Morgunblaðið - 27.03.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 27.03.2020, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Kínverskstjórn-völd hafa verið dugleg upp á síðkastið við að hrósa sjálfum sér fyrir fumlaus og örugg viðbrögð við kórónuveirufaraldrinum. Er þá jafnan bent á stöðuna í hinum vestrænu lýðræðis- ríkjum, nú þegar faraldur- inn er þar á byrjunarstigi, en á sama tíma er forðast að nefna viðbrögðin í Suður- Kóreu, Japan eða Taívan, sem einnig hafa náð góðum árangri gegn veirunni, þrátt fyrir að vera ekki alræðis- ríki. Tsjernóbyl-slysið og við- brögð stjórnvalda í Sovét- ríkjunum við því urðu á sín- um tíma til þess að eyða því litla sem eftir var af trú- verðugleika þeirra, þar sem það varpaði skýru ljósi á þá staðreynd að í engu var hægt að treysta á þær yfir- lýsingar sem stjórnvöld gáfu. Þaggað var niður í þeim sem vildu vara við, og stofnanir lögðust á eitt í af- neitun vandamálsins. Um leið stofnuðu Sovét- menn ekki bara sínu eigin fólki, heldur flestum þjóðum Austur-Evrópu, í umtals- verða hættu, þar sem alls ekki mátti kasta rýrð á ímynd flokksins eða hugsjón kommúnismans, sem var þó fyrir löngu horfin flestum. Því hefur verið haldið fram síðar, að Tsjernóbyl-slysið hafi í raun verið upphafið að endalokum Sovétríkjanna, einmitt vegna þessara slæ- legu viðbragða stjórnvalda. Viðbrögð kínversku kommúnistastjórnarinnar við upphafi faraldursins minnir um margt á þá tíma. Nú er vitað, að fyrstu tilfella kórónuveirunnar varð vart í Wuhan í lok nóvember, eða rúmum mánuði áður en Kín- verjar viðurkenndu að um faraldur væri að ræða og tveimur mánuðum áður en þeir settu íbúa Wuhan í stranga sóttkví. Þegar ungur læknir, Li Wenliang, tók eftir því að fólk væri að koma á sjúkra- húsið sem hann vann við með einkenni sem minntu á SARS-faraldurinn, varaði hann kollega sína við yfir samfélagsmiðla. Fyrir það fékk hann opinbera áminn- ingu fyrir að „dreifa rang- færslum á net- inu“, sem fyrst nú hefur verið dregin til baka. Aðrir, sem reyndu að gefa umheiminum mynd af ástand- inu í Wuhan, hafa horfið sporlaust. Afleiðing þessarar stefnu birtist okkur nú á hverjum degi. Kórónuveirufarald- urinn hefði líklega ekki þurft að blossa upp eða verða að heimsfaraldri, ef sannleikurinn hefði mátt ráða, frekar en ótti um að Kommúnistaflokkurinn liti illa út. Fyrir vikið er álits- hnekkir hans þeim mun meiri og traustið fer þverr- andi, eins og sást af við- brögðum á kínverskum sam- félagsmiðlum við því þegar Wenliang lést af völdum veirunnar. Það er eflaust þess vegna, sem stjórnvöld í Kína leggja sig nú í líma við að þagga umræðuna á ný, eða það sem verra er, reyna að breyta sögunni um upphaf farald- ursins. Meðal annars hefur því verið haldið fram að veiran hafi verið búin til í Bandaríkjunum, og að Bandaríkjaher eigi einhvern þátt í að faraldurinn blossaði upp í Wuhan-borg. Þá hafa sumir kínverskir fjölmiðlar reynt að láta líta svo út sem upphafsstað kórónuveir- unnar sé að finna á Norður- Ítalíu. Önnur aðferð sem kín- verski Kommúnistaflokk- urinn hefur beitt til þess að hylja stöðuna í eigin landi er að vísa erlendum blaða- mönnum úr landi fyrir litlar sem engar sakir, með þeim afleiðingum að færri eru nú til staðar þar sem geta varp- að ljósi á hið sanna ástand í Kína. Hvort hin hrikalegu mis- tök, sem kínversk stjórnvöld gerðu í upphafi faraldursins, kveiki neista frelsis þar í landi líkt og Tsjernóbyl gerði skal ósagt látið, þar sem kommúnistastjórnin hefur frekar hert á heljar- tökum sínum síðustu vik- urnar en hitt. Það ætti þó að vera orðið flestum ljóst, að stjórnarfar, sem þolir ekki að sannleikurinn sé birtur, jafnvel þegar mannslíf liggja við, er ekki mikils virði. Leyndarhyggja kommúnista- flokksins hefur afhjúpað bresti