2020, Page 32

Morgunblaðið - 26.02.2020, Page 32
Hvað gerir ástarsögu að ástarsögu og hver er munurinn á ástarsögu og sögu um ást? Ingunn Snædal, ljóð- skáld og þýðandi, og rithöfundur- inn Þóra Hjörleifsdóttir munu leit- ast við að svara þeim spurningum í bókakaffi Borgarbókasafnsins í Gerðubergi í kvöld kl. 20. Þær munu ræða við Guðrúnu Baldvins- dóttur um ástir í bókmenntum í víð- um skilningi og ef til vill mun spjall- ið leiða þær í nýjan sannleik um ást og ástarsögur. Ingunn, Guðrún og Þóra ræða um ást MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 57. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Körfuknattleikskappinn Martin Hermannsson hefur átt frábæra viku, en hann varð bikarmeistari með liðinu sínu Alba Berlín á dög- unum. Þá átti hann stórleik gegn Zenit frá Pétursborg í Evrópudeild- inni sem skilaði honum nafnbótinni leikmaður umferðarinnar. Martin er eftirsóttur af stærri liðum og gæti fært sig um set næsta sumar. »26 Martin eftirsóttur af stærri liðum ÍÞRÓTTIR MENNING Knattspyrnumaðurinn Axel Óskar Andrésson meiddist í fyrsta leik síðasta tímabils gegn Kristiansund í norsku úrvalsdeildinni. Miðvörð- urinn, sem er 22 ára gamall, meidd- ist eftir þrettán mínútna leik og missti því af öllu síðasta tímabili með Viking, sem varð meðal annars norskur bikarmeistari á síðustu leiktíð. Íslendingurinn nálgast nú endurkomu eftir tíu mánaða endurhæf- ingu og hann er afar spenntur fyrir kom- andi tímabili með Viking. »27 Nálgast endurkomu eftir krossbandsslit Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Nokkrir eldri skíðamenn á besta aldri fylgjast grannt með veðrinu og eru mættir á mínútunni þegar skíða- svæðið í Bláfjöllum er opnað almenn- ingi skömmu eftir hádegi á virkum dögum. „Við erum allir hættir að vinna en erum í góðu formi enda höldum við okkur við æfingarnar, kjarninn mætir yfirleitt alltaf þegar opið er,“ segir Samúel Gústafsson, eða Silli eins og hann er nefndur. Ísfirðingarnir og fyrrverandi landsliðsmennirnir Kristinn Bene- diktsson og Silli hafa skíðað saman í áratugi og mæta reglulega í Blá- fjöllin. „Ég byrjaði samt ekki að skíða fyrr en ég var tíu eða tólf ára, um leið og ég eignaðist réttu græj- urnar, en þá var líka hvert tækifæri notað enda stutt að fara upp í hlíð fyrir ofan bæinn,“ segir Silli um æskuárin á Ísafirði. „Á leiðinni heim úr skólanum leit maður upp eftir og ef einhver var að skíða var farið heim, náð í græjurnar og síðan skundað upp í hlíð.“ Silli hefur búið í Reykjavík síðan 1984. „Fyrsta veturinn fór ég 40 sinnum á skíði í Bláfjöllum og síðan hef ég stundað þetta mjög stíft, nánast alltaf farið þegar hefur verið opið.“ Auk þess hefur hann farið í margar skíðaferðir til útlanda. „Skemmtilegast hefur verið að fara til Selva á Ítalíu og Bláfjöllin standa alltaf fyrir sínu,“ áréttar hann. Útiveran gefur mikið Skíðamenn segja gjarnan að ekk- ert jafnist á við að renna sér á skíð- um og Silli tekur undir það. „Maður fær ótrúlega margt út úr því að vera á skíðum,“ segir hann. „Í fyrsta lagi er þetta ofboðslega gaman og svo er félagsskapurinn flottur. Maður fær mikið súrefni í lungun og mikla út- rás. Víða skemmir fallegt landslagið ekki fyrir og útiveran stendur alltaf fyrir sínu.“ Silli verður 78 ára 1. mars og virðist ekkert hafa breyst í áratugi. Hann segist aldrei hafa meiðst al- varlega á skíðum en eðlilega orðið fyrir hnjaski af og til. „Ég hef snúið mig og tognað og algengt var að rif- brotna en ekkert hefur stoppað mig til þessa.“ Hann segir allt annað og betra að skíða nú en áður og þakkar það fyrst og fremst mjög bættum búnaði. „Áður voru skíðin handónýt og skórnir þungir og óþjálir úr leðri. Nú eru skíðin æðisleg og auðvelt að stýra þeim, þau beygja nánast sjálf enda ná byrjendur nánast strax tökum á þeim. Plastskórnir halda miklu betur að en gömlu skórnir, eru stífari og mun léttari. Það er ekki hægt að líkja þessu saman, enda verður þetta bara skemmtilegra og skemmtilegra.“ Veðrið hefur verið með leiðinlegra móti í vetur og litagleðin allsráðandi í viðvörunum, en Silli segir að ótrúlega gott hafi verið að skíða þegar opið hefur verið í Bláfjöllum. „Snjórinn og færið hafa verið sérlega góð en veðrið hefur verið hundleiðinlegt. Ég fer þegar opið er og ef veðrið er haml- andi fer ég bara heim strax aftur. Annars er þetta bara upp og niður í einn og hálfan til tvo tíma í einu. Við höfum brekkurnar út af fyrir okkur, engin biðröð. Þetta verður ekki betra.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Í Bláfjöllum Á besta aldri frá vinstri: Hákon Ólafsson, Samúel Gústafsson, Guðni J. Gunnarsson og Georg Douglas. Skíðin beygja nánast sjálf  Nokkrir eldri skíðamenn fastagestir í Bláfjöllum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.