Morgunblaðið - 27.03.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2020
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR
Almannavarnafrumvarp dómsmála-
ráðherra nýtur almennt stuðnings
samkvæmt umsögnum. Um er að
ræða breytingu á lögum um al-
mannavarnir. Til stendur að bæta
við þau nýrri grein. Sú fjallar um
borgaralega skyldu starfsmanna
opinberra aðila til að gegna störfum í
þágu almannavarna á hættustundu.
ASÍ bendir á að gert sé ráð fyrir
því að starfsmenn skuli njóta
óbreyttra launakjara við breyttar
starfsskyldur. Ekkert komi þó fram
um hvernig tekið verði á því ef
starfsmanni er gert að gegna starfi
sem er betur launað en það sem hann
var ráðinn til.
BHM telur mikilvægt að skýra
betur hvað er átt við með „ítrustu til-
fellum“ sem munu heimila að færa
starfsmenn til í starfi. Einnig þurfi
að kveða skýrt á um að sé starfs-
manni falið að gegna betur launuðu
starfi en því sem hann var ráðinn til
skuli greiða laun í samræmi við það.
BSRB áréttar að ávallt verði að
líta til aðstæðna eins og ef starfs-
maður eða einhver sem hann ber
ábyrgð á glíma við undirliggjandi
sjúkdóm eða annað sem gæti leitt til
þess að breytt starfssvið myndi
stefna öryggi eða heilbrigði í hættu.
Kennarasamband Íslands (KÍ) segir
að öllum takmörkunum á frelsi fólks
þurfi að setja skýrar skorður. Í
hættuástandi geti skapast öflugur
hvati fyrir stjórnmálamenn að ganga
lengra en réttlætanlegt er til að
mæta aðsteðjandi ógn.
Landssamtökin Þroskahjálp
benda sérstaklega á mikilvægi frum-
varpsins gagnvart þjónustu við fatl-
að fólk. Þau segja mikilvægt að taka
tillit til aðstæðna starfsmanna
hverju sinni og setja þá ekki í óþarfa
hættu eða aðstæður sem viðkomandi
ráði ekki við.
Læknafélag Íslands segir mikil-
vægt að settur verði varnagli vegna
heilsufars starfsmanna þannig að
skyldan til að gegna störfum í þágu
almannavarna á hættustundu verði
aldrei algerlega fortakslaus. „Upp
geta komið þær aðstæður á hættu-
stundu að ekki er forsvaranlegt að
skikka alla starfsmenn opinberra að-
ila til að gegna störfum í þágu al-
mannavarna,“ segir m.a. í umsögn
LÍ. Bent er á að í þeim aðstæðum
sem nú eru uppi geti verið sérstak-
lega varhugavert að skikka t.d.
lækna og aðra heilbrigðisstarfsmenn
með undirliggjandi heilsufarsvanda-
mál í framlínuna í þjónustu við smit-
aða. Þeir geti hins vegar sinnt marg-
víslegum öðrum verkefnum en þeim
sem þeir sinna daglega.
Samband íslenskra sveitarfélaga
tekur undir það að rétt sé að virkja
mannauð opinberra aðila til for-
gangsstarfa áður en almenn borg-
araleg skylda er virkjuð, eins og
fram kemur í frumvarpinu.
Almannavarnafrum-
varpið fær stuðning
Umsagnir almennt jákvæðar Ábendingar um úrbætur
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alþingi Frumvarpið er nú hjá allsherjar- og menntamálanefnd.
Komdu í BÍLÓ!
MMC OUTLANDER PHEV INSTYLE
nýskr. 04/2018, ekinn aðeins 8 Þ.km, bensín og
rafmagn, sjálfskiptur, leður o.fl. Glæsilegt eintak!
Verð 4.390.000 kr. Raðnúmer 250422
NISSAN X-TRAIL TEKNA - 7 SÆTA
nýskr. 06/2019, ekinn 28 Þ.km, dísel,
sjálfskiptur, leður o.fl. Verð 5.590.000 kr.
Raðnúmer 250217
MMC OUTLANDER PHEV INVITE
nýskr. 11/2019 (árg. 2020), ekinn 6 Þ.km, bensín og
rafmagn, sjálfskiptur. Umboðsbíll með fullt af auka-
hlutum! Verð 4.590.000 kr. Raðnúmer 250540
FORD FOCUS ST-LINE
nýskr. 11/2018, ekinn 6 Þ.km, bensín, 6 gírar, 18“
álfelgur o.fl. TILBOÐSVERÐ 3.140.000 kr.
Raðnúmer 250526
DACIA DOKKER
nýskr. 05/2019, ekinn 9 Þ.km, dísel, 5 gíra, rennihurðir
beggjamegin, kúla og þakbogar. TILBOÐSVERÐ
1.550.000 kr. + vsk. Raðnúmer 250494
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Sóttvarnalæknir og landlæknir
sendu þriðjudaginn 24. mars bréf til
skólastjórnenda, kennara og for-
eldra barna í leik- og grunnskólum.
Var þar áréttað mikilvægi þess að
nemendur héldu áfram að sækja
skóla þrátt fyrir takmarkanir á
skólastarfi vegna hraðrar útbreiðslu
kórónuveiru hér á landi.