stjórnarfarsins} Hið kínverska Tsjernóbyl? Þ egar við fórum inn í nýtt ár var fáa sem grunaði að þremur mánuðum síðar myndi geisa skæður heimsfar- aldur sem ógnar lífi og heilsu jarðarbúa svo og efnahag flestra þjóða heims. Voldug ríki Daglega berast hræðilegar fréttir utan úr heimi af sýkingu og dauðsföllum af völdum veir- unnar og voldug ríki vestan hafs og austan und- irbúa umfangsmiklar efnahagsaðgerðir til að verja hagkerfi sín gegn þeirri vá sem að steðjar. Öflug heilbrigðiskerfi kikna undan álaginu, ferðalög á milli landa hafa að mestu lagst af og heilu atvinnugreinarnar eru óstarfhæfar. Í raun mætti segja að það sé búið að slökkva á helstu hagkerfum heims. Við Íslendingar höfum ekki farið varhluta af þessu ástandi. Íslensk stjórnvöld hafa brugðist við með margvíslegum aðgerðum á sviði heilbrigðismála. Þá hafa stjórnvöld einnig kynnt umfangsmiklar aðgerðir til að verja efnahag heimila og fyrirtækja og búa íslenskt atvinnulíf und- ir þær hremmingar sem eru fram undan – og það sem meira er, það sem síðan tekur við. Markmiðið er að efnahagslífið geti tekið hratt og örugglega við sér þegar faraldurinn er yfirstaðinn. Heildarumfang efnahagsaðgerða ríkisstjórnarinnar gæti numið yfir 230 milljörðum króna. Aðgerðunum er öðru frem- ur ætlað að vinna gegn atvinnuleysi og tímabundnum tekju- missi einstaklinga. Fyrirtækjum verður skapað svigrúm til að lækka starfshlutfall hjá launafólki tíma- bundið og viðhalda þar með ráðningarsambandi á meðan erfiðustu mánuðirnir ganga yfir. Sér- stakur barnabótaauki verður greiddur út í júní með hverju barni yngra en 18 ára og þannig hugað sérstaklega að barnafjölskyldum. Þessar aðgerðir og fleiri til munu minnka efnahagslega áfallið sem við horfum fram á. Ljóst er að tekjur fjölda fyrirtækja munu skerðast vegna ástandsins. Að öllu óbreyttu hefðu mörg þeirra gripið til uppsagna. Með að- gerðum stjórnvalda er þó lagt kapp á að verja störfin. Þá er aðgerðunum ætlað að auðvelda heimilum og fyrirtækjum að takast á við það tímabundna tekjutap sem þau kunna að verða fyrir. Þannig er dregið úr óvissu og hjólum at- vinnulífsins haldið gangandi. Það er dýrmætt fyrir Ísland að vera í þeirri stöðu að geta varið störf og gripið til nauðsyn- legra aðgerða til að minnka höggið á hagkerfið. Ástæðan er sú að þetta ástand mun á einhverjum tímapunkti líða hjá og þá er mikilvægt að við séum vel í stakk búin til að láta hjólin snúast á nýjan leik. Hið frjálsa markaðshagkerfi þarf að fá svigrúm til að starfa á ný þegar þessu ástandi lýkur, því þannig munum við ná árangri til lengri tíma. Þetta eru fyrstu aðgerðir og líkast til ekki þær síðustu. Vegna skynsamrar hagstjórnar síðustu ára er möguleiki að bregðast við ef og þegar nauðsyn krefur. Það eru ekki öll ríki sem búa svo vel, en það gerum við sem betur fer. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Dýrmæt staða á erfiðum tímum Höfundur er dómsmálaráðherra. aslaugs@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Framkvæmdir við sam-göngumannvirki erustærsti einstaki liðurinn ísérstöku 15 milljarða átaki ríkisstjórnarinnar til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru. Þings- ályktunartillaga um þessar aðgerðir hefur verið lögð fram á Alþingi og var tekin til umræðu í gær. Með átakinu er gert ráð fyrir því að á þessu ári renni 200 milljónir króna í framkvæmdir vegna stækk- unar Grensásdeildar Landspítalans. Áætlaður heildarkostnaður vegna viðbyggingarinnar er um 1,6 millj- arðar sem áformað er að fjármagna að fullu á næstu þremur árum. Áformað er að byggja nýja hjúkr- unardeild á Húsavík sem kemur í stað eldri byggingar á lóðinni og eru 200 milljónir áætlaðar í verkefnið. 100 milljónum verður varið til áfangaheimilis fyrir þolendur heim- ilisofbeldis og 100 milljónum í bygg- ingu sérhæfðs húsnæðis vegna vist- unar á einstaklingum 18 ára og eldri sem þurfa öryggisvistun. 