Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2020, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.2. 2020
Bygging þessi, sem stendur á horni Hverfisgötu og Vatnsstígs í
Reykjavík, er fyrsta fjölbýlishús á Íslandi, reist árið 1904. Húsið var
lengi í niðurníðslu, en var endurgert rétt fyrir aldamót og er nú borg-
arprýði sem nýtur friðunar. Húsið er nú sem fyrr nýtt sem íbúðar-
húsnæði. Hvað heitir bygging þessi?
MYNDAGÁTA
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hvað heitir húsið?
Svar: Bjarnaborg heitir húsið og er nefnt eftir Bjarna Jónssyni, snikkara, timburkaup-
manni, fátækrafulltrúi og húsasmið. Hann er talinn hafa reist að minnsta kosti 140 hús í
Reykjavík og reisti húsið, sem hér er spurt um, sem eins konar minnisvarða um sig sjálfan.
ÞRAUTIR OG GÁTUR