Tveir leikskólastjórnendur á höf-
uðborgarsvæðinu sem Morgunblaðið
ræddi við segja bréfið ekki samrým-
ast fyrri leiðbeiningum. Segjast þeir
óttast smit með aukinni mætingu.
„Við höfðum áður fengið þær upp-
lýsingar frá yfirmönnum okkar að
reyna að takmarka barnahópinn í
húsinu eins og kostur er,“ segir Val-
borg Guðlaugsdóttir, leikskólastjóri í
leikskólanum Langholti í Reykjavík.
Helmingur barna skráður í
leikskólann á hverjum degi
„Hjá okkur er nú helmingur barna
skráður í leikskólann á hverjum
degi. Svo kemur það upp að við erum
beðin um að taka á móti forgangs-
beiðnum, sem við og gerum. Við tök-
um þá strax ákvörðun um að opna
sér forgangsdeildir og erum í dag
með þrjár deildir af níu fyrir for-
gangsbörn,“ segir Valborg.
Þá segir hún starfsfólk leikskólans
sl. vikur hafa hvatt þá foreldra sem
ekki þurfa nauðsynlega á leikskóla-
þjónustu að halda að hafa börn sín
heima. Eru það t.a.m. foreldrar sem
vinna heima eða eiga af öðrum
ástæðum auðvelt með að hafa börnin
á heimilinu. Á móti auðveldar þetta
þeim foreldrum sem verða að hafa
börn sín á leikskóla aðgengi að skól-
anum. Áskrifendur geta lesið frekari
umfjöllun um þetta mál á mbl.is
Óttast smit á
leikskólunum
Bréf samrýmist ekki leiðbeiningum
Morgunblaðið/Eggert
Leikskólar Ólga er sögð meðal
skólastjórnenda vegna bréfsins.
Skannaðu kóðann
til að lesa meira á
mbl.is
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Valgerður Á. Rúnarsdóttir, forstjóri
sjúkrahússins Vogs, hefur sagt upp
störfum. Þetta herma heimildir
Morgunblaðsins. Sendi hún stjórn
SÁÁ tölvupóst þess efnis í gær. Val-
gerður hefur verið yfirlæknir sam-
takanna frá maímánuði 2017 þegar
hún tók við starfinu af Þórarni Tyrf-
ingssyni. Hafði hún fram að því verið
sérfræðilæknir og yfirlæknir á
sjúkrahúsinu Vogi í 18 ár.
Ástæða uppsagnarinnar er sögð
vera djúpstæður ágreiningur við
Arnþór Jónsson, formann SÁÁ.
Hann er starfandi formaður á skrif-
stofu samtakanna og hefur því átt í
nánu samstarfi við Valgerði á um-
liðnum árum. Hann tók við for-
mennsku í samtökunum árið 2013
þegar Gunnar Smári Egilsson lét af
þeim störfum.
Á sér langan aðdraganda
Að sögn heimildarmanna Morgun-
blaðsins hefur ágreiningurinn átt sér
ýmsar birtingarmyndir en náði há-
marki í gær í kjölfar þess að stjórn
SÁÁ fundaði á miðvikudag og ákvað
að ráðast í umtalsverðar breytingar
á rekstri Vogs, Eftirmeðferðar-
stöðvarinnar Víkur á Kjalarnesi og
göngudeilda sem samtökin reka,
ekki síst vegna þeirra áskorana sem
mæta samtökunum í kjölfar þess að
kórónuveiran setti allt úr skorðum,
bæði í íslensku heilbrigðiskerfi og
efnahagslífinu almennt.
Á stjórnarfundinum ákvað meiri-
hluti stjórnar að fela Valgerði að
leiða umræddar breytingar. Mun
það hafa verið gert í andstöðu við
vilja formanns stjórnar. Segja heim-
ildir Morgunblaðsins að Valgerður
hafi í kjölfarið talið formanninn hafa
gripið harkalega fram fyrir hendur
sínar í þeim störfum.
Stjórnin mun funda um stöðuna
Er gert ráð fyrir því að stjórn
SÁÁ muni funda um þá stöðu sem nú
er komin upp á allra næstu dögum.
Gagnkvæmur uppsagnarfrestur í
ráðningarsamningi Valgerðar er
þrír mánuðir og bendir flest til þess
að hún muni sinna störfum sínum
fyrir samtökin þann tíma.
Morgunblaðið leitaði frekari skýr-
inga á uppsögninni hjá Valgerði í
gærkvöldi. Vildi hún hvorki gefa
skýringar á ákvörðun sinni né heldur
staðfesta að hún hefði sagt starfi
sínu lausu. Þá náðist ekki í Arnþór
Jónsson við vinnslu fréttarinnar.
Valgerður segir upp hjá SÁÁ
Djúpstæður ágreiningur við formann SÁÁ sagður meginskýring uppsagnarinnar Stjórn samtakanna
klofin í málinu Erfið rekstrarstaða og flókin úrlausnarefni á sjúkrahúsinu í skugga heimsfaraldurs
Morgunblaðið/Eggert
Vogur Starfsemi SÁÁ er umfangsmikil og veltir um 1,5 milljörðum árlega.
Valgerður Á.
Rúnarsdóttir
Arnþór
Jónsson