100 millj- ónir eru áætlaðar vegna byggingar flugskýlis fyrir Landhelgisgæsluna á Reykjavíkurflugvelli sem nýtt verður undir þyrlur. Menning í samkomubanni Rannsóknir, nýsköpun og skap- andi greinar fá 1.750 milljónir. Meðal annars er um að ræða styrkveitingar til menningar- og listaverkefna fyrir almenning og eiga 750 milljónir að fara til þess verkefnis. Þannig verði komið til móts við samkomubann með því að landsmenn fái notið menningar og lista með nýstárlegum hætti. Einnig á að styðja við íþróttastarf. Alls fara rúmlega 6,2 milljarðar í samgöngumannvirki eða 41% af heildarupphæðinni. Verja á 1.860 milljónum í margvíslegar vegabætur og hönnun til viðbótar við gildandi fjárveitingar. Nefna má hönnun og undirbúning annars vegar vegna breikkunar Reykjanesbrautar frá Fjarðarhrauni að Mjódd og hins- vegar vegna útfærslu Breiðholts- brautar frá Jaðarseli að Suðurlands- vegi. Fleiri verkefni á að ráðast í á höfuborgarsvæðinu, en einnig er að finna á listanum framkvæmdir við Krýsuvíkurveg, Snæfellsnesveg um Skógarströnd og Þverárfjallsveg svo dæmi séu tekin. Þá á að setja milljarð í fram- kvæmdir vegna tengivega og annar milljarður fer í ýmsar aðgerðir í við- haldi á vegum. Breikkað og dýpkað Breikka á einbreiðar brýr fyrir 700 milljónir og eru þær yfir Gilsá á Völlum, Botnsá í Tálknafirði, Bjarna- dalsá í Önundarfirði, Núpsvötn, Stóru-Laxá á Skeiða- og Hruna- mannavegi, Skjálfandafljót hjá Foss- hóli við Goðafoss og í Köldukvíslargili á Norðausturvegi. 200 milljónum á að verja í hringtorg við Landvegamót, á Eyrarbakkavegi og á Flúðum. Fram- kvæma á fyrir alls 550 milljónir á og við flugvellina á Akureyri og Egils- stöðum, eins og greint hefur verið frá. Í hafnarframkvæmdir eiga að fara 750 milljónir, m.a. til dýpkunar í Sandgerði, Ólafsvík, Þorlákshöfn, Þórshöfn og Súðavík og landfylling á Bíldudal er meðal verkefna. Rúmlega tveir milljarðar sam- tals fara í viðhald og endurbætur fast- eigna. Meðal annars á að ráðast í við- hald á húsnæði Verkmenntaskólans á Akureyri, Tækniskólans á Skóla- vörðuholti, Fjölbrautaskóla Vestur- lands, Framhaldsskólans á Húsavík, Menntaskólans við Hamrahlíð og Menntaskólans á Laugarvatni. Vinna á að endurbótum á Gljúfrasteini, Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg og Landbúnaðarhá- skólanum að Reykjum í Ölfusi. Fjölmörg verkefni í 15 milljarða átaki Sérstakt tímabundið fjárfestingarátak Verkefni í fjáraukalögum 2020 til að vinna gegn samdrætti í hagkerfi nu Verkefnafl okkar Milljónir kr. % Samgöngumannvirki 6.210 41% Viðhald og endurbætur fasteigna 2.008 13% Rannsóknir, nýsköpun og skapandi greinar 1.750 12% Önnur innviðaverkefni 1.617 11% Verkefnafl okkar Milljónir kr. % Orkuskipti, grænar lausnir og umhverfi smál 1.365 9% Stafrænt Ísland og upp- lýsingatækniverkefni 1.350 9% Nýbyggingar og meiri- háttar endurbætur 700 5% 15.000 milljónir kr. alls Heimild: Stjórnarráðið. Mynd: Wikimedia. Milljónir í aðgerðir » 592 Verkefni tengd óveðri í vetur, m.a. að flýta verk- efnum, efla viðbrögð, kaupa búnað og auka vöktun nátt- úruvár. » 500 Orkuskipti í sam- göngum og átak í bindingu kol- efnis. » 500 Verkefni við endur- nýjun upplýsingatæknikerfa og eflingu tækniinnviða. » 500 Stafrænt Ísland, verkefni til að til að hraða enn stafvæðingu opinberrar þjón- ustu í samstarfi við stofnanir. » 300 Aðstaða á vegum þjóðgarða. » 200 Fráveitumál, upp- bygging hjá sveitarfélögum. » 200 Aukin framlög til Framkvæmdasjóðs ferða- mannastaða. » 350 Ofanflóðavarnir á Patreksfirði, Eskifirði og í Nes- kaupstað. » 800 Efla á Rannsóknasjóð og Innviðasjóð og auka fram- lög í Tækniþróunarsjóð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.