Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2020, Blaðsíða 10
KÓRÓNUVEIRAN 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.3. 2020 Það er ekki svo mikið mál að vera í sóttkví;ég er nefnilega í þannig vinnu að ég ervanur að vera mikið einn, ekki síst á hót- elherbergjum erlendis milli æfinga og sýninga. Óperusöngvarar kunna upp til hópa að drepa tímann,“ segir Bjarni Thor Kristinsson óp- erusöngvari, en hann hefur verið í sóttkví á heimili sínu í Garðabæ frá því um síðustu helgi, að hann kom heim frá Ítalíu. Bjarni hafði farið utan þremur vikum fyrr til að taka þátt í æfingum á óperunni Pelléas og Mélisande eftir Claude Debussy í Parma. Þá hafði kórónuveiran enn ekki gert usla í landinu en það breyttist hratt meðan á æfingum stóð og fyrir vikið var ákveðið að fresta sýningum um óákveðinn tíma. „Við reyndum að æfa sýn- inguna til að hafa hana svo gott sem tilbúna og það tókst. Kakan er eiginlega al- veg bökuð; það á bara eftir að bera hana fram,“ segir Bjarni en bætir við að ólík- legt sé að sýningin verði frumsýnd fyrr en á næsta leikári. Þegar ákveðið var að loka borginni gafst fólki skammur tími til að koma sér í burtu og Bjarni færði sér það í nyt. „Mér leist mun betur á að fara í sóttkví hér heima en að sitja fastur á Ítalíu í mánuð. Ég rétt slapp fyrir horn, korteri fyrir lokun.“ Einn heima í sóttkví Bjarni er einn í sóttkví; konan hans, Lilja Guð- mundsdóttir, gistir hjá ættingjum á meðan, en hún var ekki með honum á Ítalíu. „Hún dreif sig bara að fylla ísskápinn áður en ég kom heim. Það væsir ekki um mig hérna.“ Bjarni gerir ekki ráð fyrir að lenda í vand- ræðum með að finna sér eitthvað að gera í sótt- kvínni. Samfélagsmiðlar og gamli góði síminn geri honum kleift að halda góðu sambandi við umheiminn. „Ég held að lykilatriðið í þessu sambandi sé fjölbreytni. Auðvelt er að detta í afþreyinguna og þótt hún sé út af fyrir sig ágæt held ég að hún dugi ekki ein og sér til lengdar. Alveg sama hvað við teljum okkur eiga eftir að horfa á margar seríur í sjónvarpinu. Maður verður hálfþunglyndur af of miklu glápi. Þess vegna er mikilvægt að gera fleira; svo sem að lesa góða bók eða taka til í gömlu dóti. Verst að sjálfur kemst ég ekki í geymsluna mína; hún er í sameigninni hér í húsinu,“ segir hann hlæj- andi. Bjarni er í lausamennsku og fær því ekki greidd laun í sóttkvínni. „Það er ókosturinn við lausamennskuna; atvinnuöryggið er ekki nægi- lega mikið. Við aðstæður sem þessar, þegar sýningum er frestað vegna ytri aðstæðna, ber óperuhús- inu ekki að greiða okkur laun. Við vorum hins vegar búin að vera í þrjár vikur við æfingar, þannig að mögulega verður komið eitthvað til móts við okkur. Það á eftir að koma í ljós.“ Næstu verkefni hjá honum eiga að vera í Þýskalandi og Japan í vor en Bjarni er ekki bjartsýnn á að af þeim verði. „Ég á ekki von á því að mikið verði um tónleikahald og óperu- sýningar á næstunni.“ Tónleikar á svölunum? Í pistli á Facebook í vikunni velti Bjarni í léttu tómi fyrir sér hvernig hann gæti bætt sér upp tekjutapið. „Það mætti svo sem halda úti- tónleika af svölunum. Ég fékk m.a.s. hljóðkerfi í jólagjöf og gæti því haldið uppi stemningu í öllu Akurhverfinu. Í versta falli myndu ná- grannarnir borga mér fyrir að hætta,“ skrifaði hann. Söngvarinn hlær þegar þetta er borið undir hann. „Ég get fullvissað þig um að þessari hug- mynd verður ekki hrint í framkvæmd. En við þessar aðstæður getur verið gott að stytta sér stundir með léttu gríni. Við megum ekki tapa gleðinni.