Morgunblaðið - 27.03.2020, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 27.03.2020, Qupperneq 32
Í streyminu Heima í Hörpu í dag ætla liðsmenn Dúó Stemmu, þau Herdís Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverksleikari að spila ýmis þjóðlög og segja hljóðsöguna sína um vináttuna. Þau leika á ýmis hljóðfæri bæði hefðbundin svo sem víólu og ma- rimbu og óhefðbundin svo sem hrossakjálka, íslenska steina, plast og tebrúsa. Streymið hefst kl. 11 og má sjá á vefnum sinfonia.is og á Facebook-síðu Hörpu. Nánar er rætt við Láru Sóleyju Jóhannsdóttir framkvæmda- stjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands um streymið. »29 Hljóðsaga um vináttu Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af gamla fólkinu okkar þó svo það sé ekki hægt að heimsækja það,“ segir Kristrún Steinarsdóttir í pósti til Morgunblaðsins og vekur athygli á góðu starfi starfsfólks Hrafnistu í Hafnarfirði. Árdís Hulda Eiríksdóttir, hjúkr- unarfræðingur og forstöðumaður á Hrafnistu, segir að í þessu erfiða ástandi, þegar þurft hafi að loka heimilinu vegna sam- komubanns á meðan kórónu- veiran raskar lífi fólks, sé reynt að brjóta upp alla daga. „Það er auðvitað gríðarlega erfitt fyrir alla að aðstand- endur megi ekki koma í heimsókn og því ákváðum við strax að leggja auka- lega í hvern dag.“ Auk hefðbundinnar dagskrár, sem samanstendur meðal annars af öflugu félagsstarfi, iðjuþjálfun og sjúkra- þjálfun, hefur einkum verið lagt upp úr því að gera kaffitímana ánægju- lega með sérstökum glaðningi. Árdís Hulda segir að til dæmis hafi verið boðið upp á sherrýstaup með kaffinu, ís og ávexti. „Eitthvað sem vekur ánægju,“ eins og hún orðar það. Gleðinni deilt til aðstandenda Stefnt er að því að vera með sér- stakan þemadag fyrir íbúa og starfs- menn á föstudögum. Fyrir viku var ákveðið að allt starfsfólk mætti til vinnu í litríkum fötum og íbúar tóku virkan þátt í glensinu rétt eins og föstudaginn þar á undan þegar hald- inn var sérstakur hattadagur. Í dag verður þemað helgað stíl Ölmu Möll- er landlæknis. „Alma er ekki bara glæsileg kona sem er flott í fatavali heldur einnig framúrskarandi í sínu starfi og hver vill ekki vera eins og Alma á þessum tímum,“ segir Árdís Hulda. „Þessi nýbreytni hefur vakið mikla ánægju og aukið gleðina.“ Í salnum á jarðhæðinni er hljóð- kerfi og þrátt fyrir samkomubannið hefur listafólk getað komið á svæðið og notað kerfið. Listamennirnir standa fyrir framan myndavél og míkrófón, við tökum upp og vörpum á öll sjónvarpstæki hjá okkur,“ segir Árdís Hulda og leggur áherslu á að allt listafólkið geri þetta endurgjalds- laust. Auk þess hafi mörg fyrirtæki tekið mjög vel í að gleðja íbúa og starfsmenn með gjöfum eins og gos- drykkjum og sælgæti. „Þessi glaðn- ingur hefur vakið mjög mikla ánægju og ekki síst rausnarleg gjöf frá Lions- klúbbunum Ásbirni og Kaldá, sem færðu okkur 16 spjaldtölvur, heyrnartól og magnara fyrir þá sem eru með mikið skerta heyrn, um liðna helgi. Tölvurnar eru komnar í notkun og íbúar geta notað þær til þess að tala við sitt fólk.“ Þrátt fyrir mikla röskun er grunn- tónninn á Hrafnistu að halda uppi gleði og deila henni til aðstandenda. Heimilið er með Facebook-síðu, handverksheimilið Hrafnista. Þar eru birtar fréttir af starfinu og hvað er á dagskrá. Hver deild er auk þess með lokaða aðstandendasíðu. Árdís Hulda segir vegna persónuverndarlöggjafar- innar hafi verið þrengt að þessum upplýsingasíðum en í ljósi breyttra að- stæðna hafi með samkomulagi við ættingja og íbúa verið opnað meira á síðurnar, sem séu áfram lokaðar fyrir alla nema þá. „Þarna setjum við inn myndir daglega, hvað við erum að gera og höfum ekki fundið fyrir neinu nema þakklæti vegna þessa,“ segir Árdís Hulda. „Það er ekki þannig að við sitjum bara og gerum ekki neitt.“ Allir leggjast á árarnir, jafnt íbúar sem starfsmenn. „Allir eru svo sam- taka og jákvæðir í að láta hlutina ganga vel,“ áréttar Árdís Hulda. Allir í stíl eins og Alma  Föstudagar eru þemadagar á Hrafnistu í Hafnarfirði Hattadagur Starfsmenn og íbúar eru með þemadaga á föstudögum. Litagleði Litirnir réðu ríkjum á Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir viku. FÖSTUDAGUR 27. MARS 87. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Kristinn Björgúlfsson tekur við þjálfun karlaliðs ÍR í handbolta fyrir næsta keppnistímabil í kjölfarið á mikl- um niðurskurði hjá félaginu vegna fjárskorts. „Það er alveg hægt að taka það fram hér og nú að ÍR hefur aldr- ei átt neinn pening. Þetta er hins vegar í fyrsta skiptið sem einhver þorir að stíga upp og segja það. Við verð- um ekki síðasta liðið til þess að segjast vera í fjárhags- vandræðum, það er alveg á hreinu. Það hefur verið ákveðinn feluleikur í gangi hjá mörgum félögum, undanfarin ár, en núna vita allir hvar við stöndum og það er gott að feluleiknum sé lokið,“ segir Kristinn í ítarlegu viðtali í blaðinu í dag. »27 Feluleiknum er loksins lokið ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.