“ Annað sem Bjarni velti fyrir sér í færslunni var að gerast áhrifavaldur á samfélagsmiðlum en það væri ekki líklegt til vinsælda; „yrði hálf- gert áhrifaskvaldur“. Svo var það þessi áhugaverða pæling: „Plan- ið var alltaf líka að komast að hjá Storytel. Mér finnst svo gaman að hlusta á bækurnar þar. Að labba um miðborg Parma með Höllu og heið- arbýlið í eyrunum var frábær upplifun. Segjum sem svo að forstjóri Storytel Group lesi þessa færslu, fyndist honum þá í lagi að ég læsi upp hérna heima? Ég á flottan hljóðnema! Þetta gæti verið nýr flokkur hjá Storytel. „Sögur úr sóttkví – Bjarni Thor les gamlar símaskrár á leikrænan hátt!““ Snúum saman bökum! Þetta lauflétta grín þýðir ekki að Bjarni velkist í vafa um alvarleika ástandsins sem við búum við. „Ég er ekki einn um tekjutapið; fyrirtæki og einstaklingar eiga víða erfitt og mikilvægt að við snúum saman bökum sem samfélag, eins og við höfum gert svo oft áður. Lykilatriðið í þessu öllu saman er auðvitað heilsa manna og vonandi tekst okkur að hefta útbreiðslu veir- unnar sem fyrst.“ Hann sér ekki annað en að vel hafi verið staðið að öllu hér á landi og til dæmis hafi verið mun fyrr gripið til aðgerða hér en á Ítalíu. „Ítalir voru lengi í gang; það vantar svolítið borgaralegu hlýðnina í þá. Meðan ég var úti voru þeir ekki mikið að þvo sér um hendurnar og spritta sig. Heldur voru þeir þó farnir að faðmast og kyssast minna og takast í hendur. Ég vænti þess þó að þetta hafi gjörbreyst um leið og gripið var til þessara víðtæku aðgerða í byrjun vikunnar.“ Fljót að taka við okkur Bjarna þykir við Íslendingar hafa verið mun fljótari að taka við okkur. „Einn helsti kostur þessa litla samfélags okkar er að við erum alla jafna mjög fljót að tileinka okkur nýja hluti, hvort sem þeir eru góðir eða slæmir. Vonandi dugar það til að hægja á þessu ferli. Það gleður mig líka að enginn hefur notað þetta ástand til að slá pólitískar keilur. Það skiptir öllu máli að hér verði ekki upplausn og ég veit ekki hverjir eru betur til þess fallnir að miðla upplýsingum en fagfólkið okkar og sérfræðingarnir sem tal- að hafa milliliðalaust við þjóðina á blaðamanna- fundum í beinni útsendingu að undanförnu. Ég er alla vega rosalega glaður að vera kominn hingað heim en sitja ekki fastur einhvers staðar í útlöndum. Ég hef trú á því að okkur takist að komast þokkalega í gegnum þetta.“ BJARNI THOR KRISTINSSON ÓPERUSÖNGVARI Óperusöngvarar kunna að drepa tímann Bjarni Thor Kristinsson óperusöngvari reiknar ekki með að halda útitónleika af svölunum í sóttkvínni. Morgunblaðið/Eggert ’Mér leist mun bet-ur á að fara í sóttkvíhér heima en að sitjafastur á Ítalíu í mánuð. Ég rétt slapp fyrir horn, korteri fyrir lokun. Í slendingar hafa ekki farið varhluta af kórónuveirufaraldrinum frekar en svo margar aðrar þjóðir vítt og breitt um heiminn. Yfir hundrað Íslendingar eru nú smitaðir af veirunni og mörg hundr- uð í sóttkví og ljóst að faraldurinn á eftir að setja sterkan svip á líf okkar allra á næstunni. Faraldurinn á sem kunnugt er upptök sín í Kína en með samstilltu átaki hefur tekist að ná góðum tökum á vandanum þar um slóðir, svo sem fram kemur í samtali við Snorra Sigurðs- son, framkvæmdastjóra Arla Foods í Peking, hér til hliðar. Ekki þarf að fjölyrða um ástandið á Ítalíu sem er með öllu fordæmalaust. Þar var Bjarni Thor Kristinsson óperusöngvari við æfingar en slapp heim „korteri fyrir lokun“ og er feg- inn að vera í sóttkví hér heima en ekki ytra. Nú breiðist veiran út um Bandaríkin sem gripu til harðra aðgerða með því að setja ferðabann á Evrópu í vikunni, við dræmar undirtektir. Hildur Ásgeirsdóttir listakona segir lífið ganga sinn vanagang í Cleveland enn sem komið sé en fólk sé þó á varðbergi. „Þetta eru undarlegir tímar og það er mik- ilvægt að fara ekki á taugum,“ segir hún. Sótt að heims- byggðinni Kórónuveiran fer eins og eldur í sinu um heimsbyggðina og víða hefur verið gripið til róttækra aðgerða til að freista þess að draga úr smiti. Sunnudagsblaðið heyrði hljóðið í þremur Ís- lendingum, sem ýmist búa erlendis eða eru nýkomnir heim. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.